Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 7
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011 7 Þrír efstu í flokki lambhrúta talið frá hægri: 1. sæti hrútur nr. 260 frá Bjarnastöðum, faðir Beri 10-137, heildarstig 90, eigandinn Halldór heldur í hann. 2. sæti hrútur nr. 373 frá Hagalandi, faðir Faxi 09-152, heildarstig 88, eigandinn Gunnar heldur í hann. 3. sæti hrútur nr. 289 frá Sandfellshaga 2, faðir Hergill 08-322, heildarstig 86, eigand- inn Gunnar Björnsson heldur í hann. Mynd / SÞ síðasta vínsaþætti fagn- aði Pétur Pétursson læknir utanför okkar hjóna með hlýrri ferða- bæn. Nokkuð með öðrum hætti kvaddi okkur Einar Kolbeinsson í Bólstaðahlíð. Brottfarardag okkar þurfti nú endilega að bera uppá afmælisdag hans, 5ta sept- ember. Fann hann sig knúinn til að kveðja okkur, ekki þó með neinum sérstökum hlýindum: Betra er en blómahöf, og birtur vinarandi, þessi eina eðlagjöf að Árni fór úr landi. Allir geta sjálfsagt séð þó séu í miklum önnum, að ekki er lánið alltaf með Austurríkismönnum. Auðvitað varð ég að þakka Einari fyrir notalegheit í okkar garð bæði fyrr og síðar. Í afmæliskveðju til hans er þessi vísa: Meðan ævin þroskast þín, sem þolir hún að gera, mun ég glaður vera í Vín og visku mína bera. Einar hefur að ég held, áttað sig á, að gott væri að afla sér nokk- urrar víðsýni, enda brá hann sér með betri partinn til Mílanóar. Meðan á fluginu stóð, logaði síminn minn: Óttalaus fór yfir sjó, Með ölbragð sætt í munni. Mín svo bíður Mílanó Mædd af óþreyjunni. Sjálfur notaði ég síðasta tímann fyrir brottför og fór um héruð til vísnasmölunar. Eina slíka fór ég til Óskars Sigurfinnssonar bónda í Meðalheimi í Ásum A- Hún. Þau hjón, Guðný og Óskar höfðu þá nýverið fagnað 80 ára afmæli Óskars með vinum og vandamönnum. Gjöfum snjóaði að skáldinu, fremur einsleitum: Ef ég drykki allt það vín sem að mér vinir rétta, yrði varla ævi mín öllu lengri en þetta. Svo bráði af skáldinu, og þegar búið var að bera allar vistir heim í hús, fylltist hann þægilegri ró, og þó: Afmælið mitt er að baki, undirlagður bærinn er. Kjaftfullur af koníaki -hvar á ég að halla mér? Björn Ingólfsson fyrrum skóla- stjóri á Grenivík, færði föðurbróð- ur sínum Bjarna Benediktssyni á Jarlsstöðum koníaksfleyg með svofelldri “ brugsanvisning”: Þetta er ágætt við alls konar sótt, útbrotum, mæði og ropa. Harðlífi og bakverkur batna mun fljótt ef bergirðu á örlitlum dropa. Af velmældri teskeið þá verður þér rótt og verkur í limum mun hopa. Ef geðvonska þjakar og þrekið er mjótt þá skaltu taka þér sopa. Umsjón: Árni Jónsson kotabyggd1@simnet.is Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM Í Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, heimsótti nokkur fyrirtæki á Selfossi og Kjörís í Hveragerði þriðjudaginn 1. nóvember sl. Eitt af fyrirtækj- unum var MS Selfossi þar sem Einar Sigurðsson forstjóri og Guðmundur Geir Gunnarsson mjólkurbússtjóri tóku á móti for- setanum og fylgdarliði hans sem voru fulltrúar Samtaka iðnaðar- ins. Magnús Hlynur Hreiðarsson fylgdist með og tók meðfylgjandi myndir. Eftir skoðunarferðina um mjólk- urbúið fékk forsetinn fyrirlestur um starfsemi MS Selfossi frá Guðmundi Geir. Í máli hans kom m.a. fram að fjöldi bænda á starfssvæðinu er 243, innvegin mjólk árið 2010 var 47,5 millj. lítra, 40% af landsframleiðslunni í mjólk eru á starfssvæði MS Selfossi, meðalinnlegg bónda er 188.900 ltr., og að á 20 árum hefur kúabændum fækkað um helming og búin stækkað að sama skapi. Starfsmannafjöldi hjá MS Selfossi er 96 og vörunúmerin eru 215. Forsetinn sagðist vera mjög hrifinn af íslenska skyrinu og fékk að sjálfsögðu að smakka á því hjá MS. Hann segist vera mikill skyrmaður og rifjaði upp þegar hann var sendur út í búð sem ungur drengur á Ísafirði til að kaupa skyr. Forsetinn hrifinn af íslenska skyrinu Hér er Einar Sigurðsson, forstjóri MS, að skýra út vinnsluferlið fyrir fulltrúum Samtaka iðnaðarins, forsetinn fylgist með. Guðmundur Geir að fræða forsetann um starfsemi MS Selfossi. Ólafur R agnar ga f sér góð an tíma o g spjallaði við starf sfólkið. Sameiginleg hrútasýning Fjár- ræktarfélaganna í Öxarfirði og Þistilfirði var haldin þann 25 okt. í fjárhúsunum hjá þeim bræðrum Rúnari og Sigþóri Þórarinssonum í Sandfellshaga 1. Mættir voru þar um 50 veturgamlir hrútar og 18 lambhrútar. Ráðunautarnir María Svanþrúður Jónsdóttir og Sigurður Þór Guðmundsson sáu um mælingar og stigun á hrútunum en völdu svo úr hópi bænda til að raða hrútunum í efstu sæti í hvorum flokk. Um 50 manns voru þarna saman komin og buðu félögin upp á léttar veitingar. Að sögn Sigþórs Þórarinssonar, formanns Fjárræktarfélags Öxfirðinga, er það mál manna að vel hafi til tekist. Þarna hafi verið saman komnir margir frambærilegir hrútar. Hrútasýning í Sandfellshaga í Öxarfirði Þuklarar mættir til uppröðunar í flokki veturgamalla hrúta.Upprennandi bændur og Erla í Sandfellshaga sáu um veitingar.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.