Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 38
7. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR30 LÖGIN VIÐ VINNUNA „Þetta var allt svolítið á hunda- vaði en við sungum lagið alls níu sinnum fyrir keppnina,“ segir Agnar Ólason, formaður og annar stofnandi Karlakórs Sjómanna- skólans. Karlakór Sjómannaskólans gerði sér lítið fyrir og sigraði í undankeppni skólans fyrir Söng- keppni framhaldsskólanna nú á dögunum. Kórinn flutti lagið Undir bláhimni en flutningurinn var tileinkaður minningu Einars G. Gunnarssonar, sem fórst með togaranum Hallgrími SI-77 í sjó- slysi við Noregsstrendur 25. janú- ar síðastliðinn. Einar hafði verið kennari við skólann í um 35 ár og mörgum kórmeðlimum mjög kær. Hugmyndin að kórnum kvikn- aði í haust en það var þó ekki fyrr en nú um áramótin sem Agnar og samnemi hans, Berg- steinn Ingólfsson, hrintu henni í framkvæmd. Stofnfundur kórs- ins var haldinn 19. janúar síðast- liðinn, eða 13 dögum fyrir keppn- ina. „Við stefndum á að taka þátt í keppninni frá upphafi, en vorum ekki vissir um að ná því með svo stuttum fyrirvara. Ég ákvað svo að skrá okkur til leiks og það var ekki aftur snúið þaðan,“ segir Agnar. Kórinn samanstendur af 36 manns auk tveggja heiðursmeð- lima, bræðranna Andra Snæs og Braga Fannars Þorsteinssona sem spila á harmonikku. Núver- andi og fyrrverandi nemendur Vélskólans og Stýrimannaskólans eru gjaldgengir meðlimir í kórn- um, þó aðeins núverandi nemend- ur megi taka þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri nú í mars. Agnar segir menn hafa tekið vel í framtakið frá upphafi, enda erfitt að hrinda einhverju svona í framkvæmd án þess að vel- vilji og góður andi sé til staðar. Hann segir menn afar spennta fyrir keppninni á Akureyri „Það er mikil skipulagning í gangi um hvar skuli stoppa á leiðinni til að taka lagið. Eins og er þykir Varmahlíð líklegust, enda nokkr- ir Skagfirðingar í kórnum,“ segir hann. Áhugasömum er bent á Aðdáen- dasíðu Karlakórs Sjómannaskól- ans á Facebook. tinnaros@frettabladid.is AGNAR ÓLASON: SUNGUM LAGIÐ NÍU SINNUM FYRIR KEPPNINA Sigruðu með flutningi til heiðurs látnum kennara Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á sinni sjöttu hljóðversplötu. Þetta staðfesti hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson þegar Fréttablaðið hafði samband við hann og bætti hann við að hún ætti að koma út í vor. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er búið að hljómjafna plötuna og er hún væntanleg í verslanir í apríl eða maí. Tón- leikaferð er síðan fyrirhuguð í ágúst. Aðdáendur Sigur Rósar um allan heim hljóta að gleðjast yfir þessum tíðindum því fimm ár eru liðin síðan síðasta hljóð- versplata, Með suð í eyrum við spilum endalaust, kom út við mjög góðar undirtektir. Í milli- tíðinni gaf söngvarinn Jónsi út sólóplötuna Go. Hljómsveitin gaf á síðasta ári út tónleikaplötuna Inni sem var tekin upp í Alexandra Palace í London árið 2008. Eitt nýtt lag var á þeirri plötu, Lúppulagið. Fréttablaðið greindi frá því á síðasta ári að tónskáldið Daníel Bjarnason kæmi við sögu á nýju plötunni og verður forvitnilegt að fylgjast með samstarfi hans og Sigur Rósar. - fb Ný plata Sigur Rósar kemur út í vor NÝ PLATA Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á nýjustu plötu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEIÐURSMENN Karlakór Sjómannaskólans vann undankeppni skólans í söngkeppni framhaldsskólanna á dögunum. Kórnum er stýrt af Þórhalli Bárðarsyni og lagið var tileinkað minningu Einars G. Gunnarssonar, sem fórst með togaranum Hallgrími SI-77 í sjóslysi við Noregs- strendur 25. janúar síðastliðinn. Á annað hundrað manns koma nálægt úrslitum Eurovision á einn eða annan hátt í Eldborgarsal Hörpunnar næsta laugardag. Um fjörutíu tæknimenn frá Sjónvarpinu verða í salnum, keppendurnir og fólkið í kringum þá verða um áttatíu talsins, auk þess sem starfsfólk Hörp- unnar og fleiri starfsmenn Sjónvarpsins, þar á meðal kynnar, verða í salnum. Samkvæmt Elísabetu Lindu Þórðardóttur, sem kemur að framkvæmd keppninnar, verða áhorfend- urnir um eitt þúsund talsins, sem er það mesta sem verið hefur í úrslitum Eurovision hérlendis. Miðar á keppnina seldust upp á fimm mínútum í þarsíð- ustu viku. „Það fóru hátt í eitt þúsund miðar í sölu og þeir hurfu einn, tveir og þrír,“ segir Elísabet Linda. Einhverjir miðakaupendur kvörtuðu yfir því hversu mörg sæti virtust vera frátekin en að sögn Elísabetar Lindu voru þau ekki svo mörg. Helst hafi verið tekið frá fyrir keppendurna. Eldborgarsalur- inn tekur um 1.450 manns í sæti en hann nýtist ekki allur á laugardaginn. Sviðið verður stækkað og því var ekki hægt að selja miða í fremstu sætaraðirnar, auk þess sem annars staðar í salnum þurfti að taka frá pláss fyrir myndavélar Sjónvarpsins, sem verða alls fjórtán talsins. Sjö lög keppa til úrslita í Eurovision og fer sigur- vegarinn til Aserbaídsjan í maí. Auk keppenda munu Páll Óskar og Hera Björk taka lagið í Eldborg. - fb Sviðið stækkað fyrir Eurovision ELDBORG Á annað hundrað manns koma nálægt úrslitum Eurovision í Eldborgarsalnum á laugardaginn. FRÉTTABLAÐI/VALLIwww.bbkeflavik.com Bed And Breakfast (Gistihús Keflavíkur) · Keflavíkurflugvelli Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ · Sími 426 5000 FRÍTT- við geymum bílinn þinn. FRÍTT- ferðir til og frá flugvellinum. FRÍTT- uppfærsla í DeLuxe herbergi í febrúar-apríl. Frábært verð! Hefst miðvikudaginn 15. febrúar Besti nýi gamanþáttur ársins FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Gunnar Jón Yngvason,Löggiltur leigumiðlari, Barónstíg 5, 101 Reykjavík, Sími 517 3500 Iðnaðarh, 145m2 Lónsbraut 2, Hfj HÚSNÆÐI FYRIR ÞÍNA HUGMYND Góð hurð 5,4x3,5, gott aðgengi og snyrtilegt umhverfi við höfn ina í Hafnarfirði. Leiguverð kr 135.000,- + VSK. Laust strax „Ég hlusta mjög oft á Elton John, minnir að hann eigi bara góð lög. Svo hef ég líka gaman af klassískri tónlist héðan og þaðan.“ Gunnar Nelson bardagaíþróttamaður.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.