Bændablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011
Í kjölfar hins erfiða efnahags-
ástands hafa kúabændur hér
á landi upplifað miklar breyt-
ingar á starfsemi bankanna. Í
Danmörku er þessu eins farið en
dönsk mjólkurframleiðsla lenti,
líkt og hin íslenska, í miklum
erfiðleikum. Mjólkurframleiðsla
danskra bænda er landbúnað-
inum og þjóðinni þar í landi
gríðarlega mikilvæg og því gat
búgreinin ekki búið lengi við þá
stöðu að ekki væri hægt að fá lán
í bönkum til frekari þróunar eða
endurfjármögnunar greinarinnar.
Bankar með ráðunauta í vinnu
Nú hafa fleiri og fleiri bankar
brugðist við af mikilli skynsemi og
hafa komið sér upp sérþekkingu á
bæði mjólkur- og kjötframleiðslu.
Þessir sérfræðingar bankanna í
nautgriparækt eru því færir um að
setja spurningarmerki við ýmsa
rekstrarþætti búanna. Sem dæmi má
nefna að skuldsett bú, sem bankinn
aðstoðar við að halda áfram, þarf að
ná góðum árangri á öllum sviðum
eigi ekki að ganga að því. Þannig eru
dæmi um að bankar hafi gert athuga-
semdir við það ef bú ná ekki gæða-
álagi afurðastöðvar vegna mjólkur.
Einnig er algengt að bankarnir geri
alvarlegar athugasemdir við rekstur
búanna ef meðalafurðir eru lágar,
en framlegð ekki að sama skapi
há. Sumir bankar hafa einnig ráðið
til sín ráðunauta í nautgriparækt,
oftast sem verktaka, sem þeir senda
á eigin kostnað á kúabú sem eru í
vanda. Ráðunautarnir gera þá oftast
viðamikla úttekt og gera tillögur
að breytingum á rekstri búanna.
Þessum rekstrartillögum er svo fylgt
eftir með reglulegum heimsóknum
ráðunautanna, svo tryggt sé að farið
sé að tillögunum!
50% lækkun jarðamats
En það er ekki eingöngu á sviði
endurfjármögnunar sem bankarnir
hafa tekið upp nýja siði heldur
einnig á sviði nýrra útlána. Engin
atvinnugrein getur búið við þá stöðu
til lengdar að ekki sé fjárfest í nýjum
framleiðslueiningum og er mjólkur-
framleiðsla þar engin undantekning.
Nú hafa margir bankar brugðist við
þessari þörf og lána nú til nýfram-
kvæmda en þó með þeim hætti að
setja afar stífar kröfur um útlánin.
Dæmi um þessar kröfur eru að við
veðmat jarðar er landverð fært niður
um amk. 50% frá því sem það var
árið 2007. Þá lána flestir bankanna
eingöngu til fjósbygginga, sem áætl-
að er að kosti 30-35 þúsund danskar
krónur á hverja kú (u.þ.b. 650-750
þúsund íslenskar krónur.). Þetta er
langt undir því sem lánsfjárhæðin
var fyrir tveimur árum en meðal
byggingarkostnaður fjósa var þá 45
þúsund d.kr./kú með hefðbundinni
mjaltatækni og 55 þúsund d.kr./kú
þar sem fjárfest var í mjaltaþjónum.
Lausnirnar eru til
Þessi lága lánsfjárhæð hefur sett
fjóshönnuði landsins í þá stöðu að
þeir hafa þurft að finna lausnir sem
áður hafa vart sést í fjósbyggingum
í Danmörku. Sett var í gang verk-
efni sem miðaði að því að finna
nýbyggð, sjálfstæð fjós (þ.e. ekki
viðbyggingar) sem stæðust allar
nútíma kröfur um aðbúnað, en hefðu
verið ódýr í byggingu. Fimm fjós
voru tekin til nánari athugunar. Af
þeim voru tvö með mjaltaþjónum
og önnur tvö með mjaltabásum
en það síðasta án mjaltaaðstöðu.
Þrjú af þessum fjósum, fjósin án
mjaltaþjónanna, höfðu verið byggð
fyrir minna en 30 þúsund d.kr./kú
en mjaltaþjónafjósin tvö fyrir 40
þúsund d.kr./kú. Þessi bú höfðu það
sameiginlegt að haldið var stíft um
taumana við byggingu fjósanna,
ekkert var framkvæmt í þeim án
þess að leitað hefði verið tilboða
og í öllum fimm tilfellunum voru
iðnaðarmennirnir sem unnu við
verkin sk. heimamenn. Þá voru
fjósin öll afar einföld í hönnun og
með litlum tæknibúnaði.
