Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 16

Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 16
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 200816 Samsala í sjötíu ár heitir nýút- komin bók sem Mjólkursamsalan gefur út. Þar er rituð saga Mjólk- ursamsölunnar í Reykjavík í þau sjötíu ár sem fyrirtækið var starfrækt eða frá 1935 þar til það rann inn í sameinað mjólkursölu- fyrirtæki árið 2005. Höfundur ritsins er Óskar Guðmundsson sagnfræðingur. Bændablaðið tók hann tali þegar hann var á ferð í borginni en starfsstöð hans og óðal er annars í Véum í Reyk- holti. Þegar bókin er skoðuð blasir það fljótt við að það hefur sjaldan ríkt friður í kringum þetta fyrirtæki sem samt hefur náð að blómstra ótrúlega vel. Hvað veldur þessum stöðuga ófriði? „Það er rétt, þetta er ekki saga sem einkennist af kyrrstöðu, en átökin hafa verið mismunandi og fylkingarnar sömuleiðis. Fyrirtækið hefur verið félagslegt frá upphafi; annars vegar þurfti það að heyja harðvítuga baráttu út á við fyrir til- vist sinni og hins vegar voru innri átök innan þess meðal framleiðenda um skipulag starfseminnar. Það teikna sig fljótlega upp átakalínur bæði milli landshluta og flokks- pólitískra afla. Framsóknarmenn voru fjölmennir í röðum bænda á Suðurlandi meðan Mjólkursamlag Kjalnesinga var mjög blátt. Í Reykja vík hafði verið starfrækt Mjólk ur félag Reykjavíkur sem laut forystu Sjálfstæðismanna sem voru öflugir menn og vinsælir, menn á borð við Eyjólf Jóhannsson frá Sveinatungu. Þeir voru líka sam- boðnir mótherjarnir og ekki síður stórbrotnir menn, sr. Sveinbjörn Högnason og Egill Thorarensen. Það sem er kannski einna for- vitnilegast í augum okkar tíma var sú samvinna framleiðenda og neytenda sem lagt var af stað með í öndverðu, á fyrstu árum Mjólkursölunefndar, sem stjórnaði Mjólkursamsölunni. Að baki því samstarfi stóð Jónas frá Hriflu sem var holdgervingur þeirrar stefnu að fylkja saman neytendum og fram- leiðendum. Alþýðusambandið og þar með Alþýðuflokkurinn átti full- trúa í Mjólkursölunefnd og einn- ig Reykjavíkurborg. Þannig var aðkoma neytenda að málefnum Samsölunnar tryggð fyrstu árin. Þetta var raunar ekki séríslenskt fyrirbæri því á þessum tíma var verið að stofna mjólkursamlög með þátttöku bænda og flokka sósíal- demókrata bæði á Norðurlöndum og meira að segja Bandaríkjunum. Þetta var því að vissu leyti söngur tímans. Það ýtir fleira undir þetta. Þéttbýlismyndun var mjög ör á þessum tíma og framfarir í land- búnaði miklar. Flóaáveitan styrkti stöðu sunnlenskra bænda sem gátu með tilkomu hennar aukið framleiðslu sína og farið fram úr Kjalnesingum. Batnandi samgöng- ur styrktu þá einnig.“ Ekki deilt um opinber afskipti Þetta er ekki í fyrsta sinn sem saga Samsölunnar er rakin, ekki síst fyrstu árin. Er þín saga eitthvað frá brugðin öðrum? „Ja, það má segja að ég sé með afslappaðra viðhorf til þess- ara átaka en aðrir, en ég reyni að láta deilurnar tala fyrir sig sjálfar í frásögninni. Viðkvæmasti hlut- inn í þessari sögu eru samskipti Samsölunnar við Korpúlfsstaðabúið sem var í eigu Thors Jensen. Þeim hefur oftast verið lýst þannig að Samsölumenn hafi verið stjórn- lyndir en Sjálfstæðismenn vilj- að hafa algert frelsi. En þetta var ekki þannig. Allir voru sammála um að það þyrfti að hafa stjórn á markaðnum þannig að enginn setti sig upp á móti opinberum afskiptum af honum á fyrstu árum Samsölunnar. Deilurnar snerust frekar um framkvæmd laganna um Samsöluna og þeirrar hugmynda- fræði sem þá var í gangi. Auðvitað leiddu lögin til þess að Thor Jensen treysti sér ekki lengur til að reka Korpúlfsstaðabúið. Því var þó ekki lokað strax heldur tóku aðrir