Fréttablaðið - 13.01.2012, Qupperneq 2
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR2
Björn, er ekki bara málið að
smella sér í diskógallann?
„Nóg er að minnsta kosti ljósasjóið.“
Björn Ingimarsson er bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs sem skorað hefur á
Ríkisútvarpið að lagfæra viðvörunar-
ljós í langbylgjumastrinu á Eiðum sem
á stundum sendir ofurbjört og taktlaus
leiftur út í nóttina.
Smurostar
við öll tækifæri
ms.is
...tvær nýjar
bragðtegundir
Ný bragðtegund
með
papriku
Ný bragðtegund
Texmex
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
-
11
-0
50
9
VEIÐI Nýir leigutakar Þverár og
Kjarrár í Borgarfirði boða tölu-
verðar breytingar sumarið 2013;
Litla-Þverá verður boðin sem nýtt
tveggja stanga svæði og veiðimönn-
um stendur til boða að sækja veiði
í Kjarrá á hestum hluta úr sumri,
eins og tíðkaðist fyrr á árum. Þrátt
fyrir töluverða hækkun á leigu
ánna reikna nýir húsbændur með
því að verð á jaðartíma verði svipað
og fyrri ár. Besti tíminn, sem hefur
um áratuga skeið aðallega verið
seldur til fyrirtækja og útlenskra
veiðimanna, mun standa undir
hærri leigu.
Leigutaki árinnar, Starir ehf.,
greiðir Veiðifélagi Þverár 111,7
milljónir króna á ári. Greiðslur
fyrir uppkaup netalagna í Hvítá
og vegagerð koma því til viðbótar.
Töluverð umræða spannst í
haust um hækkun veiðileyfa í
kringum útboð Þverár og Kjarrár.
Ingólfur Ásgeirsson, einn leigu-
taka, segir að í umræðunni gleym-
ist að um áratuga skeið hafi besti
tíminn í ánni, eins og öllum öðrum
sambærilegum ám, verið seldur til
fyrirtækja og útlendinga.
„Við munum reyna að auka
hlutdeild erlendra viðskipta-
manna eftir föngum og lítum til
þess verðs sem gengur og gerist í
sambærilegum ám, sem eru fáar.
Íslenski markaðurinn tekur ekki
við miklum hækkunum á veiði-
leyfum og við munum taka tillit
til þess.“
Ingólfur segir þá félaga ætla að
byggja á þeim hefðum sem veiði-
félagið Sporður, fyrri leigutaki
ánna, hafi skapað undanfarin ár
en hrinda jafnframt sínum hug-
myndum í framkvæmd.
„Við erum að taka við frábæru
búi; áin hefur sérstöðu og yfir
henni hvílir sérstakur andi. Við
ætlum að bjóða veiðimönnum nýtt
tveggja stanga svæði sem er Litla-
Þverá. Það verður spennandi kost-
ur á mjög sanngjörnu verði. Svo
langar okkur að endurvekja gaml-
ar hefðir með því að bjóða hesta-
ferðir á efri hluta Kjarrár hluta úr
sumri.“
Ingólfur segir jafnframt að
eftir 20. ágúst verði boðið upp
á nýjan kost í Þverá, en tvær
stangir verða þá seldar til sil-
ungsveiða, með góðri laxavon, á
neðsta hluta árinnar. „Við teljum
okkur vera að auka töluvert við
þá kosti sem eftirsóttastir eru af
íslenskum veiðimönnum,“ segir
Ingólfur.
Þeir félagar ætla að leggja
frekari áherslu á veiða/sleppa og
veiðimenn fá að taka færri fiska
með sér heim en áður. „Við ætlum
að innleiða enn frekar þessa
hugsun fluguveiðimanna enda er
það framtíðin að stórum laxi, og
hluta af smálaxinum, sé sleppt.
Það er til hagsbóta fyrir veiði-
menn að árnar séu fullar af laxi
út veiðitímann, auk þess sem það
eykur líkur á sjálfbærni ánna.
svavar@frettabladid.is
Meiri áhersla á sölu
leyfa til útlendinga
Sala til fyrirtækja og útlendinga mun standa undir hærri leigu í Þverá og Kjarrá
segir nýr leigutaki. Mun bjóða Litlu-Þverá sem nýtt tveggja stanga veiðisvæði.
Gamlar hefðir verða endurvaktar við Kjarrá og veiðimenn fá undir sig hesta.
VIÐ KJARRÁ Starir, í eigu Davíðs Mássonar, Halldórs Hafsteinssonar og Ingólfs
Ásgeirssonar, mun ekki bjóða í aðrar ár heldur er félagið alfarið stofnað til að sinna
Þverár/Kjarrár-verkefninu. Hér sést Vaðið í Kjarrá og Neðri-Pottur. Veiðihúsið Víghóll
er uppi á leitinu.
Svo langar okkur að
endurvekja gamlar
hefðir með því að bjóða
hestaferðir á efri hluta Kjarrár,
hluta úr sumri …
INGÓLFUR ÁSGEIRSSON
EINN LEIGUTAKA ÞVERÁR OG KJARRÁR
JAFNRÉTTISMÁL Ísland er í efsta
sæti árlegs lista World Economic
Forum, yfir stöðu kynjajafnrétt-
is í heiminum árið 2011, þriðja
árið í röð.
Það eru einkum pólitísk áhrif
kvenna og staða í menntamálum
sem gerir að verkum hve Ísland
kemur vel út. Þegar litið er á
kynjajafnrétti á vinnumarkaði
versnar ástandið heldur og einn-
ig í heilbrigðismálum, en litlu
munar milli landa í mælingunum
á þessum þáttum.
Noregur, Finnland og Svíþjóð
eru í sætum tvö til fjögur en
Danmörk er í sjöunda sæti. - shá
Jafnrétti kynjanna:
Ísland stendur
vel í samanburði
DÓMSMÁL Fimm af sex sem
ákærð eru fyrir ólögmætar lán-
veitingar Lífeyrissjóðs starfs-
manna Kópavogsbæjar til
bæjarsjóðs
Kópavogs neit-
uðu sök þegar
málið var þing-
fest í gær.
Flosi Eiríks-
son, sem sat í
stjórn sjóðs-
ins, tók sér
frest til að fara
yfir ákæruna
áður en hann
tæki afstöðu til hennar. Fimm
ákærðu voru stjórnarmenn í
sjóðnum, en auk þeirra er fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
ákærður.
Í ákæru kemur fram að ólög-
mæt lán hafi verið sjö talsins,
veitt á sjö mánaða tímabili.
Hæst var upphæðin 490
milljónir króna. - bj
Ákæra vegna LSK þingfest:
Ákærðu neita
sök fyrir dómi
FLOSI EIRÍKSSON
BANDARÍKIN Myndband sem sýnir
bandaríska hermenn kasta af sér
þvagi yfir lík afganskra manna
hefur vakið mikla reiði. Hinir
látnu voru að öllum líkindum
talibanar.
Leon Panetta, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, er meðal
þeirra sem hafa lýst hneykslan
sinni á málinu og segir hegðun
hermannanna algjörlega óviðun-
andi. Hann segir þá sem tóku
þátt í þessu verða dregna til
ábyrgðar.
Hamid Karzai, forseti Afgan-
istans, sagði myndbandið sýna
ómennsku og að hann fordæmdi
verknaðinn. Einn talsmaður
talíbana sagði málið þó ekki
munu hafa áhrif á viðræður milli
þeirra og bandamanna. - þeb
Hermenn vanvirða lík:
Myndband vek-
ur mikla reiði
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært fjóra menn fyrir tilraun
til að smygla til landsins 878
grömmum af kókaíni, sem unnt
hefði verið að framleiða 3,7 kíló
úr með íblöndunarefnum.
Þrír mannanna, allir á þrítugs-
aldri, eru ákærðir fyrir að hafa
lagt á ráðin um innflutning efn-
anna frá Danmörku. Einn þeirra
fékk svo sjötugan mann til verks-
ins og afhenti honum farsíma,
flugnúmer og 200 þúsund krónur
í reiðufé til fararinnar. Sá elsti
faldi efnin í farangri sínum ytra
og hélt síðan heim, þar sem toll-
verðir stöðvuðu för hans við
hefðbundið eftirlit og fundu
kókaínið. - jss
Fjórir menn ákærðir:
Sjötugt burðar-
dýr fyrir dómi
SAMGÖNGUR Stjórn Vaðlaheiðar-
ganga hf. segir að unnið hafi verið
að gerð ganga undir Vaðlaheiði á
faglegum forsendum í fullu sam-
ráði við „þar til bæra aðila“, eins
og segir í yfirlýsingu.
„Leitað hefur verið til helstu sér-
fræðinga landsins varðandi undir-
búning og dreginn lærdómur af
fyrri jarðgangaverkefnum,“ segir
stjórnin. „Niðurstaða útreikninga
varðandi endurgreiðslur lána er sú
að verkefnið geti endurgreitt lán að
fullu á grundvelli veggjalda út frá
þeim forsendum sem kynntar hafa
verið.“
Bornar eru saman skýrsla Pálma
Kristinssonar verkfræðings og
skýrsla IFS Greiningar fyrir fjár-
málaráðuneytið. Meginmunurinn
er sagður sá að Pálmi kveðist eink-
um byggja á eigin reynslu ásamt
upplýsingum af fundi í umhverfis-
og samgöngunefnd Alþingis en IFS
hafi unnið með gögn helstu sér-
fræðinga landsins. Fyrir liggi til-
boð eða kostnaðaráætlanir fyrir
alla þætti.
