Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 2
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 20112 Fréttir Jóhann Skúlason knapi ársins Forsvarsmenn Ístex fögnuðu 20 ára afmæli fyrirtækisins á dög- unum en í tilefni afmælisins var ný viðbygging og starfsmannaað- staða vígð í höfuðstöðvum þess í Mosfellsbæ. Að auki var ákveðið að gefa viðskiptavinum prjóna- uppskrift að fallegri lopapeysu sem Védís Jónsdóttir hannaði sér- staklega af þessu tilefni. Gengur vel „Reksturinn gengur ljómandi vel og það er mikil sala, þannig að við erum að skila þokkalegri afkomu þriðja árið í röð. Við höfum lengt keyrslu- tímann í verksmiðjunni til að anna eftirspurn. Nú er utanlandsmarkaður vaxandi en við erum að selja um allan heim, allt frá Bandaríkjunum til Kína og einnig til Evrópu. Útflutningur er tæplega helmingur af veltu Ístex og fer vaxandi,“ útskýrir Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri. Um 1800 bændur hluthafar Fyrirtækið Íslenskur textíliðnaður var stofnað seinnihluta árs 1991 eftir að Álafossverksmiðjan varð gjald- þrota. „Þegar Álafossi er lokað í júní árið 1991 missi ég, ásamt fleirum, vinnuna. Haukur Halldórsson, þáver- andi formaður Bændasamtakanna, hringir í mig skömmu eftir gjaldþrot og spyr hvort ég geti fundið einhverja til að leggja peninga í að stofna nýtt félag. Úr varð að fjórir starfsmenn, ásamt erlendum aðilum, lýstu sig reiðubúna til að leggja fram hlutafé til að stofna Ístex. Bændasamtökin, fyrir hönd bændanna, komu inn með helming hlutafjár, síðan voru dregin 10% af ullarinnleggi bænda árið 1992 og hlutafé deilt á bændur fyrir verðmæti ullarinnar. Þannig að það ár fengu bændur greitt 90% fyrir ullina og í dag eru yfir 1800 bændur hluthafar í Ístex,“ segir Guðjón sem á í dag um 50% hlut í fyrirtækinu ásamt Jóni Haraldssyni og Viktori Guðbjörnssyni. Í tilefni af afmælinu ákváðu eigendur og stjórn Ístex að gera vel við starfsfólk sitt en einnig að láta almenning njóta. „Það var tími kominn á endur- bætur og við ákváðum að leggja fjár- muni í viðbyggingu þar sem opnuð hefur verið ný kaffistofa fyrir starfs- fólk. Áður var einungis kaffiaðstaða fyrir starfsfólk uppi á annari hæð, í gluggalausu rými í verksmiðjunni, svo það var kominn tími á þetta. Einnig kom upp sú hugmynd hjá Huldu Hákonardóttur markaðs- og kynningarstjóra okkar að láta Védísi Jónsdóttur hanna peysu af þessu til- efni, sem við bjóðum fólki nú að nálgast frítt á heimasíðunni okkar. Þetta hefur mælst vel fyrir og erum við mjög ánægð með það sem við höfum áorkað nú og síðastliðna tvo áratugi.“ /ehg Ístex fagnar 20 ára afmæli Hulda Hákonardóttir, markaðs- og kynningarstjóri Ístex, og Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sýndu afmælispeysuna sem hönnuð var af því tilefni að fyrirtækið fagnaði 20 ára afmæli á dögunum. Mynd / ehg. Eftir er að sjá hvaða reynsla verður af skiptingu landsins í þjónustusvæði Skiptar skoðanir á dýralæknamálum - Breytingar seint komnar fram og til þess fallnar að vekja efasemdir Þann 1. nóvember síðastliðinn gengu í gildi breytingar á dýra- læknaþjónustunni á Íslandi. Skiptar skoðanir eru um ágæti þessa en breytingarnar eru hluti af nýrri matvælalöggjöf sem lögfest var árið 2009. Umræddur hluti hennar tók þó ekki gildi fyrr en um síðustu mánaðamót. Í þarsíðasta Bændablaði var greint frá því að allnokkur óánægja ríkti meðal dýralækna vegna þess hversu seint hefði gengið að hnýta lausa enda varðandi breytingarnar. Undir það tók yfirdýralæknir en benti á að á því væru skýringar, meðal annars hefði verið óljóst hvaða fjárframlög yrðu lögð á ákveðna þætti breyting- anna. Þær meginbreytingar sem nú eru orðnar eru að embættum héraðs- dýralækna hefur verið fækkað úr 14 í 6, héraðsdýralæknum er nú óheimilt að sinna almennum dýralækningum og á níu svæðum á landinu hafa verið gerðir þjónustusamningar við sjálfstætt starfandi dýralækna til að tryggja dýralæknaþjónustu í dreifð- um byggðum. Starfandi héraðsdýra- læknum, sem missa mundu stöðu sína í kjölfar breytinganna, var hins vegar boðinn þjónustusamningur án auglýsingar. Ekki tókst að klára alla þjónustusamninga í tíma Gengið var frá ráðningu héraðs- dýralækna í lok september. Auglýst var eftir umsóknum um þjónustu- samningana snemma í síðasta mán- uði og þótti mörgum dýralæknum það alltof seint gert. Til að mynda sagði Eyrún Arnardóttir, dýralæknir á Fljótsdalshéraði, í samtali við Bændablaðið að sér þætti illa að málinu staðið. „Við fengum engar upplýsingar um hvernig að þessu yrði staðið, hvernig samningurinn myndi verða, fyrr en núna þegar auglýsingin barst.“ Fleiri tóku í sama streng í samtölum við blaðamann. Við síðustu mánaðamót kom í ljós að ekki hafði tekist að gera þjón- ustusamninga á öllum svæðunum níu. Svonefnt svæði 4, Húnaþing vestra, Blönduósbær, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnavatnshreppur, lá þar óbætt hjá garði. Engar umsóknir bárust vegna þjónustusamnings á því svæði. Á öðrum svæðum tókst hins vegar að ganga frá samningum. Heimamenn í Húnaþingi brugðust illa við, meðal annars sendi Nautgriparæktarfélag Vestur-Húnavatnssýslu landbún- aðarráðherra bréf þar sem kvartað var undan því að enginn starfandi dýralæknir væri í sýslunni. Þá lýsti Gunnar Ríkharðsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda, því í sam- tali við Bændablaðið að heimamenn hefðu verulegar áhyggjur af stöð- unni. 4. nóvember síðastliðinn var hins vegar höggvið á hnútinn þegar Matvælastofnun gekk til samninga við Dýralæknaþjónustu Stefáns Friðrikssonar í Skagafirði um þjón- ustu í Húnavatnssýslum. Deilt um Borgarfjörð Ekki er fullkomin sátt um skil- greiningu dreifðra byggða varð- andi umræddar breytingar. Má þar nefna að Edda Þórarinsdóttir dýralæknir í Borgarfirði lýsti furðu sinni og óánægju með að Mýra- og Borgarfjarðarumdæmi félli ekki undir þá skilgreiningu. Vísaði hún til þess að á svæðinu væru ekki starf- andi nema tveir dýralæknar. Einnig hefði, ólíkt þeim svæðum öðrum á landinu sem teldust hafa markaðsleg- ar forsendur til að standa undir dýra- læknaþjónustu án þjónustusamninga, ekki byggst upp dýralæknaþjónusta í umdæminu með sama hætti og á þeim svæðum eftir breytingu á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu árið 1998. Halldór Runólfsson yfirdýralækn- ir vísaði í samtali við Bændablaðið gagnrýni Eddu á bug. „Þarna [í Borgarfirði, innsk. blm.] er líf- vænlegt fyrir dýralækna að starfa vegna þess að þeir hafa nóg að gera. Hugmyndin með þjónustusamning- unum eða staðaruppbótinni er auð- vitað að tryggja dýralæknaþjónustu þar sem markaðslegar forsendur eru ekki fyrir hendi.“ Endurskoðað innan þriggja ára Það á eftir að koma í ljós hvernig breytingarnar reynast. Eitt af því sem bændur og dýralæknar hafa haft áhyggjur af er hversu stór þjónustu- svæðin eru sum hver. Nefna má að þjónustusvæði 6 tekur yfir svæði allt frá Bakkafirði að Reyðarfirði og Fljótsdalshéraði. Blandast engum hugur um hversu stórt svæði og að sumu leyti erfitt yfirferðar er um að ræða. Á þetta við um fleiri svæði, t.a.m. Vestfirði allt frá Ísafjarðarbæ nyrst á fjörðunum til Vesturbyggðar á Suðurfjörðunum. Þá eru Þingeyjarsýslurnar báðar nálega allar á einu þjónustusvæði. Endurskoðunarákvæði er í reglu- gerðinni sem gerir ráð fyrir að hún verði endurskoðuð innan þriggja ára með sérstöku tilliti til skiptingar þjónustusvæðanna. Má gera ráð fyrir að þá verði komin almenn reynsla á fyrirkomulagið og því hægt að taka upplýsta ákvörðun um framhaldið. /fr Frá og með nýliðnum mán- aðamótum verður Jón Viðar Jónmundsson, sauðfjárræktar- ráðunautur BÍ í veikindaleyfi. Til þess að sinna brýnum verk- efnum á hans fagsviði á meðan hefur Eyjólfur Ingvi Bjarnason verið ráð- inn til starfa. Eyjólfur Ingvi er búfræði- kandidat frá LbhÍ 2009 og á liðnu vori lauk hann meistaraprófi (MS) í erfða- og kynbótafræði frá Landbúnaðarháskólanum að Ási í Noregi (UMB). Starfsmannabreytingar hjá Bændasamtökunum Eyjólfur Ingvi Bjarnason. Uppskeruhátið hestamanna fór fram á Broadway laugardags- kvöldið 5. nóvember sl. og var að venju mikið um dýrðir. Knapi ársins var útnefndur Jóhann R. Skúlason en Jóhann vann það einstæða afrek sl. sumar að verða heimsmeistari í tölti í fimmta sinn. Í þetta sinn reið Jóhann hestinum Hnokka frá Fellskoti til heimsmeist- aratitils en Jóhann hefur riðið fjórum hestum til þessara fimm heimsmeist- aratitla. Fyrir ræktun keppnishesta hlaut ræktunin sem kennd er við Efri- Rauðalæk í Hörgárdal verðlaunin. Þá voru þeim Kára Arnórssyni og Haraldi Sveinssyni veitt heiðurs- verðlaun fyrir ötul og óeigingjörn störf í þágu hestamennsku á Íslandi. Eftirtaldir knapar hlutu knapa- verðlaun að þessu sinni: Efnilegasti knapinn: Arna Ýr Guðnadóttir Kynbótaknapinn: Þórður Þorgeirsson Íþróttaknapinn: Sigursteinn Sumarliðason Skeiðknapinn: Bergþór Eggertsson Gæðingaknapinn: Hinrik Bragason Knapi ársins: Jóhann Rúnar Skúlason /fr Verðlaunahafarnir. Mynd / Oddrún Ýr Sigurðardóttir. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Jóhann Skúlason knapi ársins og Haraldur Þórarinsson formaður LH.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.