Bændablaðið - 12.02.2009, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 12. febrúar 2009
Ár kartöflunnar er að sönnu liðið
í aldanna skaut en það var til
þess ætlað að benda á mikilvægi
kartöflunnar fyrir framtíðina.
Hildur Hákonardóttir gaf á síð-
asta ári út bók um sögu kartöfl-
unnar – Blálandsdrottningin og
fólkið sem ræktaði kartöflurnar –
og hún er ekki frá því að kartafl-
an geti orðið bjargvættur okkar
í þeim efnahagsþrengingum sem
við eigum við að etja um þessar
mundir. „Það sem er svo merki-
legt í sögu kartöflunnar er að hún
endurtekur sig hvað eftir annað.
Kartaflan hefur oft verið bjarg-
vættur og jafnvel örlagavaldur
í sögunni þegar miklar sveiflur
urðu. Nú erum við að taka stóra
efnahagssveiflu svo þá er spurn-
ing hvort kartaflan taki ekki að
sinna sínu hefðbundna hlutverki,
að bjarga málunum,“ segir hún.
Hildur segir frá því í bókum
sínum að hún sé alin upp á mörkum
sveitar og þéttbýlis, nánar tiltekið
austast í Bústaðahverfinu þar sem
faðir hennar ræktaði skóg og móð-
irin sendi þær systur oft út í garð
eftir „einhverju grænu“ í matinn.
Svo varð hún myndlistarmaður og
vefari og skólastjóri Myndlista- og
handíðaskólans þangað til hún venti
sínu kvæði í kross, flutti austur
undir Ingólfsfjall og hellti sér út í
ræktunina. Hún svarar því neitandi
að tilgangurinn hafi bara verið að
leita að litum í vefnaðinn, og þó.
„Ég fór einu sinni á jurtalitunarnám-
skeið hjá Vigdísi Kristjánsdóttur og
varð fyrir opinberun þegar litirnir
kviknuðu í pottunum hjá henni. En
ég þarf að hafa víðsýni, mynstur og
gróður í kringum mig, þess vegna
flutti ég hingað austur. Hér get ég
fylgst með lægðunum þegar þær
koma upp að ströndinni.“
Eigum afbragðsstofna
Fyrir austan fór hún að sinna
safna málum og tók við forstöðu í
Byggða- og listasafni Árnesinga.
Það rímar ágætlega við áhuga
hennar á sögu og það var í raun
hann sem rak hana út í að skrifa
Blálandsdrottninguna.
„Já, ég byrjaði á Blálands-
drottn ingunni þótt Ætigarðurinn
kæmi fyrr út. Fyrir mörgum árum
þegar Landsbókasafnið var enn í
Safnahúsinu við Hverfisgötu fór ég
að leita þar að bókum um ræktun
sem voru skrifaðar áður en tilbúni
áburðurinn kom til sögunnar. Þá
komst ég að því að mjög mikið
hafði verið skrifað, mest þó um
kartöfluna. Ég gleymdi því fljótt
upphaflegum tilgangi sem var að
gera þetta fyrir sjálfan mig.
Ég komst meðal annars að því
að kartaflan tengist sögu og þróun
prentunar á Íslandi. Þegar losnaði
um prenthöftin um miðja 18. öldina
var þó ekki sjálfgefið að það mætti
prenta hvað sem var. Á þessum
tíma er komin upp nýræktarstefna
í Danmörku. Stjórnvöld vildu rífa
upp landbúnað eftir erfiðleika af
völdum kulda, stríða og stöðnunar
í Evrópu. Danmörk og fleiri lönd
stóðu illa hvað ræktun varðaði svo
farið var að veita styrki til útgáfu á
upplýsingum um ræktun. Á þess-
um tíma er kartaflan að ryðja sér til
rúms og því var mikið gefið út af
ritum um hana. Það urðu meira að
segja deilur um hvort sumt af þess-
ari útgáfu ætti rétt á sér.
Upphaflega ætlaði ég að skrifa
bók sem héti Ísland séð með augum
kartöflunnar, en það gekk ekki upp
af því það var stílfræðilega of flók-
ið fyrir mig. En mér fannst þetta
svo spennandi saga svo ég fór að
kanna hlutverk kartöflunnar í menn-
ingarsögu Íslands og nágrannalanda
okkar. Kartaflan er auðræktanlegri en
margt, ótrúlega gagnleg og á mörk-
um þess að flokkast sem grænmeti
og kornvara. Við eigum góð afbrigði
vegna þess að til þessa höfum við
ekki ætlað kartöfluna í iðnað eða
dýrafóður heldur til matar. Margar
þjóðir hafa farið illa með hana af því
hún er svo auðnýtanleg. Það er hægt
að nota hana í svo margar vörur,
og þekktast er brennivín, og það er
alls ekki útséð um notagildi hennar
ennþá, jafnvel talað um að hægt sé
að gera úr henni pappír.
Við höfum hins vegar ekki sinnt
um flókna matreiðslu á kartöflunni
og margir viljað hana fyrst og fremst
soðna. En markaðsmálum kartöfl-
unnar var ekki alltaf sinnt nógu vel
á árum áður og stundum urðu neyt-
endur að búa við vondar kartöflur
af þeim sökum. En stofnarnir eru
bragðgóðir sem hafa verið ræktaðir
upp hér á landi í aldanna rás.“
Rauðar, bláar og gular
Hvaða stofnar eru það sem hægt er
að kalla íslenska?
„Norræni genabankinn telur upp
þrjú íslensk afbrigði sem hafa öðl-
ast ákveðin séreinkenni. Gullaugað
sem er útbreitt hér á landi kom
frá Norður-Noregi um 1930 og er
því enn talið norskt afbrigði en til
þeirra íslenskru teljast rauðar, bláar
og gular. Af þeim er aðeins hægt að
fá rauðar keyptar í verslunum sem
útsæði, þær hafa öðlast þegnrétt hér
á landi og hafa hugsanlega verið
hér frá upphafi. Það sama á líklega
einnig við um þær gulu en þær eru
ekki í almennri ræktun eins og þær
rauðu. Saga þeirra gulu er dálítið
óljós, til dæmis er ekki vitað hvort til
þeirra heyrðu Akraneskartöflurnar
sem voru landsfrægar að gæðum
en fengu svo í sig sjúkdóm. Bókin
mín heitir eftir bláu kartöflunum
sem komu síðar, með frönskum
sjómönnum. Þær geymdust vel og
voru þess vegna vinsælar á frönsku
skútunum. Kannski hafa þær verið
seinni til að spíra á vorin.“
Þú nefnir það einhvers staðar
að hér á landi hafi verið svo erf-
itt að rækta vegna veðurfars og
óblíðra aðstæðna. Hefur það eitt-
hvað breyst?
„Já, við erum búin að læra að
rækta á þessum breiddargráðum og
okkur er ekkert að vanbúnaði. Við
eigum menntað fólk sem kann til
verka og getum haft köld gróður-
hús í garðinum okkar og svo hefur
akrýldúkurinn gjörbreytt ræktunar-
aðstöðunni. Þarna kemur plastið
líka að góðum notum í stað þess að
við séum að éta það í einhverjum
umbúðum. Það hefur margt breyst
þessi 250 ár síðan ómenntaðir
danskir vinnumenn voru fluttir inn
og áttu að koma upp kornrækt hér
í kuldanum.
Við getum haft mikla fjölbreytni
hér og þurfum fátt að flytja inn af
grænmeti nema þá til gamans. Mér
skilst að kornræktin gangi líka vel
núna. Allt sem við getum ræktað
hérna eigum við að rækta.“
Háskasamlegur tími, en
skemmtilegur
Þinn boðskapur er þá þessi sígildi
að við eigum að rækta garðinn
okkar.
„Já, það er ekki spurning hvort
við ætlum að rækta garðinn okkar,
við verðum að gera það. Það dugir
ekkert annað til að bjarga heimin-
um. Við þurfum að afla okkur matar
og það á ekki að vera neitt flókið
með allan okkar jarðhita. Íslenski
maturinn er líka langbestur!“
Við gætum þá aukið framleiðsl-
una og jafnvel farið að flytja út
grænmeti?
„Ekki spurning, við gætum tekið
stórt stökk í því að auka fjölbreytn-
ina. Síðustu áratugina hefur verið
mikill innflutningur, td. á nið-
urskornu grænmeti eins og kletta-
salati sem er dásamleg jurt. Þetta
hefur komið okkur á bragðið þann-
ig að ég er að vona að innflutning-
urinn verði til þess að á endanum
tökum við okkur tak. Það er svo
miklu öruggara að rækta grænmet-
ið hér á landi. Við getum varið það
miklu betur án þess að úða það með
eitri og það þarf ekki að geyma það
jafnlengi og þetta innflutta sem er
orðið dauflegt í fjöldaframleiðslu
eða búið að missa mikið af krafti
sínum þegar það kemst í verslanir
hér á landi. Við viljum rækta þetta
hér heima til þess að draga úr þess-
um endalausu flutningum á mat.
Við vitum að í ræktuninni erlendis
er komið svo mikið af aukaefn-
um og geymsluefnum. Við bætum
heilsuna og spörum í heilbrigð-
iskerfinu. Við eigum að gera kröfu
um að það sé hlúð að þeim sem
rækta grænmeti.