„Það er von félagsins að ákvörð-
un um framhald og undirbúning
Vaðlaheiðarganga verði tekin sem
fyrst til að aflétta óvissu gagnvart
verktökum og öðrum sem hags-
muni hafa af framkvæmdinni. Mik-
ilvægt er að tafir á ákvörðun skaði
verkefnið ekki enn frekar,“ segja
Kristín H. Sigurbjörnsdóttir for-
maður og meðstjórnendurnir Krist-
ján L. Möller og Pétur Þór Jónasson
í stjórn Vaðlaheiðarganga hf. - gar
Stjórn Vaðlaheiðarganga segir veggjöld standa undir göngunum til „lengri tíma“:
Aflétta þarf óvissu verktaka
VAÐLAHEIÐI Formaður stjórnar Vaðla-
heiðarganga og meðstjórnendur hennar
segja helstu sérfræðinga landsins hafa
komið að undirbúningi gangagerðar-
innar.
Það er von félagsins
að ákvörðun um
framhald og undirbúning
Vaðlaheiðarganga verði tekin
sem fyrst …
ÚR YFIRLÝSINGU STJÓRNAR
VAÐLAHEIÐARGANGA
REYKJAVÍKURBORG Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks í íþrótta- og tóm-
stundaráði Reykjavíkur eru ósáttir
við að tillaga um skipun samstarfs-
hóps um mál tengd ÍTR skuli hafa
komið fram í menningar- og ferða-
málaráði og verið send beint þaðan
til borgarráðs. Frumkvæðið hafi átt
að vera hjá íþrótta- og tómstunda-
ráði.
Tillagan umdeilda lýtur að sund-
laugum, ferðamálastefnu, atvinnu-
stefnu og stefnu ÍTR.
„Í ljósi þess sem á undan er geng-
ið kemur því miður ekki á óvart að
formaður og aðrir fulltrúar meiri-
hlutans í íþrótta- og tómstundaráði
uni slíkum yfirgangi. Sú spurning
vaknar hvort um sé að ræða hefð-
bundið stjórnsýsluklúður af hálfu
meirihluta Samfylkingar og Besta
flokksins eða hvort þarna komi
fram með óvenju skýrum hætti
metnaðarleysi meirihlut-
ans í málefnum ÍTR, bók-
uðu sjálfstæðismenn.
Fulltrúar Samfylk-
ingar og Besta flokksins
sögðu að víðtæks samráð
verði leitað við þá sem
málið er viðkom-
andi. Þeir sögð-
ust hins vegar „harma innilega“ að
tillagan hafi ekki fyrst komið fram
í ÍTR heldur Menningar- og ferða-
málaráði. „Ástæðan er ekki metn-
aðarleysi meirihlutans gagnvart
málaflokknum heldur hefðbundið
stjórnsýsluklúður,“ útskýrðu þeir.
- gar
Meirihlutinn í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur harmar mistök innilega:
„Hefðbundið stjórnsýsluklúður“
ODDVITAR Í ÍÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐI Eva Ein-
arsdóttir úr Besta flokknum
er formaður íþrótta- og
tómstundaráðs og Kjartan
Magnússon er annar
fulltrúa Sjálfstæðis-
flokks í ráðinu.
Tóku 200 kannabisplöntur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á 200 kannabisplöntur
í fjórum íbúðum í fjölbýlishúsum í
Reykjavík á miðvikudag. Tveir menn
voru handteknir í aðgerðum lögreglu.
LÖGREGLUMÁL
ÍSRAEL, AP Hæstiréttur Ísraels
hefur staðfest umdeild lög sem
meina flestum Palestínuaröbum
sem gifst hafa Ísraelum búsetu í
landinu.
Í fjölskipuðum rétti komust
sex af ellefu dómurum að þeirri
niðurstöðu að af íbúum Palestínu
sem fengið hafa ríkisborgararétt
í Ísrael vegna hjónabands stafi
öryggishætta. Þingið samþykkti
lögin árið 2003. Samkvæmt þeim
má heimila undantekningar þegar
palestínskir eiginmenn eru yfir
35 ára og konur eldri en 25. - óká
Umdeild ísraelsk lög staðfest:
Blönduð hjóna-
bönd bönnuð
SPURNING DAGSINS