Bændablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 12. febrúar 2009 Ár kartöflunnar er að sönnu liðið í aldanna skaut en það var til þess ætlað að benda á mikilvægi kartöflunnar fyrir framtíðina. Hildur Hákonardóttir gaf á síð- asta ári út bók um sögu kartöfl- unnar – Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar – og hún er ekki frá því að kartafl- an geti orðið bjargvættur okkar í þeim efnahagsþrengingum sem við eigum við að etja um þessar mundir. „Það sem er svo merki- legt í sögu kartöflunnar er að hún endurtekur sig hvað eftir annað. Kartaflan hefur oft verið bjarg- vættur og jafnvel örlagavaldur í sögunni þegar miklar sveiflur urðu. Nú erum við að taka stóra efnahagssveiflu svo þá er spurn- ing hvort kartaflan taki ekki að sinna sínu hefðbundna hlutverki, að bjarga málunum,“ segir hún. Hildur segir frá því í bókum sínum að hún sé alin upp á mörkum sveitar og þéttbýlis, nánar tiltekið austast í Bústaðahverfinu þar sem faðir hennar ræktaði skóg og móð- irin sendi þær systur oft út í garð eftir „einhverju grænu“ í matinn. Svo varð hún myndlistarmaður og vefari og skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans þangað til hún venti sínu kvæði í kross, flutti austur undir Ingólfsfjall og hellti sér út í ræktunina. Hún svarar því neitandi að tilgangurinn hafi bara verið að leita að litum í vefnaðinn, og þó. „Ég fór einu sinni á jurtalitunarnám- skeið hjá Vigdísi Kristjánsdóttur og varð fyrir opinberun þegar litirnir kviknuðu í pottunum hjá henni. En ég þarf að hafa víðsýni, mynstur og gróður í kringum mig, þess vegna flutti ég hingað austur. Hér get ég fylgst með lægðunum þegar þær koma upp að ströndinni.“ Eigum afbragðsstofna Fyrir austan fór hún að sinna safna málum og tók við forstöðu í Byggða- og listasafni Árnesinga. Það rímar ágætlega við áhuga hennar á sögu og það var í raun hann sem rak hana út í að skrifa Blálandsdrottninguna. „Já, ég byrjaði á Blálands- drottn ingunni þótt Ætigarðurinn kæmi fyrr út. Fyrir mörgum árum þegar Landsbókasafnið var enn í Safnahúsinu við Hverfisgötu fór ég að leita þar að bókum um ræktun sem voru skrifaðar áður en tilbúni áburðurinn kom til sögunnar. Þá komst ég að því að mjög mikið hafði verið skrifað, mest þó um kartöfluna. Ég gleymdi því fljótt upphaflegum tilgangi sem var að gera þetta fyrir sjálfan mig. Ég komst meðal annars að því að kartaflan tengist sögu og þróun prentunar á Íslandi. Þegar losnaði um prenthöftin um miðja 18. öldina var þó ekki sjálfgefið að það mætti prenta hvað sem var. Á þessum tíma er komin upp nýræktarstefna í Danmörku. Stjórnvöld vildu rífa upp landbúnað eftir erfiðleika af völdum kulda, stríða og stöðnunar í Evrópu. Danmörk og fleiri lönd stóðu illa hvað ræktun varðaði svo farið var að veita styrki til útgáfu á upplýsingum um ræktun. Á þess- um tíma er kartaflan að ryðja sér til rúms og því var mikið gefið út af ritum um hana. Það urðu meira að segja deilur um hvort sumt af þess- ari útgáfu ætti rétt á sér. Upphaflega ætlaði ég að skrifa bók sem héti Ísland séð með augum kartöflunnar, en það gekk ekki upp af því það var stílfræðilega of flók- ið fyrir mig. En mér fannst þetta svo spennandi saga svo ég fór að kanna hlutverk kartöflunnar í menn- ingarsögu Íslands og nágrannalanda okkar. Kartaflan er auðræktanlegri en margt, ótrúlega gagnleg og á mörk- um þess að flokkast sem grænmeti og kornvara. Við eigum góð afbrigði vegna þess að til þessa höfum við ekki ætlað kartöfluna í iðnað eða dýrafóður heldur til matar. Margar þjóðir hafa farið illa með hana af því hún er svo auðnýtanleg. Það er hægt að nota hana í svo margar vörur, og þekktast er brennivín, og það er alls ekki útséð um notagildi hennar ennþá, jafnvel talað um að hægt sé að gera úr henni pappír. Við höfum hins vegar ekki sinnt um flókna matreiðslu á kartöflunni og margir viljað hana fyrst og fremst soðna. En markaðsmálum kartöfl- unnar var ekki alltaf sinnt nógu vel á árum áður og stundum urðu neyt- endur að búa við vondar kartöflur af þeim sökum. En stofnarnir eru bragðgóðir sem hafa verið ræktaðir upp hér á landi í aldanna rás.