Fréttablaðið - 13.01.2012, Qupperneq 42
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR30
sport@frettabladid.is
Ef einhver getur
komið inn í þennan
hóp með litlum fyrirvara þá
er það Snorri.
GUÐMUNDUR Þ. GUÐMUNDSSON
LANDSLIÐSÞJÁLFARI
HANDBOLTI Guðmundur Þórður
Guðmundsson landsliðsþjálfari
segir að það séu helmingslíkur
á því að leikstjórnandinn Snorri
Steinn Guðjónsson verði með
landsliðinu á EM. Snorri er stadd-
ur í Danmörku þar sem unnusta
hans eignaðist barn um síðustu
helgi.
„Það verður tekin endanleg
niður staða fyrir hádegið á morg-
un [í dag] þegar ég tilkynni hóp-
inn sem fer til Serbíu. Sá möguleiki
er enn fyrir hendi að Snorri komi
ekki með okkur,“ segir Guðmundur
en hann hefur reynt að láta málið
ekki trufla undirbúninginn.
„Við höfum spilað á öðrum
mönnum og þetta hefur ekki skað-
að né truflað undirbúninginn
þannig. Engu að síður yrði alltaf
mikill söknuður í Snorra en það
þýðir ekki að hugsa of mikið um
það enda eitthvað sem við getum
ekki breytt. Auðvitað vonumst við
samt eftir farsælli lausn. Ef ein-
hver getur komið inn í þennan hóp
með litlum fyrirvara þá er það
Snorri. Hann þekkir þetta allt frá
a til ö hjá okkur.“
Guðmundur segir að fari svo að
Snorri komi ekki með til Serbíu
sé liðið ágætlega búið undir það.
Hann hafi Aron Pálmarsson,
Arnór Atlason, Ólaf Bjarka Ragn-
arsson og Fannar Friðgeirsson
sem geti leyst miðjustöðuna.
„Það hefur verið plan B og við
höfum undirbúið okkur fyrir slíka
stöðu ef hún kemur upp.“
Fyrir utan Snorra þá hafa þeir
Ingimundur Ingimundarson og
Alexander Petersson ekki gengið
heilir til skógar og fengið frí frá
æfingum.
„Alexander er byrjaður aftur
eftir fríið. Hann var slæmur í
öxl og þreyttur. Fríið hefur gert
honum gott og ég held að hann
verði ferskur á EM. Ingimundur
er erfiðara mál. Hann er slæmur
í nára og við erum búnir að láta
sprauta hann vegna meiðslanna.
Það eykur líkurnar á að hann geti
verið með okkur af fullum krafti.
Hann mun því hvíla alveg fram á
sunnudag,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur segir að hann muni
væntanlega tilkynna 17 manna
leikmannahóp í dag.
„Ég myndi þá tilkynna 15 leik-
menn inn í mótið en við getum
bætt 16. manninum við fyrir
klukkan 11 á leikdegi. Ég má svo
rótera hópnum aftur þegar komið
er í milliriðil. Þá má skipta út
tveimur mönnum og svo einum
eftir milliriðilinn,“ segir Guð-
mundur og telur að nauðsynlegt
hafi verið að æfa með 20 manna
hóp fyrir mótið.
Landsliðið leikur við Finna í
kvöld og kveður þar með Íslend-
inga þar sem liðið heldur utan á
laugardagsmorgun.
„Við ætlum að spila leikinn á
fullu. Það er rosalega góð tilfinn-
ing að fara inn í mót eftir að hafa
spilað vel hér heima við góðan
stuðning. Það er gott að fá smá
byr í vængina og við finnum fyrir
þessum stuðningi þjóðarinnar
sem okkur finnst vera ómetanleg-
ur. Við erum alltaf þakklátir fyrir
þennan stuðning og gott að taka
hann með í farteskinu út.“
henry@frettabladid.is
Skýrist með Snorra í dag
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari mun tilkynna 17 manna leik-
mannahóp fyrir EM í Serbíu í dag. Enn óvissa með þátttöku Snorra Steins.
Ingimundur fór í sprautumeðferð og æfir ekki aftur fyrr en á sunnudag.
LYKILMAÐUR Snorri Steinn hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá landsliðinu undanfarin ár og það yrði gríðarlegt áfall fyrir lands-
liðið að missa hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SLÓVENAR, mótherjar íslenska landsliðsins í riðlinum, eru á hálfgerðum heimavelli enda ekki langt
að fara til Serbíu. Það er mikill munur á gengi Slóvena á stórmótum á Balkanskaganum og á stórmótum
annars staðar. Þetta verður níunda EM Slóvena. Þeir urðu í 2. sæti á heimavelli 2004 og í 5. sæti í Króatíu
2000. Þeir hafa síðan einu sinni náð 8. sæti (EM í Sviss 2006) en annars verið í tíunda sæti eða neðar.
