Bændablaðið - 10.11.2011, Side 16
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 201116
Það er óhætt að segja að eldgosið
í Eyjafjallajökli hafi haft veru-
legar afleiðingar í för með sér fyrir
bændur sem búa á hamfarasvæð-
inu. Eldgosið hafði ýmsa eftirmála
sem voru þó ekki allir neikvæðir.
Svo fór til dæmis þegar Berglind
Hilmarsdóttir, bóndi á Núpi III,
var búin að berjast í gegnum
mesta öskuskýið, að hún var beðin
um að halda fyrirlestur fyrir for-
seta Eistlands sem kom hingað til
lands þegar ósköpin dundu yfir.
Ári síðar fékk Berglind síðan
hringingu frá Eistlandi og var
beðin um að halda opnunarerindi
á árlegri leiðtogaráðstefnu þar í
landi.
„Þetta hófst allt á því að Tjörvi
Bjarnason, hjá útgáfu- og kynn-
ingarsviði Bændasamtakanna, benti
á mig þegar haldin var opinber
móttaka fyrir forseta Eistlands í
björgunarsveitarhúsinu á Hellu. Þar
kynnti forsetinn sér kringumstæður
í sambandi við eldgosið, björgunar-
sveitirnar, heimamenn og heilsu- og
löggæslu. Ég hugsaði strax, hvað
getur maður sagt og hvað skiptir
máli? Niðurstaðan varð sú að ég tal-
aði ekkert um brennandi kindur eða
eldgosið heldur um jarðskjálftann á
Haítí og hvernig móðir náttúra tuktar
okkur til. Einnig lagði ég áherslu á
að við eigum að vera þakklát fyrir
það sem við höfum og síðan endaði
ég á að fara með ljóð feita björnsins
Balús í Jungle Book, sem fjallar um
hin einföldu gæði lífsins,“ útskýrir
Berglind og segir jafnframt:
„Ári síðar hringdi Raul Rebane
sem var í fylgdarliði forsetans í mig.
Hann er þekktasti íþróttafréttamaður
Eistlands, ráðgjafi almannatengsla,
liðsstjóri á ólympíuleikum undan-
farna áratugi og skipuleggjandi við-
burða eins og heimsóknar eistneska
forsetans. Því var hann fenginn til
skrafs og ráðagerða til að stinga upp
á fólki fyrir ráðstefnuna og hann
benti á mig.“
Mannauðurinn skiptir mestu máli
Ráðstefnan var haldin í bænum Pärnu
í Eistlandi dagana 12.-14. október
síðastliðinn. Yfirskrift ráðstefnunnar
var „Actual Power“, þema hennar um
vald stjórnenda og í hverju vald felist.
„Ég var með opnunarræðuna, sem
kom sjálfri mér mjög á óvart. Þetta var
eins og öskubuskuævintýri þar sem
graskerið breyttist í vagn og hvaðeina.
Ég var sótt og keyrð, farið með mig
eins og prinsessu og ég spurð álits
á öllu. Mér var sýnd þessi risastóra
ráðstefnuhöll daginn áður, pall-
borðið var skoðað og mín sjónarmið
virt. Það var rosalegt skipulag á öllu
og dekrað við mig allan tímann. Ég
lærði mjög mikið um skipulag og
virðingarsess í þessari ferð og það
voru svo margir litlir hlutir sem hugað
var að, eins og að setja blóm í pott á
borð hjá fyrirlesurunum þannig að
þeir hefðu ákveðinn stað í salnum,“
segir Berglind með bros á vör.
Þema ráðstefnunnar var sem áður
sagði vald, en öllum fyrirlesurum var
uppálagt að vera á bjartsýnisnótunum
og bannað var að vera með duldar
auglýsingar í fyrirlestrunum.
„Mitt innlegg var hvernig við
mannfólkið leysum úr ófyrirséðum
kringumstæðum eins og náttúruham-
förum. Einnig talaði ég um hvernig
manneskjan og samfélagið vinna úr
því með öllum samvirkandi þáttum
eins og björgunarsveitum, löggæslu,
heilsugæslu, almannavörnum og íbú-
unum sjálfum. Ég var með margar
myndir og gaf björgunarsveitunum
mjög mikið vægi og sýndi þær einnig
að störfum á Haítí. Það er einstakt á
jarðarkúlunni, þetta björgunarstarf
sem við höfum hér heima og eins
almannavarnakerfið. Við erum með
her sjálfboðaliða sem búa sig undir
þá vá sem að okkur steðjar, það er
náttúruhamfarir og sjúkdóma, en
ekki að drepa og berjast. Ég lagði
áherslu á að mannauðurinn og sam-
félagið skiptir svo miklu máli. Það
er hægt að vinna sig út úr öllu ef allir
standa saman.“
Leiðtogar víða að
Valinn maður var í hverju rúmi við
pallborðin á ráðstefnunni; leiðtogar
víðsvegar að úr heiminum sem allir
hafa náð marktækum árangri í sínum
störfum.
