Bændablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 7
Það gekk heldur illa hjá Hand- knattleikssambandinu að finna nýjan landsliðsþjálfara eftir að Alfreð hætti. Davíð Hjálmar orti af þessu tilefni: Þeir hafa reynt við hetjur jafnt sem bjálfa en handboltalið vilja fæstir þjálfa og engir hafa á því lengur trúna. Ætli Fídel sé á lausu núna? Varla gæti það versnað Og Hjálmar bætir við: Trúlega breytti það batahorfum og bjargaði því sem nú er galið, ef HSÍ leitaði að loðnutorfum en léti Hafró um þjálfaravalið. Stundar körfu Stefán Vilhjálmsson svaraði: Davíð Hjálmar drepur á dægurmálin þörfu, en feil hjá honum finna má, Fidel stundar körfu. Aldrei tapað leik Hreiðar Karlsson heldur áfram: Allir sjá að eitthvað þarf að reyna, okkar staða sýnist fremur veik. Fidel Castro kemur vel til greina, karlinn hefur aldrei tapað leik. Fyrr að sofa Össur Skarphéðinsson er mikil- virkur bloggari og þykir fremur orðljótur. Hann ku alltaf senda út bloggið sitt um miðjar nætur. Hjálmar Freysteinsson læknir gefur Össuri gott ráð: Munnsöfnuðinn mætti spara, missa annars kynni völdin. Kannski Össur ætti að fara aðeins fyrr að sofa á kvöldin. Innst í hjarta Óttar Einarsson segir: Innst í hjarta á ég kraft sem aðra friði rænir, og „utan dagskrár“ er með kjaft eins og Vinstri-grænir! Pólitísk embættisveiting Magnús Stefánsson orti, þegar Árni Mathiesen, fjármálaráð- herra og dýralæknir, skipaði son Davíðs í embætti dómara fyrir norðan og austan: Mikilhæfast manna val marki fráleitt náði því Davíðs sonur dæmdur skal að dýralæknisráði. Alltaf vita hvað er rétt Aðdáun og undrun hafa aukið hjá mér jafnt og þétt þeir sem aldrei eru í vafa og alltaf vita hvað er rétt. Höfundur vísunnar er Kristján Ólason (1894-1975). Kristján var fæddur í Kílakoti í Kelduhverfi og ólst upp í þeirri sveit til tví- tugs. Hann stundaði lengst af verslunarstörf á Húsavík. Eintómt spól Ísleifur Gíslason, kaupmaður á Sauðárkróki fyrrum daga, orti þessa skemmtilegu vísu: Aksturinn varð eintómt spól, olían af versta tagi. Engir hemlar, ónýt hjól, allt í þessu fína lagi. Besti matur Haraldur Hjálmarsson á Kambi var talinn með snjöllustu hag- yrðingum á sínum tíma, en hann fædist árið 1909 og lést 1970. Honum þótti sopinn góður eins og þessi vísa sýnir best: Brennivín er bezti matur, bragðið góða svíkur eigi. Eins og hundur fell ég flatur fyrir því á hverjum degi. Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson ss@bondi.is Í umræðunni Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 20087 Mælt aF Munni FraM Virðulegi ráðherra, fulltrúar á Búnaðarþingi, góðir samkomugestir. Þegar bóndanum á Bessastöðum er boðið að ávarpa Búnaðarþing er það ábúendum jarðarinn- ar fagnaðarefni en vekur um leið nokkurn sökn- uð eftir þeim tímum þegar umsvifin voru meiri á staðnum, kýr í fjósi og ræktunin stórtæk. Að vísu reynum við Dorrit með góðri hjálp að rísa undir nafnbótinni; æðarvarpið á hverju ári umtalsvert þótt mér hafi lærst af ötulum æðarbændum að vera ekki að mikla uppgripin á öðrum bæjum. Heyfengurinn er líka töluverður, sláttumenn iðnir á sumarkvöldum; hlaðan full á hverju hausti. Dorrit hefur reyndar viljað auka umsvif- in verulega, reisa fjárhús, kaupa kindur, virkja fjósið til framleiðslu á nýjan leik, hafa hunda, hænsn og hesta í hlaðvarpanum. Oft gengur mér erfiðlega að útskýra fyrir henni að skipulagið á landsframleiðslunni, samningar ríkis og bænda, gerir því miður ekki