við og ráku búið í nokkur ár. Þessar deilur snerust því ekki um það grundvallaratriði hvort opin ber afskipti ættu rétt á sér eða ekki. Thor Jensen var sammála um að þau væru nauðsynleg og hann tók þátt í þeim mjólkurbandalögum sem voru undanfarar Samsölunnar. Mjólkuriðnaðurinn hefur eins og aðrar atvinnugreinar gengið í gegnum margháttaðar breyting- ar og framþróun í síbreytilegum heimi. En við rannsókn á þessari sögu fer það ekki framhjá manni að undir niðri þruma í stiklum flókin pólitísk átök allan tímann. Þá sögu verður að segja því hún er drama- tísk á köflum og pólitíkin leiðir líka til breytinga á fyrirtækinu.“ Neytendur með í upphafi Ertu að segja að fyrirtækið hafi lið- ið fyrir það að vera bitbein stjórn- málaafla? „Nei, ég er ekki svo viss um það. Eins og áður gat var fyrst víðtækt samkomulag milli Alþýðuflokks og Framsóknarflokks um tilhögun mála – og þrátt fyrir óánægju fet- aði Sjálfstæðisflokkurinn sömu slóð. Það var síðan saminn friður um Samsöluna milli stóru flokk- anna tveggja, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, á stríðsárun- um. En það truflaði mig meira og olli mér næstum því sorg að sjá hversu sinnulausir fulltrúar neyt- enda voru á þessum sama tíma. Verkalýðshreyfingin bar ekki gæfu til pólitískrar einingar þegar þarna var komið sögu, Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn bárust á banaspjótum. Þegar Vilhjálmur Þór semur við stríðandi fylkingar árið 1943 um formgerð Samsölunnar, nýja stjórn hennar, voru fulltrúar neytenda ekki lengur með í stjórn fyrirtækisins, heldur er þetta þá orðið hreint framleiðendafélag. Þetta var í samræmi við aðra póli- tíska þróun þessara ára hér á landi þótt annars staðar væru sósíaldemó- kratar í sókn í neytendamálum. Kannski hefði það verið bæði vinstriflokkunum og neytendavænu fyrirtæki eins og Mjólkursamsalan var og er fyrir bestu ef neytendur hefðu haldið áfram virkri þátttöku í stjórn Mjólkursamsölunnar eftir 1943. Á móti kom þó að neyt- endur voru aldrei sinnulausir um þetta fyrirtæki og létu í sér heyra um málefni mjólkuriðnaðarins á hverjum degi. Það eru ekki mörg fyrirtæki í íslensku samfélagi sem hafa verið í eins nánu sambandi við daglegt líf borgaranna og Samsalan. Mjólkurvörur voru ein aðalfæða uppvaxandi kynslóða og helsti pró- teingjafinn. Í þéttbýlinu var ákveð- in mjólkurbúðamenning ríkjandi og af barnaheimilum í Reykjavík voru farnar ein og upp í þrjár ferðir á dag út í mjólkurbúð meðan þær voru starfræktar fyrri hluta aldarinnar sem leið og fram á miðjan áttunda áratuginn. Fyrstu áratugina var oft Samsala í sjötíu ár Viðtal við Óskar Guðmundsson rithöfund sem segir sögu Mjólkursamsölunnar í Reykjavík í nýrri bók Úr mjólkurbúðinni við Brekkulæk á sjöunda áratugnum. Skiltið á veggnum minnir á að lokað verði kl. 2 á laugardögum. Óskar Guðmundsson sagnfræðingur og rithöfundur segist líta átökin í kringum stofnun Mjólkursamsölunnar í Reykjavík á fjórða áratugi síðustu aldar afslappaðri augum en fyrri skrásetjarar. Hér eru helstu framámenn Mjólkurbús Flóamanna árið 1965, frá vinstri: Ágúst Þorvaldsson á Brúnastöðum, Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu, Sveinbjörn Högnason á Breiðabólstað, Sigurgrímur Jónsson í Holti, Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri og Grétar Símonarson bústjóri. Mjólkurstöðin við Snorrabraut var tekin í notkun árið 1930. Hér er verið að tæma mjólkurflutningabíl en fyrir framan hann sést Garðar frá Múla sem flutti mjólkina sína sjálfur í stöðina á hestvagni frá býli sínu sem var í Laugardalnum, skammt innan við þar sem nú stendur Laugardalshöllin.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.