Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 12
3. mars 2012 LAUGARDAGUR12
LÖGREGLUMÁL Kæru Péturs
Maack, sálfræðings á Akureyri,
á hendur Snorra Óskarssonar í
Betel, hefur verið vísað frá af
lögreglustjóranum á Akureyri.
Pétur kærði Snorra fyrir
ummæli um samkynhneigð á
bloggsíðu hans í síðasta mánuði,
en Snorri var þá grunnskóla-
kennari við Brekkuskóla á
Akureyri. Vikudagur greinir frá
því að niður staða sýslumanns-
embættisins sé sú að ummæli
Snorra falli ekki undir brot á
grein í almennum hegningar-
lögum eða brot á öðrum
ákvæðum hegningarlaga. - sv
Engin lögreglurannsókn:
Kæru á hendur
Snorra vísað frá
VÍSINDI Skortur á omega-3-fitu-
sýrum í mat getur valdið því að
heilinn eldist hraðar og missi þar
með hluta af hæfileika sínum
til þess að muna og hugsa. Þetta
sýna niður stöður rannsóknar
heilbrigðis vísindamanna við
Kaliforníu háskóla sem Science
Daily greinir frá.
Rannsóknin tók til 1.575 manna
og var meðalaldur þeirra 67 ár.
Heili þeirra sem voru með minnsta
magnið af omega-3-fitusýrum í
blóðinu var minni en þeirra sem
voru með mesta magnið. Minni
þeirra sem voru með minnstu
heilana var verst. - ibs
Skortur á fitusýrum:
Heilinn eldist
og minnkar
VIÐSKIPTI Theo Hoen, forstjóri
Marels, óttast að fyrirtækið
þurfi að yfirgefa landið verði
gjaldeyrishöft lengi við lýði. Þá
sé nauðsynlegt að skýra hvernig
peninga málum verði hér háttað
til frambúðar.
Hoen flutti erindi á ráðstefnu
sem Landsbankinn stóð fyrir í
fyrradag undir yfirskriftinni
„Hvað þarf til að halda íslensk-
um fyrirtækjum í landi?“
Hoen sagði margt jákvætt við
að hafa höfuðstöðvar á Íslandi.
Hér væru langtímahluthafar
sem gæfu fyrirtækinu tækifæri
til að vaxa og
dafna. Þá fengi
það rými til
að athafna sig
svolítið utan
sviðsljóssins
þar sem fyrir-
tæki í íslensku
kauphöllinni
ny t u m i n n i
athygli en til
dæmis fyrir-
tæki í kauphöllinni í heimalandi
Hoen, Hollandi.
Þá væri hér vel menntað
vinnuafl og samfélag sem styddi
dyggilega við starfsemina.
Hoen sagði aftur á móti
ýmsa ókosti við Ísland, helst
gjaldeyris höftin og krónuna.
Höftin og gengis áhætta vegna
flökts krónunnar gerðu það að
verkum að alþjóðlegir fjárfestar
vildu ekki fjárfesta í Marel þrátt
fyrir að lítast vel á fyrirtækið.
Sagðist Hoen því óttast að sá
vegur sem Marel væri á hér
innan lands væri blindgata yrði
ekki leyst úr þessum vanda.
Tók Hoen dæmi af banda-
rískum fjárfesti sem ætti stóran
hlut í Marel.
Hoen hafði eftir honum að
hann þyrfti að reikna með 20
til 30 prósenta af föllum af virði
hluta sinna vegna gengisáhættu.
Af þessum sökum fái Marel fáa
erlenda fjárfesta sem séu alþjóð-
legu fyrirtæki nauðsynlegir.
Þá gerðu höftin Marel einnig
erfitt fyrir að veita starfs-
mönnum kauprétti sem væri
svo aftur nauðsynlegt til að lág-
marka starfsmannaveltu.
Loks nefndi Hoen skort á
tæknimenntuðu vinnuafli sem
ókost við íslenskt atvinnulíf.
