Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 61
Þjónustustjóri fyrir
atvinnutækjaverkstæði
hjá Brimborg Akureyri
Finndu sköpunargáfu þinni farveg. Þú vilt læra meira og nýta
hæfileika þína í hópi frábærra fagmanna. Komdu til okkar sem
störfum saman undir fána Brimborgar. Virkjum sköpunargáfuna
saman. Sendu okkur þína umsókn og tölum svo saman.
Við erum hátæknifyrirtæki og bjóðum hágæða vörur frá
þekktustu framleiðendum heims. Við bjóðum vörumerki eins
og Ford, Volvo, Citroën, Mazda. Volvo vörubíla. Volvo vinnuvélar.
Volvo Penta bátavélar. Volvo strætisvagna og Volvo rútur. Hiab
bílkrana og Nokian hjólbarða.
Við horfum öðruvísi á heiminn. Við trúum því að
nýsköpunarþörfin gefi okkur, fjölskyldu okkar og viðskiptavinum
forskot á lífið. Forskot sem gerir Brimborg að betri kaupstað, betri
þjónustustað og betri vinnustað – öðrum þræði öruggum stað að
vera á. Við trúum því að næmur skilningur á óskum og þörfum
viðskiptavina okkar sé æðsta markmiðið. Lærðu með okkur.
Stutt lýsing á starfi
Ber ábyrgð á daglegum rekstri síns verkstæðis.
Ber ábyrgð á ánægju viðskiptavina.
Er í senn verk- og tæknistjóri.
Tryggir að starfsmenn starfi skv ISO stöðlum sinnar
deildar.
Daglega umsjón og eftirlit með nýtingu starfsmanna.
Stjórnar skipulagi og verkflæði verkefna.
Umsjón og ábyrgð með samskiptum við birgja
á þjónustusviði.
Ber ábyrgð á því að þekking og hæfni sé skv.
stöðlum Brimborgar og kröfum birgja á hverju sviði.
Megin hæfniskröfur
Réttindi í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun
og/eða hafa vélstjóraréttindi.
Hafi stjórnunarhæfileika.
Gilt bílpróf skilyrði, meirapróf æskilegt
Góða samskiptahæfileika.
Góða þjónustulund.
Heiðarlegur og áreiðanlegur.
Stundvís.
Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt.
Grunnþekking á tölvur (PC/Windows umhverfi.)
Hafa áhuga á bifreiðum - tækjum.
Góða íslensku- og enskukunnáttu.
Nánari upplýsingar
Brimborg leitast við að ráða til samstarfs fagfólk
af báðum kynjum með gildismat sem samrýmist
kjarnagildum og megin reglum fyrirtækisins. Fólk
sem metur mikils orð og gjörðir eins og heilbrigði,
ábyrgð, tillitsemi, umburðarlyndi, árangur, frumkvæði,
þekkingarleit og samvirkni.
Skelltu þér á netið www.brimborg.is og sæktu um
starfið. Nánari upplýsingar veitir Jón Á. Þorvaldsson
framkvæmdarstjóri Brimborg Akureyri síma 515 7050.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2012.
Þú sækir um á netinu, www.brimborg.is.
Nú er tækifærið - við bíðum eftir þér.
Umsóknarfrestur
er til 15. mars n.k.
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 | www.brimborg.is | brimborg@brimborg.is
Járniðnaðarmaður
Framkvæmda- og eignasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Framkvæmda- og eignasvið auglýsir eftir handlögnum og úrræðagóðum járniðnaðarmanni til starfa hjá þjónustu-
miðstöð Gatna- og eignaumsýslu Reykjavíkurborgar á Stórhöfða.
Starfssvið
• Ábyrgð á vélaverkstæði hverfastöðvar / þjónustu-
miðstöðvar.
• Almenn viðhaldsverkefni á verkstæði, viðgerðir og
viðhald leiktækja, sláttuorfa / véla o.fl.
• Umsjón með vélum og tækjum.
• Lagerhald: Umsjón með verkfæra- og efnislager.
• Innkaup á varahlutum, verkfærum og rekstrarvörum.
• Mannahald.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í járniðn eða sambærilegt og haldgóða
starfsreynslu.
• Verklagni.
• Reynsla af mannaforráðum.
• Færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni og
hæfileikar til að vinna sjálfstætt.
• Áhuga á að læra nýja hluti í starfi og veita góða
þjónustu.
• Ökuréttindi.
Um er að ræða framtíðstarf og æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar
og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Birgisson, tæknilegur rekstrarstjóri (thorsteinn.birgisson@reykjavik.is) í síma 411 1111.
Umsóknarfrestur er til 19. mars nk. Sótt er um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is undir „ Störf í boði“ - „Járniðnaðarmaður“.
Sótt er um störfin á www.byko.is.
Deildarstjóri í Timbursölu í verslun
BYKO á Fiskislóð.
BYKO Á FISKISLÓÐ
Sölumenn í lagnaverslun BYKO í Breidd.
Sölumann í múrefnadeild BYKO í Breidd.
BYKO Í BREIDD
Við leitum að drífandi og
kraft miklum einstaklingum
til að takast á við krefjandi
verkefni í skemmtilegu umhverfi.
ERUM VIÐ AÐ
LEITA AÐ ÞÉR?
Við leitum að
fjárhagslega
sjálfstæðum
einstaklingi
WOW air leitar að fjármálastjóra með
brennandi áhuga á endurskoðun, bók-
haldi og hvers kyns fjármálaumsýslu.
Viðkomandi þarf að hafa viðamikla
reynslu af rekstraruppgjörum, áætlunar-
gerð, frágangi ársreikninga, fjárstýringu
og þarf auk þess að hafa gaman af að
leika sér í Excel. Hann þarf að tala
reiprennandi íslensku, ensku og geta
gert sig skiljanlegan við bókhalds-
kerfi og tölvur almennt. Fjármálastjóri
situr í framkvæmdastjórn félagsins
og heyrir beint undir forstjóra. Ekki
er verra ef hann hefur gaman af því
að ferðast, reikna og umgangast
skemmtilegt fólk.
Erum við nokkuð að tala um þig?
Sendu umsókn á
fjarmalastjori@wowair.is
fyrir 15. mars, 2012.