Rík krafa til fjóshönnuða
Með sameiginlegri vinnu margra
fjóshönnuða, framleiðenda húsa,
innréttinga og tækja hafa nú litið
dagsins ljós nokkrar útfærslur af
því sem kalla mætti ódýr fjós sem
koma til móts við þessar hörðu
kröfur bankanna. Segja má að
sértækar lausnir fyrir hvert kúabú
hverfi með öllu þegar fermetraverð
nýframkvæmda er skorið svona
niður og því þurfi bændurnir að
sætta sig við það að fá eingöngu
lán fyrir einskonar staðalfjósi
með lágt tæknistig. Þessar bygg-
ingar eru tiltölulega mjóar á danskan
mælikvarða (ekki breiðari en 32
metrar) og fóðurgangurinn er utan
við útvegg, en þakskeggið er afar
langt og myndar einskonar þak yfir
hinum utanáliggjandi fóðurgangi.
Þá eru legubásarnir ekki steyptir upp
og eingöngu hafður stallur aftast í
þeim en legusvæðið sjálft fyllt með
sandi, taðtrefjum eða annarskonar
undirburði. Í þessum fjósum hefur
grunnurinn einnig verið einfaldaður
verulega og allir gólffletir hafðir í
nánast sömu hæð. Þannig eru t.d.
ekki smákálfa- eða burðarstíur
með hálmi í fjósunum, enda þyrfti
þá að útbúa sértæka lausn vegna
sökkuls og frárennslis, sem hækkar
kostnaðinn.
Eingöngu nauðsynlegir
þættir með
Reynslan frá Danmörku sýnir að
kostnaður við kaup á mjaltaþjóni
nemur um 10 þúsund d.kr. aukalega
á hverja kú miðað við hefðbundna
mjaltatækni eða um 215 þúsund
í.kr./kú. Hefur þá verið tekið tillit
til allra þátta við bygginguna sjálfa,
svo sem við undirstöður, lagnir, upp-
setningu, mjaltaþjónakaup og þess
háttar. Því eru nýju, ódýru fjósin
með hefðbundnum mjaltabásum,
þar sem enn meira er lagt upp úr
góðri nýtingu mjaltabásanna en
verið hefur. Sem dæmi um þetta má
nefna að þó svo að stór fjós finnist í
Danmörku, allt upp í 1.000 kúa fjós,
þá væri hægt að mjólka allar kýr í
slíku fjósi í venjulegum mjaltabás
með 2x12 tæki. Þetta er þó vissulega
háð því að nýtingin sé rétt og að
mjaltir þurfi að taka lengri tíma en
oft er miðað við í dag, sem er þó
ekkert frábrugðið því að vera með
mjaltaþjón í raun. Samandregið má
segja að horft sé á hvern fermetraný-
byggingarinnar, spurt út í hvort við-
komandi lausn sé nauðsynleg fyrir
rekstur búsins eða ekki og eingöngu
framkvæmdir þeir hlutir sem teljast
til nauðsynlegra þátta.
Snorri Sigurðsson
Auðlindadeild LbhÍ
Heimild:
Rasmus Kjelsmark Nielsen,
2011. „Billigt byggeri, kan vi
det?“. Fyrirlestur á ráðstefnunni
Nordisk byggetræf 2011, sem
haldin var í Danmörku 14.–16.
september 2011.
Ódýr fjós Opið hús á Stóra-Ármóti í FlóaFöstudaginn 11. nóvember milli kl. 13-17 verður opið hús á tilrauna búinu Stóra-Ármóti
í Flóa.
Þar verður hægt að fylgjast með klaufsnyrtingu, kúadómum, sauðfjárdómum og hrossa-
dómum. Kynning verður á tilraunastarfinu, NorFor fóðurmatskerfinu, túnkortagerð ofl.
MS og Ölvisholt brugghús verða með vörukynningu.
Heitt verður á könnunni og léttar veitingar í boði.
Ýmis fyrirtæki og hagsmunasamtök tengd landbúnaði, kynna starfsemi sína og margt
fróðlegt að sjá og heyra fyrir börn og fullorðna.
Allir velkomnir
Dagskrá á www.bssl.isBúnaðarsamband Suðurlands Landbúnaðarháskóli Íslands
Ferðaþjónusta bænda · Síðumúla 2 · 108 Reykjavík · Sími 570 2700 · Fax 570 2799 · sveit@sveit.is
UPP Í SVEIT ALLT ÁRIÐ -
EINSTÖK UPPLIFUN!
23. nóvember á Reykjavik Natura (áður Hótel Loftleiðir)
Uppskeruhátíð
Ferðaþjónustu
bænda
2011
DAGSKRÁ:
HÁTÍÐARKVÖLDVERÐUR
á Reykjavík Natura (23. nóv.)
Reyktur og grafinn lax með salati og hunangssósu
Lambalæri með steiktum kartöflum, rabarbarasultu og soðsósu
Súkkulaði mousse með vanillusósu og skógarberjum
Um kvöldið mun starfsfólk skrifstofu Ferðaþjónustu bænda
veita tveimur ferðaþjónustubæjum viðurkenningar:
Besta frammistaðan 2011
Hvatningaverðlaun 2011
Allir félagar í Ferðaþjónustu bænda eru hvattir til að mæta á svæðið
Skráning á Uppskeruhátíðina er í fullum gangi hjá Elsu Ágústu,
netfang elsaagusta@farmholidays.is, beinn sími: 570 2726.
09.00 - 09.30 Kaffibollaspjall
09.30 - 09.45 Setning Uppskeruhátíðar (Sigurlaug
Gissurardóttir formaður FFB)
09.45 - 10.00 Sumarið 2011 og tækifærin
framundan (Sævar Skaptason,
framkvæmdastjóri FB hf.)
10.00 - 10.20 Kynning á verkefninu „Ísland
allt árið“ (Inga Hlín Pálsdóttir,
Íslandsstofu)
10.20 - 10.35 Er framtíðarlausnin að byggja?
Hermann Ottósson, Íslandsstofa
10.35 - 11.00 Kaffihlé
11.00 - 12.00 Heimskaffi og umræður. Ísland allt
árið: Hvað vilja bændur gera?
12.00 - 13.00 Hádegisverður
13.00 - 13.20 Hvað gerir góða staði góða?
(Borghildur Sölvey Sturludóttir,
arkitekt FAÍ)
13.20 - 13.40 Úr geymslu í gersemi (Dísa og Óli
ferðaþjónustubændur í Skjaldarvík,
Eyjafirði)
13.40 - 14.00 Eldhúsið, þar sem hjartað slær! (Hansína
B. Einarsdóttir, Skref fyrir skref)
14.00 - 14.15 Kaffihlé
14.15 - 14.30 Horft fram á veginn í gæðamálum
(Berglind, gæðastjóri FB)
14.30 - 14.45 Tækifærin á netinu í gegnum
Ferðaþjónusta bænda (Sævar og
Hildur Fjóla vefstjóri).
14.45 - 14.55 Hentar gistibókin öllum
félagsmönnum Ferðaþjónustu
bænda?
14.55 - 16.00 Það sem bændur vilja sagt hafa ...
orðið er laust!
Fundarstjóri: Elías Bj. Gíslason Ferðamálastofu
17.00 Óvissuferð
19.30 Hátíðarkvöldverður á Reykjavík Natura
22. nóvember: Opið hús á skrifstofu
Ferðaþjónustu bænda í Síðumúla 2
13.00 - 14.00 Kynning fyrir nýja/nýlega félaga í
Ferðaþjónustu bænda
13.00 - 16.00 Vinnusmiðja um gistibókina og
vefsöluna
(Ath. sama dagskrá er á skrifstofunni 22. og 24.
nóvember - spurning hvað hentar félögum betur)
24. nóvember: Námskeiðið „Ólíkir menningar-
heimar“ og opið hús 24. nóvember í Síðumúla 2
09.00 - 12.00 Ólíkir menningarheimar
13.00 - 14.00 Kynning fyrir nýja/nýlega félaga í
Ferðaþjónustu bænda
13.00 - 16.00 Vinnusmiðja um gistibókina og
vefsöluna
Allir félagar eru hvattir til að taka þátt í vinnusmiðjunni.
(Ath. sama dagskrá er á skrifstofunni 22. og 24.
nóvember - spurning hvað hentar félögum betur)
Í tengslum við Uppskeruhátíðina höfum við fengið
sérstakt tilboðsverð á gistingu á Reykjavik Natura.
Bændablaðið á netinu... www.bbl.is