Fréttablaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 4
30. mars 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 29.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,5318
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,80 127,40
201,25 202,23
168,33 169,27
22,632 22,764
22,036 22,166
19,024 19,136
1,5404 1,5494
196,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Kvikmyndin The Hunger Games
fær fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda
Fréttablaðsins. Ekki þrjár, eins og kom
fram í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTT
FRÉTTABLAÐIÐ, BRUSSEL Stefan Füle,
stækkunarstjóri Evrópusambands-
ins (ESB), vonast til þess að búið
verði að opna alla samningskafla í
aðildarviðræðum við Ísland fyrir
árslok. Füle lét þessi orð falla á
fundi með íslenskum blaðamönn-
um í Brussel í gær, í aðdraganda
fjórðu ríkjaráðstefnu Íslands og
ESB sem fer fram í dag.
Á ráðstefnunni verða opnaðir
fjórir samningskaflar, um orku-
mál, utanríkis-, öryggis- og varn-
armál og neytenda- og heilsu-
vernd. Fyrirfram er búist við því
að tveimur síðustu köflunum verði
lokað samdægurs, enda sé sam-
hljómur í samningsafstöðu Íslands
og ESB í þeim málaflokkum.
Varðandi kaflann um samkeppn-
ismál leggur Ísland meðal ann-
ars áherslu á að viðhalda núver-
andi fyrirkomulagi á verslun með
áfengi og tóbak, enda sé það í sam-
ræmi við ákvæði EES-samnings-
ins og regluverk ESB, en í afstöðu
Íslands kemur einnig fram að í
þeim málaflokki sé einnig beðið
þess að Eftirlitsstofnun EFTA
muni ljúka athugun sinni á starf-
semi Íbúðalánasjóðs.
Í orkumálum fór Ísland fram á
aðlögunartímabil og sérlausnir,
meðal annars vegna ákvæða um að
aðildarríki ESB þurfi að viðhalda
lágmarksbirgðum af olíu fyrir 90
daga notkun. Birgðastaða Íslands
er jafnan um 32 dagar, en í stað
þess að auka birgðir er þess farið
á leit að Ísland fái tíma til að draga
úr notkun olíu með auknu hlut-
falli endurnýjanlegra orkugjafa,
fram til þess að núverandi magn
muni nægja í tilskyldan tíma. Þá
er meðal annars hnykkt á þeim
ákvæðum ESB-sáttmálans sem
lúta að yfirráðum aðildarlanda yfir
orkuauðlindum og að eignarhald
Íslands yfir orkugjöfum sínum og
rétturinn til að stjórna þeim haldist
óskertur.
Ef fram fer sem horfir í dag,
verður búið að opna fimmtán samn-
ingskafla af 33 og loka tíu þeirra.
Enn mun þó standa eftir að opna
marga veigamikla kafla sem fyr-
irfram er talið að verði erfiðastir
viðfangs, til dæmis um stjórn fisk-
veiða, landbúnað, byggðamál og
umhverfismál. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins verður fisk-
veiðikaflinn þó ekki opnaður fyrr
en í fyrsta lagi á seinni helmingi
ársins, en þá munu Kýpur fara með
formennsku í ESB.
Füle minntist í tali sínu á sér-
stöðu Íslands, sérstaklega varðandi
legu landsins. Aðspurður út í mögu-
leikann á sérlausnum, byggðum á
samsvarandi lausnum sem ríki hafa
fengið í fyrri aðildarviðræðum (til
dæmis fékk Finnland ákveðna sér-
lausn vegna landbúnaðar á norður-
slóðum) svaraði Füle: „Já og nei.
Annars vegar sýna sérlausnir í
fyrri viðræðum að sambandið reyni
að koma til móts við sérstöðu ríkja
í viðræðum. Það sé þó innan marka
ESB-sáttmálans. Hins vegar yfir-
færum við ekki slíkar lausnir sjálf-
krafa frá einum viðræðum til ann-
arra, þó við höfum þær vissulega til
hliðsjónar.“ thorgils@frettabladid.is
Allir kaflarnir verði
opnaðir fyrir árslok
Fjórir samningskaflar í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verða
opnaðir í Brussel í dag. Fimmtán hafa verið opnaðir en veigamestu kaflarnir
bíða. Stækkunarstjóri vonast eftir að allir kaflarnir verði opnaðir fyrir árslok.
VIÐRÆÐUR Sérlausnir sem önnur ríki, til dæmis Finnar, hafa fengið í viðræðum við
ESB verða ekki færðar sjálfkrafa yfir á önnur lönd, sagði Stefan Füle, stækkunarstjóri
ESB, í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JAPAN Þrír menn voru teknir af
lífi með hengingu í fangelsum
í Japan í gær. Þetta eru fyrstu
aftökurnar sem fram faru í land-
inu í eitt og hálft ár. Mennirnir
voru allir dæmdir fyrir morð
sem þeir frömdu á árunum 1999
til 2002.
Toshio Ogawa, dómsmálaráð-
herra Japans, staðfesti á blaða-
mannafundi í gær að aftökurn-
ar hefðu farið fram. Hann sagði
að þær nytu stuðnings meðal
almennings.
Nú sitja 132 einstaklingar
í fangelsi í Japan sem hlotið
hafa dauðadóm. Þeir hafa
ekki verið fleiri síðan í seinni
heimsstyrjöldinni. - áas
Alls 132 á dauðadeild í Japan:
Þrír morðingjar
teknir af lífi
ÚKRAÍNA Átján ára úkraínsk
stúlka, Oksana Makar, lést af
sárum sínum á sjúkrahúsi í gær
eftir hafa orðið fyrir hrottalegri
hópnauðgun. Árásin átti sér stað
8. mars síðastliðinn í borginni
Mykolayiv í suðurhluta lands-
ins. Málið hefur vakið gríðarlega
athygli í Úkraínu.