„Þarna var fólk úr öllum áttum
og það var svo skemmtilegt. Meðal
þeirra var Henri Käsper, sem er
einn þekktasti pókerspilari í heimi,
Ene-Juta Üleoja, sem er kórstjóri og
Geoff Mulgan, sem starfar hjá breska
menntamálaráðuneytinu og hefur
stýrt vinnu um nýja menntastefnu
í Bretlandi þar sem grunnskólabörn
fara í starfsnám. Einnig hélt Fabrizio
Ferraro erindi en hann er prófessor
við IESE, sem er á topp tíu lista yfir
bestu viðskiptaháskóla í heiminum,“
segir Berglind og bætir við:
„Síðan kom það skemmti-
lega á óvart að ég var ekki eini
Íslendingurinn sem flutti erindi,
því það gerði einnig Vésteinn
Hafsteinsson kringlukastari og þjálf-
ari. Hann er þjóðhetja í Eistlandi og
talaði um hvernig maður nær árangri.
Inntakið hjá honum var að maður
gerir það sem maður er góður í og
gerir það eins vel og maður getur,
sem sagt gerir sitt besta í dag. Það er
ekkert til sem heitir að gera hlutina
hratt og dró hann í sínu erindi upp
samlíkingar við íslensku útrásarvík-
ingana. Vésteinn tók óþekktan og
óreyndan 21 árs gamlan eistneskan
strák upp á sína arma og vildi þjálfa
hann á meðan aðrir sögðu að það væri
vonlaust. Nokkrum árum síðar varð
strákurinn, Gerd Kanter, ólympíu-
meistari í kringlukasti. Erindið hans
Vésteins var mjög áhugavert og hann
hreif gjörsamlega salinn með sér.“
Byggja upp landið með jákvæðni
„Það var margt þarna til fyrirmyndar
sem við gætum tekið upp. Eistar hafa
búið við hernám og yfirgang og
fjölskyldur hafa misst margt vegna
rússneska hersins. Eins og ráðgjaf-
inn Raul Rebane sagði mér frá, þá
bjuggu afi hans og amma á bújörð
sem hafði verið í fjölskyldunni í 350
ár. Einn daginn kom rússneski her-
inn og þau fengu nokkra daga til að
pakka saman og fara. Þau fengu sem
nam einum mánaðarlaunum til að
koma sér fyrir annarsstaðar. Eistland
er landbúnaðarland og mikil virðing
er borin fyrir þessari atvinnugrein.
Nú er mannréttindadómstóll Evrópu
smekkfullur af málum fyrrum
búgarðaeigenda í Eistlandi sem
eru að reyna að endurheimta sitt,“
útskýrir Berglind og segir jafnframt:
Eldgosið í Eyjafjalaljökli olli óvæntri uppákomu í lífi Berglindar Hilmarsdóttur bónda á Núpi III undir Eyjafjöllum:
Úr öskuskýi í öskubuskuævintýri til Eistlands
„Mitt innlegg var hvernig við mannfólkið leysum úr ófyrirséðum kringumstæðum eins og náttúruhamförum. Einnig
talaði ég um hvernig manneskjan og samfélagið vinna úr því með öllum samvirkandi þáttum,“ útskýrir Berglind.
Mynd / HKr.
Elgosið í Eyjafjallajökli hafði mikil áhrif á líf fjölda fólks víða um heim á meðan á því stóð. Gosið olli því líka að
bóndakona undir Eyjafjöllum var kölluð á ráðstefnu úti í Eistlandi fyrir skömmu. Mynd / HKr.
Pärnu í Eistlandi er einn helsti
sumardvalarstaður og skútusigling-
abær Eistlendinga en þar eru miklar
hvítar sandstrendur.
Berglind í ræðustól á r´ðastefnunni
í Pärnu.