Bændablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 200829 Nú er á vegum Árneshrepps unn ið að því að breyta verbúð í Norð ur- firði í kaffihús og matsölustað. Í húsinu verður sem áður aðstaða útibús Sparisjóðs Strandamanna í Norðurfirði sem er í öðrum enda hússins. Eins verður áfram aðstaða fyrir lækni með eitt herbergi, þegar hann kemur í vitjanir. Þá verða tvö herbergi fyrir sjómenn eða aðra útleigu, með aðstöðu til eldunar og setustofu. Sú aðstaða minnkar veru- lega, enda hefur sjómönnum sem landa í Norðurfirði og leigja þar her- bergi fækkað verulega undanfarin ár. Hinn nýi veitingasalur snýr að höfninni eða til sjávar og verður fallegt útsýni þaðan. Salurinn á að taka 40 manns í sæti, þar verður mjög góð eldunaraðstaða, stórt og mikið eldhús með öllum nútíma þægindum, ásamt snyrtingum og fleiru. Stefnt er að því að opna kaffistofuna í júní í sumar og verð- ur innan skammst auglýst eftir áhugasömu fólki til að reka hana. Bændablaðið á netinu... www.bbl.is Verbúð verður kaffihús

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.