Bændablaðið - 05.11.2009, Qupperneq 24
25 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
Fólkið sem erfir landið
Að yrkja ljóð og texta er mikil
list og ekki á allra færi svo vel
sé. Margar ljóðabækur hafa
verið gefnar út í gegnum tíðina
og mikið lesnar. Sumir kjósa
hins vegar að gefa út ljóðin sín á
öðru formi.
Út er kominn geisladisk-
urinn „Lífsins gangur“. Á
disknum eru 14 lög við ljóð
Sólveigar Björnsdóttur í Laufási
í Hjaltastaðarþinghá. Sólveig er
ættuð frá Borgarfirði eystra og
snúast ljóðin hennar um gang lífs-
ins eins og nafn disksins ber með
sér. Hún gefur diskinn sjálf út.
Lögin eru eftir þær Sigríði
Laufeyju Sigurjónsdóttur hús-
móður og stjórnanda barnakórs
á Egilsstöðum og Sigþrúði
Sigurðardóttur kennara og sauð-
fjárbónda. Konur á ýmsum aldri
syngja lögin á diskinum en þær eru
allar ættaðar af Fljótsdalshéraði
eða búsettar þar.
Titlarnir segja margt um
innihaldið: Söngur Bakdyrabúa,
Bernskumynd, Lífsins gang-
ur, Gangnadagur, Heimþrá, Þú,
Vögguljóð, Jónsmessunótt (á Bf),
Sumarást, Á gömlum slóðum,
Haustmorgunn, Þetta kvöld, Til
þín vinur, Kveðja Bjarkanna.
Hafþór Valur Guðjónsson
tónlistarmaður var ráðinn í undir-
leik og upptöku. Nokkrir fleiri,
Ármann Einarsson, Friðjón
Jóhannsson, Brynleifur Hallsson,
Einar Bragi Bragason, Thorvald
Gjerde og Suncana Slamnig lögðu
einnig hönd á plóg.
María Ósk Kristmundsdóttir,
tengdadóttir Sólveigar, hannaði
umslag disksins.
Hér að neðan má sjá eitt ljóða
Sólveigar.
Þú
Þú, birtist óvænt um ágústkvöld.
Þú, þegar einsemdin hafði völd.
Þú, græddir sárin ég gæfu hlaut
Svo gengum við, hlið við hlið
héldum á lífsins braut.
Viðlag:
Og þögult húmið yfir heiðar sígur
hljóðnar og verður rótt
við eigum saman eins og forðum
einstaka ljúfa nótt.
Árla dagsins
þegar morgunskíman
guða á glugga fer
hve gott er þá, vita að ég má,
vakna hvern dag með þér.
Þú, ljósið bjarta er lýsti þá.
Þú, ljómar eins og fyrst þig ég sá
Þú, með þér samfylgdin sæla er
Þótt syrti að, sigrum við það
samstíga göngum hér.
Viðlag:
Og þögult húmið yfir heiðar sígur
hljóðnar og verður rótt
við eigum saman eins og forðum
einstaka ljúfa nótt.
Árla dagsins
þegar morgunskíman
guða á glugga fer
hve gott er þá, vita að ég má
vakna hvern dag með þér.
Kúabóndi gefur út geisladisk
Skrifar sögur
í tölvunni
Stefanía Malen Halldórsdóttir
lenti í sannkallaðri draumaað-
stöðu í sumar þegar hún fékk að
synda með 20 ára gömlum höfr-
ungi, en höfrungar eru uppá-
haldsdýr hennar. Hestar eru
einnig í uppáhaldi hjá Stefaníu
og á hún einn slíkan sem heitir
Blómi.
Nafn: Stefanía Malen
Halldórsdóttir.
Aldur: Ég er 11 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Ég bý á Sjónarhóli sem
er í Viðvíkursveit.
Skóli: Grunnskólinn að Hólum.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Þematímar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Höfrungar og hestar. Ég á einn
hest sem heitir Blómi.
Uppáhaldsmatur? Svínakjöt.
Uppáhaldshljómsveit? Engin
sérstök, ég hlusta á allskonar
tónlist.
Uppáhaldskvikmynd? Spiderwick.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
átti fjögurra ára afmæli úti á
Mallorca og fór í hestaferð í
hestvagni eftir ströndinni.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og hef
æft á píanó í 7 ár.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Mér finnst mjög
gaman að skrifa sögur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég ætla að verða
kokkur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Í sumar fékk ég að
synda með 20 ára gömlum höfr-
ungi, sem var rosalega stór. Það
var kannski ekkert klikkað en
þetta var eitt það skemmtileg-
asta sem ég hef gert, því ég elska
höfrunga.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Ég bara man ekki
eftir neinu sérstöku.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í vetur? Æfa fótbolta og halda
áfram að æfa á píanó.
ehg
Stefanía Malen er 11 ára skagfirsk stúlka sem ætlar að verða kokkur þegar
hún verður stór.
Bangsadagur
er góður dagur!
Börn í Langanesbyggð héldu alþjóðlega
bangsa daginn hátíðlegan nú nýverið. Börnin
í yngstu bekkjum grunnskólans á Þórshöfn
komu með bangsa sína í skólann og það gerði
Vala kennari líka. Á leikskólanum Barnabóli
var það sama uppi á teningnum, börnin
mættu með bangsann sinn í skólann og sýndu
hann hinum krökkunum. Þá voru lesnar
bangsasögur og sungnir bangsasöngvar.
Bangsadagurinn er ávallt haldinn 27. októ-
ber, sem er fæðingardagur Theodore „Teddy“
Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, en
hann var mikill skotveiðimaður. Segir sagan
að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum
hafi hann vorkennt litlum bjarnarhúni sem
búið var að hundelta, króa af og binda við tré
fyrir hann, svo forsetinn færi ekki tómhent-
ur heim úr veiðiferð, en hann neitaði svo að
skjóta húninn sjálfur.
Á myndinni eru nemendur 1. og 2. bekkjar grunnskólans á
Þórshöfn með bangsana sína sem þau komu með í tilefni dags-
ins og auðvitað kom Vala kennari líka með sinn bangsa.
Bændur / Verktakar
!"
#$ &
' ($ (
)
*
++
%
, * -
(, ,*%. %
Sími: 8924163 - E-mail: jonsihh@internet.is
Atvinna í boði
Hamar ehf er kraftmikið og framsækið fyrirtæki
á sviði málmiðnaðar, við viljum ráða til starfa
vélvirkja, vélstjóra, plötusmiði og rennismiði á
nauðsynleg.
Upplýsingar veitir:
eirikur@hamar.is
eða
Sigurður K. Lárusson
siggil@hamar.is