lengur ráð fyrir alvörubú- skap á Bessastöðum; nafnbótin bóndi sé forset- anum á síðari árum fyrst og fremst sæmdarheiti. Engu að síður tengist staðurinn enn búnaðar- vitund Íslendinga og vekur hina fjölmennu sveit sem ber að garði á hverju ári, áhrifafólk víða að úr veröldinni, til hugsunar um mikilvægi land- búnaðar í sögu og menningu þjóðarinnar, hve ríkan þátt ræturnar í sveitum landsins eiga í ætt- jarðarást og sjálfsvitund Íslendinga. Það voru hugdjarfir bændur sem námu hér land, stofnuðu Alþingi við Öxará, gerðu lög og rétt að æðstu reglu, skópu efnivið í frægar sögur, slátruðu kálfum í þúsundatali svo hægt væri að skrá þær á skinn, lögðu grundvöll að sérstöðu þjóðarinnar og renndu stoðum undir þá rök- semdafærslu sem best dugði þegar skólagengnir bændasynir hófu baráttu fyrir sjálfstæði og end- urreisn. Það er áleitin spurning hvernig Íslendingum tókst að þrauka um aldir í útnorðrinu þrátt fyrir margvíslega áþján og erfiðleika, öðluðust afl til að þróa úr fátæktinni öfluga atvinnuvegi sem á liðinni öld urðu burðarásar framfaranna. Eitt er þó víst, að þjóðin komst í fremstu röð því heim- anfylgjan frá landbúnaðinum reyndist drjúg. Dugnaður fólksins á sér djúpar rætur í sveit- um landsins, svo og samheldnin og samstaðan sem lyftu grettistaki, lýðræðisþroskinn sem skóp mótaði hið frjálsa og opna samfélag sem við njótum nú. Sveitirnar voru uppeldisstöð stjórnmála og félagsstarfs; lífssýn bóndans efldi vitund okkar um náttúruna, matið á verðmætum sem felast í heiðum og dölum, fjallasýn og fögrum fjörðum, öræfum og beitilandi. Þegar spurt er um erindi Íslendinga, eðli og rætur, eru svörin jafnan tilvísanir í sögur og ljóð, menninguna sem fóstruð var í byggðum lands- ins, þá arfleifð sem bændur og búalið skópu í aldanna rás. Landbúnaðurinn hefur einnig sýnt ríka hæfni til aðlögunar, tekið mið af breyttum kröfum, komið til móts við óskir fólksins; fáar aðrar atvinnugreinar hafa á síðari hluta 20. aldar tekið meiri stakkaskiptum. Við vitum öll í þessum sal að sú vegferð var oft býsna erfið og samtök bænda þurftu iðulega að sækja á brattann, taka slaginn þegar miklir hagsmunir voru í húfi. Það voru mér forréttindi ungum manni að kynnast köppum úr forystusveit bændastéttar, fólki sem komst til þroska á kreppuárum og var í fararbroddi þegar harðar deilur stóðu um hag og lífskjör sveitafólksins. Í samanburði við umrót og átök þeirrar tíðar hefur að undanförnu ríkt víðtæk sátt um land- búnaðinn; þjóðin lært að meta kostina sem fjöl- þætt framleiðsla færir henni. Slík viðhorfsbreyting er gott veganesti þegar haldið er til móts við óvissu nýrrar aldar og hugað að framtíð landbúnaðar, ekki aðeins á heimaslóð heldur einnig á veraldarvísu. Þótt ég viti að sú fullyrðing kunni að hljóma sem öfugmæli í eyrum þeirra sem sífellt horfa á samanburð við erlendan markað eða hampa veikleikum í samkeppni við aðrar greinar, er ég sannfærður um að landbúnaðurinn á eftir að verða Íslendingum enn mikilvægari á komandi árum en hingað til því breytingar heimsins eru á þann veg að umræða um fæðuöryggi sérhverrar þjóðar færist æ ofar á forgangslista. Fæðuöryggi er fremur nýtt hugtak í alþjóð- legri umræðu og ýmsum kann að virðast það framandi í fyrstu. Við erum vön að ræða um öryggi á annan hátt, á grundvelli erlendrar ógnar, hernaðar, átaka eða hryðjuverka. Varnir landa hafa um aldir grundvallast á slíkri túlkun. Nú hefur heimsmyndin tekið stakkaskiptum. Afleiðingin