Fréttablaðið - 13.01.2012, Síða 34
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Haldið
áfram!
En frábært kvöld
fyrir göngutúr!
Uhmmm. Heitur
andvari …
glittir í
mánaskin …
... hljóðin í unglingi sem reynir
að æla í blómabeðið.
Ef þú ætlar
að biðja
jólasvein-
inn um hjól,
þá geri ég
það líka.
Krakkar, nú skulum við
hvíla bréfin til sveinka og
horfa aðeins á sjónvarpið.
Þetta er sígild jólamynd
þar sem þið lærið að það
er sælla að gefa en þiggja.
Vá!
Mig
langar
líka í
þetta!
Heima hjá
spætunum...
LÁRÉTT
2. báru að, 6. 950, 8. heldur brott,
9. stansa, 11. númer, 12. kústun, 14.
skrá, 16. tónlistarmaður, 17. kvabb,
18. drulla, 20. ónefndur, 21. fimur.
LÓÐRÉTT
1. ekki læs, 3. úr hófi, 4. lærdómur, 5.
dýrahljóð, 7. drykkjar, 10. spendýr, 13.
suss, 15. dugnaður, 16. kóf, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. komu, 6. lm, 8. fer, 9. æja,
11. nr, 12. sópun, 14. listi, 16. kk, 17.
suð, 18. aur, 20. nn, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. ólæs, 3. of, 4. menntun,
5. urr, 7. mjólkur, 10. api, 13. uss, 15.
iðni, 16. kaf, 19. rá.
Skilaboðin kæmust betur til
skila en myndin væri ekki
kostuð af dótabúð.
Meðal annars efnis:
Arfleifð járnfrúarinnar
Ferill Thatcher í brennidepli á ný.
EM að hefjast
Litið yfir gengi Íslendinga á EM í
handbolta í gegnum tíðina.
Ber virðingu fyrir
þeim sem rífa kjaft
Sigrtyggur Baldursson, eða Bogomil Font, tekur við stöðu
framkvæmdastjóra Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar.
Af því að það er gaman að skrifa þetta orð. Svo má líka prófa að segja það …
ekki vera hrædd, þið verðið hvorki lostin
eldingu né bitin af svörtum stigaketti
þótt þið prófið að segja orð sem þið hafið
líklegast aldrei heyrt sagt og vitið ekkert
hvað þýðir. Orð eru bara orð, er það ekki?
MARGIR eru skíthræddir við orð. Enda
eru þau stórhættuleg. Orð geta breytt
heiminum og heimsmyndinni og „þel
getur snúist við atorð eitt/aðgát skal
höfð í nærveru sálar“ eins og Einar
Benediktsson orti í Einræðum
Starkaðar. Orð er þriggja stafa
morð, nema náttúrlega orðið
Paraskevidekatriaphobia sem er
sjáanlega mun fleiri stafa. Og
kannski ekkert morð, kannski
mikið happaorð ef bara tekst að
láta það sér um munn fara. En
það er ómögulegt að komast að
því án þess að prófa.
STÓR hluti af viðhaldi
mannsins sem tegundar
byggðist á því að þekkja
það sem var hættulegt
og eiga líf sitt að launa
því að kunna að bregð-
ast við því. Hræðslu-
viðbrögð eru okkur
einkar töm og koma
upp við aðstæður sem skynsemin segir
að engin ástæða sé að hræðast í alvöru;
eins og að tala við marga í einu, verða of
sein, vera hafnað, gera sig að fífli. Streita
sem skapast ef við erum hrædd við nógu
margt í daglegu lífi okkar er ekkert
annað en hræðsluviðbrögð líkamans, sem
eru síðan hættuleg heilsunni í sjálfu sér.
SUMIR eru svo hræddir við lífið og allar
þess mögulegu ógnir að þeir gleyma að
njóta þess og sín. Þeim get ég gefið tvö
orðbundin ráð. Í fyrsta lagi að læra og
fara með þessar ljóðlínur úr Vikivaka
Guðmundar Kamban þegar óttinn skellur
á:
VAPPAR ósyndur ungi á bakka með augun
blikandi af þrá –
en sumir þora ei til þess að hlakka, sem
þeim er annast að fá.
Gegn svo mörgu, sem guð þeim sendir,
menn gera kvíðann að hlíf,
og kvíða oft því sem aldrei hendir, og enda
í kvíða sitt líf.
HITT ráðið er að æfa sig að segja
Paraskevidekatriaphobia. Orðið þýðir
„sjúklegur ótti við föstudaginn þrett-
ánda“ og sagt er að þeir sem þjást af
þessum kvilla og ná tungu um þetta orð
nái tökum á ótta sínum. Að minnsta kosti
í einn dag. Alveg þess virði, ekki satt?
Paraskevidekatriaphobia