Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 14
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 201114 Eins og sjá má var lí egt í Ráðhúsi Reykjavíkur þá daga sem Handverk og Hönnun fór fram. Myndir / ehg Fjöruperlur Kristínar Þórunnar Helgadóttur frá Þingeyri, sem hún vinnur úr vest rsku klóþangi, vöktu athygli á sýningunni. Kristín Þórunn hafði í nógu að snúast að fræða sýningargesti um fjöruperlurnar sínar. Stásstvíeykið Árný Þórarinsdóttir og Helga Guðrún Vilmundardóttir kynntu vörur sínar en það nýjasta frá þeim er hitaplatti innblásinn af burstabæ, sem þær fengu Skúla- verðlaunin fyrir, en þau eru veitt fyrir besta nýja hlutinn á sýningunni. Hér sést Árný vígreif með Torfbæinn , hitaplatta úr krossviði. Helgi Björnsson, bóndi í Huppahlíð og útskurðar- meistari með meiru var mættur með hní nn sinn og nokkrar fígúrur. Litadýrð og fjölbreytileiki. Íslenskt handverk aldrei vinsælla Handverkssýningin Handverk og Hönnun hefur heldur betur fest sig í sessi og fór að venju fram dagana 3.–7. nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar sýndu og seldu hátt í 70 hönn- uðir vörur sínar áhugasömum við- skiptavinum, sem stöðugur straumur var af alla fjóra dagana sem sýningin stóð. Á sýningunni mátti sjá fjöl- breytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun þar sem listamennirnir sjálfir kynntu vörur sínar. Forsvarsmenn sýningarinnar efndu til verðlauna- samkeppni um besta nýja hlutinn meðal þátttakenda í sýningunni og hlaut hönnunarteymið Stáss design hnossið fyrir „Torfbæinn“, hitaplatta úr krossviði. /ehg

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.