Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 56
3. mars 2012 LAUGARDAGUR12
SBJ -réttingar óska eftir að ráða bílasmið og bílamálara.
Upplýsingar í síma 892 1822.
SBJ-réttingar ehf.,
Söluráðgjafi nýrra
og notaðra Ford bifreiða
óskast til starfa!
Finndu sköpunargáfu þinni farveg. Þú vilt læra meira og nýta
hæfileika þína í hópi frábærra fagmanna. Komdu til okkar sem
störfum saman undir fána Brimborgar. Virkjum sköpunargáfuna
saman. Sendu okkur þína umsókn og tölum svo saman.
Við erum hátæknifyrirtæki og bjóðum hágæða vörur frá
þekktustu framleiðendum heims. Við bjóðum vörumerki eins
og Ford, Volvo, Citroën, Mazda. Volvo vörubíla. Volvo vinnuvélar.
Volvo Penta bátavélar. Volvo strætisvagna og Volvo rútur. Hiab
bílkrana og Nokian hjólbarða.
Við horfum öðruvísi á heiminn. Við trúum því að
nýsköpunarþörfin gefi okkur, fjölskyldu okkar og viðskiptavinum
forskot á lífið. Forskot sem gerir Brimborg að betri kaupstað, betri
þjónustustað og betri vinnustað – öðrum þræði öruggum stað að
vera á. Við trúum því að næmur skilningur á óskum og þörfum
viðskiptavina okkar sé æðsta markmiðið. Lærðu með okkur.
Stutt lýsing á starfi
Ráðgjöf til viðskiptavina varðandi kaup og rekstur
bifreiða.
Sala á nýjum og notuðum bílum, vara- og
aukahlutum og tengdri þjónustu.
Umsjón með umhverfi söludeildar þ.m.t. í sýningarsal
og á útisvæði.
Aðstoð við pantanir, markaðsgreiningu,
markmiðasetningu og aðra vinnu sem til fellur.
Megin hæfniskröfur
Framhaldsskólamenntun eða sambærileg menntun.
Sölumannshæfileika.
Löggiltur bifreiðasali - æskilegt.
Almenn þekking og reynsla af bifreiðum.
Hafa gilt bílpróf - meirapróf æskilegt.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Almenn tölvuþekking.
Dönskukunnátta æskileg.
Talnaglögg/ur.
Nánari upplýsingar
Vinnutími er frá 9:00 -17:00 virka daga og annan
hvern laugardag kl. 11:30 -16:20.
Brimborg leitast við að ráða til samstarfs fagfólk af
báðum kynjum með gildismat sem samrýmist
kjarnagildum og megin reglum fyrirtækisins. Fólk sem
metur mikils orð og gjörðir eins og heilbrigði, ábyrgð,
tillitsemi, umburðarlyndi, árangur, frumkvæði,
þekkingarleit og samvirkni.
Skelltu þér á netið www.brimborg.is og sæktu um
starfið. Nánari upplýsingar veitir mannauðs- og
gæðasvið Brimborgar í síma 515 7088.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2012.
Þú sækir um á netinu, www.brimborg.is.
Nú er tækifærið - við bíðum eftir þér.
Umsóknarfrestur
er til 12. mars n.k.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | www.brimborg.is | brimborg@brimborg.is
Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkur
Hugbúnaðarsérfræðingur og Verkefnastjóri
Vakin er athygli á þeirri stefnu Reykjavíkurborgar að jafna hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Upplýsingatæknimiðstð Reykjavíkurborgar leitar að öflugum starfsmönnum í þróunarhóp en Reykjavíkurborg rekur
eitt stærsta og fjölbreyttasta upplýsingatækniumhverfi landsins með um 25.000 tölvunotendur.
Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í öflugum hópi starfsmanna við að leysa fjölbreytt verkefni.
Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar, UTM, fer með forystuhlutverk í upplýsinga¬tæknimálum borgarinnar.
UTM gegnir þjónustuhlutverki við viðskiptavini sína sem eru svið og stofnanir Reykjavíkurborgar og er ætlað að
annast rekstur og þróun upplýsingatæknibúnaðar borgarinnar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hjörtur Grétarsson upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar
(hjortur.gretarsson@reykjavik.is) og María Guðfinnsdóttir þróunarstjóri Upplýsingartæknimiðstöðvar
Reykjavíkurborgar (maria.gudfinnsdottir@reykjavik.is) í síma 411 1900.
Umsóknafrestur er til 12. mars 2012. Sækja skal um starfið á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is,
undir Auglýsingar, Störf í boði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Hugbúnaðarþróun/veflausnir
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Þróun veflausna hjá Reykjavíkurborg
• Vefþróun í Content XXL vefumsjónarkerfi
• Tengingar við önnur kerfi
• Þarfagreining og ráðgjöf varðandi veflausnir
• Samskipti og ráðgjöf við svið og stofnanir borgarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tölvunarfræði eða sambærileg menntun
• Starfsreynsla við hugbúnaðargerð og vefforritun
• Reynsla af forritun í .NET
• Góð þekking á HTML, CSS, Java Script og SQL fyrir-
spurnum
• Haldgóð þekking á gagnagrunnum
• Þekking á vefþjónustum og gagnatengingum
• Þekking á virkni og uppbyggingu vefumsjónarkerfa
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi
Verkefnastjóri upplýsingatækniverkefna
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Verkefnastýring upplýsingatækniverkefna
• Skilgreining verkefna og gerð þarfagreininga
• Kennsla og kynningar
• Ráðgjöf og þjónusta við svið og stofnanir Reykjavíkur-
borgar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla af verkefnastjórnun
• Reynsla af uppsetningu og smíði kerfa æskileg
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi
• Hæfni til að setja fram skýrar hugmyndir í rituðu og
mæltu máli
• Lipurð í mannlegum samskiptum
Barnafataverslun
Barnafataverslunin POLARN O. PYRET leitar starfs-
mannni í verslunina í Smáralind.
Leitað er eftir jákvæðum og skipulögðum
einstaklingi með þjónustulund og reynslu af
verslunarstörfum.
Vinnutími er samkomulag en felur einnig í sér
vinnuframlag annan hvorn laugardag. Um 80% starf
er að ræða.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslununum
í Kringlunni og Smáralind.
SMÁRALIND OG KRINGLUNNI