Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 56

Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 56
3. mars 2012 LAUGARDAGUR12 SBJ -réttingar óska eftir að ráða bílasmið og bílamálara. Upplýsingar í síma 892 1822. SBJ-réttingar ehf., Söluráðgjafi nýrra og notaðra Ford bifreiða óskast til starfa! Finndu sköpunargáfu þinni farveg. Þú vilt læra meira og nýta hæfileika þína í hópi frábærra fagmanna. Komdu til okkar sem störfum saman undir fána Brimborgar. Virkjum sköpunargáfuna saman. Sendu okkur þína umsókn og tölum svo saman. Við erum hátæknifyrirtæki og bjóðum hágæða vörur frá þekktustu framleiðendum heims. Við bjóðum vörumerki eins og Ford, Volvo, Citroën, Mazda. Volvo vörubíla. Volvo vinnuvélar. Volvo Penta bátavélar. Volvo strætisvagna og Volvo rútur. Hiab bílkrana og Nokian hjólbarða. Við horfum öðruvísi á heiminn. Við trúum því að nýsköpunarþörfin gefi okkur, fjölskyldu okkar og viðskiptavinum forskot á lífið. Forskot sem gerir Brimborg að betri kaupstað, betri þjónustustað og betri vinnustað – öðrum þræði öruggum stað að vera á. Við trúum því að næmur skilningur á óskum og þörfum viðskiptavina okkar sé æðsta markmiðið. Lærðu með okkur. Stutt lýsing á starfi Ráðgjöf til viðskiptavina varðandi kaup og rekstur bifreiða. Sala á nýjum og notuðum bílum, vara- og aukahlutum og tengdri þjónustu. Umsjón með umhverfi söludeildar þ.m.t. í sýningarsal og á útisvæði. Aðstoð við pantanir, markaðsgreiningu, markmiðasetningu og aðra vinnu sem til fellur. Megin hæfniskröfur Framhaldsskólamenntun eða sambærileg menntun. Sölumannshæfileika. Löggiltur bifreiðasali - æskilegt. Almenn þekking og reynsla af bifreiðum. Hafa gilt bílpróf - meirapróf æskilegt. Góð íslensku- og enskukunnátta. Almenn tölvuþekking. Dönskukunnátta æskileg. Talnaglögg/ur. Nánari upplýsingar Vinnutími er frá 9:00 -17:00 virka daga og annan hvern laugardag kl. 11:30 -16:20. Brimborg leitast við að ráða til samstarfs fagfólk af báðum kynjum með gildismat sem samrýmist kjarnagildum og megin reglum fyrirtækisins. Fólk sem metur mikils orð og gjörðir eins og heilbrigði, ábyrgð, tillitsemi, umburðarlyndi, árangur, frumkvæði, þekkingarleit og samvirkni. Skelltu þér á netið www.brimborg.is og sæktu um starfið. Nánari upplýsingar veitir mannauðs- og gæðasvið Brimborgar í síma 515 7088. Umsóknarfrestur er til 12. mars 2012. Þú sækir um á netinu, www.brimborg.is. Nú er tækifærið - við bíðum eftir þér. Umsóknarfrestur er til 12. mars n.k. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | www.brimborg.is | brimborg@brimborg.is Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkur Hugbúnaðarsérfræðingur og Verkefnastjóri Vakin er athygli á þeirri stefnu Reykjavíkurborgar að jafna hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Upplýsingatæknimiðstð Reykjavíkurborgar leitar að öflugum starfsmönnum í þróunarhóp en Reykjavíkurborg rekur eitt stærsta og fjölbreyttasta upplýsingatækniumhverfi landsins með um 25.000 tölvunotendur. Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í öflugum hópi starfsmanna við að leysa fjölbreytt verkefni. Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar, UTM, fer með forystuhlutverk í upplýsinga¬tæknimálum borgarinnar. UTM gegnir þjónustuhlutverki við viðskiptavini sína sem eru svið og stofnanir Reykjavíkurborgar og er ætlað að annast rekstur og þróun upplýsingatæknibúnaðar borgarinnar. Nánari upplýsingar um starfið veita Hjörtur Grétarsson upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar (hjortur.gretarsson@reykjavik.is) og María Guðfinnsdóttir þróunarstjóri Upplýsingartæknimiðstöðvar Reykjavíkurborgar (maria.gudfinnsdottir@reykjavik.is) í síma 411 1900. Umsóknafrestur er til 12. mars 2012. Sækja skal um starfið á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, undir Auglýsingar, Störf í boði. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Hugbúnaðarþróun/veflausnir Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Þróun veflausna hjá Reykjavíkurborg • Vefþróun í Content XXL vefumsjónarkerfi • Tengingar við önnur kerfi • Þarfagreining og ráðgjöf varðandi veflausnir • Samskipti og ráðgjöf við svið og stofnanir borgarinnar Menntunar- og hæfniskröfur • Tölvunarfræði eða sambærileg menntun • Starfsreynsla við hugbúnaðargerð og vefforritun • Reynsla af forritun í .NET • Góð þekking á HTML, CSS, Java Script og SQL fyrir- spurnum • Haldgóð þekking á gagnagrunnum • Þekking á vefþjónustum og gagnatengingum • Þekking á virkni og uppbyggingu vefumsjónarkerfa • Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi Verkefnastjóri upplýsingatækniverkefna Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Verkefnastýring upplýsingatækniverkefna • Skilgreining verkefna og gerð þarfagreininga • Kennsla og kynningar • Ráðgjöf og þjónusta við svið og stofnanir Reykjavíkur- borgar Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Starfsreynsla af verkefnastjórnun • Reynsla af uppsetningu og smíði kerfa æskileg • Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi • Hæfni til að setja fram skýrar hugmyndir í rituðu og mæltu máli • Lipurð í mannlegum samskiptum Barnafataverslun Barnafataverslunin POLARN O. PYRET leitar starfs- mannni í verslunina í Smáralind. Leitað er eftir jákvæðum og skipulögðum einstaklingi með þjónustulund og reynslu af verslunarstörfum. Vinnutími er samkomulag en felur einnig í sér vinnuframlag annan hvorn laugardag. Um 80% starf er að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslununum í Kringlunni og Smáralind. SMÁRALIND OG KRINGLUNNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.