Fréttablaðið - 13.01.2012, Side 22
2 föstudagur 13. janúar
núna
✽ Vetraríki
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun
Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
meðmælin
VIÐ ERUM Á FACEBOOK S: 577-5570 OPIÐ: MÁN-FÖS 11-18
Margit Brandt | S´NOB | Kim Sörnsn | Ed Hardy
Christian Audigier | Marc Jacobs | Urban Expressions
ásamt íslenskri hönnun frá Made By3 og Hildi Hafstein
A FSL ÁTTUR A F VÖLDUM VÖRUM
TI LBO ÐSDAGA R
30−40%
Kaffi, kökur og músík
Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk &
ról fer fram í Edrúhöllinni við Efsta-
leiti 7 næsta þriðjudag og munu
John Grant og Myrra Rós stíga á
svið og leika tónlist sína. Tónleika-
röðin hóf göngu sína í haust og
er markmið hennar að brjóta upp
hefðbundið tónleikaform. Tónleik-
arnir hefjast stundvíslega klukkan
20 og kaffi og kökur verða á boð-
stólum fyrir tónleikagesti. Dag-
skrárstjóri er Arnar Eggert Thor-
oddsen, blaðamaður og popp-
fræðingur, og kostar aðeins 500
krónur inn.
Nýir Dropar
Kaffihúsið Tíu dropar hefur verið
vinsælt meðal borgarbúa undan-
farin ár. Nú hefur orðið sú breyt-
ing á að kaffihúsið er einnig opið á
kvöldin og breytist þá í vínbar upp
á franska vísu. Stemningin er róleg
og afslöppuð og þægileg tilbreyt-
ing frá há-
værum og
erilsömum
krám.
Kolf inna Kristófersdótt ir fyrir sæta sést í nýjum sýn-
ingarbæklingi frá bandaríska
fatahönnuðinum Alexander
Wang sem þykir einn sá efnileg-
asti í bransanum í dag.
Kolfinna flutti til London í
sumar og svo til New York og
starfar sem fyrirsæta á vegum
umboðsskrifstofunnar Next og
var myndatakan fyrir Alexand-
er Wang hennar stærsta verkefni
hingað til. „Þetta var langt ferli
og ég varð bæði mjög spennt og
stressuð þegar ég fékk loks já-
kvætt svar frá umboðsskrifstof-
unni. Wang hefur eiginlega alltaf
verið minn uppáhaldshönnuður
og þess vegna fannst mér svo-
lítið ógnvænlegt að hitta hann
fyrst en um leið og hann byrj-
aði að tala hurfu allar áhyggjur
mínar. Hann er alveg rosalega
almennilegur og ekki til stæl-
ar í honum og verkefnið sjálft
var líka mjög skemmtilegt,“
útskýrir Kolfinna sem flaug
frá London til New York í
myndatökuna.
Ásgrímur Már Friðriksson,
starfsmaður Eskimó umboðs-
skrifstofunnar, segir þetta frá-
bæran árangur hjá Kolfinnu en
hún hefur aðeins starfað sem
fyrirsæta í rúmt ár.
„Alexander Wang er ein af nýju
stjörnum fatahönnunarheimsins
þannig að þetta verkefni mun án
efa leiða til einhvers meira. Mér
skilst að Wang hafi verið mjög
hrifinn af Kolfinnu og hann hefur
lýst yfir áhuga á að fá hana til að
sýna sérstaklega fyrir sig á tísku-
vikunni í New York í febrúar.“
Ásgrímur upplýsir að franska
tískuhúsið Celine hafi einnig
bókað Kolfinnu til að sitja fyrir
í sýningarbæklingi sínum og
mun frægasti stílisti Bretlands,
Camilla Nickerson, taka að sér
að stílisera þá töku. Að auki er
hún bókuð í stóran tískuþátt fyrir
þýska Vogue.
Inntur eftir því hvort árangur
Kolfinnu hafi bein áhrif á starf
Eskimo segir Ásgrímur þetta
fyrst og fremst viðurkenningu á
vel unnu starfi. „Það veitir okkur
ómælda ánægju að sjá stelpun-
um takast vel upp enda vinnum
við náið með þeim og þykir ofsa-
lega vænt um þær allar. Að auki
liggur mikil vinna að baki því
að koma stelpunum út því sam-
keppnin er gríðarlega hörð, það
eru mörg þúsund stelpur að
reyna að komast að hjá stóru
umboðsstofunum ár hvert.“
Kolfinna Kristófersdóttir situr fyrir hjá Alexander Wang:
ALEXANDER WANG
ENGIN DÍVA
GLÆSILEG Hin frábæra leikkona
Meryl Streep var glæsileg að venju er
hún sótti New York Film Critics-hátíð-
ina í New York á mánudaginn var.
NORDICPHOTOS/GETTY
Efnileg Kolfinna Kristófersdóttir sat fyrir í nýjum sýningarbæklingi fyrir hönnuðinn
Alexander Wang og heillaði hönnuðinn upp úr skónum með fagmennsku sinni.
GOTT FYRIR KROPPINN Vörurnar frá Signatures of Nat-
ure innihalda engin kemísk efni og henta öllum, bæði konum
og körlum. Gjafakassarnir eru einnig vinsælir og innihalda þessa
rakagefandi sturtusápu, líkamskrem og kerti með lavender-ilmi
sem virkar róandi og slakandi.
Tímaritið Plus Model Magazine
birti nýverið myndaþátt með fyr-
irsætunni Katyu Zharkova þar
sem fjallað er um staðlaða þyngd
fyrirsæta í dag.
Ljósmyndarinn Victoria Jana-
shvili tók myndirnar sem sýna
Zharkovu nakta og við hverja mynd
er texti sem upplýsir lesendur um
ýmislegt er viðkemur vexti og
þyngd fyrirsæta í dag. Meðal þess
sem kemur fram er að fyrir tuttugu
árum voru fyrirsætur 8 prósentum
léttari en meðal kvenmaður en nú
eru þær 23 prósentum léttari, að
fyrirsætur í yfirþyngd nota í dag
fatastærðir 6 til 14 og loks að marg-
ar vinsælustu fyrirsætur heimsins í
dag eru með sömu fituprósentu og
átröskunarsjúklingar. - sm
Plus Model Magazine gagnrýnir vöxt fyrirsæta:
Fyrirsætur þykja
oft of grannar
Grannvaxnar Tímaritið Plus Model
Magazine telur fyrirsætur vera of grann-
ar. Karlie Kloss hefur meðal annars vakið
umtal vegna þess hve grönn hún er.
NORDICPHOTOS/GETTY