Fréttablaðið - 13.01.2012, Qupperneq 46
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR34
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Framleiðslukostnaður við Áramótaskaup Sjónvarps-
ins var þrjátíu milljónir samkvæmt upplýsingum frá
Páli Magnússyni útvarpsstjóra. Gunnar Björn Guð-
mundsson leikstýrði því þriðja árið í röð en Skaupið
þótti nokkuð umdeilt í ár; sjálfstæðismenn kvörtuðu
undan því á vefmiðlum og þá setti Eiður Guðnason,
fyrrverandi ráðherra, fram harða gagnrýni á blogg-
síðu sinni á brandara um útrás Íslendinga til Noregs
en þar fannst honum voðaverkin í Útey vera höfð í
flimtingum.
Páll segir þetta vera svipaðan kostnað og síðastliðin
fimm ár en hann bendir á að uppsafnað áhorf á frum-
og endursýningar hafi verið um 87 prósent. „Markaðs-
hlutdeildin náði hins vegar þeirri ótrúlegu mælingu
100 prósent. Sem sagt: allir Íslendingar sem á annað
borð voru með kveikt á sjónvarpi á frumsýningartíma
á gamlárskvöld voru að horfa á Skaupið,“ segir Páll
sem er nokkuð viss um að þetta hljóti að vera heims-
met. „Að minnsta kosti ef horft er til landa sem hafa
fleiri en eina sjónvarpsstöð.“ - fgg
Skaupið kostaði 30 milljónir
DÝRT SPAUG Anna Svava Knútsdóttir var einn af höfundum
Áramótaskaupsins í ár. Það kostaði þrjátíu milljónir íslenskra
króna.
Tveir af virtustu gagnrýnendum Bandaríkjanna eru
ekki sammála um ágæti Contraband, fyrstu Holly-
wood-kvikmyndar Baltasars Kormáks. Myndin verður
frumsýnd í dag í Bandaríkjunum í 3.300 kvikmynda-
sölum en hún er dýrasta kvikmynd íslensks leikstjóra,
kostaði tæplega 41 milljón dollara í framleiðslu.
Myndin verður frumsýnd hér á landi í næstu viku.
Owen Gleiberman hjá Entertainment Weekly gefur
Contraband fína umsögn á vefsíðu blaðsins. Hann
setur myndina í svokallaðan B-flokk, segir hana halda
áhorfandanum við efnið og í janúar sé það virðingar-
vert. Hann segir að þótt söguþráðurinn sé þvældur
haldi myndin sjó. Robert Ebert hjá Chicago Sun-Times
er hins vegar ekki á sama máli. Hann gefur myndinni
einungis tvær stjörnur, gagnrýnir söguþráðinn og
handritið harðlega og lýkur dómi sínum á því að segj-
ast hafa verið meira spenntur yfir bröttum rúllustiga
kvikmyndahússins en myndinni sjálfri.
Bæði Hollywood Reporter og Variety eru hins vegar
jákvæð í garð Contraband. Fyrrnefnda blaðið telur
myndina nægilega góða til að geta skilað góðu búi til
Universal og Variety er á sama máli, það telur hins
vegar að vinsældirnar eigi eftir að verða töluverð-
ar utan Ameríku. Kvikmyndavefirnir rotten-
tomatoes.com og metacritic.com, sem taka
saman gagnrýni af vefnum, höfðu gefið
myndinni einkunn í gær. Contraband fékk
50 af hundrað á rottentomatoes en 53 af
hundraði hjá metacritic. - fgg
Ebert ekki hrifinn af Contraband
EKKI HRIFINN Rogert Ebert, einn frægasti kvik-
myndagagnrýnandi Bandaríkjanna, er ekki hrifinn
af Contraband eftir Baltasar Kormák. Myndin fær
ágætis dóma í bandarískum miðlum en hún
skartar Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í
aðalhlutverkum.
Þjóðlegir tónar eiga eftir að svífa
yfir vötnum í Söngvakeppni sjón-
varpsins sem hefst á laugardaginn.
Jarðfræðingurinn Árni Hjartarson
á til að mynda lagið Við hjartarót
mína sem Heiða Ólafsdóttir syngur.
Lagið er hluti af söngleik sem
byggir á sögu Agnesar og Nathans
en Agnes var síðasta konan sem
tekin var af lífi hérlendis. Ekki má
síðan gleyma lagi Gretu
Salóme Stefánsdóttur
en hún og Jónsi munu
syngja um Ragnheiði
biskupsdóttur og
Daða Halldórsson.
Og meira af Eurovision. Herbert
Guðmundsson er kominn í harða
kosningabaráttu því hann hefur
hvatt gamla skólafélaga sína úr
Laugalækjarskóla, árgang 1953, til
að kjósa lagið Eilíf ást sem tekur
þátt í undankeppni Eurovision
28. janúar. Herbert samdi lagið
ásamt syni sínum Svani og í pósti
sem hann sendi á
skólafélaga sína
á Facebook
óskaði hann
eftir stuðningi
á þessu síðasta
undanúrslitakvöldi
keppninnar.
Aðeins tvö
lög af fimm
komast
áfram í
úrslitin sem
verða háð
11. febrúar í
Sjónvarpinu.
- fgg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það eru allir í heiminum að klóra
sér í hausnum yfir því hvernig
rétthafarnir, þeir sem eiga músík-
ina, geti eignast hlutdeild í arðin-
um sem er af þessu efni í net- og
símheimum.“ segir Jakob Frímann
Magnússon, formaður FTT, Félags
tónskálda og textahöfunda.
Ein vinsælasta vefsíða heims,
myndbandasíðan Youtube, hafnaði
nýlega beiðni FTT um að greiða höf-
undarréttargjöld í sjóði íslenskra
rétthafa. „Íslendingar eiga að lík-
indum heimsmet í Youtube og
Facebook-notkun,“ segir Jakob Frí-
mann. „Við vildum að þeir myndu
greiða einhvers konar greiðslu,
eins og þeir gera víða um heim. Að
þeirra mati verðskuldar Ísland ekk-
ert slíkt. Við erum ekki nógu stór
og digur að þeirra mati. Og nógu
langt í burtu til að ekki þurfi að ótt-
ast eitthvert kvak í smáfuglum við
endimörk hins byggilega heims.“
FTT leitar nú leiða til að afla
tekna á móti því sem félagið telur
að tapist með ólöglegu niðurhali
og streymi á vefsíðum á borð við
Youtube, Facebook og Groove-
shark. Síðustu ár hafa verið uppi
hugmyndir innan FTT um að fara
í samningaviðræður við íslenskar
netþjónustur um að rukka ákveð-
ið gjald af hverri nettengingu á
Íslandi, svipað og rukkað er af
skrifanlegum geisladiskum.
Gjaldið myndi renna til aðildar-
félaga FTT og þaðan til höfunda í
formi höfundarréttargjalda. FTT
er klofið í afstöðu sinni til gjalds-
ins og eru það vefsíðurnar Tónlist.
is, Gogoyoko og Grapewire, sem
setja sig upp á móti því. „Þeir telja
að þetta kynni að ögra stöðu þeirra
á markaði, sem miðlari tónlistar,“
segir Jakob. „Við höfum lagt fram
að þetta sé einn valkosturinn, ein
leiðin. Svo eru sumir skeptískir á þá
leið en hafa ekki komið með neina
aðra betri í staðinn. Aðra en þá að
stemma stigu við ólöglegu niður-
hali og auglýsa voða vel alla lög-
legu kostina.“
Spurður hvernig netfyrirtækin
hafa tekið hugmyndinni segir Jakob
að viðbrögðin hafi verið ágæt.
„Þetta er eitthvað sem síma- og net-
fyrirtæki hafa eðlilega sektarkennd
yfir, að vera að miðla ólöglegu efni
sem enginn fær borgað fyrir,“ segir
hann. „En það þarf samstöðu allra
aðila um málið.“
atlifannar@frettabladid.is
JAKOB FRÍMANN: VILDUM AÐ ÞEIR GREIDDU EINHVERS KONAR GREIÐSLU
Youtube hafnar Félagi
tónskálda og textahöfunda
KLOFIN SAMTÖK Félag tónskálda og textahöfunda leitar nú leiða til að afla tekna, en
ekki eru allir sammála um leiðirnar. Jakob Frímann Magnússon er formaður FTT.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Blister in the sun með Violent
Femmes er klassík, veit ekki af
hverju.“
Ósk Gunnarsdóttir, starfsmaður Iceland
Airwaves.
Suðurlandsbraut 2 - 108 Reykjavík
Sími: 444 - 5090
nordicaspa.is
4 vikna námskeið | Hefst 17. janúar
Insanity
“Ögrandi námskeið”
Þú getur brennt allt að 1000 kaloríum
í hverjum tíma!
Skráning fer fram í síma
444-5090 og á
nordicaspa@nordicaspa.is
Nánari upplýsingar á
nordicaspa.is
Hóptímar þriðjudaga og
fimmtudagar kl. 18:30
Verð 17.900kr.
Innifalið:
2 ögrandi hóptímar í viku,
aðstoð og aðgangur í tækjasal
(aðstoð alla virka daga frá
kl. 6:00 til 19:00), vikulegar
mælingar til að tryggja árangur,
frítt handklæði við hverja komu,
aðgangur að heitapottum
og gufu, matardagbók og
netpóstar með fræðsluefni.