Bændablaðið - 05.11.2009, Side 20
21 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
Frá Endurmenntun Lbhí
VIÐ UPPHAF hins nýja, sameinaða Landbúnaðarháskóla
Íslands árið 2005 var tekin sú ákvörðun að efla end-
urmenntun við skólann og úr varð Endurmenntun
LbhÍ. Skólinn setti sér framtíðarsýn þar sem einn lið-
urinn var að Landbúnaðarháskóli Íslands yrði mið-
stöð sí- og endurmenntunar á sínu sérsviði.
Til að ná því markmiði var augljóst að efla
þyrfti samstarf við stofnanir og fagfélög sem tengj-
ast sérsviðum skólans. Það hefur gengið vel og
Endurmenntun LbhÍ hefur átt farsælt samstarf við
fjölda aðila sem hafa komið á einn eða annan máta
að skipulagningu og kennslu á endurmenntunarnám-
skeiðum skólans.
Í upphafi voru línur lagðar fram til loka árs 2008
og stefnt var að því að bjóða upp á 80-100 fagtengd
gæðanámskeið á ári. Því markmiði var náð tveimur
árum síðar, en árið 2008 var boðið upp á tæplega
140 námskeið og í ár munu námskeiðin fara yfir
150. Þá var markmiðið að kenna árlega 2500 nem-
endum – sem hefur ekki tekist – en gera má ráð
fyrir að nemendafjöldi ársins 2009 fari yfir 1700
manns. Eitt af markmiðunum var að fjölga mögu-
leikum á einingabæru námi með vinnu. Þetta tókst,
því nú er boðið upp á fimm valmöguleika á mismun-
andi skólastigum. Námskeiðaröðin Grænni skógar I
og II hefur verið í gangi frá árinu 2001 og er ætluð
áhugafólki um skógrækt. Þá hóf námskeiðaröðin
Reiðmaðurinn göngu sína haustið 2007. Ennfremur
hefur verið opnað fyrir fólk að sitja stök námskeið á
starfsmenntabrautum á garðyrkjusviði. Í haust bætt-
ist síðan við sá möguleiki að taka stök námskeið á
meistarastigi í skipulagsfræðum.
Ákveðið var á sínum tíma að bjóða upp á sem
flest námskeið í sem flestum landshlutum. Það mark-
mið er í höfn en ríflega þriðjungur námskeiða árs-
ins 2009 er haldinn utan veggja LbhÍ. Segja má að á
árinu 2009 hafi námskeið á vegum Endurmenntunar
LbhÍ verið í boði á 27 stöðum víðs vegar um landið.
Fræðastarf er alls staðar í grunninn það sama.
Þörfin fyrir að þróast knýr fræðastarfið áfram.
Framtíðin er því björt að okkar mati. Forsenda
þess að lifa af er að taka þátt. Það er starfsfólki
Endurmenntunar LbhÍ afar mikilvægt að vera áfram
í góðu samstarfi við fyrirtæki, stofnanir, félagasam-
tök og einstaklinga í þjóðfélaginu. Hafið samband og
látið okkur vita um góðar
hugmyndir að námskeiðum.
Guðrún Lárusdóttir
gurra@lbhi.is
www.lbhi.is/namskeid
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Bændur
blogga
Nú hefur Bændablaðið ákveðið
að hrinda af stað nýjum þætti
í blaðinu þar sem fengin eru að
láni dagbókarbrot hjá bændum
til að skyggnast inn í daglegt líf
í sveitum landsins. Mun blaðið
nota bloggfærslur af Netinu og
þiggur ritstjórn með þökkum
ábendingar um bændur sem not-
ast við blogg til dagbókarskrifa.
Þeir sem bent geta á slíkar síður
eru vinsamlega beðnir um að
senda línu á netfangið ehg@
bondi.is
Esther Guðjónsdóttir
bóndi á Sólheimum í Hrunamannahreppi
http://bondi.blogcentral.is/
22.10.2009 - Slátrun
Þá er sláturtíðin búin á bænum. Öll lömb komin í sláturhúsið sem þang-
að áttu að fara. Meðalvigtin er 16,3 kg, gerðin 8,67 og fita 6,96. Held
að þetta sé vel viðunandi útkoma. Heimaslátrun er einnig lokið og öllu
sem henni tilheyrir. Svið, sviðalappir, lifrarpylsa, saltkjöt, gera bjúgu og
reykja, hangikjöt, saga niður, úrbeina, pakka öllu niður í kistu.
