Bændablaðið - 05.11.2009, Qupperneq 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
Fréttir
Meistaramót Íslands í rúningi var
haldið í annað sinn laugardaginn
25. október sl. í Reiðhöllinni í
Búðardal. Julio Cesar Gutierrez
bar sigur úr býtum og varði þar
með Íslandsmeistaratitilinn.
Bændablaðið heimsótti Julio í
Leirársveitina, þar sem hann var
við tamningar á bænum Vestri-
Leirárgörðum.
„Ég er fæddur í Úrúgvæ og alinn
þar upp í sveit. Pabbi var bústjóri á
stórum búgörðum. Ég byrjaði að
rýja 19 ára gamall, aðallega vegna
þess að kaupið var gott. Hins vegar
endist enginn í rúningi nema hafa
gaman af honum því þetta er erfið
vinna og mikil ferðalög. Í Úrúgvæ
eru venjulega sex eða átta rúnings-
menn að vinna saman — og allt
upp í 14. Að auki eru í genginu
tveir menn til að draga kindurnar
að rúningsmönnunum, aðrir tveir
sem taka ullina og svo tveir sem
sópa rusl og stutt hár úr ullinni frá
rúningsmönnunum og telja hversu
margar þeir hafa rúið. Þá eru tveir
til þrír í því að meta og flokka ull-
ina og aðrir tveir til þrír sem pakka
ullinni. Síðan er kokkur og vél-
stjóri, en hann sér um að brýna og
laga það sem bilar í rúningsklipp-
unum. Þessi gengi ferðast saman
milli búgarða og klippa, oft í u.þ.b.
tvo og hálfan mánuð. Einu stoppin
eru þegar rignir.“
Julio og kona hans Lilja
Grétarsdóttir, frá Hávarðsstöðum
í Leirársveit, kynntust í Úrúgvæ
þar sem þau unnu á sama búgarði.
„Við fluttum svo hingað til Íslands
og fórum að búa á Hávarðsstöðum.
Ég fékk íslenskan ríkisborgara-
rétt fyrir fimm árum og kann bara
ágætlega við mig hér. Ég rúði þó
nokkuð fyrstu árin eftir að ég kom
hingað en nokkur undanfarin ár hef
ég sáralítið rúið. Nú vinn ég mest
við tamningar.“
Gæði fremur en hraði
Julio segir að æfingin fyrir
Meistaramótið hafi falist í því að
rýja kindurnar þeirra sem eru 50
talsins. Hann segir að lagt hafi
verið upp með sama plan og í fyrra
þegar gæði handverksins hafi skil-
aði honum titlinum. „Mér gekk
bara vel og ég varð þriðji inn í
fjögra manna úrslit. Til að vinna
vissi ég að ég þyrfti að leggja meiri
áherslu á að rýja vel,“ segir Julio,
en vægi í mati á frammistöðu kepp-
enda var þannig að gæði rúningsins
vó 60% en tími 40%. „Í keppninni í
ár voru tvíklippingar í ullinni metn-
ar, sem ekki var í fyrra. Það er til
bóta og stuðlar að betri ullargæð-
um. Keppnin er að þróast og líkist
æ meir alþjóðlegum mótum,“ segir
Julio.
Í Úrúgvæ er sauðfjárrækt
afar mikilvæg búgrein og segir
Julio að landið skipi sér í hóp
fimm atkvæðamestu ullar fram-
leiðslulanda heims. „Í Úrúgvæ
eru mjög mörg sauðfjárkyn með
mismunandi ull. Mest er um
Corriedale-kindur og Merino, en
bæði þessi kyn gefa mjög fíngerða
og góða ull. Rúningsaðferðin sem
ég lærði er kölluð Tally-Hi-aðferðin
og á uppruna sinn í Ástralíu. -smh
Julio Cesar varði Íslandsmeistaratitilinn í rúningi
– Lærði í Úrúgvæ og starfaði í rúningsgengi sem ferðaðist á milli búgarða
Á myndinni er Julio með efnilega hryssu sem heitir Narnia og er frá Vestri-
Leirárgörðum, í eigu Dóru Líndal. mynd | smh
Íslandsmeistarinn að störfum. mynd | arnheiður hjörleifsdóttir
Haft var eftir starfsmanni fjar-
skiptasjóðs í síðasta Bændablaði
að vel miðaði með uppsetningu
háhraðatengingar rúmlega 1.700
fyrirtækja og heimila í landinu.