“ Rauðar, bláar og gular Hvaða stofnar eru það sem hægt er að kalla íslenska? „Norræni genabankinn telur upp þrjú íslensk afbrigði sem hafa öðl- ast ákveðin séreinkenni. Gullaugað sem er útbreitt hér á landi kom frá Norður-Noregi um 1930 og er því enn talið norskt afbrigði en til þeirra íslenskru teljast rauðar, bláar og gular. Af þeim er aðeins hægt að fá rauðar keyptar í verslunum sem útsæði, þær hafa öðlast þegnrétt hér á landi og hafa hugsanlega verið hér frá upphafi. Það sama á líklega einnig við um þær gulu en þær eru ekki í almennri ræktun eins og þær rauðu. Saga þeirra gulu er dálítið óljós, til dæmis er ekki vitað hvort til þeirra heyrðu Akraneskartöflurnar sem voru landsfrægar að gæðum en fengu svo í sig sjúkdóm. Bókin mín heitir eftir bláu kartöflunum sem komu síðar, með frönskum sjómönnum. Þær geymdust vel og voru þess vegna vinsælar á frönsku skútunum. Kannski hafa þær verið seinni til að spíra á vorin.“ Þú nefnir það einhvers staðar að hér á landi hafi verið svo erf- itt að rækta vegna veðurfars og óblíðra aðstæðna. Hefur það eitt- hvað breyst? „Já, við erum búin að læra að rækta á þessum breiddargráðum og okkur er ekkert að vanbúnaði. Við eigum menntað fólk sem kann til verka og getum haft köld gróður- hús í garðinum okkar og svo hefur akrýldúkurinn gjörbreytt ræktunar- aðstöðunni. Þarna kemur plastið líka að góðum notum í stað þess að við séum að éta það í einhverjum umbúðum. Það hefur margt breyst þessi 250 ár síðan ómenntaðir danskir vinnumenn voru fluttir inn og áttu að koma upp kornrækt hér í kuldanum. Við getum haft mikla fjölbreytni hér og þurfum fátt að flytja inn af grænmeti nema þá til gamans. Mér skilst að kornræktin gangi líka vel núna. Allt sem við getum ræktað hérna eigum við að rækta.“ Háskasamlegur tími, en skemmtilegur Þinn boðskapur er þá þessi sígildi að við eigum að rækta garðinn okkar. „Já, það er ekki spurning hvort við ætlum að rækta garðinn okkar, við verðum að gera það. Það dugir ekkert annað til að bjarga heimin- um. Við þurfum að afla okkur matar og það á ekki að vera neitt flókið með allan okkar jarðhita. Íslenski maturinn er líka langbestur!“ Við gætum þá aukið framleiðsl- una og jafnvel farið að flytja út grænmeti? „Ekki spurning, við gætum tekið stórt stökk í því að auka fjölbreytn- ina. Síðustu áratugina hefur verið mikill innflutningur, td. á nið- urskornu grænmeti eins og kletta- salati sem er dásamleg jurt. Þetta hefur komið okkur á bragðið þann- ig að ég er að vona að innflutning- urinn verði til þess að á endanum tökum við okkur tak. Það er svo miklu öruggara að rækta grænmet- ið hér á landi. Við getum varið það miklu betur án þess að úða það með eitri og það þarf ekki að geyma það jafnlengi og þetta innflutta sem er orðið dauflegt í fjöldaframleiðslu eða búið að missa mikið af krafti sínum þegar það kemst í verslanir hér á landi. Við viljum rækta þetta hér heima til þess að draga úr þess- um endalausu flutningum á mat. Við vitum að í ræktuninni erlendis er komið svo mikið af aukaefn- um og geymsluefnum. Við bætum heilsuna og spörum í heilbrigð- iskerfinu. Við eigum að gera kröfu um að það sé hlúð að þeim sem rækta grænmeti. Mér finnst skemmtilegt að það skuli vera að renna upp fyrir fólki hversu mikilvægur innlendi mat- urinn er, núna þegar tekur fyrir innflutning. Tími innflutta græn- metisins var skemmtilegur en líka háskasamlegur, þessi miklu flutn- ingar voru og eru ekki góðir fyrir jörðina og ég vona að þessi stöðvun nýtist okkur þannig að við berum meiri virðingu fyrir okkar eigin matarmenningu.