Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 4
3. mars 2012 LAUGARDAGUR4
LÖGREGLUMÁL Gunnar Andersen,
fyrrverandi forstjóri Fjármála-
eftirlitsins, var yfirheyrður af
lögreglu í gærmorgun vegna kæru
FME á hendur honum vegna brots
í starfi. Skúli Bjarnason er hættur
sem lögmaður Gunnars og segir
trúnaðarbrest ástæðuna.
Starfsmaður Landsbankans,
sem grunaður er um að hafa tekið
saman upplýsingar um Guðlaug
Þór Þórðarson alþingismann að
beiðni Gunnars, var yfirheyrður
í gær.
Þá var Ingi F. Vilhjálmsson,
fréttastjóri DV, einnig yfir heyrður
en hann er sakaður um að rjúfa
bankaleynd með því að birta upp-
lýsingarnar um Guðlaug Þór. Ingi
F. er með réttarstöðu sakbornings.
Lögregla óskaði eftir frekari
gögnum frá Landsbankanum og
FME til viðbótar við þau gögn sem
fylgdu kæru FME á fimmtudag.
Eins og greint var frá í fréttum
í gær kærði FME Gunnar til lög-
reglu fyrir að hafa aflað trúnaðar-
gagna frá Landsbankanum með
ólögmætum hætti. Gögnin varða
fjármál Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar alþingismanns.
Skúli Bjarnason hæstaréttar-
lögmaður, sem gætt hefur hags-
muna Gunnars Andersen vegna
deilna hans við stjórn FME,
sagði sig frá málinu í gær.
„Nýjar upplýsingar sem
fram komu í uppsagnar-
bréfi í gær og skýrðust
með ákveðnum hætti
í gærkvöldi , komu
mér algerlega í opna
skjöldu og eru til þess
fallnar að setja málið
í nýjan farveg,“ segir í yfir lýsingu
frá Skúla. Þar kemur fram að Skúli
sé enn þeirrar skoðunar að Gunnar
hafi verið beittur rangindum
vegna uppsagnar hans sem for-
stjóra. Hans aðkoma að þeim hluta
málsins standi
óhögguð.
Landsbankinn hefur staðfest að
upplýsingar um ólöglega miðlun
trúnaðargagna hafi bankinn til-
kynnt stjórn FME. Starfsmaður
bankans, sem var yfirheyrður í
gær, hefur verið sendur í ótíma-
bundið leyfi á meðan rannsókn
málsins stendur yfir. Honum var
því ekki sagt upp störfum, eins og
kom fram í Fréttablaðinu
í gær.
- shá, sh, þsj
GENGIÐ 03.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,9994
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,5 126,1
199,77 200,75
166,22 167,16
22,355 22,485
22,387 22,519
18,83 18,94
1,5384 1,5474
193,86 195,02
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VIRKJANIR Bæjarstjórn Grindavíkur sam-
þykkti á dögunum að hefja deiliskipu-
lagsbreytingar vegna tilraunaborana HS
Orku í Eldvörpum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLA
ORKUMÁL Grindavíkurbær mun
á næstunni hefja vinnu við
breytingu á deiliskipulagi við Eld-
vörp í bæjarlandinu vegna fyrir-
hugaðra tilraunaborana HS Orku.
HS Orka hafði óskað eftir því
við skipulags- og umhverfisnefnd
bæjarins að vinna færi í gang og
lagði fram lýsingu og matslýsingu
vegna borteiganna. Bæjarstjórn
samþykkti svo tillögu nefndarinn-
ar um að ráðast í skipulagsvinn-
una.
Fram hefur komið að Alterra,
móðurfélag HS Orku, stefni að því
að virkja um 50MW úr Eldvörpum
og nýta vegna álvers Norðuráls í
Helguvík. - þj
Bæjarstjórn Grindavíkur:
Skipulagsvinna
vegna borana í
Eldvörpum
VINNUMARKAÐUR Atvinnutorgi fyrir
ungt fólk var hleypt af stokkunum
í Kópavogi í gær.
Markmiðið er, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Kópa-
vogsbæ, að auka virkni ungs fólks
á aldrinum 16 til 25 ára sem hvorki
er í vinnu né skóla, og aðstoða það
við að fóta sig á vinnumarkaði eða
í námi.
Atvinnutorgið er tilrauna-
verkefni Kópavogsbæjar, Vinnu-
málastofnunar og velferðarráðu-
neytisins og er til þriggja ára.
Nú þegar eru til reiðu þrjátíu
50% störf hjá velferðarsviði bæjar-
ins sem nýta á í þessi verkefni. - þj
Nýtt atvinnuverkefni:
Atvinnutorg
fyrir ungt fólk
í Kópavogi
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi tilkynninga
til sóttvarnalæknis um inflúensu-
lík einkenni virðist hafa náð
hámarki, að því er fram kemur á
vef Landlæknisembættisins.
„Samkvæmt fjölda til kynninga
fyrri hluta þessarar viku sam-
anborið við vikuna á undan, var
toppurinn sennilega í síðustu
viku. Gera má því ráð fyrir að
tilfellum fari fækkandi næstu
vikur.“ Tekið er fram að bæði
börn og fullorðnir leiti til læknis
með einkenni. - óká
Inflúensutilvikum fækkar:
Flensan virðist
á undanhaldi
SAMKOMULAG Velferðarráðherra,
forstjóri VMS og bæjastjóri Kópavogs
handsala samninginn. MYND/KOPAVOGUR.IS
LANDBÚNAÐUR „Já, við höfum verið
að fylgjast með útbreiðslu á þessari
veiru. En við höfum ekki stórar
áhyggjur, svo lengi sem flugan sem
ber þetta finnst ekki hér á landi,“
segir Halldór Runólfs son yfirdýra-
læknir um veiru sem hefur lagst á
búpening í Evrópu.
