Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 104
3. mars 2012 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
STEINGRÍMUR JÓHANNESSON markahrókur lést á fimmtudaginn aðeins 38 ára að aldri.
Steingrímur hafði háð harða baráttu við krabbamein síðustu mánuði. Steingrímur lék með ÍBV, Fylki,
Selfoss og KFS á sínum ferli. Hann skoraði 81 mark í 221 leik í efstu deild.
Sportið gengur ekki
út á að meiða mikið.
Minn tilgangur er að ég hef
áhuga á að læra að verja
sjálfan mig.
GUNNAR NELSON
BARDAGAKAPPI
FÓTBOLTI Að venju verður nóg um
að vera í ensku úrvals deildinni
um helgina. Veislan byrjar í
hádeginu í dag þegar Liverpool
tekur á móti Arsenal og svo
verður þétt dagskrá á morgun
þegar boðið verður upp á þrjá
leiki í röð.
Augu flestra munu þó sjálf-
sagt beinast að leik Tottenham
og Manchester United. United er
í öðru sæti og á í harðri baráttu
við nágranna sína í City um topp-
sætið en Tottenham verður að
vinna sigur til að eiga enn raun-
hæfa möguleika á að blanda sér í
titilbaráttuna af einhverri alvöru.
Tottenham hefur átt gott tíma-
bil og kom það Sir Alex Ferguson,
stjóra Manchester United, ekki
á óvart. „Í sumar ákváðu þeir að
halda í Luka Modric þrátt fyrir
að hafa fengið tilboð frá Chelsea
sem öllum fannst mjög hátt.
Það sendi öðrum leikmönnum í
liðinu skýr skilaboð og bar góðan
árangur. Þar til fyrir 2-3 vikum
var Tottenham að spila best allra
liða í deildinni,“ sagði Ferguson.
- esá
Enski boltinn um helgina:
Þéttskipaður
sunnudagur
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
12.45 Liverpool - Arsenal Sport 2 & HD
15.00 Man. City - Bolton Sport 2 & HD
15.00 Wigan - Swansea Sport 3
15.00 WBA - Chelsea Sport 4
15.00 QPR - Everton Sport 5
15.00 Blackburn - Aston Villa Sport 6
15.00 Stoke - Norwich
12.00 Newcastle - Sunderl. Sport 2 & HD
14.05 Fulham - Wolves Sport 2 & HD
16.10 Tottenh. - Man. Utd. Sport 2 & HD
FERGUSON Mætir með lið sitt á White
Hart Lane um helgina. NORDIC PHOTOS/GETTY
BARDAGAÍÞRÓTTIR „Það er ekki það
skemmtilegasta við þetta sport að
vera í hringnum. Ég get ekki sagt
að ég njóti mín eitthvað sérstak-
lega þar,“ sagði bardagakappinn
Gunnar Nelson sem var í ítarlegu
viðtali í íþróttaþættinum á X-inu
977 í gær. Í viðtalinu fór Gunnar
yfir víðan völl og viðurkenndi
meðal annars að hann nyti sín ekki
í hringnum.
Gunnar hefur unnið níu bardaga
í röð í blönduðum bardagaíþróttum
eftir að hafa gert jafntefli í sínum
fyrsta.
„Ég hef mikla trú á sjálfum
mér og hef æft með mörgum þeim
bestu í heiminum. Ég hef því
reynslu hvað það varðar,“ sagði
Gunnar en hann vildi ekki leggja
mat á það hvar hann væri staddur
á meðal þeirra bestu í heiminum.
Gunnar var einnig spurður út í
hvort það væri eitthvað líkt með
blönduðum bardagaíþróttum og
hnefaleikum að því leyti að menn
veldu sér andstæðinga.
„Það er eflaust allur gangur á
því. Það þarf að vera verðugur
andstæðingur en það getur verið
erfitt að velja. Hvað getur maður
sagt um hver sé verðugur og hver
ekki? Mér hefur fundist erfitt að
velja mér andstæðing. Ef það er
einhver sem hefur svipaða reynslu
og gert það gott og talinn almennt
sterkur verður það að nægja mér.
