Fréttablaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 28
2 • LÍFIÐ 30. MARS 2012 Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Arnór Bogason Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid UMSJÓN Ellý Ármanns elly@365.is Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is HVERJIR VORU HVAR? FORSÍÐUMYND Hár: Steinunn hjá Karli Berndsen Hálsklútur: Steinunn Sigurðardóttir Veitingastaðurinn 101 Hótel var þéttsetinn á laugar- dagskvöldið. Þar var út- varpsstjarnan Sigurður Hlöðversson og eigin- kona hans, Þorbjörg Sig- urðardóttir, Þuríður Hildur Halldórsdóttir hár- greiðslumeistari, Sigurður Krist- jánsson flug- þjónn, Íris Björg Tanya Jónsdóttir athafna- kona og Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögfræðingur. Sigurjón Sig- hvatsson kvik- myndaframleið- andi og Kolfinna Kristófersdóttir fyrirsæta mættu ásamt fjölda manns alls staðar að úr heimin- um á Hönnunarsýninguna á vegum 66°norður sem haldin var í bláa lóninu síðustu helgi. Menntun/bakgrunnur: Markaðshag- fræði frá Århus Business College og snyrtifræðingur. Fyrri störf: Ég rek litla heildsölu með snyrtivörur. Þar fara fremst í flokki snyrtivörumerkin frá danska kremkóng- inum Ole Henriksen og Youngblood- förðunarvörurnar sem unnar eru úr náttúrulegum steinefnum. Af hverju sóttirðu um flugfreyju- starfið? Með flugfreyjustarfinu get ég í raun sameinað áhugamálin: vinnuna og að vera í kringum skemmtilegt fólk. Kannski kitlar það mann eftir að hafa búið erlendis að fljúga annað slagið frá eyjunni okkar góðu og viðhalda þeim tungumálum sem ég hef lært á lífs- leiðinni. Lífsmottó: Held að ég vitni í Guðna Gunnars í Ropeyoga: Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar. Menntun/bakgrunnur: Ég er grunn- skólakennari frá Kennaraháskóla Ís- lands auk þess sem ég hef lokið prófi í ferðamálafræðum. Fyrri störf: Í dag hanna ég skartgripi undir nafninu HARPA design og sel í verslunum Leonard, Gjöfum jarðar og á souk.is en fljótlega kemur frá mér ný og fersk lína fyrir sumarið í björtum og fögrum litum. Af hverju sóttirðu um flugfreyju- starfið? Ég hafði um nokkurn tíma velt fyrir mér hvaða starf ég gæti hugs- að mér samhliða skartgripahönnuninni. Flugfreyjustarfið lenti þar alltaf ofarlega á blaði. Best er að lýsa þessu þannig að þegar maður hefur prófað flugfreyj- ustarfið einu sinni þá er líkt og maður fái vírus í blóðið og úr verði skæð flug- baktería sem kveikir algjörlega í manni. Lífsmottó: Ekki líta til baka – lífið er núna! Menntun/bakgrunnur: Útskrifaðist úr MR 2011, tók mér hálfsárs frí og fór m.a. til Madrid í fimm vikna spænsk- unám. Stunda núna nám í stjórnmála- fræði við Háskóla Íslands. Fyrri störf: Ég var svo heppin að kom- ast undir væng Múlakaffis-fjölskyld- unnar þegar ég var 15 ára og hef ég unnið hin ýmsu störf fyrir hana, nú seinast sem þjónn á Nauthóli. Af hverju sóttirðu um flugfreyju- starfið? Það lá nú bara beint við í framhaldi af fyrri störfum og útskrift af nýmálabraut II eða hinni víðfrægu „flugfreyjubraut“. Ég er einnig svolít- ið alin upp við flug en pabbi minn er flugstjóri og við eigum flugvélar. Það er meira að segja verið að smíða flugvél á heimilinu og já, ég get alveg sagt að það sé mikið talað um flug í kringum mig. Lífsmottó: Lifa lífinu lifandi og brosa framan í heiminn. Menntun/bakgrunnur: Dúxaði næst- um því Versló í fyrra og svo vann ég náttúrulega Íslandsmeistaratitilinn í break-dansi 2003. En titillinn hefur verið drifkraftur lífs míns og gerði mig að konunni sem ég er í dag. Fyrri störf: Afgreiðsludama í fallegustu vintage-búð landsins, Rokki & rósum, og vaktstjóri á 101 Hóteli. Af hverju sóttirðu um flugfreyju- starfið? Systir mín er flugfreyja og hún hættir ekki að tala um hvað það er mikil snilld og svo sá ég auglýsingu frá þessu nýja og spennandi fyrirtæki og ég hugsaði með mér að auðvitað ætti ég að slá til og sækja um. Lífsmottó: Koma vel fram við aðra og njóta þess að vera til því það er svo meiri háttar gaman! Mind Xtra fyrir konur eins og þig Leggings 1990 kr. Bómullar-blúndubolir 1990 kr. Full búð af nýjum vörum og frábærum tilboðum OPNUNARTILBOÐ Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir fagnaði útkomu bókarinnar Laðaðu til þín það góða í vikunni. SIRRÝ BEINT Á TOPPINN Hér er höfundurinn ásamt Huldu Gunnarsdóttur. Fjöldi manns fagnaði með Sirrý í Eymundsson Austurstræti. FRAMAKONUR Á FLUGI Það virðist vera sem sjarminn af flugfreyjustarfinu sé hvergi nærri horfinn því yfir þúsund manns sóttu um starf hjá flugfélaginu WOW air. Lífið tók fjórar konur tali sem allar eiga það sameiginlegt að sinna öðru starfi meðfram fluginu. „Ég elska að lesa alls konar bækur eins og sagnfræði og krimma og ég nærist á að hafa hvetjandi bækur á náttborðinu mínu. Ég les sjálfshjálparbæk- ur til að endurskoða mig,“ segir Sirrý spurð hvaða bækur hún kýs að lesa en bókin hennar, Laðaðu til þín það góða, fór beinustu leið í 1. sæti á metsölulista Ey- mundsson í flokki fræðibóka. „Ég finn það á námskeiðun- um sem ég hef haldið undan- farin tíu ár fyrir mjög ólíka hópa, hvort sem ég hef verið með námskeið fyrir trésmiði, banka- starfsmenn, hjúkrunarfræðinga, kennara eða fólk í atvinnuleit, að þetta efni virkar til að laða til sín það góða og er hvetj- andi til að fá það mesta út úr líf- inu. Þetta er bók fyrir alla sem vilja vítamínsprautu fyrir sálina. Ég gríp bókina þegar mig vant- ar kraft og uppörvun og þarf að hlúa að mér,“ segir hún. alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel Hemmi Gunn – og svaraðu nú! Fjölbreyttur og fjörugur þáttur MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR, 20 ÁRA. ANNA MARGRÉT STEIN- GRÍMSDÓTTIR, 21 ÁRSHARPA GUÐJÓNSDÓTTIR, 36 ÁRAMARÍA VALDIMARSDÓTTIR, 35 ÁRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.