Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 92
3. mars 2012 LAUGARDAGUR52 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Fátt fer meira í taugarnar á mér en hneykslunarárátta. Þess vegna hneykslast ég mjög gjarnan á því hvað mér finnst fólk hneykslunargjarnt. Þess á milli hneykslast ég á því að fólk skuli ekki hneykslast á því sem mér finnst sannar- lega hneykslunarvert. Eftir að ég tók að temja mér þann leiða ósið að dvelja lang- dvölum á Facebook hefur þessi innri þver- sögn orðið mér jafnt og þétt ljósari og um leið óskiljanlegri. Það er nefnilega mikið hneykslast á Facebook. Og þótt mér leiðist þessi sífellda hneykslun þá er eins og ég límist við hana og í stað þess að slökkva á tölvunni og fara að gera eitthvað viskulegt er ég, áður en ég veit af, búinn að kynna mér hverja hneykslunarhelluna á fætur annarri og verð jafnan sár hneykslaður á því hvað þær eru í raun lítið hneykslunar efni þegar upp er staðið – svona í hinu stóra samhengi. ÉG VIL ekki gera lítið úr öllum þeim óheiðar- leika, sora og óeðli sem veður uppi, hvað þá hinu ógeðfellda hæfi- leikaleysi íslensks framáfólks til að sjá sök hjá sjálfu sér né einstakri lagni þess við að benda hvert á annað til að finna orsakir alls sem afvega hefur farið. En það hvarflar stundum að mér að þetta þjóni engum tilgangi. Undanfarið hef ég nefnilega hvað eftir annað séð fólk rjúka upp í hneykslun á hinu og þessu (Snorra í Betel, öskudagsbúningum, Jóni Baldvin, passíusálmunum, Geir Jóni o.s.frv.) með þeim afleiðingum að aðrir rjúka upp í hneykslun á því að hneykslast sé á þessu og þá er auðvitað hneykslast á því að þeim skuli finnast slík hneykslun eitthvað hneykslanleg. Hverju skilar þetta? ÍSLENDINGAR eru að ýmsu leyti eins og börn sem búa við heimilisofbeldi. Við vorum blekkt og svívirt af þeim sem áttu að gæta hagsmuna okkar og við treystum til þess. Ekkert hefur verið gert til að endur heimta það traust eða gefa þjóðinni inneign fyrir fyrirgefningu sem er for- senda sáttar og heilbrigðra samskipta. Börn sem búa við heimilisofbeldi eru sjaldan til vandræða inni á heimilinu. Þar hafa þau gefið alla von um rétt- læti upp á bátinn. Vanlíðan þeirra brýst út í skólanum og á leikvellinum. Höfum við með öllu gefist upp á stóru réttlætis- málunum? Er virkilega svo komið að eina aðferð okkar til að fá útrás fyrir gremjuna og van líðanina er að froðufella af bræði og hneykslan á netinu yfir hvaða tittlinga- skít sem við getum verið ósammála um? Hneykslanleg hneykslunaráráttaLÁRÉTT 2. tarfur, 6. frá, 8. hestaskítur, 9. farvegur, 11. tveir eins, 12. laust bit, 14. enn lengur, 16. tveir eins, 17. þjálfa, 18. for, 20. persónufornafn, 21. krakki. LÓÐRÉTT 1. þungi, 3. pot, 4. peningar, 5. svelg, 7. þögull, 10. dorma, 13. frjó, 15. kviður, 16. verkur, 19. holskrúfa. LAUSN LÁRÉTT: 2. boli, 6. af, 8. tað, 9. rás, 11. uu, 12. glefs, 14. áfram, 16. tt, 17. æfa, 18. aur, 20. ég, 21. krói. LÓÐRÉTT: 1. farg, 3. ot, 4. lausafé, 5. iðu, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15. magi, 16. tak, 19. ró. Æ, æ, æ Hvernig gekk? Allt í góðu! Stundum þá bara fjúka takkar af skónum í svona tæklingum! Var ég búinn að segja þér góðu fréttirnar, Palli? Við ætlum að gista í sama bústað og ég gisti í með foreldrum mínum þegar ég var á þínum aldri. Þetta lofar góðu. Já, að hann hunsi mig alveg er betra en einhvers konar rifrildi! Hvað eruð þið að gera? Glíma? Hei! búð- ingur! Bjargað af þriggja sekúndna athyglisskyninu. Þú skal t sofa mikið Þú skal t hunsa fólk Þú skalt vera matsár Þú skalt sækja í athygli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.