Á síðari hluta árs 2011 varð
veikinda vart í nautgripum og
sauðfé í Þýskalandi, Hollandi og
Belgíu, af völdum veiru sem ekki
hefur greinst áður. Hún hefur
verið nefnd Schmallenberg-vírus.
Veiran berst milli dýra með skor-
dýrum, oftast smámýi sem ekki
lifir á Íslandi svo vitað sé. Því er
talið ólíklegt að þessi nýja veira
berist hingað til lands.
Veiran hefur nú borist til Eng-
lands, en sauðburður er nýlega
hafinn í landinu. Bresku bænda-
samtökin gáfu það út á sunnudag
að sumir bændur hafi misst allt að
fjórðung nýfæddra lamba.
Halldór segir að eftir að hafa
aflað upplýsinga hjá Náttúrufræði-
stofnun þá liggi fyrir að flugan
hafi ekki fundist hér. „En hvað
verður með hækkandi hitastigi –
er erfitt að spá fyrir um,“ segir
Halldór. - shá
Yfirdýralæknir óttast ekki Schmallenberg-veiru en útilokar ekki að hún berist hingað:
Fylgjast með útbreiðslu veiru
SAUÐBURÐUR Sauðburður er nýhafinn í
Englandi og herjar þar á tugi búa. Veiran
veldur vansköpun og dauða lamba.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Lögmaður Gunnars
segir sig frá málinu
Gunnar Andersen, grunaður starfsmaður Landsbankans og Ingi F. Vilhjálms-
son, fréttastjóri DV, voru yfirheyrðir af lögreglu í gær. Skúli Bjarnason segir
trúnaðarbrest ástæðu þess að hann fer ekki lengur með mál Gunnars.
Því hefur verið fleygt í samtölum Fréttablaðsins við löglærða menn að
yfirlýsing Skúla Bjarnasonar, þar sem hann greinir frá því að hann fari ekki
lengur með mál Gunnars Andersen vegna trúnaðarbrests, kunni að vera á
svig við siðareglur Lögmannafélags Íslands. Texta yfirlýsingarinnar megi túlka
sem svo að Skúli fari langt með að lýsa Gunnar sekan af því meinta broti
sem kæra FME lýtur að, enda vitnar hann til upplýsinga sem var að finna í
uppsagnarbréfi Gunnars frá stjórn FME.
Brynjar Níelsson, formaður LÍ, treysti sér ekki til að meta hvort um brot á
siðareglum félagsins væri að ræða, þegar álitaefnið var borið undir hann í gær.
Brynjar fellst hins vegar á að yfirlýsing Skúla sé sérstök og án hliðstæðu,
eftir því sem næst verður komist. Brynjar bendir þar á að Skúli sjái ástæðu
til að tilkynna það sérstaklega að trúnaðarbrestur hafi orðið milli hans og
skjólstæðings síns.
Yfirlýsing Skúla á svig við siðareglur?
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
16°
8°
5°
13°
15°
5°
5°
20°
13°
16°
15°
31°
4°
17°
18°
2°
Á MORGUN
8-15 m/s.
MÁNUDAGUR
Hvöss S-átt um
allt land einkum V-til
5
6
3
3
3
4
-1
7
4
2
2
9
7
10
7
8
5
12
11
5
7
9
00
0
2
1
4
4
3
6
5
HELDUR HVASST
hjá okkur um
helgina og verða
suðvestlægar áttir
ríkjandi með éljum
eða slydduéljum
vestan til á landinu
en vætu eystra í
dag. Kólnar ekki
neitt að ráði fyrr á
morgun og þá fyrst
vestanlands. Lítur
úr fyrir stormasam-
an mánudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Vegna mistaka féll niður síðasta lína
leiðara blaðsins í gær. Lokamálsgrein
leiðarans, sem fjallaði um upp-
sögn forstjóra Fjármálaeftirlitsins, er
rétt þannig: „Yfirlýsingar lögmanns
Gunnars fyrir hans hönd í frétta-
tilkynningu í gær um „sorgardag“,
„Sovét-Ísland“, og að nú hafi Gamla
Ísland sigrað Nýja Ísland eru fram
úr hófi dramatískar og ekki trú-
verðugar. Stjórn FME virðist einmitt
hafa ákveðið að taka slaginn í þágu
Nýja Íslands, með því að tryggja að
trúverðugleiki þeirra sem rannsaka
bankahrunið sé hafinn yfir vafa.“
HALDIÐ TIL HAGA
MANNRÉTTINDI Fulltrúi Íslands í
mannréttindaráði Sameinuðu þjóð-
anna kynnir 15. þessa mánaðar
afstöðu Íslands til 52 af 84 til-
mælum ráðsins til stjórnvalda frá
því í Genf í október síðastliðnum.
„Helsta gagnrýnin sem kom
fram varðandi mannréttindi á
Íslandi varða fangelsismál, mál-
efni erlendra ríkisborgara, launa-
mun kynjanna, ofbeldi gegn
konum og börnum,“ segir á vef
BSRB. Stjórnvöld eru sögð ætla
að koma tilmælunum til fram-
kvæmda fyrir árið 2016. - óká
Stjórnvöld svara á næstunni:
Mannréttindi
bætt fyrir 2016