Bændablaðið - 10.11.2011, Side 28
28 Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 2011
Skúli Skúlason, rektor Háskólans
á Hólum, hefur ákveðið að láta
af störfum á næsta ári en sinnir
áfram kennslu- og rannsóknar-
störfum við fiskeldis- og fiskalíf-
fræðideild skólans. Hann segir
efnahagskreppuna hafa komið
við skólann með niðurskurði og
miklu aðhaldi í rekstri. Á sama
tíma hefur tekist að halda uppi
öflugri kennslu og rannsóknum og
starfsemi skólans er þjóðfélaginu
greinilega mikilvæg á okkar tímum.
Skúli telur að á næstu árum verði
mikil uppbygging á Hólum, enda
séu möguleikar landsbyggðarinnar
sjaldan meiri en nú.
Skúli hefur starfað við Hólaskóla
frá árinu 1990 þegar hann réð sig sem
deildarstjóra fiskeldisfræðideildar
skólans. Skúli er menntaður líffræð-
ingur og átti þátt í að byggja upp rann-
sóknarstarf við skólann. Árið 1999,
þegar skólinn fékk leyfi til að kenna á
háskólastigi, varð Skúli skólameistari
hans og síðar rektor þegar skólinn varð
háskóli að lögum.
Net opinberra háskóla
Skúli segir starfið ákaflega gefandi
og skemmtilegt og af mörgu sé að
taka en nefnir fyrst sem dæmi eitt
spennandi verkefni sem nú er unnið
að með Háskóla Íslands, Háskólanum
á Akureyri og Landbúnaðarháskóla
Íslands. Þessir fjórir opinberu háskólar
vinna nú að því að mynda samstarfs-
net, en tveggja ára átaksverkefni um
þetta hófst haustið 2010 að tilstuðlan
mennta- og menningarmálaráðherra,
Katrínar Jakobsdóttur. Markmið
verkefnisins eru að efla íslenska
háskóla, kennslu og rannsóknir, auka
hagkvæmni í rekstri og að tryggja
háskólastarfsemi víða á landinu.
„Eftir hrun hófust umræður um
háskólana en þeir eiga að vera í
fararbroddi í menningarsamfélögum
og við uppbyggingu samfélaga.
Háskólar ætla að stefna lengra og að
gera meira. Markmið nets opinberu
skólanna eru að stuðla að meiri sam-
vinnu og að veita betra umhverfi til
menntunar og rannsókna. Þetta er að
mínu mati mikilvægt, ekki síst fyrir
hina þrjá opinberu háskóla úti á landi,
til að nýta fjármuni sína betur og til
að styrkja og efla skóla úti á lands-
byggðinni,“ segir Skúli brosandi og
bætir við:
„Horft hefur verið á erlendar fyr-
irmyndir í háskólasamstarfi í þessari
vinnu. Þessari stefnu svipar til dæmis
til þess sem University of Highlands
and Islands í Skotlandi hefur unnið
að við að tengja saman þrettán mis-
stóra skóla í dreifðum byggðum
og eyjum Norður-Skotlands. Í neti
opinberra háskóla er nú þegar búið
að taka stór skref, til dæmis við að
samræma stoðþjónustu skólanna,
sem og að greiða mun betur fyrir
flæði nemenda milli skóla en hefur
verið gert hingað til. Þá er markvisst
unnið að auknu samstarfi um kennslu
og rannsóknir. Þetta er mjög jákvætt
mál í öllu þessu neikvæðnisrugli sem
verið hefur í þjóðfélaginu. Hólaskóli
hefur reyndar verið í miklu samstarfi
við aðra háskóla um árabil og að
mörgu leyti byggt þróun sína á því.“
Sérhæfður skóli
Í Háskólanum á Hólum eru um 270
nemendur á þremur sviðum, hesta-
fræði-, ferðamála- og fiskeldis- og
fiskalíffræðibraut. Þar af er þó
nokkur fjöldi erlendra nemenda,
sérstaklega í hestafræðinni.
„Við erum mjög stolt af nem-
endum okkar. Við skólann eru
stundaðar viðamiklar rannsóknir
sem hafa aukist undanfarin ár og
aðstaða skólans til rannsókna- og
þróunarstarfa er mjög góð bæði á
Hólum og í Verinu á Sauðárkróki.
