Bændablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 19
19 Bændablaðið | fimmtudagur 12. febrúar 2009
Kristján Gunnarsson
mjólkureftirlitsmaður
HEYRT Í SVEITINNI
Ætla að minnast örlítið á velkomnar og óvelkomnar
lífverur í fjósum.
Nú er sá árstími þegar músagangur er verulega
þreytandi til sveita og þessi hvimleiðu smádýr fara að
leita eftir inngöngu í fjós og önnur húsakynni í von um
æti og húsaskjól.
Þær eru fljótar að fjölga sér og verða hin versta
sóðaplága ef þær ná fótfestu í byggingum manna, auk
þess að bera sýkla og aðra óáran með sér.
Þá vinna þær oftar en ekki mikið tjón á innviðum
húsa og af þeim er miður góð lykt þegar þær eru orðn-
ar nokkur hundruð eða þúsund.
Þær eiga alls ekki heima í húsnæði til matvælafram-
leiðsu, þ.m.t. fjósum og mjólkurhúsum og um það eru
skýr ákvæði í reglugerðum.
Þar ber að koma upp viðurkenndum meindýravörn-
um og aldrei þessu vant er kötturinn nú viðurkenndur
í mörgum héruðum sem gild meindýravörn, en honum
var úthýst á tímabili, þ.e.a.s. i síðustu reglugerð, en
ekki minnst á hann þar á undan, þannig að kisi hefur
notið mismikillar tiltrúar og góðvildar reglugerðasmiða
í gegnum tíðina – sem sé 1-0 fyrir kattavinafélagið.
Þess ber þó að geta að hann má eingöngu vera i fjós-
inu sjálfu en ekki stíga einni löpp inn í mjólkurhúsið og
það má raunar engin skepna önnur en mannskepnan.
Úr því dýrahald í fjósum ber á góma er vert að
minna á það að í mjólkurframleiðslufjósum mega
hvorki vera rollur né hundar og harðbannað er að hafa
þar inni svín og fiðurfénað (hænur eða aliendur) sem
er skiljanlegt því slíkur búpeningur getur t.d. valdið
salmonellusmiti í fjósinu og er mjög strangt eftir því
gengið að þessi ákvæði séu virt.
Íslenski hesturinn er svona á milli vita því ekki er
lengur að finna ákvæði um úthýsingu hans úr fjósum í
aðbúnaðar- eða mjólkurreglugerð.
Það er þó háð samþykki viðkomandi héraðs- eða
eftirlitsdýralæknis hvort vista megi hross í fjósum,
held raunar að það sé ekki vel séð en e.t.v. ekki gerð
athugasemd við 1-2 hross á afmörkuðum básum eða
í stíu.
Hef hingað til ekki séð nema á örfáum bæjum hross
hýst í fjósi innan um mjólkandi kýr.
Það er hins vegar afar algengt að hundurinn fái að
fylgja húsbónda sínum til mjalta og þyrfti að gera átak
í þeim efnum, sér í lagi þegar hundar eru að álpast inn
í mjólkurhús.
Þetta er oftast auðvelt að koma í veg fyrir ef það
er vilji eiganda hundsins, því flesta hunda er auðvelt
að siða og kenna þeim hvar þeir mega vera og ekki
vera, þetta er því bara spurning um siði eða öllu heldur
ósiði.
Þá er ótalið eitt aðskotadýr enn í fjósum og í raun
eina verulega vandamálið, en það er flugan, sem getur
á sumum bæjum orðið að plágu í fjósinu og verður að
segjast eins og er að því miður er það of víða sem
ekki er eitrað fyrir flugu eða gerðar þrifaráðstafanir
til þess að hamla ágangi þessara hvimleiðu kvikinda
sem valda bæði mönnum og ekki síður skepnum mik-
illi vanlíðan og pirringi, auk þess að bera með sér alls
kyns sjúkdóma og óþrif.
Því segi ég, hundurinn í fjósinu er smámál, en flug-
an er stórmál.
Í vel loftræstu og hreinu fjósi með klipptar kýr eru
minni líkur á flugnaplágu.
Bændur og verktakar
Nú bjóðum við uppá 15% afslátt af allri vinnu við
New Holland dráttarvélar og bindivélar, Case
IH dráttarvélar og bindivélar, Zetor dráttarvél-
ar Fíat dráttarvélar JCB vinnuvélar, Weideman
liðléttingum, og Welger bindivélum. Í samstarfi
við Vélaver hf bjóðum við 15% afslátt af síum ,og
10 % afslátt af varahlutum. Erum með vel útbúin
bíl til heimsókna förum vítt og breitt.
