Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 2011 Lesendabásinn Bókabásinn Beinn og óbeinn ávinningur Sláturfélags Suðurlands (SS) af útflutningi dilkakjöts og ærkjöts hefur verið til umræðu unda- farið í framhaldi af fréttum um kjötskort og mikinn útflutning kindakjöts. Skorað hefur verið á forsvarsmenn félagsins að leggja fram upplýsingar um skilaverð í útflutningi. Forstjóri félags- ins skrifar grein í Fréttablaðið laugardaginn 15. október 2011 og leggur sem fyrr fram meðal- talstölu fengna úr útflutnings- tölfræði Hagstofu Íslands og neitar að gefa upp hverjar hinar raunverulegu tölur eru. Verður því að ganga útfrá að árið 2010 hafi skilaverð útflutts kindakjöts hjá SS verið 616 krónur á kíló. Verð til bænda SS greiddi bændum fyrir innlagt kjöt samkvæmt verðskrá sem inniheldur 35 verðflokka. Verðið á innlögðu kjöti breytist viku fyrir viku í sláturtíðinni. Það eru 245 færslur í verðskránni. Algengasta verð til bænda virðist hafa verið á bilinu 350 til 500 krónur á kíló árið 2010. Í grein í Bændablaðinu upplýsir forstjóri SS að meðalverð afurðastöðva til bænda hafi verið 393 krónur árið 2010. Slátur-, geymslu- og umsýslukostnaður Í ársreikningi SS er, þó undarlegt megi sýnast, ekki að finna sund- urliðaða afkomu rekstrar eftir vinnsludeildum. Því verða ekki dregnar ályktanir um sláturkostnað á kíló af sauðfjárafurðum með því að skoða þá heimild. Tvennt má styðjast við. Í fyrsta lagi kemur fram í ársreikningnum að rekstrar- kostnaður er um 80% af kostnaðar- verði seldra vara. Sé þeirri meðal- talsreglu beitt á kindakjötið ætti sláturkostnaður, frysting, geymsla, sala, vinnsla, fjárbinding og annar sameiginlegur kostnaður að nema 314 krónum á kíló. Í öðru lagi má ráða af Fréttabréfi SS dagsettu 22. Júlí 2011 að gjaldtaka fyrir heim- töku sláturafurða hafi numið 2850 krónum á dilk fyrir árið 2010. Það jafngildir því að sláturkostnaður án kostnaðar vegna geymslu, sölu, fjárbindingar og annars sameigin- legs kostnaðar hafi numið ríflega 175 krónum á kíló. Að kostnaður fyrir geymslu, sölu, fjárbindingar og annarra sameiginlegra kostn- aðarliða hafi verið um 140 krónur má þykja sennilegt. Tekjur og gjöld Útflutningsdæmið lítur þá þannig út: Kostnaður bónda við að fram- leiða hvert kíló af kindakjöti var um 600 krónur árið 2010 ef launa- kostnaður er ekki talinn með en um 900 krónur sé launakostnaður meðtalinn. Afurðastöðin greiddi bónda 350 til 500 krónur upp í þennan kostnað. Allur launakostn- aður og hluti aðfangakostnaður samtals um 400 til 550 krónur á kíló féll á skattgreiðendur gegnum beingreiðslur. Kjötið sem afurðastöðin keypti á 393 krónur að meðaltali fór ýmist á innanlandsmarkað eða til útflutnings. Útflutt kjöt skilaði afurðastöðinni 616 krónum á kíló en kostnaður afurðarstöðvarinnar var annars vegar þær 393 krónur sem bóndinn fékk og hins vegar slátur og umsýslukostnaður upp á 314 krónur á kíló. Beint reikn- ingslegt tap afurðarstöðvar á hvert útflutt kíló kindakjöts árið 2010 nam því 94 krónum. Tapi snúið í hagnað á kostnað neytenda Hvers vegna flytja afurðastöðvar kjöt út þó þær tapi 100 krónum á hvert kíló? Ástæðan er einföld. Með því að takmarka framboð á kjötmarkaði innanlands hækkar verð sem pína má út úr innlendum neytendum. Takist afurðastöðv- unum að hækka verð til innlendra neytenda um 50 krónur á kíló kindakjöts er fyllilega réttlætan- legt frá þeirra sjónarhóli séð að selja kindakjöt til útflutnings með 100 krónu tapi á hvert útflutt kíló. Blóðrauðir reikningar SS? Þórólfur Matthíasson. Anna Kristín Magnúsdóttir gaf í sumar út bókina Loðmundar- fjörður – Minningar, myndir, sögur og ljóð. Bókin er á fjórum tungumálum og inniheldur fjölda