Guðbrandur Sverr is son bóndi
á Bassastöðum í Kald rana nes-
hreppi setti sig í samband við
frétta ritara og kvaðst hafa aðra
skoðun á gangi mála:
„Ég verð að viðurkenna að ég
varð fjúkandi illur við lesturinn.
Að mínu mati stendur ekkert af
því sem lofað hefur verið,“ segir
Guðbrandur. „Þann 5. júní í sumar
var samgönguráðherra á fundi
á Ísafirði með samgöngunefnd
Fjórð ungssambands Vestfirðinga.
Þar kom fram að Strandasýsla og
Skagafjörður yrðu tengd með há-
hraða nettengingum í júní. Sami
samgönguráðherra brást illa við á
fjórðungsþingi í september þegar
hann var inntur eftir því hvað hefði
breyst síðan í júní og sagði vinnu
við háhraðanettengingar vera vel á
áætlun.“
Guðbrandur segir að þar hafi
einnig komið fram að búið væri að
tengja Árneshrepp. „Nú frétti ég að
fólk í Árneshreppi hefði bara keypt
sér gsm-pung og það reyndist illa.
Þann 19. október (rétt áður en síð-
asta Bændablað kom út) átti að fara
mannskapur norður í Árneshrepp
og setja upp búnað á bæjum þar og
vinna sig síðan suður sýsluna, þetta
sagði mér maður frá Símanum sem
hafði samband við mig vegna teng-
ingar hjá mér. Á mánudegi, viku
seinna, hafði ekki sést til þeirra
ennþá,“ sagði Guðbrandur jafn-
framt. Á vef Jóns G. Guðjónssonar
í Litlu-Ávík í Árneshreppi kemur
fram að síðustu vikuna í október
hafi verið unnið að tengingum þar
í sveit og um mánaðamótin hafi
átt eftir að tengja í Djúpavík og
Kjörvogi.
Guðbrandur telur að þeirri þjón-
ustu sem boðið er upp á sé eftir
sem áður ábótavant. „Mér þætti
til dæmis fróðlegt að bera saman
verðið á þessu eina megabæti sem
okkur í sveitinni stendur til boða
við t.d. verðið á höfuðborgarsvæð-
inu. Guðbrandur telur líka að ekki
sé raunverulegt val um hvaða síma-
fyrirtæki sé skipt við: „Varðandi
fullyrðingu Fjarskiptasjóðs um
aðgengi allra sem selja netþjón-
ustu að þessu nýja kerfi virðist
hún vera tómt bull, því ég var með
3G-pung frá NOVA og hringdi því
fyrst þangað til að fá tengingu. Því
var svarað til að fyrirtækið gæti
aldrei orðið samkeppnisfært, því
fyrst yrðu þeir að greiða Símanum
fyrir aðgengi, sem er nærri sama
upphæð og þeir selja viðskipta-
vinum þjónustuna á.“ Þetta telur
Guð brandur að gangi þvert á þær
full yrðingar Fjarskiptasjóðs sem
koma fram í tilkynningum að sala
sé hafin á háhraðanettengingum
og öllum söluaðilum netþjónustu
standi til boða að nýta það tæki-
færi.
Baldur Jónasson í Bæ á Sel-
strönd, sem einnig er í Kald rana-
nes hreppi, segir að vissulega hafi
reynt á þolinmæðina þennan tíma
sem verkefnið hefur tekið.
„Það eru ekki nema tæp þrjú ár
sem þetta hefur tekið síðan ég fór
að fylgjast með þessu, ég held að
þetta gangi bara þokkalega miðað
við hvernig hlutirnir ganga hér á
Ströndum. Þetta er rosalega gott
fyrir þolinmæðina!“ Baldur tekur
undir með Guðbrandi að um sé að
ræða gríðarlegt hagsmunamál fyrir
íbúa í sveitarfélaginu: „Fyrir mig
prívat og persónulega þá er ég að
vinna við uppsetningu á vefsíðum
og vinn mikið yfir netið. Já, verður
maður ekki að fagna, það kemur þó
hægt sé.“ kse
Sigríður Ásta Árnadóttir endur-
vinnur gamlar ullarflíkur undir
nafn inu Kitschfríður. Hún litar,
klippir, bróderar og þæfir og er
útkoman iðulega æði skrautleg.
