Fréttablaðið - 30.03.2012, Side 58
30. mars 2012 FÖSTUDAGUR42
sport@frettabladid.is
LOKAUMFERÐIN í N1-deild karla fer fram í kvöld en hæst ber leikur HK og Fram í Digranesi en það
er hreinn úrslitaleikur um hvort liðið kemst áfram í úrslitakeppnina ásamt Haukum, FH og Akureyri. HK
dugir jafntefli til að komast áfram en leikurinn hefst klukkan 19.30.
HANDBOLTI Guðmundur Guð-
mundsson hefur valið 20 leik-
menn í íslenska landsliðið
sem mun taka þátt í umspils-
keppni fyrir Ólympíuleikana í
Lundúnum.
Riðill Íslands fer fram í Króa-
tíu um páskana en Ísland mun
leika við gestgjafana og Japan og
Síle. Tvö efstu liðin í riðlinum fá
þátttökurétt á leikunum í Lund-
únum í sumar. Miðað við styrk-
leika liðanna er ljóst að íslenska
liðið er í dauðafæri til þess að
tryggja sig til London.
Ólafur Stefánsson og Snorri
Steinn Guðjónsson gefa báðir kost
á sér á ný en þeir misstu báðir
af EM í Serbíu í upphafi ársins.
Ólafur Guðmundsson er kom-
inn aftur í hópinn en hann hefur
verið frá vegna meiðsla.
Einu forföllin eru hjá Alexand-
er Peterssyni en hann er enn að
glíma við meiðsli í öxl og sér ekki
fyrir endann á því. - esá
Landsliðið valið:
Snorri Steinn
og Ólafur með
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Aron Rafn Eðvarðsson Haukar
Björgvin Páll Gústavsson Magdeburg
Hreiðar Levý Guðmundsson Nötteröy
Aðrir leikmenn:
Arnór Atlason AG
Aron Pálmarsson Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson Hannover-
Burgdorf
Guðjón Valur Sigurðsson AG
Ingimundur Ingimundarson Fram
Kári Kristján Kristjánsson Wetzlar
Ólafur Bjarki Ragnarsson HK
Ólafur Guðmundsson Nordsjælland
Ólafur Stefánsson AG
Róbert Gunnarsson Rhein-Neckar Löwen
Rúnar Kárason Bergischer HC
Sigurbergur Sveinsson Basel
Snorri Steinn Guðjónsson AG
Stefán Rafn Sigurmannsson Haukar
Sverre Jakobsson Grosswallstadt
Vignir Svavarsson Hannover-Burgdorf
Þórir Ólafsson Kielce
KEMUR AFTUR Snorri Steinn Guðjóns-
son verður með Íslandi í Króatíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Það verður seint sagt
að lukkan hafi leikið við örvhentu
sleggjuna Einar Hólmgeirsson
á atvinnumannaferlinum. Hann
hefur glímt við þrálát meiðsli
undanfarin ár og lék sinn síðasta
handboltaleik fyrir ellefu mánuð-
um. Þá héldu allir að ballið væri
búið hjá Einari.
Svo er nú aldeilis ekki því hann
fær tækifæri út þessa leiktíð til
þess að sanna sig hjá þýska úrvals-
deildarliðinu Magdeburg, sem
Björgvin Páll Gústavsson leikur
með.
„Við verðum að sjá til hvernig
þetta endar. Ég er í ágætu standi
en það hefur ekkert reynt almenni-
lega á það. Þeir hafa engu að tapa
og ekki ég heldur og því látum
við reyna á þetta,“ sagði Einar en
hann skrifar í dag undir samning
sem gildir til loka leiktíðar. Fín-
asta afmælisgjöf en Einar varð
þrítugur í gær.
Aðalskytta Magdeburg er meidd
og verður frá fram að jólum. Sá er
leysir hann af hefur átt í meiðslum
og því vantaði Magdeburg mann.
„Eftir fyrstu æfinguna spurðu
þeir hvort ég gæti spilað á laugar-
daginn. Ég hef lítið annað að gera
þannig að ég var til,“ sagði Einar
sem hefur verið að æfa með 3.
deildarliði síðan í janúar.
Hann ætlaði að reyna að komast
að hjá liði í janúar en varð að slá
því á frest þar sem vinstra hnéð
var skorið upp í október. Það var í
fjórða skiptið sem hann er skorinn
upp á því hné.
„Þjálfarinn veit hvernig ég er og
að ég þarf örugglega mínar hvíld-
ir. Ég er fenginn til að leysa hinn
af. Ég á ekki að framkalla einhver
kraftaverk hérna. Sleggjan er smá
ryðguð en það þarf aðeins að pússa
hana upp. Ég veit ekki alveg hvar
ég stend og renni frekar blint í
sjóinn.“
Einar gerir sér grein fyrir því
að ef vel gangi gætu opnast dyr
fyrir hann í framhaldinu. Það á
svo eftir að koma í ljós hvernig
skrokkurinn heldur.