Þá er skólinn einnig með starfsfemi
á Blönduósi og Hvammstanga. Við
hér á Hólum sjáum veruleg tækifæri
í því að styrkja háskólann enn frekar.
Aðsókn í ferðamáladeildina hefur
tekið algjöran kipp, meðal annars
vegna þess að nú bjóðum við upp á
fjarnám með staðbundnum lotum.
Við leggjum mikið upp úr tengslum
nemenda við staðinn,“ útskýrir Skúli
og segir jafnframt:
„Þetta er gríðarlega sérhæfður
skóli á sviðum sem eru þjóðinni mjög
mikilvæg, ekki síst eftir hrun. Við
höfum allt að græða á því að vinna
með öðrum og aðrir með okkur.Við
höfum byggt upp sterkan kennara-
hóp og aðstöðu hér og höfum mikla
úrvalsnemendur hér við skólann. Hér
hafa verið allt að 12 þjóðerni á sama
tíma og í hestafræðinni er allt kennt
á íslensku. Erlendu nemendurnir
hafa þá komið hingað til lands fyrr
til að læra íslensku og þeim vegnar
oftast mjög vel. Við erum einnig með
útlenda nemendur í framhaldsnámi
eins og í meistaranámi í fiskeldis- og
fiskalíffræði og ferðamálafræðum og
svo leiðbeinum við doktorsnemum í
samstarfi við aðra háskóla. Erlendir
nemendur okkar eru mjög mikilvægir
fyrir skólann í sínu heimalandi.“
Í meistaradeildina rétt fyrir hrun
Árið 2007 varð Hólaskóli háskóli
með lögum frá Alþingi og ári síðar
fékk skólinn fulla opinbera viður-
kenningu fræðasviða sinna.
„Við fórum í alþjóðlegt mat og
í framhaldinu fengum við þessa
viðurkenningu. Þessi þróun þýðir
að skólinn hefur fengið mun meiri
athygli. Árið 2000 voru hér ekki
nema um 50 nemendur svo þetta
er mikil breyting á rúmum áratug.
Það varð mikil breyting á starfsemi
skólans árið 2008 þegar við fórum
frá landbúnaðarráðuneytinu undir
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið, eins og Landbúnaðarháskóli
Íslands. Frá því ári hefur verið sam-
fellt unnið að því að tryggja skól-
anum grunn í nýju ráðuneyti og að
tryggja starfsemi hans til framtíðar.
Eftir hrun voru allir háskólar hvattir
til að taka inn fleiri nemendur um
leið og skorið var niður svo það olli
rosalegri spennu í rekstri. En það
hefur verið mjög skemmtilegt að taka
þátt í endurreisn landsins með öflugri
kennslu og rannsóknum.“
Skólastarf til framtíðar
Háskólinn á Hólum fór eftir fyrir-
mælum líkt og aðrir háskólar lands-
ins eftir hrun og tók inn fleiri nem-
endur. Nemendum hefur fjölgað mest
í ferðamáladeildinni.
„Rekstur skólans hefur oft verið
erfiður í gegnum árin en frá og með
árinu 2009 hefur reksturinn verið
í nokkuð góðu jafnvægi í kjölfar
mikils átaks. Við höfum tekist á við
ýmsar sársaukafullar aðgerðir, þurft
að segja upp starfsfólki, hagræða á
öllum sviðum og breyta skipulagi,
en jafnframt hefur okkur tekist að
auka sértekjur skólans. Það sem
er sérstakt við reksturinn hér er að
skólinn er einnig staðarhaldari að
Hólum. Jörðin er stór og hér hefur
myndast þéttbýli því hér búa allt
að 200 manns. Hólar eru líka einn
helsti menningar- og sögustaður
þjóðarinnar og ýmis verkefni tengd
því koma í hlut skólans. Í því sam-
bandi má geta þess að síðasta áratug
hafa verið hér viðamiklar fornleifa-
rannsóknir.“
Skúli segir einnig að nú eigi sér
stað viðræður við mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytið um samning
við skólann um verkefni hans á
næstu árum og einnig eru viðræður
um fjármögnun skólans til framtíðar.
Hann bindur miklar vonir við þessa
vinnu. Þá er einnig stefnt að því að
Sveitarfélagið Skagafjörður taki
alfarið að sér þjónustu- og skipulags-
mál íbúðabyggðarinnar á Hólum.
Uppbygging framundan
Í kjölfar umræðu um fjármögnun og
starfsemi skólans þróaðist umræða
Skúla og blaðamanns út í hvernig
skólinn hafi komið undan því efna-
hagshruni sem hér varð fyrir þremur
árum.
„Eins og áður sagði hefur niður-
skurður á fjárframlögum verið mjög
sársaukafullur, það hefur ekki verið
auðvelt að skapa jafnvægi í rekstr-
inum og sú vinna heldur áfram.
Það er fullljóst að frekari þróun
og efling skólans krefst meira fjár-
magns og við leitum allra leiða til
að tryggja það. Uppbygging eftir
hrun gerir mikla kröfu til starfsemi
háskóla. Íslendingar eiga tvímæla-
laust að nýta skólana sína og rann-
sóknarstofnanir til að byggja upp
betra og öflugra þjóðfélag. Upprót
kreppunnar felur þrátt fyrir allt í
sér margvísleg tækifæri, ekki síst
fyrir skapandi hugsun og störf. En
eins og góður maður sagði eitt sinn;
„never waste a good crisis“, eða að
við eigum ekki að láta góða kreppu
fara til spillis – með öðrum orðum,
við eigum að nota upprótið núna
til að skapa farveg góðra verka og
byggja upp. Það er mjög mikilvægt
að nýta þennan tíma núna til þess og
háskólar landsins eiga að vera hér í
fararbroddi.“
Margföld tækifæri
landsbyggðarinnar
Skúli hefur starfað sem kennari og
deildarstjóri við Hólaskóla í 9 ár
og hefur verið rektor skólans síðast-
liðin 12 ár. Núna hyggst hann aftur
á móti hleypa nýjum manni í brúna
og hefur starf hans verið auglýst laust
til umsóknar.
„Mitt mat er að 12 ár séu góð
reynsla og að það sé gott fyrir skól-
ann að fá hér inn ferskan einstakling.
Þannig að það verða rektorsskipti
á næsta ári og ég fer aftur í mína
prófessorsstöðu þar sem ég mun sinna
kennslu og rannsóknum. Ég býð áfram
krafta mína fyrir háskólasamfélagið,
enda eru slík störf virkilega skemmti-
leg og gefandi. Fyrir þann sem tekur
við starfi rektors er það að mínu mati
stórkostlegt tækifæri til að þróa og
efla góðan skóla og til að vinna með
frábæru starfsfólki og nemendum,“
segir Skúli og bætir jafnframt við:
„Verkefni háskólanna eru ein þau
mikilvægustu sem framkvæmd eru í
samfélaginu. Þessir skólar gera svo
afskaplega mikið fyrir þjóðfélagið
og starf þeirra er hafið yfir nagg og
dægurþras. Það er ómetanleg reynsla
og hrein forréttindi að taka þátt í að
leiða slíkan málaflokk. Þessi áskorun
sem blasir við hér á Hólum, sem
og við öðrum háskólum og þekk-
ingarsetrum, er mjög mikilvæg fyrir
dreifbýlið því það eru mikil lífsgæði
sem felast í því að búa og starfa úti á
landi. Þegar ég kom hingað árið 1990
var ég talinn furðukall að flytjast á
þennan afskekkta stað þar sem var
þá gamall malarvegur, en síðan hefur
mikið breyst og nú sjá menn mun
betur kostina hérna. Tækifæri lands-
byggðarinnar hafa aldrei verið meiri
„Tækifæri landsbyggðar aldrei meiri en nú“
Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum, mun láta af embætti á næsta ári en fer þó aftur í sitt gamla starf sem prófessor við skeldis- og skalíffræðideild
skólans. Hann segir mikil og spennandi tækifæri bíða eftirmanns síns.
Framleiðum
margar stærðir
af mykjudreifurum og
mykjudælum fyrir húsdýraáburð.
Sími 565-1800 - www.velbodi.is