Bændablaðið - 05.11.2009, Page 12

Bændablaðið - 05.11.2009, Page 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009 Loftslagsmál hafa verið mikið til umræðu upp á síðkastið og veldur því eflaust ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um þennan mikilvæga málaflokk sem haldin verður í Kaupmannahöfn dagana 7.-18. desember næstkomandi. Ísland tekur að sjálfsögðu þátt í þessari ráðstefnu. Hugi Ólafsson skrifstofustjóri stefnumótunar og alþjóðamála í umhverfisráðu- neytinu hefur haldið utan um loftslagsmál af hálfu umhverf- isráðuneytisins á undanförnum árum og tekið þátt í samningavið- ræðum, auk þess sem hann leiðir nýskipaða verkefnisstjórn um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum innanlands. Bændablaðið hélt á fund Huga til að ræða við hann um ráðstefnuna, ekki síst í ljósi aukins þrýstings af hálfu alþjóð- legra bændasamtaka í þá veru að landbúnaður skipi veigameiri sess í væntanlegu samkomulagi um loftslagsmál en raunin var um Kýótó-bókunina. En áður en við komum að því spurði blaðamaður Huga hvort hann ætti von á að á ráðstefnunni náist samstaða um eitthvað sem gæti komið í stað Kýótó-bókunar- inn ar? „Það verður erfitt og fyrir því eru einkum tvær ástæður. Í fyrsta lagi hafa samningaviðræðurnar verið einhverjar þær flóknustu og mannfrekustu sem um getur, ekki bara í sögu umhverfismála heldur í sögunni. Flækjustigið er hátt enda tengjast loftslagsmál öllum öðrum þáttum umhverfis- og efnahags- mála. Það eru komnir á blað ítar- legir textar og mönnum óar við að þjappa þeim saman í sæmilega skiljanlegt plagg á stuttum tíma. Í öðru lagi er óvissa um hvort raun- verulegur vilji er til staðar til að ná samkomulagi um stærstu ágrein- ingsmálin nú“ sagði Hugi. Afstaða stórveldanna ræður mestu – Hvað gæti ráðið úrslitum um það hvort árangur næst? „Það er að það náist pólitísk samstaða. Loftslagsmálin hafa verið rædd á hæsta pólitíska stigi, leiðtogafundum G8-hópsins og í tvíhliða viðræðum þjóðarleiðtoga. Það sem mestu máli skiptir er afstaða Bandaríkjanna og Kína. Flestir telja að einföld framlenging á Kýótó-bókuninni dugi ekki ein og sér. Þar eru 37 ríki sem ábyrg eru fyrir þriðjungi losunar á heims- vísu og hlutur þeirra fer minnk- andi. Það verður annars vegar að fá Bandaríkin með en þau eru eina þróaða ríkið sem ekki stað- festi Kýótó-bókunina og hins vegar verður einhvern veginn að taka á losun ört vaxandi stórvelda á borð við Indland og Kína, en síðar- nefnda ríkið er sennilega komið fram úr Bandaríkjunum í losun gróðurhúsalofttegunda. Hvað Bandaríkin varðar þá er lykilatriði fyrir forsetann að koma löggjöf í gegnum þingið. Bandaríkjastjórn skrifaði á sínum tíma undir Kýótó-bókunina en þingið neitaði að staðfesta hana nema stóru þróunarríkin kæmu með. Obama skrifaði ekki undir Kýótó-bókunina eins og Ástralir gerðu þegar þar var skipt um stjórn. Frumvarp um loftslagsmál hefur hlotið samþykki fulltrúadeildar Bandaríkjaþings en er í biðstöðu í öldungadeildinni. Síðan er það spurning hver afstaða Kínverja og Indverja verð- ur. Þeir hafa hingað til verið með harða línu og sagt að iðnríkin verði að taka ein ábyrgð á los- uninni því þau hafi orðið rík með því að menga og afleiðingarnar af því bitni verst á þróunarríkjunum. Þróunarríkin séu hins vegar fátæk og þurfi svigrúm til að bæta lífs- gæðin með tilheyrandi losun. Upp á síðkastið virðist mörgum Kína hins vegar sýna merki um vilja til þess að taka þátt í að takmarka losunina. Kína vill