Fréttablaðið - 13.01.2012, Síða 19

Fréttablaðið - 13.01.2012, Síða 19
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Föstudagar eru pitsukvöld á fjölmörgum heimilum. Prófið nýjung: Forbakið pitsubotn í nokkrar mínútur, dreifið maskarponeosti og hvítlauksolíu yfir og bakið á ný. Dreifið klettasalati og kirsuberjatómötum yfir heita pitsuna og berið fram. U m komandi mánaða- mót verður opnaður nýr veitingastaður á Snorra- braut 56. „Þetta verður klassískur amerískur dæner en lögð verður áhersla á mikil gæði og fjölbreytileika,” segir Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson yfirmat- reiðslumaður staðarins sem mun bera nafnið Roadhouse. Baldur lærði á hótel Loftleið- um og hefur starfað á Holtinu og 1919. Hann hefur síðastliðin ár unnið á fínum veitingastöðum í Danmörku en snýr nú aftur til að taka við þessu skemmtilega verk- efni. „Við munum vinna matinn að langmestu leyti frá grunni. Verðum með ýmsar útgáfur af hamborgurum og þrjár mismun- andi tegundir af rifjum. Svo verð- um við með girnilega forrétti og klassíska bandaríska eftirrétti,” segir Baldur en andi sjöunda áratugarins mun ríkja bæði í inn- réttingum og matseðli staðarins. „Við erum búnir að kaupa gamla ameríska muni á eBay undanfar- ið sem verða notaðir til skreyt- inga,“ segir hann og hlakkar til opnunarinnar. solveig@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 kjúklingabringur Deig 200 g hveiti pilsner börkur af hálfri sítrónu 1/2 tsk. salt 1/4 tsk. ferskt saxað timjan Þessu er blandað saman svo úr verði mjúkt klattadeig. Látið standa í tvo tíma. Rasp 1/4 hluti kornflex 3/4 hluti pankorasp Mulið saman með höndum. Hver bringa er skorin langsum í sex bita. Hverjum strimli er dýft í deigið og síðan raspið. Kjúklingurinn er djúpsteiktur í 180 gráða heitri olíu þangað til kjarnhiti nær 71 gráðu. Roadhouse sósa 250 g majones 1 msk. saxað estragon 1/2 tsk. tómatpúrra 1/3 tsk. dijonsinnep 5 dropar tabasco 50 g grófsaxað capers 40 g saxað pikkles 1 msk. karrí Öllu blandað saman. Rétt áður en sósan er borin fram er blandað saman við 1 msk. af fínt söxuðum skalottulauk. Rétturinn er borinn fram með selleríi. CHICKENFINGERS OG ROADHOUSE-SÓSA Forréttur fyrir 4 Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson verður yfirmatreiðslumaður á glænýjum veitingastað, Roadhouse: Dæner á fínum nótum BRAGÐGÓÐIR HOLLUSTURÉTTIR FYRIR ALLA Fita 6,3 gr Kcal 237 Fita 7,3 gr Kcal 332 GÓMSÆT HOLLUSTA COUSCOUS SALAT COUSCOUS, KJÚKLINGABAUNIR, AGÚRKA, TÓMATAR OG ICEBERG. Kringlan 890 KR. 1090 KR. -MEÐ KJÚKLINGI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.