Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 2

Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 2
3. mars 2012 LAUGARDAGUR2 SPURNING DAGSINS Sjálfsöryggi og sátt Sjálfsöryggi og sátt er nýtt 10 skipta (20 klst.) námskeið á vegum Kvíðameðferðarstöðvarinnar þar sem kenndar eru aðferðir til að bæta sjálfstraust. Lítið sjálfstraust getur hamlað fólki í daglegu lífi, haft veruleg áhrif á lífsgæði og valdið þrálátri vanlíðan. Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar, jafnframt því sem lögð er áhersla á árvekni (mindfulness) og sátt (acceptance). Á námskeiðinu læra þátttakendur leiðir til að bæta öryggi í samskiptum og leikari kemur í heimsókn og fjallar um framkomu og líkamstjáningu. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 14. mars kl. 15 og munu sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar stýra námskeiðinu. Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is Nánari upplýsingar: www.kms.is Sjálfstyrkingarnámskeið DÓMSTÓLAR Útgerðarfyrirtækið Dögun hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Olís á hendur fyrirtækinu. Helga Melkorka Óttars dóttir, lögmaður Dögunar, segir að áfrýjunin verði lögð fram eftir helgina, en á föstudag rennur út þriggja mánaða áfrýjunarfrestur fyrirtækisins. Olís höfðaði mál á hendur Dögun fyrir að skuldajafna á móti kröfu olíufélagsins tjóni sem fyrirtækið taldi sig hafa orðið fyrir vegna samráðs Olís, Essó og Skeljungs vegna áranna 1994 til 2001. Héraðsdómur féllst ekki á að sönnur hefðu verið færðar á tjón Dögunar vegna samráðsins. - óká Skuldajöfnuðu samráðstjón: Dögun áfrýjar samráðsmáli NÁTTÚRUFAR Hlýr febrúar- mánuður hefur dugað kínverska elrinu í Grasagarðinum til að opna og teygja úr karlreklunum sem nú hanga niður, þannig að vindur hefur greiðan aðgang að frjóhirslum og þar með geta frjókornin dreifst út í andrúms- loftið. Á þetta er bent á vef Náttúru- fræðistofnunar og að elrifrjó geti kallað fram ofnæmisein- kenni hjá þeim sem þegar eru komin með ofnæmi fyrir birki- frjóum. - óká Hlýindi í febrúar hafa áhrif: Vara við frjó- kornum elris ÍRAN, AP Obama forseti segir að Bandaríkjunum sé full alvara með því að hernaður gegn Íran komi til greina, ef Íranar koma sér upp kjarnorkuvopnum. Hins vegar varaði hann Ísraels- menn jafnframt við því að grípa einhliða til aðgerða, sem geti orðið meira til tjóns en til góðs. Hann sagði að stjórnvöld bæði í Ísrael og Íran geri sér fulla grein fyrir því, „að þegar Banda- ríkin segja það ekki ásættanlegt að Íranar hafi kjarnorkuvopn, þá meinum við það sem við segjum.“ Litlar líkur þykja á mikilli stefnubreytingu í Íran í kjölfar þingkosninga í gær. - gb Kjarnorkuáætlun Írana: Obama segir alvöru í hótun KHAMEINI Erkiklerkur Írans greiðir atkvæði í kosningum. NORDICPHTOTOS/AFP IKEA innkallar ofngrindur Neytendastofa vekur athygli á inn- köllun IKEA á ofngrindum úr NUTID og FRAMTID ofnum. Ofngrindin sem fylgdi getur dottið niður við notkun og valdið brunaslysum. Ofnskúffur eru hins vegar sagðar hafa passað. Innköllunin nær aðeins til ofna með framleiðsludagsetningu 1134- 1150(ár/vika) og ákveðin vörunúmer. ÖRYGGISMÁL DÓMSMÁL Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, hefur falið lögmönnum á LEX að útbúa kæru til Mannréttinda- dómstóls Evrópu vegna með- ferðar innherjasvikamáls hans í íslenska réttarkerfinu. Hæstiréttur