Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2012 25 Charlize Theron var mjög ánægð þegar hún fékk tækifæri til að vinna með leikstjóranum Ridley Scott við myndina Prometheus. Leikkonan hafði lengi viljað vinna með honum og loksins rættist það við gerð Prometheus, sem var að hluta til tekin upp á Íslandi síð- asta sumar. Theron skemmti sér vel við tökurnar á myndinni. „Það var frábært að vinna með Ridley. Það eru líkast til þrír meistarar í kvik- myndagerð af sömu kynslóð og Ridley og hann er einn af þeim,“ sagði hún. „Alla leikara dreymir um að vinna með einhverjum leik- stjóra og hjá mér var það Ridley.“ Dreymdi um samstarfið ÁNÆGÐ Charlize Theron hafði mjög gaman af samstarfinu við Ridley Scott. Tónlistarkonan Lana Del Rey hefur ekki drukkið áfengi í sjö ár en þetta viðurkennir söng- konan í viðtali við bandaríska Vogue. Það má varla fletta blaði þessa dagana án þess að sjá tónlistarkonuna Lönu Del Rey og flestir eru sammála um að hún verði skærasta stjarna þessa árs. Hún er í viðtali við nýjasta tölublað Vogue og lætur allt flakka. Plata hennar, Born to Die, hefur selst vel og segir söngkon- an að innblástur plötunnar hafi verið erfið fortíð og ástarsorg. „Platan er samin um ákveð- ið tímabil í mínu lífi þegar ég drakk alltof mikið og var ást- fangin. Ástarsorgin breytti mér og nú hef ég ekki tekið sopa af áfengi í sjö ár,“ segir Del Rey og viðurkennir að hún sé á rólegri stað í lífinu í dag. „Mér líður vel og kannski of vel. Ég veit ekki hvort ég gæti samið aðra plötu núna. Mér finnst ég hafa sagt allt sem ég þarf að segja og hef engu við þessa plötu að bæta núna.“ Hefur ekki drukkið í sjö ár DRAKK OF MIKIÐ Tónlistarkonan Lana Del Rey segir nýju plötuna vera um villta fortíð og ástarsorg. Nú hefur hún hins vegar ekki drukkið í sjö ár. NORDICPHOTOS/GETTY Axl Rose, söngvari Guns N’ Roses, fagnaði fimmtugsafmæli sínu í gær. Hann hefur tilkynnt um sex tónleika hljómsveitar- innar í bandarískum klúbbum á næstunni. Þar af verða þrennir í New York. Rose verður eini upprunalegi meðlimur sveitar- innar sem spilar á tónleikunum, sem kemur kannski ekki á óvart því hann þykir afar erfiður í umgengni. Síðasta plata Guns N’ Roses, Chinese Democracy, kom út fyrir fimm árum við misjafnar undir- tektir. Þá höfðu liðið fimmtán ár frá útgáfu síðustu plötu sveitar- innar, „The Spaghetti Incident?”. Axl Rose fimmtugur FIMMTUGUR Söngvarinn og sérvitringur- inn Axel Rose er orðinn fimmtugur. Sir Paul McCartney er ennþá undrandi á því að hafa verið í einni vinsælustu hljómsveit heims, Bítlunum. „Var ég virkilega í Bítlunum? Hver þremillinn,“ sagði McCart- ney í viðtali við Metro þegar hann skoðaði mynd af sér og George Harrison um borð í flugvél. „Þetta er undarleg tilhugsun en ég er ánægður með að ég sé ekki enn búinn að venjast þessu.“ McCartney gaf í gær út nýja plötu sem nefnist Kisses on the Bottom. Á henni eru mörg af uppáhaldslögum hans úr æsku. Meðal gesta eru Eric Clapton og Stevie Wonder. Undrandi á Bítlunum ÓTRÚLEGT Sir Paul McCartney finnst ótrúlegt að hafa verið í Bítlunum. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Voltaren Dolo® inniheldur 25mg kalíumdíklófenak. Notað við vægum verkjum eins og höfuðverk, tannverk, tíðaverk, gigt- og bakverk. Upphafsskammtur er 1 tafla, en síðan 1 tafla á 4-6 klukkustunda fresti, þó mest 3 töflur (75 mg) á sólarhring. Að hámarki 3 sólarhringar. Gæta skal varúðar hjá þeim sem eru með magasár. Einstaklingar sem eru með ofnæmi fyrir acetýlsalicýlsýru eða öðrum innihalds efnum eiga ekki að nota lyfið. Lyfið má ekki nota samhliða blóðþynnandi lyfjum, þvagræsilyfjum og lyfjum sem innihalda litíum, nema samkvæmt fyrirmælum læknis. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Ef þú ert með barn á brjósti máttu eingöngu nota Voltaren Dolo í samráði við lækni. Börn yngri en 14 ára mega ekki nota Voltaren Dolo. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healtcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R Hvað er það? Hvernig virkar það? Við hverju? Voltaren Dolo - nú tvöfalt sterkara en áður!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.