glæsilegra ljósmynda auk stuttra textabrota, þjóðsagna og ljóða sem tengjast firðinum og æskuminn- ingum höfundar. Er bókin nokk- urs konar uppgjör við sálina og hugann, bernskuminningarnar eiga sterk ítök í Önnu. Fyrir gott málefni Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til styrktar fólki með nýrnabilun en Anna er sú eina af systkinum sínum sem ekki er með nýrnasjúkdóm og finnst henni það erfitt. Langaði hana til að létta einhverju af sér og gera eitthvað sem nýttist fólki í baráttunni. Er bókin tileinkuð bróður höfundar, Sigurði Reyni Magnússyni, sem lést langt fyrir aldur fram vegna nýrna- sjúkdóms. Náttúrubarn Anna býr með manni sínum, Áskeli, á Eiðum og stundar þar hestamennsku ásamt ýmsu öðru. Hún ólst upp í Stakkahlíð ásamt systkinum sínum og foreldrum og leitar hugurinn oft til baka í Loðmundarfjörð. Síðastliðin tvö ár fór Anna í ólíkar ferðir á heimaslóðir, annað hvort á hestum, bát eða bíl, vopnuð myndavélinni sinni. Ferðafélagarnir voru hundur- inn og hestarnir. Upplifði hún t.d. hestaferð í 20 stiga hita og sólskini, yfir Hjálmárdalsheiði milli Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar, en þá leið hafði hún ekki farið í 40 ár. Sú leið var ávallt farin í kaupstað þegar fjölskyldan bjó í Stakkahlíð. Heim Ég stend á klettabrún horfi yfir dalinn sé hlíðarnar og gilin árnar og lækina kem út á leitið sé bæinn og hraunið öldurnar við sandinn Sólin skín fjöllin halda utan um mig Mér líður vel Höf: Anna Kristín Magnúsdóttir Að upplifa æskuslóðirnar á ný Ferðirnar hennar Önnu gáfu henni stórkostlega nálægð við náttúruna og lífið í fjöllunum og firðinum. Að ríða gömlu göturnar og finna hvern stein undir fótum hestanna, vaða yfir læki og hvílast með gott nesti við dúnmjúkar sef-tjarnir er eitthvað sem ekki er hægt að líkja eftir. Margar hugsanir spretta upp í kollinn á slíkum dýrðardögum. Ljóð eftir Önnu eru í bókinni en auk hennar á Eva Hjálmarsdóttir frænka hennar ljóð í bókinni, eins og t.d. ljóðið „Gunnhildur“, sem fjallar um aðal- fjallið í Loðmundarfirði. Í dag er Loðmundarfjörður í eyði en ekki eru mörg ár síðan Smári bróðir Önnu rak gistiheimili í Stakkahlíð. Auðvelt að komast í Lommann Anna ákvað að hafa bókina á 4 tungumálum svo erlendir ferða- menn gætu líka notið textanna í bókinni. Auðvelt er að komast í Loðmundarfjörð á fjórhjóladrifs- bílum en þá er ekið frá Borgarfirði eystra, framhjá Húsavík og áfram yfir í Loðmundarfjörð. Aftast í bókinni er landakort sem sýnir öll helstu kenni- leiti auk þess að sýna merkingar sem tengjast inn í textakafla bókarinnar. Loðmundarfjörður er einstaklega fal- legur, með stórbrotnu landslagi sem lætur engan ósnortinn, en samt er eitthvað milt og blítt í náttúrunni þar, líf fólksins sem bjó þar er markað í mörgum stráum og steinum. Bókin er gefin út í 500 eintökum, saumuð í harðspjaldakápu og prentuð hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum. Anna selur bókina í síma 865-0286 eða netfanginu annahestar@internet. is, eða netfang: annahestar@internet. is. Óður til æskuslóða Skálholtsútgáfan hefur gefið út bókina Brautryðjandann sem er ævisaga Þórhalls Bjarnarsonar (1855-1916), rituð af Óskari Guðmundssyni. Í kynningu segir að hinn frjáls- lyndi ritstjóri og útgefandi, kennari og skólamaður, prestur, alþingis- maður og búnaðarfrömuður, Þórhallur Bjarnarson, hafi verið biskup landsins 1908-1916. Af ein- stakri ljúfmennsku aflaði hann sér vinsælda á unga aldri, var hvarvetna í stafni og þótti snemma líklegur til forystu í íslensku þjóðfélagi. Ungur naut hann atlætis Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn – og sjálfur var hann gæfusmiður margra manna. Þórhallur var eldheitur hugsjónamaður og ákafamaður um framfarir. Ævisaga Þórhalls spannar spenn- andi tímabil breytinga í sögu Íslands; frá gamla bændasamfélaginu í ánauð til frjálshuga borgaralegs þjóðfélags á mótunarskeiði. Líf hans var fullt af framkvæmdum og ævintýrum. Þórhallur var eldheitur hugsjóna- maður og ákafamaður um framfarir á mörgum sviðum. Ævi hans var dramatísk og saga hans greinir frá sigrum hans og sorgum en varpar um leið ljósi á spenn- andi tíma- bil í sögu Íslendinga. Börn hans og Valgerðar konu hans voru fjögur; þau Dóra for- setafrú, Tryggvi forsætisráðherra, Björn bústjóri í Laufási og Svava, húsfreyja á Hvanneyri. Óskar Guðmundsson, rithöfundur hefur náð að fanga sögu merkilegs fólks, spegla ótrúlega tíma á sköp- unarskeiði borgaralegs samfélags á Íslandi, og segja þróttmikla sögu af Þórhalli Bjarnarsyni og samtíð hans. „Mig dreymir stóra og fagra drauma...“ Ómynd - Glæpasaga eftir Eyrúnu Tryggvadóttur er komin út hjá bókaútgáfunni Sölku. Kaldan föstudag í desember- byrjun hverfur barn á fyrsta ári úr vagni sínum á Akureyri. Íbúar eru harmi slegnir og lögreglan ráðþrota. Blaðamaðurinn Andrea fær fregnir af málinu og heldur norður í land. Eftirgrennslan hennar leiðir í ljós að ekki er allt sem sýnist hjá fjöl- skyldu barnsins og hún neitar að láta staðar numið fyrr en hún hefur grafið upp hvað leynist undir yfirborðinu. Ómynd er sjálfstætt framhald sögunnar um Andreu, sem kom fyrst fyrir augu lesenda í bókinni Hvar er systir mín (2008) og í kjöl- farið fylgdi Fimmta barnið (2009). Þær hafa báðar verið tilnefndar til Blóðdropans, íslensku glæpasagna- verðlaunanna. Ómynd er kilja mánaðarins hjá Pennanum í nóvember n.k. „Áhrif norrænna glæpasagna eru greinileg ... nýtir glæpasöguformið til að fjalla um félagsleg vandamál og erfið átaka- mál í samfélaginu.“ Um Fimmta barnið. Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is „Ekta krimmi sem gaman er að lesa. Saga sem vekur athygli.“ Um Fimmta barnið. Bókmenntagagnrýnandi DV Bókin er bæði í harðbandi og kilju, er 218 bls, og prentuð í Englandi í umsjá Prentmiðlunar. Ómynd Meginstofn þessa rits er vísnasafn eftir Sigurð Árnason (1890-1979). Hann var framan af ævi til heimilis á Oddsstöðum á Melrakkasléttu, en átti síðan mestallan sinn starfs- dag á Raufarhöfn. Í bókinni eru dregnar saman vel á þriðja hundrað vísur eftir Sigurð. Þá er birt hér viðtal sem Grímur M. Helgason átti við Sigurð rúmlega átt- ræðan. Þar bregður Sigurður ljósi á mannlífið á Sléttu allt frá því kring- um aldamótin 1900 og langt fram á 20. öldina. Aukið er við rækilegum skýringum um hvaðeina sem ástæða þótti til. Í ítarlegum inngangi sem útgefandi ritsins, Einar Sigurðsson, tók saman er fjallað um lífshlaup Sigurðar, ætt hans og uppruna. Í bókinni er skrá um heiti vísna og upphafsorð, einnig skrá um nöfn allra þeirra sem við sögu koma. Bókin er 190 blaðsíður, innbund- in og prýdd fjölda mynda. Sigurður var þekktur hag- yrðingur, enda fljúgandi hag- mæltur og fundvís á yrkisefni sem verða máttu sam- ferðamönnunum til skemmtunar, orti gjarnan „vísu dagsins“, eins og hann orðaði það. Sigurður var af fátæku fólki kominn og var því á efri árum „minnugur gamalla daga í baráttunni fyrir brauðinu“, eins og Vigdís Grímsdóttir rithöfundur kemst að orði um afa sinn látinn. Hér er um að ræða rit sem mun kærkomið þeim sem unna vísnakveðskap og þjóðlegum fróð- leik. Frekari upp- lýsingar veitir útgef- andi ritsins, Einar Sigurðsson, fv. landsbókavörður, Kringlunni 45, 103 Rv., sími 568 9209, 898 4132, esigurd@simnet.is) . Nú kveð ég þig Slétta - Vísur og viðtalsþáttur Anna Kristín Magnúsdóttir. Bókabásinn

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.