“ Þegar gullið er búið kemur kartaflan… Á einum stað veltir þú fyrir þér þeirri spurningu hvort kartaflan hafi sál. Ertu komin að niðurstöðu um það? „Það fer eftir því hvernig við skil- greinum sál. Ég vil eiginlega snúa þessu við og segja: Kartöflurnar hafa líf og eru meira meðvitandi um hópsál sína en maðurinn. Þessi tilhneiging hjá manninum að finn- ast hann alltaf vera einstaklingur í slag við aðra einstaklinga hefur alið hjá honum þessa græðgi. Við eigum að læra það af kartöflunni að við erum hópsál og við þurfum að rækta þessa hópsál. Menn fóru á sínum tíma til Perú og sóttu þangað mikið gull. Við vitum ekki hvað varð um þetta gull, það er ekki víst að það hafi orðið Evrópumenningunni til góðs. En kartaflan fékk sér far með skip- unum til Evrópu og hún hefur orðið okkur til góðs. Þegar gullið þrýtur verða menn að lifa af því sem jörð- in gefur og þá kemur kartaflan til í allri sinni auðmýkt og bjargar því sem bjargað verður,“ segir Hildur Hákonardóttir myndlistarkona, safnamaður og rithöfundur. –ÞH Éttu útsýnið! Í Bandaríkjunum eru til samtök sem heita Alþjóðlegi eldhús- garðurinn. Þau vinna að því að endurvekja heimaræktun á flöt Hvíta hússins undir vígorðinu: Eat the view! eða éttu útsýnið. Þegar fyrstu forsetarnir sett- ust að í Hvíta húsinu voru þeir eins og íslenskir prestar sem þurftu að rækta mat ofan í sig og sitt lið. Þess vegna var mat- jurtagarður og ávaxtatré á lóð- inni. Árið 1835 var reist þarna gróðurhús og árið 1857 var það stækkað verulega, en varð síðar að víkja fyrir Vesturvængnum sem var byggður við húsið 1902. Matjurtagarðurinn var hins vegar á sínum stað fram yfir seinni heimsstyrjöld og Eleanor Roosevelt hvatti landa sína til að rækta sjálfir matinn sinn. En með vaxandi flutning- um hættu menn því. Nú er hins vegar í gangi undirskriftasöfnun um að skora á Barack Obama að koma aftur upp matjurtagarði í því skyni að skapa gott fordæmi fyrir heiminn. Með því gæti hann gert meira gagn en með mörg- um nefndum. Á heimasíðu samtakanna, www.kitchengardeners.org, er að finna ýmsan fróðleik um ræktun og sögu og þar má meðal annars lesa að hver ein- asti munnbiti sem Banda ríkja- menn láta ofan í sig hefur að meðaltali ferðast 2.700 km frá ræktunarstað sínum. Það sam- svarar rúmlega tveim ferðum eftir hringveginum. Er tími kartöflunnar kominn aftur? Hildur Hákonardóttir hefur skrifað tvær bækur um nauðsyn þess að við ræktum garðinn okkar og verðum sjálfum okkur nóg um framleiðslu á mat Ætigarðurinn og Blálandsdrottningin Hildur Hákonardóttir hefur gefið út tvær bækur sem áhugafólk um ræktun og garðyrkju ætti ekki að láta framhjá sér fara. Sú fyrri heitir Ætigarðurinn, handbók grasnytj- ungsins og skiptist í kafla eftir árs- tíðunum. Þar er að finna hagnýtar ráðleggingar og upplýsingar í bland við hugleiðingar og heimspeki um ræktun og mataræði. Seinni bók Hildar um jarðargróð- ann heitir Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar. Þar segir hún sögu kartöflunnar frá því Evrópumenn rákust á hana suður í Perú á tímum landafundanna og fram til vorra daga. Megináherslan er þó á ræktunarsögu kartöflunnar hér á landi og tengsl hennar við menningarsögu þjóðarinnar. Hildur Hákonardóttir tínir rifsber í garðinum sínum að Straumum. Hildur ásamt eiginmanni sínum, Þór Vigfússyni, og heimiliskett- inum, íbúðarhúsið að Straumum í baksýn en þaðan má sjá lægðirnar nálgast Suðurlandið.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.