„Ef vel gengur má vel vera að
þeir vilji framlengja fram að
jólum. Maður veit það ekki. Þetta
er tækifæri fyrir mig til þess að
sanna að ég get enn spilað.“ - hbg
Einar Hólmgeirsson fær óvænt tækifæri í þýsku úrvalsdeildinni og spilar með Magdeburg fram á sumar:
Ekki fenginn til að framkalla einhver kraftaverk
MÆTTUR AFTUR Einar er kominn aftur í úrvalsdeildina. Hann er hér í leik með Flens-
burg gegn Ciudad Real. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Seinni tvö einvígin
í átta liða úrslitum Iceland
Express-deildar karla hefjast
í kvöld og það er óhætt að
segja þjálfarar liðanna þekkist
vel. Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkur og Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar
eru tveir af reyndustu og
sigursælustu mönnunum í sögu
úrslitakeppninnar og hafa þegar
mæst tíu sinnum í úrslitakeppni.
Hinum megin mætast aftur á
móti æskuvinirnir Benedikt
Guðmundsson, þjálfari Þórs og
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
Snæfells sem hafa báðir gert lið
að meisturunum síðustu þrjú ár.
Staðan er 5-5
Sigurður Ingimundarson og Teitur
Örlygsson mætast í kvöld í ellefta
sinn í úrslitakeppni ýmist sem
leikmenn eða þjálfarar og staðan
er jöfn 5-5 fyrir þetta einvígi.
Þetta er þó bara í annað skiptið
sem þeir félagar mætast sem
þjálfarar því það gerðist í fyrsta
sinn í átta liða úrslitunum fyrir
tveimur árum. Stjörnumenn voru
þá í sömu stöðu og nú en töpuðu
þá í oddaleik á móti lærisveinum
Sigurðar í Njarðvík. Síðan
Sigurður lagði skóna á hilluna
hefur hann unnið þrjú af fimm
einvígum þeirra Teits, þar af tvö
þau síðustu.
Stjörnumenn eru mættir þriðja
árið í röð í einvígi liðanna í 4. og
5. sæti en hin einvígin fóru bæði í
oddaleik sem vannst í bæði skiptin
á útivelli. Það hefur hallað á liðið
í fjórða sæti undanfarin ár enda
hefur lið númer 5 unnið tvö ár í
röð og fjórum sinnum á síðustu
fimm árum.
Stjörnumenn hafa farið illa með
Keflvíkinga í vetur og unnið þá
bæði með glimrandi sóknarleik
(107-91 sigur í fyrri leiknum í
Garðabæ) og með frábærum
varnarleik (94-69 sigur í seinni
leiknum í Keflavík). Bæði unnu
liðin 14 leiki og því má búast við
einvígi tveggja jafnra liða en
innbyrðisviðureignirnar benda til
þess að Stjörnumenn hafi forskot
í því hvernig liðin vega upp á móti
hvoru öðru.
1972-þjálfaraárangurinn í KR
Benedikt Guðmundsson og Ingi
Þór Steinþórsson eru báðir fædd-
ir árið 1972 og aldir upp í KR en
svo skemmtilega vill til að þjálfar-
ar síðustu þriggja Íslandsmeistara
eiga það allir sameiginlegt að vera
úr 1972-árganginum í KR. Hrafn
Kristjánsson, þjálfari núverandi
Íslandsmeistara KR, er einnig úr
þeim öfluga þjálfaraárgangi úr
Vesturbænum.
Innbyrðisleikir Þórs og Snæfells
voru æsispennandi, Snæfell vann
þann fyrri í Hólminum í framleng-
ingu þar sem Hólmarar jöfnuðu í
lokin en Þór vann þann seinni í
Þorlákshöfn á flautukörfu.
Fyrstu skrefin hjá Þór
Nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn verða
í kvöld átjánda félagið sem tekur
þátt í úrslitakeppninni en það
er ekki hægt að segja að það sé
algengt að félag vinni sinn fyrsta
leik í úrslitakeppni.
Það hefur sem dæmi aðeins
gerst einu sinni frá árinu 1995 og
svo skemmtilega vill til að þjálf-
ari Fjölnismanna, sem unnu sinn
fyrsta leik í úrslitakeppni vorið
2005, var einmitt Benedikt Guð-
mundsson, núverandi þjálfari
Þórsliðsins.
Hin átta liðin sem hafa stigið
sín fyrstu skref í úrslitakeppni
undanfarin 17 ár hafa öll tapað
sínum fyrsta leik.
Snæfell varð Íslandsmeistari
fyrir tveimur árum en þrátt
fyrir miklar breytingar á
leikmannahópnum síðan þá
á liðið í ár það sameiginlegt
með 2010-liðinu að koma inn í
úrslitakeppnina í sjötta sæti.
Sjötta sætið reyndist vel síðast
Það boðar þó kannski ekki gott
fyrir nokkra aðra en Snæfellinga
því ekkert annað lið hefur unnið
Íslandsmeistaratitilinn eftir að
hafa komið inn í sjötta sætinu.