Mér finnst skemmtilegt að það
skuli vera að renna upp fyrir fólki
hversu mikilvægur innlendi mat-
urinn er, núna þegar tekur fyrir
innflutning. Tími innflutta græn-
metisins var skemmtilegur en líka
háskasamlegur, þessi miklu flutn-
ingar voru og eru ekki góðir fyrir
jörðina og ég vona að þessi stöðvun
nýtist okkur þannig að við berum
meiri virðingu fyrir okkar eigin
matarmenningu.“
Þegar gullið er búið kemur
kartaflan…
Á einum stað veltir þú fyrir þér
þeirri spurningu hvort kartaflan
hafi sál. Ertu komin að niðurstöðu
um það?
„Það fer eftir því hvernig við skil-
greinum sál. Ég vil eiginlega snúa
þessu við og segja: Kartöflurnar
hafa líf og eru meira meðvitandi
um hópsál sína en maðurinn. Þessi
tilhneiging hjá manninum að finn-
ast hann alltaf vera einstaklingur
í slag við aðra einstaklinga hefur
alið hjá honum þessa græðgi. Við
eigum að læra það af kartöflunni að
við erum hópsál og við þurfum að
rækta þessa hópsál.
Menn fóru á sínum tíma til Perú
og sóttu þangað mikið gull. Við
vitum ekki hvað varð um þetta gull,
það er ekki víst að það hafi orðið
Evrópumenningunni til góðs. En
kartaflan fékk sér far með skip-
unum til Evrópu og hún hefur orðið
okkur til góðs. Þegar gullið þrýtur
verða menn að lifa af því sem jörð-
in gefur og þá kemur kartaflan til í
allri sinni auðmýkt og bjargar því
sem bjargað verður,“ segir Hildur
Hákonardóttir myndlistarkona,
safnamaður og rithöfundur.
–ÞH
Éttu útsýnið!
Í Bandaríkjunum eru til samtök
sem heita Alþjóðlegi eldhús-
garðurinn. Þau vinna að því að
endurvekja heimaræktun á flöt
Hvíta hússins undir vígorðinu:
Eat the view! eða éttu útsýnið.
Þegar fyrstu forsetarnir sett-
ust að í Hvíta húsinu voru þeir
eins og íslenskir prestar sem
þurftu að rækta mat ofan í sig
og sitt lið. Þess vegna var mat-
jurtagarður og ávaxtatré á lóð-
inni. Árið 1835 var reist þarna
gróðurhús og árið 1857 var það
stækkað verulega, en varð síðar
að víkja fyrir Vesturvængnum
sem var byggður við húsið
1902. Matjurtagarðurinn var
hins vegar á sínum stað fram
yfir seinni heimsstyrjöld og
Eleanor Roosevelt hvatti landa
sína til að rækta sjálfir matinn
sinn. En með vaxandi flutning-
um hættu menn því.
Nú er hins vegar í gangi
undirskriftasöfnun um að skora
á Barack Obama að koma aftur
upp matjurtagarði í því skyni
að skapa gott fordæmi fyrir
heiminn. Með því gæti hann
gert meira gagn en með mörg-
um nefndum.
Á heimasíðu samtakanna,
www.kitchengardeners.org,
er að finna ýmsan fróðleik
um ræktun og sögu og þar má
meðal annars lesa að hver ein-
asti munnbiti sem Banda ríkja-
menn láta ofan í sig hefur að
meðaltali ferðast 2.700 km frá
ræktunarstað sínum. Það sam-
svarar rúmlega tveim ferðum
eftir hringveginum.
Er tími kartöflunnar kominn aftur?
Hildur Hákonardóttir hefur skrifað tvær bækur um nauðsyn þess að við ræktum garðinn okkar og
verðum sjálfum okkur nóg um framleiðslu á mat
Ætigarðurinn og Blálandsdrottningin
Hildur Hákonardóttir hefur gefið
út tvær bækur sem áhugafólk um
ræktun og garðyrkju ætti ekki að
láta framhjá sér fara. Sú fyrri heitir
Ætigarðurinn, handbók grasnytj-
ungsins og skiptist í kafla eftir árs-
tíðunum. Þar er að finna hagnýtar
ráðleggingar og upplýsingar í bland
við hugleiðingar og heimspeki um
ræktun og mataræði.
Seinni bók Hildar um jarðargróð-
ann heitir Blálandsdrottningin og
fólkið sem ræktaði kartöflurnar.
Þar segir hún sögu kartöflunnar frá
því Evrópumenn rákust á hana suður í
Perú á tímum landafundanna og fram
til vorra daga. Megináherslan er þó á
ræktunarsögu kartöflunnar hér á landi
og tengsl hennar við menningarsögu
þjóðarinnar.
Hildur Hákonardóttir tínir rifsber í garðinum sínum að Straumum.
Hildur ásamt eiginmanni
sínum, Þór Vigfússyni,
og heimiliskett-
inum, íbúðarhúsið að
Straumum í baksýn en
þaðan má sjá lægðirnar
nálgast Suðurlandið.