Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 24

Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 24
24 3. mars 2012 LAUGARDAGUR 1.Fyrir sextíu árum skrifaði bandaríski rithöfundurinn Ray Bradbury bókina Fahren- heit 451 (brunamark pappírs er 451 gráða á Fahrenheit, um 232,8 gráður á Celsíus). Bókin gerist í framtíðarríki þar sem lestur er bannfærður. Vígaleg sérsveit – Brunaliðið – geysist um vopnuð kröftugum eldvörpum og brennir til ösku bækur hvarvetna sem þær finnast. Engin bók er óhult. 2.Bradbury upplýsir lesendur um að bókaáhugi hafi dvínað smám saman á nokkurra ára- tuga skeiði samfara því að athygli almennings beindist að ágengum fjölmiðlum og einföldu afþreyingarefni sem þjónaði alfarið hagsmunum markaðsaflanna. Þegar fram liðu stundir geymdu eingöngu bækur hug- myndafræðilega óþekkt og dirfsku, ögrandi kenningar og nýstárlegar skoðanir. Hinir ýmsu hagsmunaðilar og jaðar- hópar sem stóð ógn af þessum frjálsa og gagnrýna bókaheimi – til dæmis trúarsamtök, þjóð- arbrot og peninga aðall – réðust því á þær á sífellt heiftúðugri hátt. Að lokum gáfust stjórnvöld upp og bönnuðu bækur til að móðga enga, til að allir geti unað sáttir við sitt fyrir framan risaskjáina sem engum storka. Bannið þróast síðan út í þrautskipulagða og harð- svíraða eldeyðingu bóka. Í söguheimi Fahrenheit 451 drepur almenningur tímann og hugann á afþreyingar síbylju á risavöxnum sjónvarpskjáum, tilfinningalíf þess er mauk- soðið, þekking þess yfirborðs- kennd og bjöguð. En í felum má þó finna Bókafólkið, hóp fólks sem hefur lagt heilu bækurnar á minnið til að varðveita þær þangað til og ef bókabanninu verður hnekkt. Ofsótt fólk með forboðnar bækur á heilanum. 3.Bradbury hefur sagt að bókin fjalli ekki um fasíska rit skoðun heldur lýsi því hvernig sjón- varpið og fjölmiðlar eyðileggi áhugann á lestri bókmennta, sem leiði til þess að fólk taki að skynja þekkingu sem sam- safn ómerkilegra staðreynda eða jafnvel gervi-staðreynda, hlutdrægar upplýsingar sem skortir allt samhengi. „Menn þurfa ekki að brenna bækur til að eyðileggja menningarheim. Bara að fá fólk til að hætta að lesa bækur,“ segir Bradbury. Rússneski Nóbelsverðlaunahaf- inn Joseph Brodsky tók í svipað- an streng og sagði til vera verri glæpi en að brenna bækur, „svo sem að lesa þær ekki“. 4.Þeir glæpir fara í vöxt, já kannski má segja að glæpa- alda sé riðin yfir græsku- lausa íslenska þjóð. Þjóð sem sæmir sig titlinum bókaþjóð þegar hún ölvast af eigin ágæti, þegar hún hreykir sér á fölskum forsendum ósk- hyggjunnar. Því bókaþjóðin liggur á sóttarsæng, jafnvel banabeði ef hún bandar frá sér lækningu. 5.Undanfarna mánuði hefur hópur rithöfunda þingað að eigin frumkvæði um bágborna stöðu lestrar, læsis og bóka á Íslandi. Við vildum vekja fólk til vitundar um að alvarlegur háski steðjaði að bókaþjóðinni svokölluðu, háski ólæsis og í kjölfarið dauði bókarinnar. Við vildum vekja til vitundar um að lestur er lífsnauðsyn í nútímasamfélagi, að lestur hafi eitthvað fram að færa sem aðrir miðlar hafa ekki. Enginn vill skylda börn eða fullorðna til að lesa, aðeins að minna á að til er hafsjór skemmtilegra bóka og að lestur er gefandi á ótal vegu. Við blésum til ráð- stefnu í liðnum mánuði, Alvara málsins – bókaþjóð í ólestri – sem tókst framar öllum vonum en markar þó aðeins upphaf baráttu sem aldrei má linna. 