Fréttablaðið - 13.01.2012, Page 37

Fréttablaðið - 13.01.2012, Page 37
FÖSTUDAGUR 13. janúar 2012 25 Myndlist ★★★★ Kyrralíf og Pleaser Ýmsir, Harpa Björnsdóttir Hafnarborg. Kyrralíf til 26. febrúar, Pleaser til 12. febrúar. Hafnarborg er opin 12-17 alla daga og til 21 á fimmtudögum. Lokað á þriðjudögum. Tvær sýningar voru opnaðar í Hafnarborg um síðustu helgi, kyrralífsmyndir í sýningarstjórn þeirra Ólafar K. Sigurðardóttur og Þorbjargar Br. Gunnarsdóttur og einkasýning Hörpu Björnsdóttur, Pleaser. Kyrralíf er eitt af hefðbundnum myndefnum mál- aralistarinnar ásamt sögulegum málverkum, landslagi og portrettum. Þáttur í grundvallarþjálfun akadem- ískra málara var að ná tökum á að mála eftir fyrir- mynd. Eins og fram kemur í texta með sýningunni í Hafnarborg nutu íslenskir málarar á fyrri hluta tuttug- ustu aldar akademískrar menntunar og skildu margir þeirra eftir sig fjölda kyrralífsmynda. Dágott samansafn málverka með þessu myndefni má nú sjá í Hafnarborg, fallegt, fróðlegt og skemmtilegt úrval fyrir margra hluta sakir. Það er forvitnilegt að sjá hversu skýrt persónueinkenni ólíkra málara koma fram í verkunum. Konur máluðu gjarnan kyrralíf og Kristín Jónsdóttir náði mjög góðum tökum á því en hún á einkar sterkar myndir í þessum flokki. Málaraeinkenni þeirra Gunn- laugs Scheving, Gunnlaugs Blöndal og Þorvalds Skúla- sonar eru auðþekkt, og svo mætti áfram telja en hér eru verk eftir flesta þekkta málara þess tíma þegar kyrralíf var vinsælt í málaralistinni, fram eftir tutt- ugustu öldinni. Aðeins vottar fyrir uppbroti kúbisma en það er ekki mikið. Myndefnið sýnir ekki aðeins persónueinkenni málar- anna heldur líka daglegt umhverfi þeirra. Karl Kvaran hefur átt fallega mjólkurkönnu, Kristín Jónsdóttir var ákafur blómaræktandi og Louisa Matthíasdóttir eldaði án efa bæði kúrbít og eggaldin. Í dag eigum við ekki sambærileg verk sem birta umhverfi myndlistarmanna, en hér eru líka nýrri myndir. Myndir Áslaugar Thorlacius úr eldhúsi sínu og stofu í anda Skagamálaranna dönsku eru fallegar Margræðar myndir og málverk Helga Þorgils líkjast helst heimspekilegum hugleiðingum um form og liti. Áhugavert væri að leita uppi staðgengla kyrralífs- mynda fyrri tíma í myndlist samtímans. Er þá kannski að finna í innsetningum Margrétar H. Blöndal, í verk- um Kristins G. Harðarsonar eða Hildigunnar Birgis- dóttur, svo einhverjir séu nefndir? Pleaser, nefnir Harpa Björnsdóttir sýningu sína á neðri hæð. Verk Hörpu hér eru bæði íhugul og kyrr- lát og ríma vel við sýninguna á efri hæðinni, og þótt viðfangsefnið sé annað endurspeglast kyrralífsmótíf- ið innan sumra verka hennar. Stór ljósmynd þar sem orðið Pleaser liðast úr úr munni listakonunnar líkt og á málverki frá fjórtándu eða fimmtándu öld, leiðir áhorf- andann inn í myndheim Hörpu þar sem táknmyndir eru ráðandi. Harpa vitnar jafnt til fyrri alda og til sam- tímans í verkum sínum þar sem hún birtir hugmyndir um eiginleika listamannsins og setur sjálfsmynd sína í samhengi við myndlist fyrr og nú. Margar