njóta virðingar á heims- vísu sem vaxandi stórveldi og þá verða Kínverjar að sýna ábyrgð. Auk þess hafa Kínverjar verið að upplifa ýmsar skuggahliðar iðnþró- unarinnar. Þar er gífurleg loft- og vatnsmengun sem dregur úr lífs- gæðum fólks og ógnar vextinum til lengri tíma. Þess vegna hafa þeir mikinn áhuga á að koma sér upp hreinni orkugjöfum og hreinni tækni. Samkomulag í Kaupmannahöfn þarf því að byggjast á því að iðnrík- in taki á sig hertar skuldbindingar og veiti þróunarríkjunum tækniað- stoð, gegn því að þróunarríkin axli sinn hluta ábyrgðarinnar og velji grænni leiðir til þróunar. Um þetta er tekist á og það gæti tekið lengri tíma að ná fullbúnu samkomu- lagi en er til staðar fyrir fundinn í Kaupmannahöfn. En til lengri tíma litið eru menn bjartsýnir á að það náist samkomulag, það vill enginn skerast úr leik.“ Munur á lausnum milli ríkja Á norrænum bændafundi hér í sumar og alþjóðafundum bænda hafa loftslagsmál verið ofarlega á baugi. Roger Johnson for- seti National Farmers Union í Bandaríkjunum sagði frá sam- komulagi sem gert var vestra um að landbúnaður yrði undanþeginn því að draga úr losun gegn því að hann legði sitt af mörkum með því að rækta vistvænt eldsneyti, auka bindingu með skógrækt og breyta landnotkun. Verður tekið tillit til þessara sjónarmiða í Kaupmannahöfn? „Í Kýótó-bókuninni er gert ráð fyrir að hvert ríki ráði því hvernig það dregur úr losun. Það er mikill munur eftir ríkjum hvaða mögu- leika þau hafa á að draga úr losun, til dæmis er aðeins um 8% af losun OECD-ríkja að meðaltali frá land- búnaði en yfir helmingur losunar á Nýja-Sjálandi. Menn viðurkenna að landbúnaður sé geiri þar sem ekki er auðvelt að draga verulega úr losun. Tækifærin eru víðast miklu meiri í orkubúskapnum. Ekki hefur fengið hljómgrunn að setja tölulegar kvaðir á einstaka geira á heimsvísu, en það þarf að taka tillit til ríkja sem hafa mikla sérstöðu. Staðan hér á landi er sú að losun frá landbúnaði er um 12% losunar í landinu og í nýlegri skýrslu sér- fræðinga um möguleika til að draga úr losun hér á landi kemur fram að þeir eru ekki taldir miklir í land- búnaði. Þar eru þó tillögur m.a. um bætta meðferð búfjáráburðar og fóðrun búfjár sem vert er að skoða. Hins vegar eru gífurlegir mögu- leik ar hér á landi í bindingu með breyttri landnotkun. Skylt er að gera grein fyrir skógrækt í Kýótó- bók un inni og Íslendingar fengu það í gegn að landgræðsla er valkvæð að ferð til bindingar. Við höfum lagt tölu verðan kraft í að byggja upp þekk ingu til þess að styrkja bók- hald yfir slíka bindingu og eigum orðið góða sérfræðinga á þessu sviði. Endurheimt votlendis er önnur mótvægisaðferð sem getur dreg- ið úr nettólosun hér á landi og við höfum lagt fram tillögu um hana í loftslagsviðræðunum. Viðtökur við henni hafa verið jákvæðar, en bent hefur verið á að á móti þurfi að draga frá óraskað votlendi sem ræst er fram. Það er þó nokkur and- staða í samningaviðræðunum við nýjar tillögur varðandi landnotkun yfirleitt. Sumir telja að aðgerð- ir varðandi landnotkun dragi úr áherslu á samdrátt í notkun kola og olíu. Aðrir vantreysta bókhaldinu yfir losun og bindingu í landnotk- un, sem er sannanlega mun flókn- ara en varðandi eldsneytisnotkun. Sérstaklega vilja mörg þróunarríki fara sér hægt í þessum efnum, en Ísland er meðal þeirra landa sem hafa viljað efla þátt landnotkunar við lausn loftslagsvandans og efla jafnframt vísindin og bókhaldið svo ekki sé ástæða til að draga tölur þar í efa.