Þrír menn réðust á stúlkuna
og nauðguðu henni, reyndu að
kyrkja hana og brenndu. Stúlk-
an fannst svo daginn eftir og var
henni þá komið á sjúkrahús.
Mennirnir hafa verið handtekn-
ir en tveimur þeirra var sleppt
vegna tengsla við yfirvöld. Þeir
hafa verið handteknir aftur. - áas
Óhugur í Úkraínu:
Lést eftir
hópnauðgun
VESTURBÆRINN Meðalleiguverð í
landinu er hæst í Reykjavík, vestan
Kringlumýrarbrautar, og á Seltjarnarnesi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÚSNÆÐISMÁL Vísitala leiguverðs á
höfuðborgarsvæðinu lækkaði um
1% í febrúar frá mánuðinum áður.
Þjóðskrá Íslands birtir vísitöluna
mánaðarlega en þetta er í fyrsta
sinna frá því í júlí síðastliðnum
sem vísitalan lækkar milli mánaða.
Alls hækkaði vísitalan um 11%
á árinu 2011 en heldur hægðist á
hækkunum leiguverðs undir lok
ársins. Vísitalan var svo kyrr milli
desember- og janúarmánaða og
lækkaði milli janúar og febrúar
eins og áður sagði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað
að varpa ljósi á þróun leiguverðs
en hún byggir á gagnagrunni
Þjóðskrár. - mþl
Vísitala leiguverðs:
Leiguverð tekið
að lækka á ný
AKUREYRI Milljónum hefur verið
varið í sálfræðikostnað liðsmanna
slökkviliðsins á Akureyri vegna
eineltisvanda innan liðsins og ófull-
nægjandi starfsanda. Vandamálið
hefur verið til staðar í mörg ár,
að sögn bæjarstjóra Akureyrar,
Eiríks Björns Björgvinssonar, í
samtali við Akureyri vikublað.
Fréttablaðið greindi frá því fyrir
tveimur árum að mikið ósætti ríkti
á meðal slökkviliðsmanna í bænum
vegna starfssamnings þeirra. Þá
hafði verið reynt að finna lausn á
vandanum í þó nokkurn tíma. - sv
Milljónir í sálfræðikostnað:
Einelti innan
slökkviliðsins
SKATTAMÁL Alls 37% þeirra sem
greiða auðlegðarskatt eru yfir
65 ára aldri. Þá er rúmur fimmt-
ungur greiðenda yfir 75 ára aldri.
Einungis 11% eru undir 45 ára
aldri. Þetta var meðal þess sem
kom fram á málþingi VÍB, eign-
astýringarþjónustu Íslandsbanka,
um auðlegðarskattinn í Hörpu í
gær.
Auðlegðarskattur var lagð-
ur á árið 2009, tímabundið til
þriggja ára. Fyrst um sinn var
hann 1,25% af nettóeignum ein-
staklinga umfram 90 milljónir og
hjóna umfram 120 milljónir.
Síðan hefur skatturinn verið
framlengdur um tvö ár og hækk-
aður í 1,5% af nettóeignum ein-
staklinga á bilinu 75 til 150 millj-
ónir og 2% á eignir umfram það.
Þá borga hjón 1,5% af eignum
umfram 100 milljónir og 2% af
eignum umfram 200 milljónir.
Alls greiddu 3.817 einstaklingar
auðlegðarskatt á árinu 2009 og
5.570 einstaklingar árið 2010.
Björn Berg Gunnarsson,
fræðslustjóri VÍB, flutti erindi
á fundinum og benti á að sá rök-
stuðningur hefði verið fyrir skatt-
inum að þeir sem högnuðust hvað
mest á eigna-
bólunni fyrir
hrun greiddu
hluta ágóðans
til baka. Tölur
um greiðendur
skattsins bentu
hins vegar til
þess að skatt-
urinn legðist
aðallega á eldri
borgara, þar á meðal marga sem
ættu fáar og jafnvel engar vaxta-
berandi eignir.
Í pallborðsumræðum á fundin-
um tóku þátt meðal annarra Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, for-
maður Landssambands aldraðra,
og Helgi Hjörvar, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþing-
is. Jóna sagði þessa skattheimtu
komna út fyrir allt velsæmi á
meðan Helgi Hjörvar kallaði
hana sanngjarnt framlag þeirra
efnuðustu á erfiðum tímum. Helgi
lagði þó áherslu á að skatturinn
væri neyðarbrauð sem ætti ekki
að vera viðvarandi. Þá sagði hann
ekki hægt að útiloka að skattur-
inn yrði aftur framlengdur, það
færi eftir þróun stöðu ríkisfjár-
mála. - mþl
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar útilokar ekki aðra framlengingu á auðlegðarskatti:
Aldraðir 37 prósent greiðenda auðlegðarskatts
HELGI HJÖRVAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
23°
14°
12°
12°
14°
10°
10°
20°
16°
20°
12°
29°
11°
19°
21°
7°Á MORGUN
Fremur hæg
V-læg átt.
SUNNUDAGUR
Víða fremur
hæg V-læg átt.
3
5 6
-2
1
8
7
8
7
6
4
3
3
4 2
5
4
3
3
4
3
3
5
5
3
77
2
13
6
8
SÝNISHORN af
öllum árstíðum!
Vætusamt N-til
næstu daga. Kólnar
NA-til í dag og gæti
snjóað þegar frystir.
Milt áfram S-til um
helgina, einkum
SA-til þar sem ætti
að sjást eitthvað til
sólar.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður