Fréttablaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
BORGARMÁL „Þetta þýðir einfald-
lega að gengið verður að hesta-
mennsku í Reykjavík dauðri. Ef
þetta fær að standa þá leitar fólk
einfaldlega annað,“ segir Rúnar
Sigurðsson, formaður hestamanna-
félagsins Fáks, um breytingu á
álagningu fasteignagjalda á hest-
húsum í Reykjavík.
Við álagningu fasteignaskatta
fyrir árið 2012 hækkaði Reykja-
víkurborg fasteignaskatt hesthúsa
úr 0,2% af fasteignamati í 1,65%
sem er rúm 700% hækkun. Hækk-
unin grundvallast af úrskurði yfir-
fasteignamatsnefndar en nú teljast
hesthús atvinnuhúsnæði en ekki
frístundahúsnæði.
Reykjavíkurborg hefur skrif-
að Alþingi vegna málsins og farið
fram á að lögum verði breytt.
Í ályktun fundarins í gær er
farið fram á að innheimtu stökk-
breyttra fasteignagjalda yrði frest-
að og innheimt verði samkvæmt
eldra fyrirkomulagi meðan málið
væri til umræðu hjá ríki og borg.
Björn Blöndal, aðstoðarmaður
borgarstjóra, sat fundinn. Í máli
hans kom fram að mat lögfræðinga
sé að ekki væri heimilt að stöðva
innheimtuna. Hann sagði borgar-
yfirvöld hins vegar hafa hug á að
leysa málið farsællega. - shá
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Þriðjudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Stoðtæki &
sjúkraþjálfun
7. febrúar 2012
32. tölublað 12. árgangur
er
hækkun
fasteigna-
gjalda á hesthús eftir ákvörð-
un matsnefndar.
700%
STOÐTÆKI
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2012
&SJÚKRAÞJÁLFUN
KynningarblaðGervilimir í gegnum tíðina, sjúkraþjálfun, hópþjálfun, fótaspelka Eames-hjónanna og afrek Oscars Pistorius
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Lífshlaupið hefur verið ræst í fimmta
sinn. Markmiðið er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni dag-
legu hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum,
vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Nánar á vefslóðinni http://www.lifshlaupid.is.
Guðmundur Vigfússon brettakappi stundar sjóbretti við Íslandsstendur jafnt sumar, vetur, vor og haust.
Andlega
upplífgandi
R étt eins og brimbretti gefa sjóbretti frískandi upplifun og fylla mann and-legri jákvæðni og orku,“ upplýsir Guð-mundur Vigfússon, frumkvöðull í iðkun sjóbretta á íslenskum sjó og vötnum.Mummi, eins og hann kallar sig, er brettamaður með stórum staf því hann hefur
árum saman stundað
hjólabretti, snjóbretti,
brimbretti, langbretti,
sjóbretti og bretti knúin
áfram með flugdrekum. 3
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Nuddrúlla
-mýkir upp stífa vöðva
Verð: 4.980 kr.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Nýkominn aftur ! Alltaf flottur.
teg 86120 - létt fylltur og frábært snið, fæst í
B,C skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á
kr. 1.995,-
Fjölbreytt
grenningarmeðferð
30%
AFSLÁTTUR
LEIKFIMI INNIFALIN
Stuðla að ánægjulegri
fæðingarreynslu
Fæðingarþjálfarar njóta
vaxandi vinsælda á Íslandi.
allt 2
Þú leggur
línurnar
létt&laggott
Í HANDH
ÆGUM
UMBÚÐU
M
NÝJUNG
Nýja platan tilbúin
Upptökum á nýjustu plötu
Sigur Rósar er lokið. Hún
kemur í verslanir í vor.
fólk 30
Við erum bestir
Arnór Atlason er duglegur
að lyfta bikurum fyrir
danska ofurliðið AG.
sport 26
VINDASAMT Í dag verða sunnan
og síðan suðvestan 10-23 m/s.
Vætusamt einkum SA-til en
úrkomulítið NA-lands. Fremur milt
í veðri.
VEÐUR 4
6
6
6
6
5
Skora á nöfnur okkar
að mæta
Margrét Kristín Fabúla og
Magga Stína leiða saman
hesta sína
tímamót 18
MENNTAMÁL Hagfræðideild Háskóla
Íslands mun láta nýnema gangast
undir inntökupróf fyrir næsta
skólaár. Prófið verður þreytt í
júní og þeir sem ná lágmarkseink-
uninni 5,0 öðlast rétt til að hefja
nám við hagfræðideild. Þeir sem
ná ekki lágmarkseinkunn, en hafa
stúdentspróf sem er skilyrði til að
taka inntökuprófið, hafa rétt til að
skrá sig í aðrar deildir skólans sem
sett hafa almennar inntökukröfur.
Þessi ákvörðun lá fyrir eftir
fund háskólaráðs í síðustu viku en
innan skólans er jafnframt skoðað
að taka upp almennt inntökupróf
fyrir nokkrar fleiri deildir skólans
haustið 2013.
Jón Atli Benediktsson, aðstoð-
arrektor vísinda og kennslu við
HÍ, segir að almennt inntökupróf
við skólann sé tilraunaverkefni
er byggi á tillögu sérstaks starfs-
hóps sem rektor skipaði í ársbyrj-
un 2011. Hópurinn setti fram hug-
myndir um inntökupróf við tvær
til fjórar deildir sem hafa verið
fjölmennastar á fyrsta ári og þar
sem brottfall hefur verið einna
mest. „Það hefur hins vegar ekk-
ert verið ákveðið hvort fleiri deild-
ir hafi inntökupróf á næsta ári.
Þróun almenns inntökuprófs er
vandasamt verk og skólinn telur
mikilvægt að slíkt próf sé afar vel
undirbúið, og í góðu samstarfi við
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið.“
Jón Atli segir að þar sem ekki
er boðið upp á samræmt stúdents-
próf á Íslandi væri óskastaðan
eitt almennt próf, sem hægt væri
að nota við þær deildir háskólans
er telja sig þurfa að takmarka inn-
göngu.
Inntökuprófið sem verður lagt
fyrir í júní er í tveimur hlutum.
Annars vegar verður almennur
hluti er byggir á túlkun tölulegra
upplýsinga, rökhugsun og kunn-
áttu í íslensku og ensku. Hins
vegar verður sérhæfður hluti þar
sem kannað er hvort nemendur
hafi næga þekkingu og kunnáttu
í stærðfræði.
Jón Atli segir ástæðuna fyrir
umræðunni um inntökupróf vera
hið mikla brottfall sem er til
dæmis í hagfræði. Þar á meðal
skráningarbrottfall, sem telur
þá sem aldrei setjast á skólabekk
þrátt fyrir að hafa skráð sig til
náms. „Síðan eru það aðrar grein-
ar sem hugleiða inntökupróf þar
sem er mikið fall á fyrsta ári,“
segir Jón Atli.
Lögfræði hefur verið nefnd sem
dæmi um fjölmenna deild þar sem
fall er mikið á fyrsta ári, en þar
verður ekki sett á inntökupróf
fyrir skólaárið 2012/2013. „Lög-
fræðin, og ýmsar aðrar deildir eru
á hliðarlínunni, ef svo má að orði
komast,“ segir Jón Atli.
Spurður um hvort inntökupróf
í einni eða fleiri deildum Háskóla
Íslands sé í raun áfellisdómur yfir
gæðum náms á framhaldsskóla-
stigi, segir Jón Atli ekki svo vera.
„Þetta er einkum til að ná meiri
aga í skólastarfið hjá okkur og til
að tryggja gæði náms og kennslu
við HÍ. Við leggjum mikla áherslu
á samstarf við framhaldsskólana
og að upplýsa nemendur um þær
kröfur sem við gerum.“ - shá
Inntökupróf í hagfræðideild
Ákveðið hefur verið að nýnemar sem hyggja á hagfræðinám við Háskóla Íslands á næsta skólaári þreyti
inntökupróf. Aðrar deildir íhuga að taka upp slík próf en þó aldrei fyrr en í fyrsta lagi haustið 2013.
Lögfræðin, og ýmsar
aðrar deildir eru á
hliðarlínunni, ef svo má að
orði komast.
JÓN ATLI BENEDIKTSSON,
AÐSTOÐARREKTOR VÍSINDA
OG KENNSLU VIÐ HÍ
TIL STYRKTAR LEIKSKÓLUNUM Degi leikskólanna var fagnað víða í gær. Á leikskólanum
Hofi í Reykjavík brá Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, á leik fyrir börnin og afhenti jafn-
framt Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, ávísun að fjárhæð 363 þúsund krónur
sem renna eiga til rekstrar leikskóla á landinu. Upphæðin er ágóði af tónleikum sem leikskólakennarar blésu til á
Nasa í ágúst síðastliðnum þegar kjaradeila þeirra stóð sem hæst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Lögregla handtók
í gær rúmlega tvítugan mann
sem talinn er hafa orðið konu á
fertugsaldri að bana í íbúðarhús-
næði við Skúlaskeið í Hafnar-
firði.
Maðurinn kom á lögreglustöð í
gærmorgun í annarlegu ástandi
og í kjölfarið fann lögregla kon-
una látna á heimili hans. Á henni
voru sjáanlegir áverkar eftir hníf
sem fannst á vettvangi.
Maðurinn og konan þekktust
og voru bæði í óreglu. Maðurinn
hefur ítrekað komið við sögu lög-
reglu vegna minniháttar afbrota.
Ekki reyndist unnt að yfir-
heyra manninn strax vegna
ástands hans. Lögregla mun
ákveða í dag hvort hún fer fram
á að hann sæti gæsluvarðhaldi
vegna málsins. - sh / sjá síðu 4
Talinn hafa ráðið konu bana:
Ungur maður í
haldi grunaður
um manndráp
Formaður Fáks óttast fjöldaflótta hestamanna vegna hærri fasteignaskatta:
Segir hestamennsku leggjast af