Bændablaðið - 05.11.2009, Side 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009 15 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
Kæru bændur, búalið og annað áhugafólk!
Við leyfum okkur að vekja athygli ykkar á
nýju bókunum að vestan. Okkar er ánægj-
an að auglýsa þær hér í Bændablaðinu að
vanda.
Bækurnar að vestan fjalla fyrst og fremst
um Vestfirði og Vestfirðinga, en eins og
allir vita eru Vestfirðingar svolítið sérstak-
ir. Ætli bækurnar um þá séu ekki einnig
dálítið sérstæðar?
Bækurnar að vestan eru allar prentaðar á
Íslandi. Þær fást í bókaverslunum um land
allt. Einnig er hægt að panta þær beint
frá okkur. Sendið okkur bara tölvupóst,
jons@snerpa.is.
Við greiðum sendingarkostnað
Við vekjum athygli á því, að Bækurnar að vestan hafa lítið hækkað í verði í nokkur ár, enda
eru peningar ekki grunntónninn í okkar starfsemi þó nauðsynlegir séu til síns brúks.
Bestu kveðjur til ykkar og hafið það alltaf sem best.
Vestfirska forlagið, Hallgrímur Sveinsson.
Bækurnar að
vestan 2009
Öll þau klukknaköll
Frásagnir 25 prestkvenna
Ritnefnd: Síra Ágúst Sigurðsson, Guðrún
Lára Ásgeirsdóttir og Anna Sigurkarlsdóttir.
Hætt er við að störf margra prestanna hefðu
um margt orðið svipur hjá sjón í aldanna rás,
ef þeir hefðu ekki haft við hlið sér konu sem
var oft þeirra haldreipi. Þessi bók er gefin út
til heiðurs öllum þessum góðu konum sem
höfðu ekkert erindisbréf og engin laun. En
þær veittu mönnum sínum oft styrk og kjark
þegar mest á reyndi.
Þjóðsögur og gaman-
mál að vestan
Slegið á létta strengi í kreppunni
Úrval úr vestfirskri fyndni
Hemmi Gunn tók saman.
Í því ástandi sem nú gengur yfir land og
þjóð er græskulaus gamansemi bráðnauð-
synleg. Svo eru nú Vestfirðingar að margra
mati alveg sér á báti. Sögurnar um þá eru
bráðskemmtileg lesning, ungum sem öldn-
um, piltum og stúlkum, körlum og kerling-
um. Sumar sögurnar eru dagsannar, aðrar
lognar og fótur fyrir enn öðrum. Upp með
húmorinn!
Humorous tales
Vestfirskar þjóðsögur
á ensku
Hallgrímur Sveinsson tók saman.
Valdar gamansögur á ensku að vestan sem upplagt er að
senda erlendum vinum og vandamönnum. Ein af litlu
bókunum að vestan
Frá Bjargtöngum
að Djúpi
Nýr flokkur 2. bindi
Mannlíf á Vestfjörðum fyrr og nú,
í sinni fjölbreytilegu mynd. Mjög
aðgengileg bók fyrir alla sem áhuga
hafa á vestfirskum fróðleik og unna
Vestfjörðum og Vestfirðingum.
Meðal efnis má nefna grein um
athafnamanninn Gísla Jónsson á
Bíldudal eftir Jakob Fal Kristinsson.
Sveinn Hjörtur Hjartarson skrifar
um Árna Jónsson, verslunarstjóra
Ásgeirsverslunar, sem var mikill
áhrifamaður á Ísafirði áratugum
saman, en um hann hefur lítið verið
fjallað. Hjalti Jóhannsson skrifar
um sitthvað frá Súðavík og birt
er viðtal Böðvars frá Hnífsdal við
Hrefnu–Láka.
Þá er fjallað um vélbyssukjaftana
fyrir vestan og fjöldinn allur af
vestfirskum sögnum í léttum dúr eru í þessu bindi svo nokkuð sé nefnt.
Ný von að morgni
Tíu sýslumannssögur að vestan
eftir Ólaf Helga Kjartansson sýslumann.