Gerði kjötfars úr hjörtum og slögum í fyrsta sinn og tókst vel. Mjög
gott í kreppunni, mjög ódýr og góður matur. Hér er uppskriftin; l kg hakk
(1/2 kg hjörtu og 1/2 kg slög), 2 dl hveiti, 3 msk. kartöflumjöl, 2 egg, l tsk.
salt, 1/2 tsk. svartur pipar, 1 msk. laukduft, 1 msk. kjötkraftur („bouillon“
ljós), 2 dl mjólk. Þeytt vel saman í hrærivél þar til deigið verður seigt.
Steikt á pönnu.
Settum á 17 gimbrar og 3 lambhrúta og 2 hrútar gerðir að sauðum. Nú
vantar ekki nema 4 lömb og 2 ær upp á heimturnar. Næst verður tekið til
við að sjóða niður rauðkál fyrir veturinn. Er búin að fá 8 kg af rauðkáli
og ætla að gera þetta á morgun. Fer þá haustverkunum í matarstandinu að
ljúka.
$#%&'()*+, /&67;
Laust er til umsóknar starf bústjóra að Grund Eyjafjarðarsveit.
6.%
&
F
Hann sér um rekstur búsins samkvæmt gæðahandbók bús-
ins. Húsnæði á staðnum, nýuppgert.
Umsækjandi sé búfræðingur eða aðili með reynslu af bústörf-
um er geti unnið sjálfstætt. Grund er góð jörð á fallegum
stað. Þar er rekið kúabú með 100 kúm.
Umsóknum verði skilað til Ljósaborgar ehf. Austurvegi 42,
800 Selfossi eða á netfang: gudjon@vgs.is. Umsóknarfrestur
er til og með sunnudagsins 15. nóv. 2009. Nánari upplýsingar
eru gefnar í síma: 898-1540.
Ljósaborg ehf.
SJÁVARÚTVEGS- OG
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
auglýsir hér með til leigu eftirtaldar jarðir
og spildur til beitar og slægna:
HÁA - KOTEY
Eyðijörðina Háu-Kotey, Skaftárhreppi, landnúmer 163349.
Gróinn hluti jarðarinnar er 154 ha, þar af ræktun 6,8 ha.
LÁGA - KOTEY
Eyðijörðina Lágu-Kotey, Skaftárhreppi, landnúmer 163400.
Gróinn hluti jarðarinnar er 125 ha, þar af ræktun 24,9 ha.
HOFSTAÐIR
Eyðijörðina Hofstaði, Reykhólahreppi, landnúmer 139591.
STÓRI- BAKKI, Félagsræktun
58 ha landspildu, Stóra-Bakka, Félagsræktun í Hróarstungu,
Fljótsdalshéraði, landnúmer 208345.
Umrætt land er ekki lögbýli en var áður nytjað sem félagsræk-
tun bænda á Jökuldal og hefur verið skipt úr jörðinni Stóra-
Bakka. U.þ.b. 50 ha eru gömul tún.
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2009.
Umsóknareyðublöð fást á heimasíðu og í afgreiðslu ráðuneyti-
B
F
$
#>
sjavarutvegsraduneyti.is.
Aðalfundur Heimssýnar
í sal Þjóðminjasafnsins 15. nóvember 2009 kl. 13.30 –17.00
Dagskrá:
1. Formaður, Ragnar Arnalds, setur fundinn, stjórnar kjöri fund-
'
'
3
%
!
-!
2+
"
?'
:!
9
9
3
%
'
"9 !
I!
9
'$
%$
%'
%
'
* !
J!
)'
"'
!
K!
2
>'
%
"9
,!
L
%
'
%!
M!
4
#
!
/!
L
#
!
0.!
2%
!
00!
4'
'
'
'
'
'
'
%'
0-!
N
!
13. Fundarslit.
Bændablaðið á netinu... www.bbl.is