“ Endurheimt votlendis vel tekið – Það stendur væntanlega upp á okkur að sýna fram á hve mikil bindingin er. „Já, en það hefur hingað til gengið ágætlega hjá okkur. Árlega er farið yfir bókhaldið hjá okkur og fyrir skömmu kom hingað sjö manna sendinefnd og var í heila viku að fara í saumana á bókhald- inu. Þetta er strangara eftirlit en hjá nokkrum öðrum samningi á sviði umhverfismála og það er velt við hverjum steini. Eftirlitsaðilar hafa m.a. gert athugasemd við það að í bókhaldið hjá okkur vantaði losun frá minkabúum sem er raunar hverfandi lítil, en við bættum því við. Við þurfum að vera á tánum hvað varðar bindingu með land- græðslu því þar erum við brautryðj- endur og raunar líklega eina ríkið sem hefur tekið þetta inn í lofts- lagsbókhaldið hjá sér af einhverri alvöru. Það sama myndi gilda um endurheimt votlendis ef sú tillaga nær fram að ganga. Hún hefur feng- ið góðan stuðning frá náttúruvernd- arsamtökum og mörgum ríkjum og í viðræðunum hefur komið fram að framræsla votlendis og möguleg endurheimt er víðar viðfangsefni en hér á landi. Við höfum bent á að hér á landi eru engin kolaorkuver til þess að loka svo þetta er góður viðbótarmöguleiki fyrir okkur til að draga úr losun, auk landgræðslu og skógræktar. Undirbúa þarf hugsan- legt átak í endurheimt votlendis vel og ljóst að ekki er vilji og ástæða til að hrófla við öllum túnum sem ræktuð eru á framræstu landi. Það þarf að kortleggja þessi svæði og einblína á það land sem ekki er nýtt til búskapar. Þessi lönd eru flest í eigu bænda og það þyrfti að koma á hvötum til þess að þeir sjái sér hag í því að endurheimta votlendi.“ Markaður með kolefni að opnast Hugi bendir á að enn sé ekki til virkur markaður fyrir viðskipti með losunarheimildir og kolefni, enda engin starfsemi á Íslandi sem fellur undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins um slíkar heimildir, sem Ísland hefur laga- lega tekið upp. „Það mun hins vegar breytast á næstunni því árið 2012 verður flug- starfsemi felld undir kerfið og ári síðar kemur ál- og járnblendifram- leiðsla þar inn. Þegar sá markaður verður kominn á gætu opnast mögu- leikar fyrir viðskipti með bindingu sem bændur gætu fengið aðgang að. Þetta er hins vegar allt í mótun á vettvangi Evrópusambandsins en við fylgjum reglum þess í þessu máli vegna EES-samningsins. Þetta er spennandi viðfangsefni og það er full ástæða til að hvetja menn til að fylgjast með þeim möguleikum sem þarna kunna að opnast. Annar möguleiki er markaður með losunarheimildir sem ekki eru tengdar loftslagssamningum. Dæmi um slíkan markað er Kolviður þar sem fólki gefst kostur á að kolefn- isjafna til dæmis útblástur bifreiða sinna. Slíkir markaðir hafa sprott- ið upp víða um heim og það hafa komið fram kröfur um að settar verði samræmdar reglur um þá. Það liggur ljóst fyrir að loftslagsmálin koma bændum við á margvíslegan hátt. Landbúnaður og landnotkun eru augljóslega hluti af lausninni á heimsvísu og það á ekki síður við hér á landi,“ segir Hugi Ólafsson skrifstofustjóri í umhverfisráðu- neytinu. –ÞH Landbúnaður og breytt landnotkun hluti af lausn loftslagsvandans $'"*           "  +"/ # #" " endurheimt votlendis sé vel tekið í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn Kuggavatn í Vestur-Landeyjum. Fyrrum bakkar vatnsins eru greinilegir og það hefur verið ræst fram með þremur skurðum. Vatnið er litað af mýrarauða úr skurðunum. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.