- mþl
Theo Hoen, forstjóri Marels, óttast að verði gjaldeyrishöft ekki brátt losuð þurfi fyrirtækið að yfirgefa Ísland:
Óttast að Marel þurfi að fara úr landi
THEO HOEN
ESB, AP Leið togar Evrópu sam-
bandsins hafa samþykkt að Serbía
fái stöðu umsóknar ríkis, en
Rúmenía og Búlgaría þurfa enn um
sinn að bíða eftir því að fá aðild að
Schengen-sambandinu.
Endanlegri ákvörðun um greiðslu
til Grikklands var frestað fram á
fund fjármálaráðherra Evrópu-
sambandsins í næstu viku, þegar
samningar um niðurfellingu banka
á skuldum gríska ríkisins verða frá-
gengnir.
Þá hafa 25 af 27 ríkjum Evrópu-
sambandsins tekið ákvörðun um
stofnun fjármálabandalags, sem
á að tryggja aga í fjárlagagerð
ríkjanna. Auk Breta ákváðu Tékkar
að standa utan við bandalagið.
Þessar ákvarðanir voru teknar
á tveggja daga leiðtogafundi
Evrópu sambandsins í Brussel, sem
hófst á fimmtudag og lauk í gær.
Á sama tíma bárust hins vegar
þær fréttir frá Spáni að fjárlaga-
hallinn þar verði í ár 5,8 prósent,
sem er 1,4 prósentustigum hærri
spænsk stjórnvöld höfðu lofað
Evrópu sambandinu.
„Ég ráðgaðist ekkert við leið-
toga Evrópusambandsins en mun
tilkynna framkvæmda stjórninni
þetta í apríl,“ sagði Mariano Rajoy,
forsætisráðherra Spánar. „Þetta er
fullveldisákvörðun af hálfu Spánar.“
Hann sagði reyndar stefnt að
koma fjárlagahallanum niður í þrjú
prósent á næsta ári, sem verður
þá í samræmi við áætlun Evrópu-
sambandsins. Hann vildi jafnframt
fullvissa alla um að hann stæði eftir
sem áður við áform um strangt
aðhald í ríkisfjármálum.
Spánverjar höfðu óskað eftir því
við Evrópusambandið að mega fara
eitthvað yfir 4,4 prósenta halla, en
fengu ekki jákvæð svör.
Leiðtogar Evrópusambandsins
lögðu áherslu á það í gær að nú
þegar fjármálabandalagið er orðið
að veruleika og nokkurn veginn
búið að ganga frá björgunarpakka
handa Grikkjum, þá þurfi að fara að
huga af alvöru að því að auka hag-
vöxt á evrusvæðinu.
Ágreiningurinn við Spán sýnir
hins vegar vel þann vanda sem
Evrópusambandið stendur frammi
fyrir, að þurfa að minnka skulda-
súpu evruríkjanna en um leið örva
hagvöxtinn til að geta staðið undir
niðurgreiðslu þessara sömu skulda.
„Við erum í viðkvæmri stöðu,“
sagði Angela Merkel Þýskalands-
kanslari. „Kreppan er engan veginn
búin.“ gudsteinn@frettabladid.is
Spánverjar standa
ekki við loforðin
Sama daginn og 25 af 27 ríkjum Evrópusambandsins stofna fjármálabandalag
berast fréttir af því að fjárlagahalli Spánar fari fram úr umsömdu hámarki.
SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, sem nú fer með formennsku í ráði Evrópu-
sambandsins, undirritar samning um fjármálabandalag. Angela Merkel Þýskalandskanslari bíður eftir að röðin komi að sér.
NORDICPHOTOS/AFP
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Mundu eftir að kjósa!
Kosning til stjórnar VR stendur til kl. 12 á hádegi þann 9. mars nk. Nánar á heimasíðunni www.vr.is.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Reykjanesbæ
Húsavík
Vestmannaeyjum
Tvær góðar!
5.990,-
Spandy heimilisryksugan
• 1600W
• afar hljóðlát
• mikill sogkraftur > 18KPA
• Hepa filter
• margnota poki
Drive ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
6.990,-
VINDLAFRAMLEIÐSLA Starfsmaður
vindlaverksmiðjunnar La Carona á
Kúbu lætur fátt trufla sig við vinnuna.
NORDICPHOTOS/AFP