Áreiðanleg og góð þjónusta
Tilboðið gildir febrúar og mars 2009
Pardus ehf
Sími-4537380 - Gsm-8932881
Járninganámskeið II - verklegt
Kennari: Sigurður Torfi
Sigurðsson járningameistari
Tími: 14. feb. kl. 10-17 í
Hestamiðstöð LbhÍ á Mið-Fossum
Verð kr. 14.000
Heimavinnsla mjólkurafurða
- Skref 1
Kennari: Þórarinn Egill
Sveinsson mjólkurverkfræðingur
Tími: 17. feb kl 13-16 á Hvanneyri
Verð kr. 4.000
Notkun léttitækja í garðyrkju
Kennarar: Ágústa Erlingsdóttir
brautarstjóri LbhÍ, Ágústa
Guðmarsdóttir sjúkraþjálfi
hjá Heilsuvernd og Kári
Aðalsteinsson garðyrkjustjóri
LbhÍ
Tími: 18. feb, kl. 9-15 hjá LbhÍ á
Reykjum, Ölfusi
Verð kr. 13.000
Heilbrigðir og hraustir hundar!
Kennari: Helga Finnsdóttir
dýralæknir
Tími: 19. feb kl. 15-18 á
Hvanneyri
Verð kr. 6.000
Bygging hrossa
Í samstarfi við
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
Kennarar: Jón Vilmundarson
kynbótadómari og Eyþór
Einarsson kynbótadómarar
Tími: 21. feb. kl. 9–16 í
Ölfushöllinni á Suðurlandi
Verð kr. 8.000 fyrir félagsmenn
innan HS (kr. 14.000 fyrir aðra)
Trjáfellingar og grisjun með
keðjusög
Kennarar: Björgvin Örn
Eggertsson skógfræðingur
LbhÍ, Böðvar Guðmundsson
skógtæknir Suðurlandsskógum
og Þorkell Gunnarsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Lystigörðum
Tími: 23. feb. kl. 9-16, 24. og
25. feb. kl. 9-17:30 hjá LbhÍ á
Reykjum, Ölfusi
Verð kr. 40.000
Bætt mjólkurgæði
betri afkoma!
Kennari: Snorri Sigurðsson
framkvstj. búrekstrarsviðs LbhÍ
Tími: 26. feb. kl. 10-16:30 á
Möðruvöllum í Hörgárdal
Verð kr. 14.000
Útimatjurtir – grunnnámskeið
fyrir byrjendur
Í samvinnu við Garðyrkjufélag
Íslands og Græna geirann
Kennari: Gunnþór K.
Guðfinnsson umhverfisstjóri
Ölfusi
Tími: 28. feb, kl. 9-15 hjá LbhÍ á
Reykjum, Ölfusi
Verð kr. 12.000
Ræktun áhugaverðra krydd-,
lauk- og matjurta í eigin garði
Í samstarfi við Garðyrkjufélag
Íslands,Reykjavíkur- og
Akureyrardeild og Græna geirann
Kennari: Auður Jónsdóttir
garðyrkjufræðingur
Tími: Boðið verður upp á þrjú
námskeið:
I: 28. feb. kl. 9-15 í Búgarði á
Akureyri
II: 21. mars, kl. 9-15 á Hvanneyri
III: 4. apr. kl. 9-15 hjá LbhÍ á
Reykjum, Ölfusi
Verð kr. 12.000
Umhirða opinna svæða II
Kennarar: Kristinn H.
Þorsteinsson garðyrkjufræðingur
og Magnús Bjarklind
skrúðgarðyrkjumeistari
Tími: 6. mars, kl. 9–15:45 hjá
LbhÍ Reykjum Ölfusi
Verð kr. 13.000
Svalir og sjálfbærni
Í samstarfi við Garðyrkjufélag
Íslands og Græna geirann
Kennarar: Guðríður Helgadóttir
forstöðumaður starfs- og
endurmenntunardeildar LbhÍ, G.
Brynja Bárðardóttir brautarstjóri
LbhÍ og Hafsteinn Hafliðason
garðyrkjufræðingur.
Tími: 7. mars, kl. 9-15 hjá LbhÍ á
Reykjum, Ölfusi
Verð: 12.000 kr.
Trjá- og runnaklippingar I
Kennari: Einar
Friðrik Brynjarsson
skrúðgarðyrkjumeistari,
garðyrkjutæknir og stundakennari
við LbhÍ
Tími: 7. mars, kl. 9-15:45 hjá LbhÍ
á Reykjum, Ölfusi
Verð kr. 12.000
Trjá- og runnaklippingar II
Kennari: Þorkell Gunnarsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Lystigörðum
Tími: 9. mars, kl. 9-15:45 hjá LbhÍ
á Reykjum, Ölfusi
Verð kr. 12.000
Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid
Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000
Námskeið
fyrir þig!