Ingi Þór Steinþórsson er
jafnframt eini þjálfarinn sem
hefur gert lið að Íslandsmeisturum
án þess að hafa heimavallarrétt
í átta liða úrslitunum. Ingi var
einnig þjálfari KR-liðsins sem
varð meistari vorið 2000 eftir að
hafa komið inn í fimmta sæti.
Það verður örugglega erfitt
hjá þjálfurunum fjórum að koma
hverjum öðrum mikið á óvart í
komandi leikjum en það má búast
við spennandi leikjum þar sem
öll fjögur liðin telja sig eiga mjög
góða möguleika á að komast áfram
í undanúrslitin. ooj@frettabladid.is
Einvígi góðkunningjanna
Sigurður Ingimundarson og Teitur Örlygsson eru ekki að mætast í fyrsta sinn
í úrslitakeppni en það eru æskuvinirnir Benedikt Guðmundsson og Ingi Þór
Steinþórsson að gera. Tvö einvígi í átta liða úrslitunum fara af stað í kvöld.
ÞEKKJAST VEL Efri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson og Sigurður Ingimundarson. Neðri
röð frá vinstri: Ingi Þór Steinþórsson og Benedikt Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Iceland Exp. karla í körfu
8 liða úrslit, fyrsti leikur
Grindavík - Njarðvík 94-67 (46-32)
Grindavík: J’Nathan Bullock 19 (10 frák.),
Sigurður Þorsteinsson 17, Þorleifur Ólafsson 13,
Ryan Pettinella 10, Giordan Watson 9 (12 stoðs.),
Páll Axel Vilbergss. 9, Jóhann Ólafss. 7, Ómar
Sævarss. 4, Ólafur Ólafss. 4, Björn Brynjólfsson 2.
Njarðvík: Travis Holmes 20, Cameron Echols 18,
Elvar Már Friðrikss. 9, Páll Kristinss. 8, Rúnar
Erlingss. 3, Hjörtur Einarsson 3, Jens Óskarsson 2,
Maciej Baginski 2, Oddur Birnir Pétursson 2.
KR-Tindastóll 84-68 (46-32)
KR: Robert Ferguson 21, Dejan Sencanski
17, Joshua Brown 15 (12 frák.), Finnur Atli
Magnússon 11 (11 frák./8 stoðs.), Emil Þór
Jóhannsson 9, Martin Hermannsson 5,
Hreggviður Magnússon 4, Jón Orri Kristjánsson 2.
Tindastóll: Curtis Allen 16, Maurice Miller 13,
Þröstur Jóhannsson 12, Svavar Birgisson 11, Helgi
Viggósson 9, Igor Tratnik 5, Hreinn Birgisson 2.
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Skúli Jón Friðgeirsson,
varnarmaður KR, semur ekki við
norska félagið Sogndal en mun
líklega semja við annað erlent
félag í dag. Hann spilar því ekki
með KR í Pepsi-deildinni í sumar.
Skúli Jón vildi ekki segja það
í gærkvöldi um hvaða erlenda
félag er að ræða. -óój
Skúli Jón Friðgeirsson:
Semur í dag
KÖRFUBOLTI KR tók forystuna
í einvígi sínu gegn Tindastóli
með nokkuð sannfærandi sigri
í Vesturbænum. KR hafði
frumkvæðið frá upphafi leiksins
en Stólarnir önduðu þó ofan í
hálsmál þeirra í síðari hálfleik.
Meira gerðu gestirnir þó ekki og
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR,
var ánægður þótt hann telji lið
sitt eiga mikið inni.
„KR-liðið stendur í 70
prósentum. Líkamlega erum við
klárir og við erum búnir að setja
allt upp sem við viljum gera.
Núna þurfum við bara að vera
klárari þegar pressan er mikil,“
sagði Hrafn en KR-ingar hafa nú
unnið fimm leiki í röð og til alls
vísir. - ktd
KR vann Tindastól í gær:
KR enn bara í
70 prósentum
ROBERT FERGUSON Lék vel á móti Helga
Rafni og félögum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Grindavík er komið
með forystu í rimmu sinni gegn
Njarðvík, 1-0, í úrslitakeppni
Iceland Express-deildar karla
eftir öruggan sigur í gær, 94-67.
Það var fyrst og fremst sterkur
varnarleikur sem skóp sigurinn.
„Grindavíkurliðið hefur stund-
um verið þekkt fyrir að vera
með þriggja stiga skotsýningar
en það var ekkert slíkt uppi á
teningnum í kvöld. Það er bara
varnarleikurinn sem mestu máli
skiptir og ekkert annað,“ sagði
Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálf-
ari Grindavíkur. Næsti leikur
liðanna verður í Njarðvík á
sunnudagskvöld. - esá
Grindavík vann Njarðvík:
Miklir yfirburð-
ir í Grindavík