Uppistaðan í fatalínunni Kitschfríði
er peysur og pils en einnig má
þar finna töskur unnar úr gömlum
Álafossteppum, húfur, sokka, skart
og annað smálegt.
Mikil aðsókn
að Handverki
og hönnun
Mikið var um að vera í Ráðhúsi
Reykjavíkur um síðustu helgi
þegar sýningin Handverk og
hönnun fór fram, en fullt var
út úr dyrum alla sýningardag-
ana. Þar mátti sjá margt af því
helsta sem gerist í heimi íslensks
handverks, listiðnaðar og hönn-
unar í dag. Þátttakendur voru
59 talsins að þessu sinni og voru
það listamennirnir sjálfir sem
kynntu vörur sínar.
ehg
Orðnir langeygir eftir
háhraðatengingum
Nýir aðilar hafa tekið við rekstri
Véla og þjónustu. Eið ur Har-
alds son, kenndur við fyrir tæk-
ið Háfell og Ævar Þor steins son,
fram kvæmdastjóri og einn eig-
enda Kraftvéla keyptu fyrirtæk-
ið og hyggja á uppbyggingu þess.
Eiður sagði í samtali við
Bænda blaðið að kaupin á fyrirtæk-
inu hafi borið brátt að. „Þetta var
tækifæri sem að kom upp í hendun-
ar á okkur og var gengið frá á einni
viku. Við ætlum okkur að auka
þjónustu fyrirtækisins eftir megni.
Fyrst um sinn verður viðgerðar-
þjónusta rekin hjá Kraftvélum þar
sem fyrir er mikil reynsla en við
stefnum jafnframt að því að ráða
til okkar menn sem eru sérhæfðir
í viðgerðum á þeim merkjum sem
við munum hafa umboð fyrir.
Við höfum nú þegar ráðið til
okkar þrjá fyrrum starfsmenn
Vélavers. Við stefnum að því að
taka yfir umboð fyrir nokkrar
þeirra vélategunda sem Vélaver
var með á sínum snærum auk þess
sem viðræður standa yfir um kaup
á lager fyrirtækisins. Við höfum
nú þegar tryggt okkur umboð fyrir
New Holland og annað er í burð-
arliðnum. Við höldum auðvitað
þeim merkjum sem fyrir voru hjá
Vélum og þjónustu.“
Ekki hefur verið sérstaklega
bjart yfir sölu á landbúnaðarvél-
um upp á síðkastið. Eiður segir
að stefnan sé að byggja upp fyr-
irtækið og vera síðan tilbúnir til
að þjónusta viðskiptavini þegar
efnahagsumhverfið lagist. Fimm
manns munu starfa hjá fyrirtæk-
inu fyrsta kastið og hefur Viktor
Ævarsson verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri en Viktor er sonur
Ævars Þorsteinssonar annars hinna
nýju eigenda. fr
Nýir eigendur taka við
Vélum og þjónustu
Náttúrusetur á Húsabakka í
Svarfaðardal hefur formlega
verið stofnað. Jafnhliða var
sett á fót sjálfseignarstofnun
um reksturinn en í henni eiga
fjórir aðilar stofnhlut. Það
eru: Hollvinafélag Húsabakka,
Dalvíkurbyggð, KEA og Spari-
sjóður Svarfdæla. Í þriggja
manna stjórn eiga sæti Trausti
Þórisson f.h. Hollvinafélagsins,
Hildur Ösp Gylfadóttir f.h.
Dalvíkurbyggðar og Haukur
Snorrason f.h. KEA.
Með náttúrusetrinu er hug-
myndin að blása nýju lífi í skóla-
húsnæðið á Húsabakka, sem
hefur staðið vannýtt frá því reglu-
leg skólastarfsemi lagðist af árið
2005, og tengja það Friðlandi
Svarfdæla, sem einnig hefur að
mörgu leyti verið vannýtt auðlind
í Svarfaðardal. Gert er ráð fyrir
fjölþættri starfsemi við nátt-
úrusetrið á þremur meginstoð-
um: skólabúðum með áherslu á
umhverfisfræðslu og umhverf-
isvernd, fræðasetri með aðstöðu
fyrir fræðimenn og háskólahópa
og í þriðja lagi ferða- og ráð-
stefnumiðstöð. Þá er einnig unnið
að undirbúningi sýningarinnar
Friðlandið og fuglarnir.
MÞÞ
Náttúrusetur á Húsabakka