staðfesti um miðjan febrúar tveggja ára fangelsis dóm yfir Baldri vegna sölu hans á bréfum í Lands- bankanum fyrir 192 milljónir rétt fyrir bankahrun. Í t i lkynningu frá L EX segir að það sé mat lögmanna stofunnar að með dómnum hafi í veiga miklum atriðum verið brotinn réttur á Baldri í skiln- ingi ákvæða Mannréttinda- sáttmála Evrópu. Í tilkynning- unni er vísað til ákvæða um bann við endur- tekinni málsmeðferð og réttláta málsmeðferð. Segir þar að hann hafi ekki notið réttlátrar málsmeð ferðar í fernum skilningi: Hann hafi verið sakfelldur sem tíma- bundinn innherji en ákærður fyrir að hafa verið svokallaður annar innherji, Hæstiréttur hafi ekki tekið tillit til veigamikilla atriða í vörn Baldurs, sönnunar- byrðinni hafi verið snúið við og í síðasta lagi leiki mikill vafi á því að málið hafi notið óvilhallrar meðferðar fyrir dómi. Kæran verður send til Mann- réttindadómstólsins á næstunni, segir í tilkynningunni. Hún frestar ekki réttaráhrifunum af dómi Hæstaréttar. - sh Mál Baldurs Guðlaugssonar á leið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu: Baldur kærir mannréttindabrot BALDUR GUÐLAUGSSON Siggi, varstu látinn fjúka? „Nei, en ég sá storm í aðsigi og ákvað að forða mér.“ Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, sagði sig úr Samstöðu eftir ágreining innan flokksins.“ SÝRLAND, AP Stjórnvöld í Sýrlandi komu í veg fyrir að starfsfólk Rauða krossins kæmist inn í hverfið Baba Amr í Homs með hjálpargögn til íbúa þar, sem vikum saman bjuggu við linnulitlar sprengju- árásir stjórnarhersins. Hjálparstarfsfólkið er engu að síður komið inn í borgina Homs og mun bíða þar eftir því að tæki- færi gefist til að fara inn í Baba Amr. Lík tveggja erlendra blaðamanna, sem létu lífið í árásunum á Homs, voru flutt frá borginni í gær til höfuðborgarinnar Damaskus. Tveir aðrir erlendir blaðamenn, Edith Bouvier og William Daniels, komu hins vegar til Frakklands í gær, viku eftir að Bouvier særðist í árásunum á Homs. Þau höfðu komist til Líbanons í fyrradag. Frakkar sögðust í gær hafa ákveðið að loka sendiráði sínu í Sýrlandi og fleiri vestræn ríki hafa gert slíkt hið sama. Sýrlenskir uppreisnarmenn segja að sýrlensk stjórnvöld standi enn fyrir því að taka einstak- linga úr röðum uppreisnarmanna af lífi án dóms og laga. Talsmaður mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna sagði óstaðfestar fréttir hafa borist um að sautján manns hafi verið drepnir í Baba Amr eftir að stjórnarherinn náði hverfinu á sitt vald nú í vikunni. - gb Starfsfólk Rauða krossins komið til borgarinnar Homs með hjálpargögn: Komast ekki inn í Baba Amr MÓTMÆLI GEGN ASSAD FORSETA Fjöldi manns hélt út á götur í bænum Binnish í Sýrlandi í gær. NORDICPHOTOS/AFP HB styrkir Bíóhöllina Stjórn HB Granda ætlar að leggja fimm milljónir króna í endurnýjun sýningarbúnaðar Bíóhallarinnar á Akranesi. Áður hafði bæjarstjórn Akraness hrint af stað söfnunarátaki og veitt 8 milljónum til verkefnisins. AKRANES HEILBRIGÐISMÁL Vafasamt er að læknar beri fyrir sig trúnaðar- og þagnarskyldu gagnvart sjúklingum þegar kemur að því að veita land- lækni upplýsingar um konur sem gengist hafa undir brjóstastækk- unaraðgerð. Þetta segir Tómas Guðbjartsson prófessor í skurð- læknisfræði við Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítalanum í leiðara nýjasta tölublaðs