6.Stríðið er auðvitað löngu hafið og lesturinn og bókin sæta stórskotahríð. Vorið 2009 taldi þriðji hver unglingsstrákur í 10. bekkjum landsins að lestur væri tímasóun. Sjötta hver stúlka var á sama máli. Helmingur drengja kvaðst bara lesa tilneyddur og þriðja hver stúlka. Alls 57% nem- endanna sögðust allt eins geta hugsað sér að hætta að lesa bækur alfarið. Í augum þessara krakka er lestur kvöð, ánauð, óþekktur heimur sem þau kæra sig ekki um að kynnast eða hrökkluðust frá eftir stuttara- leg kynni. Bókin er þeim lokuð. 7.Könnun sem gerð var sama ár leiddi í ljós að 65% barna á aldrinum 10-15 ára höfðu sjón- varp í sínu herbergi, 91% áttu farsíma og 58% höfðu tölvu eða fartölvu í sínu herbergi. Ég reikna með að þessar tölur hafi hækkað enn frekar síðan þá – herbergi sumra unglinga minna meira á stjórnstöð geimfars en íverustað ung- mennis á viðkvæmu skeiði andlegs og líkamlegs þroska. En tölva og bók þurfa ekki að vera svarnir óvinir, enda getur himinn og haf skilið að tölvunotkun og tölvunotkun. Rannsóknir sýna að þeir sem lesa mikið af rafrænu efni lesa einnig mikið af hefðbundnu og öfugt. En það er ekki sama hvað er lesið. Þeir sem nýta sér netið einkum til að leita og afla sér upplýsinga hafi meiri ánægju af lestri og lesa meira en aðrir, en þeir sem nýta sér netið aðallega til að tengjast samskiptavefjum og hafa sam- skipti við aðra lesa minna og standa sig verr á lestrar- prófum. Lestrarfærnin ræðst með öðrum orðum af nýtingu upplýsingatækninnar, eðli og innihaldi. 8.Sumir halda að ólæsis plágunni verði afstýrt með tilkomu tækninýjunga á borð við les- bretti og spjaldtölvur. Fögur er trúin. Við getum lyft raf- kyndlum hátt á loft til að lesa við bjarma þeirra en lestölva leysir ekki framlag lesandans af hólmi. Að auki er lunginn af útgefnum bókum heimsins ekki til á rafrænu formi og verður aldrei. Rafbækur eru viðbót við þær hefðbundnu og ef þær laða til sín nýja lesendur og halda í þá sem þegar hafa ánetjast töfrum bókarinnar eru þær góðra gjalda verðar – en fólk má ekki vera svo grunnhyggið að halda að þær fyrirbyggi hættuna á ólæsi. Því ólæsi er ekki tækni- legt vandamál. Það er hugar- farslegt vandamál, það er samfélagslegt vandamál. Það er djöfulleg tímasprengja sem mun gera óskunda í nánustu framtíð þjóðarinnar. 9.Leyfi mér að lokum að vitna í einn samherja minn í lestrar- átakinu Bókaþjóð í ólestri, Pétur Gunnarson rithöfund: „Íslenskan er svo fámenn að við megum engan lesenda missa.“ Við skulum vona að afkomendur okkar standi ekki dag einn frammi fyrir Bruna- liði í fullum herklæðum í leit að bókum – til að brenna. Sumir halda að ólæsisplágunni verði afstýrt með tilkomu tækninýjunga á borð við lesbretti og spjaldtölvur. Fögur er trúin. Við getum lyft rafkyndlum hátt á loft til að lesa við bjarma þeirra en lestölva leysir ekki framlag lesandans af hólmi. Brunaliðið leitar að bókum Menning Sindri Freysson rithöfundur Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ KAUPA SÉR FATASKÁP! • Margar gerðir • Glæsilegir fataskápar á afslætti • Ýmsir uppröðunarmöguleikar • Útlitsgallaðar vörur með miklum afslætti FATASKÁPADAGAR UM HELGINA Opið um helgina Laugardag: 10-16 Sunnudag: 11-14Margir möguleikar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.