Þetta eru sögur um lífið og tilveruna. Flestar snúast
um einhvers konar hrun og átök í mannlegri tilveru
og uppbygginguna. Ein sagan fjallar til dæmis um
það að konur séu miklu betri en karlmenn í að reka
íþróttafélög. Þetta er allt skáldskapur. Það eru engar
fyrirmyndir.
Svona eiga sýslumenn að vera!
Kvöldheimar
Ljóðabálkur eftir Pär Lagerkvist
Tryggvi Þorsteinsson læknir frá
Vatnsfirði þýddi.
Í Svíþjóð er Nóbelshöfundurinn Pär Lagerkvist
ekki síður þekktur sem ljóðskáld en höfundur skáld-
sagna. Margir gagnrýnendur kölluðu ljóðabálkinn
Aftonland eða Kvöldheima, snilldarverk og lýstu
yfir að í því verki næði hann sínum hæstu hæðum
sem skáld.
Matur og menning á
suðursvæði Vestfjarða
Málþing á Patreksfirði vorið 2008
Magnús Ólafs Hansson og Hlynur Þór
Magnússon tóku saman.
Hér er fjallað um verkun og meðferð mat-
væla sem landið og sjórinn gefa (egg, fugl,
fisk, sel, hval, jarðargróða), hlunnindi við
Breiðafjörð, mataræði sjósóknara á fyrri
tíð, sjóræning ja á Vestfjörðum, breiðfirsku
bátana, náttúru og sögu suðursvæðis Vest-
fjarða, sérstöðu fuglalífs á svæðinu, sögu-
staði, skrímsli í Arnarfirði, listamenn á
suðursvæði Vestfjarða og fleira.
Þá verð ég farinn
Vestfirskar smásögur
eftir Hafliða Magnússon frá Bíldudal.
Þúsund þjala smiðurinn Hafliði Magnússon er
Vestfirðingur í húð og hár, bjó lengi á Bíldudal
en nú á Selfossi. Hann hefur sett saman marg-
ar bækur, samið söngleiki og leikþætti, spilað
fyrir dansi, teiknað í blöð og bækur, haldið
málverkasýningar, samið lög, gamanvísur og
smásögur, svo nokkuð sé talið. Hafliði verður að
teljast einn af fjölhæfustu alþýðulistamönnum
þessa lands. Og Oddur Björnsson telur hann
fyndnasta höfund landsins!
99 vestfirskar þjóðsögur
Gamanmál að vestan, 4. hefti
Finnbogi Hermannsson tók saman.
Allar vestfirsku þjóðsögurnar eru auðvitað
meira og minna sannar! Það vita nú allir.
Sögusviðið er gamla Vestfjarðakjördæmið.
Vestfirsku þjóðsögurnar eru hin besta lesning
fyrir sálalífið. Oft var þörf en nú er alg jör
nauðsyn á græskulausri gamansemi.
Svo kemur til þess orðatiltækis, að rétt sé að
hafa það sem skemmtilegra reynist. Enda er
ekki um neina sagnfræði að ræða, í hæsta lagi
neftóbakssagnfræði, sem er nýyrði í málinu.
Verð 1.900 kr. Verð 4.980 kr.
Verð 1.900 kr.
Verð 800 kr.
Verð 4.980 kr.
Að sigra sjálfan sig
Eftir Gunnnlaug Júlíusson ofurhlaupara
Afrek Vestfirðingsins og ofurhlauparans Gunn-
laugs Júlíussonar á síðustu árum í langhlaup-
um hafa vakið þjóðarathygli. Þegar Gunnlugur
byrjaði sinn hlaupaferil var hann tæplega 42 ára
gamall, vel yfir 90 kíló að þyngd, og hlaup voru
eitthvað sem hann vissi vel að voru ekki hans
deild.
“Þessi bók er tekin saman með það í huga að
hún geti orðið einhverjum hvatning til að tak-
ast á við sjálfan sig á einhvern hátt. Sú barátta
er ekki alltaf auðveld en þeir sigrar sem eru
unnir á slíkum vettvangi standa framar flest-
um öðrum sigrum”, segir Gunnlaugur.
300 kr. af hverri bók renna til Grensáss!
Verð: 2.200 kr.
Verð 1.900 kr. Verð 1.900 kr.
Verð 1.900 kr. Verð 1.900 kr.