Ég hef verið að mæta mönnum
sem hafa aldrei tapað og unnið
fleiri bardaga en ég.“
Gunnar keppti í sínum fyrsta
bardaga um síðustu helgi eftir 17
mánaða hlé. Honum líkar betur að
æfa en að keppa.
„Ég æfi svona 3-4 tíma á dag
eiginlega alla daga. Öll æfing
er reynsla og lærdómur,“ sagði
Gunnar en hann hefur líka vakið
athygli fyrir að æfa á skýlunni
einni fata. „Ég byrjaði að prófa það.
Fannst það mjög þægilegt og svo
er ég vanafastur. Ég er samt líka
í stuttbuxum stundum. Mér finnst
samt best að vera í skýlunni.“
Undirbúningur Gunnars fyrir
keppni er ekki óhefðbundinn á
neinn hátt en hann notar samt ekki
tónlist né er hann hjátrúarfullur.
„Ég er ekki með neina tónlist í
gangi. Byrja að hita mig upp 40
mínútum fyrir bardaga. Þá liðkar
maður sig og byrjar að finna
flæðið. Svo fæ ég einn á móti mér
og við tuskumst aðeins til. Svo
fimm mínútum fyrir bardaga þá
byrja ég að slaka á.“
Blandaðar bardagaíþróttir eða
MMA er mjög gróft sport þar sem
ansi margt er leyft. Mörgum finnst
að Gunnar sé stundum of dreng-
lyndur í hringnum og nýti ekki alla
þá möguleika sem hann hefur til
þess að meiða andstæðinginn og
draga þar með úr honum mátt.
„Sportið gengur ekki út á að
meiða mikið. Hver velur sinn til-
gang þarna eins og í lífinu. Ef
tilgangurinn er að meiða er það
ekki jákvætt. Minn tilgangur
er að ég hef áhuga á að læra að
verja sjálfan mig. Þar held ég að
áhuginn spretti fyrst upp. Það er
sjálfsvarnaráhugi. Auðvitað vita
báðir einstaklingarnir í hringnum
að þeir geta meitt sig og þetta
getur verið sárt. Auðvitað er þetta
„brútal“ sport en við erum að læra
að verjast.“
Gunnar hefur einnig verið að
keppa í brasilísku jiu jitsu og hann
er ekki hættur þar.
„Ég á pottþétt eftir að keppa á
Abu Dhabi-mótinu aftur. Það var
mjög skemmtileg keppni. Hún
verður vonandi í Japan næst því
mig hefur alltaf langað að fara
til Asíu,“ sagði Gunnar sem hefur
einnig keppt í júdó.
„Mér finnst júdóið mjög
skemmtilegt. Það er gaman að
mæta júdómönnum því þeir hafa
öðruvísi orku og tækni. Ég hef
tapað þar og hef oft tapað,“ sagði
Gunnar léttur en hann hefur ekki
spáð í því að taka þátt í Íslands-
glímunni. henry@frettabladid.is
Nýt mín ekki í hringnum
Bardagakappinn Gunnar Nelson segist vera meira fyrir að æfa en keppa.
Honum líði ekkert sérstaklega vel þegar hann berst. Gunnar segir að tilgang-
urinn við að fara í búrið sé að læra að verja sjálfan sig en ekki að meiða aðra.
FRÁBÆR Í GÓLFINU Andstæðingar Gunnars eiga sér sjaldan umkomuleið þegar hann er búinn að ná þeim niður í búrinu. Það
fékk Butenko að reyna fyrir viku. MYND/PÁLL BERGMANN
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið tapaði sínum öðrum leik í röð
í Algarve-bikarnum í gær þegar
liðið lá 1-4 á móti sterku sænsku
liði. Slæmur fyrri hálfleikur varð
íslenska liðinu að falli en sænska
liðið skoraði fjögur mörk á fyrstu
38 mínútum leiksins þar af tvö
þeirra á fyrstu tólf mínútunum.
Dóra María Lárusdóttir minnkaði
muninn í 2-1 með marki úr víti sem
Hólmfríður Magnúsdóttir gerði
vel í að fá.
„Við vorum í basli í öftustu vörn
og í markvörslu í þessum leik
og hefðum getað gert betur þar.