Lækna- blaðsins. Landlæknisembættið óskaði eftir upplýsingum frá lýta læknum um brjóstastækkunar aðgerðir eftir að upp komst að iðnaðar- sílíkon hafði verið sett í PIP-púða sem settir voru í rúmlega 400 konur hér á landi. Lýta læknar telja sig bundna trúnaði gagnvart sjúk lingum og vísuðu málinu til Persónu verndar, sem nú hefur málið til skoðunar. „PIP-málið hefur komið af stað þarfri umræðu um eftirlits- hlutverk landlæknisembættisins og fleiri stofnana eins og Lyfja- stofnunar, og hversu vanmáttugar þessar stofnanir eru í eftirliti með læknastarfsemi utan sjúkrahúsa,“ segir Tómas. Hann segir sífellt meiri áherslu hafa verið lagða á skráningu fylgikvilla í skurð- lækningum og tengingu þeirra við ígræði undan farin ár. Vegna þess að brjósta stækkanir fara fram á einkastofum og án þátttöku sjúkratrygginga hefur skráning á notkun brjóstafyllinga verið á ábyrgð lýtalækna sjálfra. Það er óviðunandi að mati Tómasar. Miðlæg skráning ígræða sé nauð- synleg, jafnt í lýtalækningum sem öðrum sérgreinum skurðlækninga. „Þess vegna veldur áhyggjum að lýtalæknar hafi nýlega neitað land- lækni um upplýsingar um konur sem gengist höfðu undir brjósta- stækkunaraðgerð.“ Þetta eftirlitshlutverk á ekki að eiga að vera á ábyrgð einstakra lækna, sem sumir haldi skrár í einkatölvum, að mati Tómasar. Í lögum um landlækni og lýðheilsu er skýrt tekið fram að embættið eigi að hafa eftirlit með heilbrigðis- þjónustu á landsvísu. „Í sömu lög vantar hins vegar augljóslega úrræði til að beita viðurlögum, séu þessar upplýsingar ekki veittar.“ Tómas segir hætt við að úrskurður Persónuverndar, sem nú er beðið, geti flækt og tafið málið. „Verði það raunin er brýnt að breyta lögunum þannig að enginn vafi leiki á vald- heimildum landlæknis embættisins. Hér vega hagsmunir sjúklinga þyngst.“ thorunn@frettabladid.is Vafasamt að bera við þagnarskyldu Óviðunandi er að læknar beri sjálfir ábyrgð á skráningum brjóstafyllinga. Mið- læg skráning er nauðsynleg, en landlæknir er vanmáttugur í eftirliti, segir lækna- prófessor. Vafasamt er að bera við þagnarskyldu til að veita ekki upplýsingar. PIP-PÚÐI Þörf umræða um eftirlitshlutverk landlæknis og fleiri stofnana hefur farið af stað í kjölfar PIP-málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Umræðan í kringum PIP-brjóstafyllingarnar og sílíkonaðgerðir í landinu hafa snúist upp í ofsóknir gegn Jens Kjartanssyni lýtalækni. Þetta segir Ottó Guðjónsson, formaður Félags íslenskra lýtalækna, í grein í nýjasta tímariti Læknablaðsins. Ottó segir fjölmiðlaumfjöllun um málið hafa keyrt algjörlega um þverbak og einkennst af dylgjum og rógburði. Þá geti Félag lýtalækna ekki fallist á að ábyrgðin liggi hjá Jens varðandi PIP-púðana, heldur alfarið hjá framleiðandanum. - sv Ofsóknir gegn Jens lýtalækni BESSASTAÐIR Ástþór Magnússon ætlar að gefa kost á sér í forseta- kosningum í sumar. Þetta er í þriðja skipti sem Ástþór býður sig fram. Ástþór tilkynnti um fram- boðið á blaðamannafundi á heim- ili sínu í gær. Hann segir fjölda fólks hafa haft samband við sig og hvatt sig til framboðs. „Fram- boðið er jafnframt áskorun til fjölmiðla, sitjandi forseta og stuðningsmanna hans að virða rétt þjóðarinnar til að velja sér forseta í opnu og lýðræðislegu ferli.“ - þeb Forsetaframboð í þriðja sinn: Ástþór býður sig fram á ný
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.