EM
í handbolta
2012
4
DAGAR
Iceland Express-deild karla
Þór Þorl. - Haukar 82-76 (31-31)
Þór Þorlákshöfn: Matthew James Hairston
30/17 fráköst/9 varin skot, Darrin Govens 20,
Guðmundur Jónsson 16, Baldur Þór Ragnarsson
6, Darri Hilmarsson 5, Blagoj Janev 5.
Haukar: Hayward Fain 32/13 fráköst, Chri-
stopher Smith 27/12 fráköst, Emil Barja 7, Sævar
Haraldsson 4, Davíð Hermannsson 4, Helgi
Einarsson 2.
Njarðvík - Tindastóll 85-93 (41-49)
Njarðvík: Cameron Echols 21/10 fráköst, Travis
Holmes 21, Ólafur Helgi Jónsson 16, Elvar Már
Friðriksson 12, Hjörtur Hrafn Einarsson 6, Maciej
Stanislav Baginski 6, Oddur Birnir Pétursson 3.
Tindastóll: Curtis Allen 21, Friðrik Hreinsson 15,
Svavar Atli Birgisson 13, Maurice Miller 11/11
stoðsendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 11, Myles
Luttman 11/9 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 5,
Hreinn Birgisson 4, Helgi Rafn Viggósson 2.
Stjarnan - Grindavík 67-75 (35-42)
Stjarnan: Justin Shouse 15, Marvin Valdimarsson
14, Renato Lindmets 12/8 fráköst, Keith Cothran
11, Sigurjón Örn Lárusson 10/8 fráköst, Fannar
Freyr Helgason 4, Guðjón Lárusson 1.
Grindavík: Giordan Watson 19/11 fráköst/11
stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 15, J’Nathan
Bullock 14/11 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 12,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7, Þorleifur Ólafs-
son 6, Ólafur Ólafsson 2.
Keflavík - Fjölnir 96-81 (45-41)
Keflavík: Jarryd Cole 34/18 fráköst, Charles
Michael Parker 27/11 fráköst, Steven Gerard
Dagustino 22, Almar Stefán Guðbrandsson 9,
Ragnar Gerald Albertsson 4.
Fjölnir: Nathan Walkup 38/11 fráköst, Jón
Sverrisson 13, Arnþór Freyr Guðmundsson 12/7
stoðsendingar, Calvin O’Neal 11, Björgvin Hafþór
Ríkharðsson 5, Haukur Sverrisson 2.
STAÐAN
Grindavík 11 10 1 953-817 20
Stjarnan 11 8 3 986-926 16
Keflavík 11 8 3 1017-943 16
Þór Þ. 11 7 4 946-901 14
KR 10 6 4 849-864 12
ÍR 10 5 5 877-883 10
Fjölnir 11 5 6 939-974 10
Tindastóll 11 5 6 931-964 10
Snæfell 10 4 6 963-943 8
Njarðvík 11 4 7 920-951 8
Haukar 11 2 9 858-946 4
Valur 10 0 10 767-894 0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Stuðningsmenn Liver-
pool kættust í gær en þá bárust
fregnir af því að fyrirliðinn Ste-
ven Gerrard hefði skrifað undir
nýjan samning við félagið. Sam-
kvæmt enskum fjölmiðlum gildir
hann út tímabilið 2014 en það var
ekki staðfest af félaginu í gær.
Gerrard hefur verið á mála hjá
Liverpool frá því að hann var átta
ára gamall og hefur verið fyrir-
liði liðsins síðan í október 2003
og ekki útlit fyrir annað en að
hann klári ferilinn sinn í rauðu
treyjunni.
„Þetta er félagið sem ég elska
og hef stutt síðan ég var lítill
strákur. Ég vil vera áfram og fá
að upplifa fleiri ógleymanleg-
ar stundir með félaginu,“ sagði
Gerrard í gær. - esá
Fyrirliðinn skrifar undir:
Gerrard áfram
hjá Liverpool
HANDBOLTI Eigandi danska hand-
boltaliðsins AG frá Kaupmanna-
höfn, Jesper „Kasi“ Nielsen, segir
í viðtali við danska dagblaðið
Jyllands-Posten að hann ætli að
selja þýska handboltaliðið Rhein-
Neckar Löwen. Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari íslenska
karlalandsliðsins, er þjálfari
Löwen og Róbert Gunnarsson
landsliðsmaður er leikmaður hjá
þýska liðinu.
„Kasi“ segir að hann þurfi að
losa sig við eignina til þess að
fá lausafé en hann hefur verið
gagnrýndur fyrir að eiga tvö
af stærstu handboltafélögum í
Evrópu, sem gæti á einhverjum
tímapunkti leikið gegn hvort öðru
í Evrópukeppni eða Meistaradeild
Evrópu.
Forráðamenn þýska liðsins
hafa ekki verið ánægðir með
„Kasi“ á undanförnum vikum og
mánuðum. Að þeirra mati hefur
eigandinn ekki lagt sig fram við
rekstur félagsins. - hbg
Jesper „Kasi“ Nielsen:
Vill selja Rhein-
Neckar Löwen
GERRARD Verður áfram hjá Liverpool,
stuðningsmönnum liðsins til mikillar
ánægju. NORDIC PHOTOS/GETTY
VILL SELJA Jesper „Kasi” Nielsen vill
einbeita sér að danska liðinu AG.
HANDBOLTI Króatarnir Ivano
Balic, leikstjórnandi og einn
besti handboltamaður heims, og
skyttan Drago Vukovic, eru báðir
tæpir fyrir EM í handbolta vegna
meiðsla. Frá þessu greindi lands-
liðsþjálfarinn Slavko Goluza í
gær.
Þetta verða að teljast góð tíð-
indi fyrir Ísland en strákarnir
okkar mæta einmitt Króatíu í
fyrsta leik á mánudagskvöldið.
„Meiðslin eru alls ekki smávægi-
leg en við erum að gera allt sem
í okkar valdi stendur til að ná
þeim heilum fyrir fyrsta leik,“
sagði Goluza. - esá
Góðar fréttir fyrir Ísland:
Ivano Balic og
Vukovic tæpir
MEIDDUR Ivano Balic er án vafa einn
besti handboltamaður heims.
NORDICPHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar rifu sig upp eftir
tapið gegn KR í bikarnum í gær er þeir sóttu
Stjörnuna heim. Grindvíkingar þurftu engan
glansleik til þess að leggja slakt Stjörnulið
af velli, 67-75. Sigurinn var mun öruggari en
lokatölurnar gáfu til kynna.
Gestirnir fóru mikinn í fyrsta leikhluta
með Giordan Watson sjóðheitan. Hann skoraði
14 stig í fyrsta leikhlutanum og Grindavík í
góðri stöðu eftir hann, 20-31. Stjörnumenn
slökktu eldinn hjá Watson í öðrum leikhluta
og náðu aðeins að saxa á forskotið fyrir hlé.
Munurinn aðeins sjö stig, 35-42, og allt opið
fyrir síðari hálfleikinn.
Grindvíkingar gerðu út um leikinn í þriðja
leikhluta. Þá skoruðu Stjörnumenn aðeins átta
stig og munurinn sautján stig, 43-60, er einn
leikhluti var eftir. Þrátt fyrir ágætis tilburði
og vilja var munurinn einfaldlega of mikill og
Grindvíkingar unnu sannfærandi útisigur.
Mikið hefur verið látið með hversu illa
Grindavík gangi að spila gegn svæðisvörn en
drengirnir hans Helga Jónasar voru að leysa
hana mun betur í gær en oft áður.
„Við vorum aðeins ragir gegn svæðisvörn-
inni til að byrja með en svo leystum við hana
mjög vel. Menn eru mikið að tala um að svæð-
isvörn sé okkar „kryptonite“ en það var ekki
að sjá í kvöld,“ sagði Helgi Jónas sem var heilt
yfir ánægður með leik sinna manna. „Ég er
mjög ánægður með mína menn. Við spiluðum
frábærlega í 36 mínútur og síðan hættum við.
Ég var ekki sáttur við það.“
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var
síður en svo sáttur við sitt lið. „Við vorum
bara lélegir. Öll ákvörðunartaka var ömurleg
og svona mætti áfram telja. Þetta er hrika-
lega lélegt.“ - hbg
Grindvíkingar unnu bug á svæðisvörninni er þeir skelltu Stjörnunni í Garðabænum í gærkvöldi:
Grindvíkingar geta vel spilað gegn svæðisvörn
ÖRUGGUR Í FRÁKASTINU Ómar Örn Sævarsson
tekur eitt af fimm fráköstum sínum í leiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI