Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2012 27 ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og KIA á Íslandi. Nissan Note árg. 2007, ekinn 26 þús. km. 1600cc, bensín, beinsk. Verð 1.850.000 kr. Skoda Octavia 4x4 árg. 2007, ekinn 148 þús. km. 2000cc, dísil, beinsk. Verð 2.390.000 kr. Kia cee’d SW LX árg. 2012, ekinn 26 þús. km. 1600cc, dísil, sjálfsk. Verð 3.490.000 kr. Hyundai i10 árg. 2011, ekinn 35 þús. km. 1086cc, bensín, beinsk. Verð nú 1.590.000 kr. Verð áður 1.690.000 kr. Úrval notaðra bíla Nánar á askja.is Mercedes-Benz A170 árg. 2005, ekinn 94 þús. km. 1699cc, dísil, sjálfsk. Verð nú 1.690.000 kr. Mitsubishi Pajero 4x4 árg. 2007, ekinn 147 þús. km. 2900cc, dísil, sjálfsk. Verð 4.990.000 kr. Nissan Patrol 4x4 árg. 2007, ekinn 78 þús. km. 2053cc, dísil, sjálfsk. Verð 4.590.000 kr. 7 ár eftir af ábyrgð 7 manna Opið alla virka daga frá 10-18. Laugard. frá 12-16. Mercedes-Benz ML 320 árg. 2002, ekinn 169 þús. km. 3724cc, bensín, sjálfsk. Verð 1.990.000 kr. Verð áður 1.790.000 kr. FÓTBOLTI Ársþing Knattspyrnu- sambands Íslands fer fram um næstu helgi og þar verður árs- reikningur KSÍ lagður fram til samþykktar. Samkvæmt fjár- hagsáætlun KSÍ fyrir rekstrar- árið 2012 er gert ráð fyrir 777 milljónum í rekstrartekjur og rekstrargjöldum upp á rétt tæp- lega 714 milljónir króna. Sjónvarpstekjur KSÍ nema um 237 milljónum kr. á árinu 2012 en það er fyrirtækið Sportfive sem er með einkarétt á sölu sjónvarps- réttar og tiltekins markaðsréttar KSÍ til ársins 2015. KSÍ gerir ráð fyrir að fá um 450 milljónir kr. í styrki á árinu 2012; koma um 315 milljónir kr. frá UEFA og 55 milljónir kr. frá FIFA. Handbært fé KSÍ um síðustu áramót var 338 milljónir króna og eignir alls 813 milljónir króna. Eigið fé KSÍ var um 228 milljónir króna í árslok 2011. Rekstrarkostnaður landsliða KSÍ verður um 302 milljónir kr. á þessu ári samkvæmt áætlun. Rekstrarkostnaður A-landsliðs karla hækkar um 25 milljónir kr., úr 92 milljónum í 117 milljónir kr. Til samanburðar er gert ráð fyrir um 60 milljónum kr. í rekstrar- kostnað A-landsliðs kvenna. - seth KSÍ er afar vel statt: Gríðarháar sjónvarpstekjur KÁTUR Geir formaður getur leyft sér að brosa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KÖRFUBOLTI Ekki er ljóst hvenær undanúrslitaleikirnir í bikar- keppni kvenna í körfuknattleik fara fram. Beðið er eftir niður- stöðu kærumáls úr leik Njarðvík- ur og Keflavíkur sem fram fór í átta liða úrslitum. Aga- og úrskurðanefnd Körfu- knattleikssambands Íslands mun taka málið fyrir um leið og grein- argerð berst til nefndarinnar frá þeim sem eru ábyrgir fyrir fram- kvæmd leiksins. Keflvíkingar hafa kært fram- kvæmd leiksins. Málsatvik eru óljós, en í grófum dráttum snýst deilan um vítaskot sem Njarð- víkingar fengu á lokasekúndum leiksins eftir að mistök á ritara- borði komu í ljós. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Njarðvík hafði betur. Friðrik Ingi Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri KKÍ, segir óljóst hver niðurstaða málsins verði. Undanúrslitaleikirnir áttu að fara fram um helgina líkt og leik- irnir í undanúrslitum í karla- flokki. Úrslitaleikirnir í þessari keppni eru á dagskrá 18. febrú- ar og á þessari stundu er óljóst hvort úrslitaleikurinn í kvenna- flokki fer fram þennan dag. - seth Kæra í bikarkeppni kvenna: Undanúrslit í uppnámi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.