Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&
Góð verð - Persónuleg þjónusta
Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit útvegar varahluti í allar gerðir traktora td.
New Holland, CASE, John Deere, Fiat, Zetor,
McCormik, Deutz, Landini, Valtra o.fl.
Hafið samband og látið okkur aðstoða
við að útvega réttu varahlutina
! Ford og New Holland síur á lager !
Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | sími: 412 3000 | www.sturlaugur.is
Mast lyftarar til á lager
Vinnuþjarkar á hagstæðu verði!
Hafið samband við sölumenn okkar
og fáið frekari upplýsingar
Heildarumferðin um Múlagöng
hefur aukist um 24% frá því fyrir
ári síðan, miðað við teljara skammt
sunnan ganganna. Meðalumferðin
það sem af er ári er um 564 bílar
á sólarhring. Meðalumferð ársins
stefnir í 520-560 bíla á sólarhring
en umferðin var 453 bílar á sólar-
hring árið 2010.
Meðalumferð um Héðinsfjarðar-
göng það sem af er ári nemur 599
bílum á sólarhring. Arðsemismat
Héðinsfjarðarganga miðað við
árdagsumferð var 350 bílar en háspá
var áætluð um 500 bílar á sólarhring.
Reikna má með að árdagsumferð í
ár verði um 550 bílar á sólarhring.
Meðaltalsumferð um Múlagöng
um helgar er tæplega 10% hærri en
meðaltalið yfir árið, en mikil umferð
er að jafnaði um göngin um helgar
og er vægi helgarumferðar sífellt
að aukast.
Vægi helgarumferðar er ekki
eins mikið um Héðinsfjarðargöng,
að því er fram kemur í frétt á vef
Vegagerðarinnar og nefnt til saman-
burðar að þessu sé þveröfugt farið
um Bolungarvíkurgöng, þar sem
umferð um helgar er töluvert undir
meðaltali en aftur á móti yfir meðal-
tali á virkum dögum.
Fram kemur á vef Vegagerðarinnar
að rúmlega 6% meiri umferð sé
um Héðinsfjarðargöng en um
Múlagöng. Mesta umferð sem
mælst hefur um Múlagöng var á
liðnu sumri, þegar Fiskidagurinn
mikli var haldinn í Dalvíkurbyggð
í byrjun ágúst, en þá fór umferð mest
upp í 2386 bíla sama daginn, sem
er nýtt umferðarmet um Múlagöng.
Þess má geta að arðsemismat vegna
Héðinsfjarðarganga miðaði við 350
bíla á sólarhring en útlit er nú fyrir,
ef spár um áframhaldandi umferð
ganga eftir, að umferð verði 57%
meiri en arðsemismatið gerði ráð
fyrir miðað við fyrsta heila árið eftir
opnun ganganna.
Umferð hefur aukist
um Múlagöng
Aðalfundur Eyþings:
Nauðsynlegt að
stytta hringveginn
Áhersla var lögð á nauðsyn þess
að stytta hringveginn á aðalfundi
Eyþings, samtaka sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum sem
haldinn var fyrir skömmu.
Í ályktun sem samþykkt var á
fundinum segir að fyrir liggi að
stytting hringvegarins sé þjóðhags-
lega hagkvæm og að framkvæmdin
þjóni því heildarhagsmunum íbúa
og fyrirtækja í landinu.
Á fundinum var einnig rætt um
ýmis verkefni á sviði samgöngumála
sem Eyþing leggur áherslu á að farið
verði í, enda séu þau mikilvæg fyrir
framþróun og hagsmuni landshlut-
ans í heild. Þeirra á meðal er gerð
iðnaðarvegar frá Húsavíkurhöfn að
iðnaðarsvæðinu á Bakka, flughlað á
Akureyrarflugvelli, Dettifossvegur,
frá Dettifossi að Ásbyrgi, snjó-
flóðavarnir á milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar og ný brú á Jökulsá á
Fjöllum.
Fundurinn benti einnig á að
mikilvægt væri að byggja nýja brú
yfir Skjálfandafljót, á vegi 85 og eins
að leggja nýjan veg milli Þórshafnar
og Bakkafjarðar. Loks má nefna
að Eyþing leggur áherslu á nauðsyn
þess að tryggja góðar flugsamgöngur
innanlands með flugvelli í Vatnsmýri
til framtíðar.
Úrval yfirhafna
kvenna sem
henta öllum
veðrum og
tækifærum.
Einnig hattar,
húfur og hanskar
kvenna í úrvali.
Mörkinni 6, sími 588 5518, www.topphusid.is
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga 10-16
Næg bílastæði
50%
afsláttur af
völdum
vörum
Bændablaðið á netinu...
www.bbl.is