er meðal annars sú að brýnt er fyrir hverja þjóð að móta stefnu sem tryggir fæðu- öryggi hennar í framtíðinni, tryggir aðgang að nægum og hollum mat á viðráðanlegu verði. Hvað hefur valdið slíkum stakkaskiptum? Þar skipta mestu nokkrir þættir. Í fyrsta lagi fjölgun mannkyns, einkum í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku. Hún skapar sívaxandi eftirspurn eftir mat, eykur álag á rækt- arland, knýr á um aukningu framleiðslunnar. Víða eru landkostir slíkir að erfitt er að anna hinni vaxandi eftirspurn. Í öðru lagi er sóknin til borga og bæja líkust holskeflu á hverju ári; hundruð milljóna yfir- gefa heimahéruð og streyma til úthverfanna. Það verður sífellt flóknara viðfangsefni að tryggja þéttbýlisbúum nægan mat. Framleiðsla á mjólk og kjöti verður því ögrandi viðfangsefni; víða nú þegar erfitt úrlausnar. Árleg neysla Kínverja á kjöti hefur ríflega tvöfaldast á tuttugu árum, er nú um 50 kíló. Í þriðja lagi hefur bættur efnahagur fólks- fjöldans í fjarlægum álfum í för með sér að eftirspurn eftir gæðamat vex ár af ári, verðlag hækkar, samkeppnin harðnar. Í Indlandi einu bætast árlega um 30 milljónir manna við hina efnameiri millistétt eða meiri fjöldi en nemur öllum íbúum Norðurlanda; á tíu árum eins og Bandaríkin. Hundruð milljóna gera nú aðrar og meiri kröfur en hinir efnaminnstu, ryðja sér til rúms við matarkistur sem áður voru fjarlægir draumar. Þegar Indlandi og Kína og öðrum ríkj- um í Asíu er að takast að efla velsæld með hag- vexti sem ár eftir ár skákar Evrópu og Ameríku verður heimseftirspurn eftir gæðafæðu sífellt meiri og geta landbúnaðar til að mæta henni æ flóknara viðfangsefni. Í fjórða lagi sjást nú þegar merki þess að hlýnun jarðar, breytingar á loftslaginu, hækka hitastigið um allan heim; gróðurlendi þornar upp, eyðimerkur sækja á. Milljónir manna bæt- ast þess vegna á næstu árum í sveit þeirra sem berjast við fæðuskort, geta ekki lengur aflað sér matar með hefðbundnum hætti. Í fimmta lagi mun hækkun sjávarborðs í kjöl- far bráðnunar heimskautaíss og jökla drekkja dýrmætu nytjalandi í öllum álfum og gera að engu blómlegan landbúnað sem þar hefur verið í aldanna rás. Í sjötta lagi eru áhrif loftslagsbreytinga á vatnsbúskap jarðarinnar á þann veg að ár og lækir, vötn og lindir verða í minna mæli forð- abúr. Í indverska ríkinu Tamil Nadu sem hefur fleiri íbúa en Bretlandseyjar er talið að um 95% brunna smábænda hafi nú þegar þornað upp. Við vitum öll að lítið verður úr ræktun lands, framleiðslu bænda ef vatnið skortir. Vilji íbúar þróunarlanda í vaxandi mæli taka upp neyslu- hætti Vesturlanda er forsendan auknin, reyndar bylting í framboði á vatni og það á sama tíma og vatnsbúskapur jarðarinnar stefnir í kreppu. Sumir sérfræðingar telja jafnvel að baráttan um vatnið geti leitt til styrjalda víða um heim því þjóðir sem deila fljótum með öðrum muni reyna í krafti vopnavalds að styrkja stöðu sína. Með lýsingu á þessum þáttum hef ég leitast við að sýna í hnotskurn flókna þróun, draga athygli Búnaðarþings og þjóðarinnar að við- fangsefni sem í vaxandi mæli er á dagskrá vís- indamanna, sérfræðinga, málþinga og ráðstefna víða um veröld; viðfangsefni sem stjórnvöld og alþjóðastofnanir hafa vaknað til vitundar um að undanförnu; viðfangsefni sem mun sníða þjóð- aröryggi nýjan stakk og breyta allri forgangsröð; viðfangsefni sem birtist meðal annars í því að spáð er allt að 100% hækkun heimsverðs á mat- vælum í náinni framtíð. Það kann í fyrstu að vera okkur Íslendingum framandi að fjalla um þessa þróun, okkur finn- ist hún býsna fjarlæg en engu að síður mun hún innan skamms skapa okkur margslunginn vanda. Erfiðleikar sem íslenskir bændur hafa að und- anförnu fundið fyrir varðandi öflun áburðar til notkunar á komandi vori eru ábending um að við finnum nú þegar hvernig vindarnir blása. Rétt er og að minnast þess að hingað kom í fyrra kín- versk sendinefnd til að kanna hvort hægt væri að gera langtímasamning við íslenska bændur um matarkaup. Það er vísbending um að aðrar þjóðir kunna innan tíðar að bjóða hærra verð en neyt- endum í Reykjavík og byggðum landsins finnst við hæfi. Og hvað gera bændur þá? Hin breytta heimsmynd kallar því á ferska sýn, áherslur annarrar ættar en einkennt hafa umræðuna. Mikilvægi íslensks landbúnaðar þarf að meta á nýjan hátt og hafa að leiðarljósi stakka- skiptin sem mannfjöldaþróun, loftslagsbreytingar og hagvöxtur í öðrum álfum fela í sér. Óvissan um fæðuöflun verður sífellt meiri. Sérhver þjóð verður að verja sig áföllum í þess- um efnum. Þjóðaröryggi er því nú annars eðlis en áður var; áríðandi að stefnumótun taki mið af nýjum hættum. Við Íslendingar munum fyrr eða síðar verða eins og allir aðrir að búa okkur undir breytta tíma þótt við munum vissulega njóta þess að vera fámenn þjóð í gjöfulu landi. Straumþunginn í þróun heimsins mun líka móta aðstæður hér á heimavelli. Í ljósi alls þessa er brýnt að hefja víðtækar umræður um hlutverk landbúnaðarins á kom- andi árum í fæðuöryggi Íslendinga og hefja þær yfir hefðbundna togstreitu um verðlag og skipulag framleiðslunnar; taka í staðinn mið af heimsmyndinni, hættunum sem ég hef gert að umræðuefni. Kjarninn í boðskap mínum til Búnaðarþings og þjóðarinnar er að við þurfum að hefjast handa við að móta sáttmála sem tryggir í framtíðinni fæðuöryggi Íslendinga. Verkefnið er ekki samningagerð á hefðbund- inn hátt heldur samræða um sáttmála sem tekur mið af grundvallarhagsmunum þjóðarinnar, sátt- mála sem felur í sér að fæðuöryggi hennar verði tryggt þótt þróunin í veröldinni sé óhagstæð. Slíkur sáttmáli um fæðuöryggi Íslendinga getur svo orðið grundvöllur að skipulagi fram- leiðslunnar, nýjum reglum um nýtingu lands, skapað markaðsþróun raunhæfan farveg. Íslenskir bændur hafa löngum sýnt ríka hæfni til að laga sig að nýjum kröfum og þjóðin hefur vaxandi skilning á að örlög annarra eru einn- ig okkar, að bráðnun íss á norðurslóðum hefur áhrif í fjarlægum álfum og umbyltingar á efna- hag mannkyns hafa víðtækar afleiðingar hér hjá okkur. Sáttmáli um fæðuöryggi Íslendinga er því verkefni allrar þjóðarinnar á líkan hátt og útfærsla landhelginnar var á sínum tíma. Þá þurfti að tryggja forræði yfir fiskimiðum til að treysta efnahagslegan grundvöll hins unga lýð- veldis. Nú þarf að sameinast um að íslenskur landbúnaður geti um alla framtíð tryggt fæðu- öryggi þjóðarinnar. Það er einlæg ósk mín að slíkar samræður bænda og annarra landsmanna geti hafist innan tíðar og Búnaðarþingi auðnist að láta þær falla í farsælan farveg. Þar munu koma að góðum notum bæði víðtæk reynsla og verksvit íslenskra bænda. Sáttmáli um fæðuöryggi íslendinga Ræða forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar á Búnaðarþingi Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpar Búnaðarþing við setningu þess 2. mars. Ljósm. Motiv, Jón Svavarsson

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.