Það var margt fínt öðru hverju
í leiknum og við náðum upp fínu
spili. Þær nýttu sín færi vel en
þær fengu samt alltof mörg færi
í leiknum. Við eigum ekki að gefa
svona mörg færi á okkur,“ sagði
Sigurður Ragnar Eyjólfsson lands-
liðsþjálfari eftir leikinn.
„Það er fínt fyrir okkur að fá
svona leik á þessum tímapunkti
þar sem reynir verulega á vörnina
okkar, sérstaklega þar sem við
erum að reyna að skoða leikmenn
í þessum stöðum,“ sagði Sigurður.
„Það var ekki gaman að koma
inn í hálfleik og vera 4-1 undir en
mér fannst samt leikmenn vera að
reyna að gera vel og að leggja sig
fram. Þetta var ekki alslæmt og
við erum meira að horfa á frammi-
stöðu leikmanna heldur en úrslit
leikjanna í þessu móti,“ sagði
Sigurður Ragnar en næsti leikur
er við Kína á mánudaginn. - óój
Sigurður Ragnar Eyjólfsson eftir 1-4 tap á móti Svíum á Algarve í gær:
Ekki gaman að koma inn í hálfleik
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR Stóð sig
vel í framlínunni. MYND/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Margrét Lára Við-
arsdóttir, markahæsti leik-
maður íslenska kvennalands-
liðsins frá upphafi, tók ekki þátt
í leiknum á móti Svíum í gær.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðs þjálfari ákvað að gefa
henni frí.
„Margrét Lára finnur fyrir
meiðslum og stífleika aftan
í lærunum. Hún er að fara í
mikið og stíft leikjaprógramm
með Potsdam stuttu eftir mótið
og svo er aftur landsleikur hjá
okkur í byrjun apríl. Við hefðum
ekki gert neinum greiða með því
að spila henni of mikið,“ sagði
Sigurður Ragnar. Íslenska liðið
mætir næst Kína á mánu daginn
og þá má búast við því að
Margrét Lára komi aftur inn í
íslenska byrjunarliðið. - óój
Margrét Lára Viðarsdóttir:
Spöruð í gær
MARGRÉT LÁRA Er enn að glíma við
meiðsli aftan í lærum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íslandsmótið í borðtennis 2012
í TBR-Íþróttahúsinu
Mótið hefst laugardaginn 3. mars kl. 11.00
með tvenndarkeppni. Keppt er í 9. flokkum.
Sunnudaginn 4. mars hefjast úrslitaleikir
• kl. 11.30 í 1. og 2. flokki karla og kvenna
• kl. 12.30 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna
• kl. 14.00 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna
Verðlaunaafhending sunnudaginn 4. mars kl. 14.30
Áhugamenn um borðtennis fjölmennið í
TBR-Íþróttahúsið og sjáið spennandi keppni
FÓTBOLTI Knattspyrnumaður-
inn Arnar Gunnlaugsson hefur
endanlega lagt skóna á hilluna.
Þetta staðfesti hann í samtali við
fréttastofu í dag og sagðist vera
sáttur við að hætta á þessum
tímapunkti eftir gott tímabil með
Fram í fyrra.
Arnar lék með þrettán félögum
á ferlinum sem spannar rúm
tuttugu ár. Hann gerði garðinn
frægan með Skagamönnum
og síðan með félögum eins og
Feyenoord Bolton og Leicester.
Hann lék einnig meðal annars
með FH, KR og Val. Hann er einn
mesti markaskorari Íslands frá
upphafi. Arnar verður 39 ára á
morgun en tvíburabróðir hans
Bjarki æfir með FH af fullum
krafti. - hm
Farsælum ferli lokið:
Arnar leggur
skóna á hilluna
MARKAHRÓKUR Arnar fagnar hér marki
með Leicester. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Stjórn norska hand-
boltaliðsins Levanger hefur
ákveðið að segja Ágústi Jóhanns-
syni upp störfum hjá félaginu.
Ágúst var búinn að gefa út
fyrir nokkru að hann myndi ekki
halda áfram hjá félaginu að tíma-
bilinu loknu. Hann hættir því
aðeins fyrr en áætlað var.
Óvíst er hvað Ágúst tekur
sér fyrir hendur en hann er nú
þjálfari íslenska kvennalands-
liðsins. - esá
Landsliðsþjálfari á leið heim:
Ágúst hættur