Fréttablaðið - 13.01.2012, Side 34

Fréttablaðið - 13.01.2012, Side 34
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR22 BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Haldið áfram! En frábært kvöld fyrir göngutúr! Uhmmm. Heitur andvari … glittir í mánaskin … ... hljóðin í unglingi sem reynir að æla í blómabeðið. Ef þú ætlar að biðja jólasvein- inn um hjól, þá geri ég það líka. Krakkar, nú skulum við hvíla bréfin til sveinka og horfa aðeins á sjónvarpið. Þetta er sígild jólamynd þar sem þið lærið að það er sælla að gefa en þiggja. Vá! Mig langar líka í þetta! Heima hjá spætunum... LÁRÉTT 2. báru að, 6. 950, 8. heldur brott, 9. stansa, 11. númer, 12. kústun, 14. skrá, 16. tónlistarmaður, 17. kvabb, 18. drulla, 20. ónefndur, 21. fimur. LÓÐRÉTT 1. ekki læs, 3. úr hófi, 4. lærdómur, 5. dýrahljóð, 7. drykkjar, 10. spendýr, 13. suss, 15. dugnaður, 16. kóf, 19. slá. LAUSN LÁRÉTT: 2. komu, 6. lm, 8. fer, 9. æja, 11. nr, 12. sópun, 14. listi, 16. kk, 17. suð, 18. aur, 20. nn, 21. frár. LÓÐRÉTT: 1. ólæs, 3. of, 4. menntun, 5. urr, 7. mjólkur, 10. api, 13. uss, 15. iðni, 16. kaf, 19. rá. Skilaboðin kæmust betur til skila en myndin væri ekki kostuð af dótabúð. Meðal annars efnis: Arfleifð járnfrúarinnar Ferill Thatcher í brennidepli á ný. EM að hefjast Litið yfir gengi Íslendinga á EM í handbolta í gegnum tíðina. Ber virðingu fyrir þeim sem rífa kjaft Sigrtyggur Baldursson, eða Bogomil Font, tekur við stöðu framkvæmdastjóra Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Af því að það er gaman að skrifa þetta orð. Svo má líka prófa að segja það … ekki vera hrædd, þið verðið hvorki lostin eldingu né bitin af svörtum stigaketti þótt þið prófið að segja orð sem þið hafið líklegast aldrei heyrt sagt og vitið ekkert hvað þýðir. Orð eru bara orð, er það ekki? MARGIR eru skíthræddir við orð. Enda eru þau stórhættuleg. Orð geta breytt heiminum og heimsmyndinni og „þel getur snúist við atorð eitt/aðgát skal höfð í nærveru sálar“ eins og Einar Benediktsson orti í Einræðum Starkaðar. Orð er þriggja stafa morð, nema náttúrlega orðið Paraskevidekatriaphobia sem er sjáanlega mun fleiri stafa. Og kannski ekkert morð, kannski mikið happaorð ef bara tekst að láta það sér um munn fara. En það er ómögulegt að komast að því án þess að prófa. STÓR hluti af viðhaldi mannsins sem tegundar byggðist á því að þekkja það sem var hættulegt og eiga líf sitt að launa því að kunna að bregð- ast við því. Hræðslu- viðbrögð eru okkur einkar töm og koma upp við aðstæður sem skynsemin segir að engin ástæða sé að hræðast í alvöru; eins og að tala við marga í einu, verða of sein, vera hafnað, gera sig að fífli. Streita sem skapast ef við erum hrædd við nógu margt í daglegu lífi okkar er ekkert annað en hræðsluviðbrögð líkamans, sem eru síðan hættuleg heilsunni í sjálfu sér. SUMIR eru svo hræddir við lífið og allar þess mögulegu ógnir að þeir gleyma að njóta þess og sín. Þeim get ég gefið tvö orðbundin ráð. Í fyrsta lagi að læra og fara með þessar ljóðlínur úr Vikivaka Guðmundar Kamban þegar óttinn skellur á: VAPPAR ósyndur ungi á bakka með augun blikandi af þrá – en sumir þora ei til þess að hlakka, sem þeim er annast að fá. Gegn svo mörgu, sem guð þeim sendir, menn gera kvíðann að hlíf, og kvíða oft því sem aldrei hendir, og enda í kvíða sitt líf. HITT ráðið er að æfa sig að segja Paraskevidekatriaphobia. Orðið þýðir „sjúklegur ótti við föstudaginn þrett- ánda“ og sagt er að þeir sem þjást af þessum kvilla og ná tungu um þetta orð nái tökum á ótta sínum. Að minnsta kosti í einn dag. Alveg þess virði, ekki satt? Paraskevidekatriaphobia

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.