hugmyndir búa að baki sýningunni þó verkin séu ekki mörg. Harpa kann þá list að stíga til baka og gefa áhorfandanum það rými sem þarf til þess að verk hennar nái að lifa áfram í hugarheimum. Ragna Sigurðardóttir Niðurstaða: Vandað val kyrralífsmynda skapar margræða og fallega sýningu og minnir á þá margvíslegu möguleika sem felast í íslenskri myndlistarsögu. Margræð sýning Hörpu Björnsdóttur gefur áhorfandanum rými til umhugsunar. Tónlistarskóli Árbæjar tonarb@heimsnet.is 12 vikna söngnámskeið! Söngnámskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 9-16 ára Syngdu með undirleik og lærðu í leiðinni allt um raddbeitingu, sviðsframkomu, hljóðnematækni og annað sem söngvari þarf að vita. 4-5 í hóp. Upptaka á geisladisk og lokatónleikar setja svo punktinn yfir i-ið í lok námskeiðsins. Kennt í Tónlistarskóla Árbæjar Kennari: Erla Stefánsdóttir söngkona Námskeiðið hefst fimmtudaginn 19.janúar Nánari upplýsingar er að finna á www.tonarb.net og í síma 861-6497 og 587-1664 (14.00-16.00 virka daga) Tvær sýningar verða opnaðar í Ljós- myndasafni Reykjavíkur á morgun. Annars vegar Bergmál, samsýn- ing Charlottu Maríu Hauksdóttur og Sonju Thomsen. Viðfangsefni sýn- ingarinnar er tíminn og endurbirt- ing hins liðna. Titillinn vísar ekki aðeins til þess hvernig hið liðna end- urvarpast inn í nútímann, heldur einnig til þess hvernig verkin á sýn- ingunni kallast á. Þær Charlotta og Sonja stunduðu nám á sama tíma við San Fransisco Art Institute, þaðan sem þær útskrifuðust með MFA- gráðu í ljósmyndun árið 2004. Hins vegar er það sýning á ljósmyndum danska læknisins Christians Schierbeck, sem starf- aði í Reykjavík frá 1901 til 1902 og bjó á Laufásvegi ásamt eigin- konu sinni, Sofie Holstrup-Schultz. Schierbeck tók talsvert af mynd- um meðfram starfi sínu. Hann hélt dagbók þar sem hann skrifaði við hverja mynd ýmsar upplýsingar og persónulegar athugasemdir og fangaði þann- ig vel augnablik í lífi bæjarbúa. Börn á Skólavörðustíg með Skóla- vörðuna í baksýn, stúlka á leið úr bakaríinu, og hestar við verslun Ziemsens ræðismanns er meðal þess sem sjá má á ljósmyndum hans. - hhs Bergmál fortíðar valkostir í Sjónvarpi Símans Nettenging hjá Símanum gefur þér möguleika á Sjónvarpi Símans og fjölbreyttu úrvali sjónvarps- og afþreyingarefnis. Þú getur valið þér áskrift að SkjáEinum, Stöð 2 eða Stöð 2 Sport og fjölbreytta áskriftarpakka með yfir 60 erlendum stöðvum. Með smelli á VOD takkann opnarðu SkjáBíó með yfir 4000 titlum, bíómyndum, þáttum, barnamyndum og efni á 0 kr. Í SkjáFrelsi, Stöð 2 Frelsi og RÚV Frelsi sérðu nýjustu þættina og fréttirnar þegar þér hentar. Ef þú smellir á MENU takkann og velur útvarp opnast Bestu lögin, sérsniðnar tónlistarrásir fyrir öll möguleg tilefni. Þar eru líka allar íslensku útvarpsstöðvarnar og tugir erlendra. Einn myndlykill fyrir allar áskriftir Bestu lögin skapa stemninguna Frelsi til að horfa þegar þér hentar Í ELDHÚSINU Verk eftir Karen Agnete Þórarinsson.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.