Margt bendir til að grundvöllur fyrir
rekstri sauðfjárbúa sé í besta falli
hæpinn (sjá grein um stöðu sauð-
fjárbúa í síðasta blaði). Leita þarf
leiða til að bæta stöðu greinarinn-
ar. Skoða þarf hvort enn sé hægt að
hagræða í rekstri búanna, s.s. skoða
stærðarhagkvæmni o.fl. Greinin
hefur um árabil búið við kröpp kjör
og það er okkar mat að almennt
sýni sauðfjárbændur mikið aðhald
í útgjöldum. Í meginatriðum eru
tekjur í sauðfjárbúskap af tvennum
toga. Annars vegar framlag frá rík-
inu á formi gæðastýringargreiðslna
og beingreiðslna út á ærgildi.
Ljóst er að ekki munu koma til
hækkanir á þessum lið næstu árin
og raunar hafa stjórnvöld boðað
stórlega skerðingu á framlögum
vegna aftengingar verðtryggingar.
Hinn stóri tekjuþáttur sauðfjárbúa
eru tekjur af kjötframleiðslu. Við
prófuðum að skoða tekjur bænda
af kjötframleiðslu sérstaklega og
settum þær í samhengi við verð
dilkakjöts út úr verslun. Þennan
samanburð birtum við í línuriti hér
að neðan. Til hliðsjónar birtum við
heildarkostnað við framleiðsluna
sem rauða línu á myndinni.
Verðið er birt hér á núvirði
(framreiknað skv. meðalvísitölu
neysluverðs) og með virðisauka-
skatti. Bláa línan sýnir verð úr búð.
Verð til neytenda hefur lækkað á
þessu árabili, ekki síst á milli áranna
2007 og 2008. Ekki er ljóst hvort
sláturleyfishafar taka á sig þessa
lækkun eða hvort verslunin hefur
lækkað sína álagningu. Græna línan
sýnir afurðastöðvaverð til bænda. Á
milli áranna 2007 og 2008 hækkaði
verð til bænda um liðlega 3% að
raunvirði, sem er eins og allir vita
ekki sú prósentutala sem sláturleyf-
ishafar hafa haldið á lofti. Því síður
samræmist þessi prósentuhækkun
þeim hækkunum sem hafa orðið á
aðföngum til framleiðslunnar.
Nú liggur fyrir að árið 2008 var
dilkakjötssala á Íslandi sú mesta í
15 ár. Jafnframt gekk útflutningur
vel í haust vegna veikingar krón-
unnar og gjarnan fékkst hærra verð
fyrir útflutt dilkakjöt heldur en
það kjöt sem fór á markað innan-
lands. Á sameiginlegum fundi
stjórna félaga sauðfjárbænda í
Vestur-Skaftafells-, Rangárvalla-
og Árnessýslum var samþykkt
ályktun sem send var Sláturfélagi
Suðurlands og Norðlenska (helstu
viðskiptafélögum bænda á svæð-
inu). Ályktunin var þess efnis að
skorað var á þessa aðila að láta
hækkun á útflutningsverði vegna
hagstæðrar gengisþróunar skila sér
til bænda. Félögin hafa nú svarað
því til að þau muni ekki borga upp-
bót á útflutninginn. Það blasir því
við að þrátt fyrir gott gengi í sölu
á dilkakjöti er ekki fyrirsjáanlegt
að sauðfjárbændur komi til með
að njóta ávinnings af því. Það er
því ljóst að sauðfjárbændur eiga
ekki augljós sóknarfæri til aukinna
tekna eftir hefðbundnum leiðum og
morgunljóst er að taka þarf stöðu
greinarinnar til gagngerrar endur-
skoðunar.
Forsendur útreikninga
Upp lýs ing ar um verð úr búð eru
fengnar af heimasíðu Hagstofu
Íslands (hagstofa.is). Tekið er með-
altal kg-verðs á súpukjöti, hrygg og
læri. Verð til bónda miðast við það
meðal kg-verð sem bændur fengu
greitt frá afurðastöð, þ.e. tekið er
tillit til útflutnings, þau gögn eru
fengin hjá framkvæmdastjóra LS.
Heildarkostnaður við framleiðsluna
er fundinn í Niðurstöðum búreikn-
inga 2005-2007 frá Hagþjónustu
landbúnaðarins. Öll gögn eru fram-
reiknuð til núvirðis, miðað við
meðalvísitölu neysluverðs.
Fh. Félaga sauðfjárbænda á
Suðurlandi
Oddný Steina Valsdóttir,
Rangárvallasýslu
Margrét Ósk Ingjaldsdóttir,
Árnessýslu
og Fanney Ólöf Lárusdóttir,
V-Skaftafellssýslu
Hvers virði er lambakjötið?
Verð í kr./kg úr búð samanborið við afurðastöðvaverð til bónda. Rauða lína
sýnir heildarkostnað bænda við framleiðsluna.
Nýjung
fyrir lausagöngu fjós
GreenStall
básamilligerði
Vélaval-Varmahlíð hf.
sími: 453-8888
www.velaval.is