Fréttablaðið - 30.03.2012, Side 62

Fréttablaðið - 30.03.2012, Side 62
30. mars 2012 FÖSTUDAGUR46 LÆRDÓMUR VIKUNNAR „Eftir Svarta dauða kemur SS-pylsan“, svo hljóðar fyrirsögn er birtist í Aftonbladet í vikunni. Fréttin segir frá áætlunum Slát- urfélags Suðurlands um að hefja innflutn- ing á íslenskum pylsum til Svíþjóðar. Í fréttinni er íslensku pylsunum lýst sem töluvert styttri en þeim sænsku og að þær séu oftast borðaðar „með öllu“. Blaðamaður Aftobladet fjallar einnig um söluskálann víðfræga, Bæjarins beztu, sem stendur niðri við Reykjavíkurhöfn og tekur fram að staðurinn hafi fengið glimr- andi meðmæli frá The Guardian og sjálf- um Bill Clinton. „Einstaklingar á borð við Metallica og Bill Clinton hafa einnig notið SS-pylsunnar. Clinton borðaði hana þó ekki á réttan hátt, hann sleppti lauknum, remúlaðinu og tómatsósunni sem olli honum hjartatruflunum samkvæmt heim- ildum,“ skrifaði blaðamaðurinn. Í greininni er einnig vitnað í Steinþór Skúlason, forstjóra SS, sem segir fyrir- tækið stefna á að selja pyslur í Svíþjóð og víðar í litlum söluskálum í anda Bæjarins beztu. Á vef SS kemur fram að fyrirtækið hafi í gegnum árin fengið fjölda fyrirspurna frá ýmsum aðilum sem hafa haft áhuga á að selja SS-pylsur á erlendum markaði, ekki hafi þó verið hægt að verða við slíku fyrr en nú. Á síðunni kemur einnig fram að líkur eru á að valdar áleggstegundir og steikur eigi möguleika á erlendum mörkuðum. - sm Íslenska pylsan til Svíþjóðar PYLSUÚTRÁSIN Pylsurnar frá SS verða brátt fáanlegar í Svíþjóð. Aftonbladet fjallaði um innreið íslensku pylsunnar í Svíþjóð á síðum sínum í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON „Þetta er algjör goðsögn,“ segir trommarinn Einar Scheving um kollega sinn Steve Gadd sem spilar með James Taylor í Hörpunni í maí. Gadd hefur á ferli sínum einnig spilað mikið með Eric Clapton og Paul Simon á tónleikum, auk þess sem hann hefur spilaði inn á hljómplötur með fjölda þekktra flytjenda á borð við Paul McCartney, Peter Gabriel og The Bee Gees. Einar kynntist Gadd lítillega þegar hann var einn af leiðbeinendum á námskeiði sem hann sótti í Dan- mörku. „Ég kynntist honum lítillega, alla vega nóg til að heyra í honum annað slagið,“ segir Einar, sem hefur miklar mætur á Gadd. „Þetta verða frábærir tónleikar með James Taylor en Gadd er náttúrulega bónus enda má segja að hann sé stærsta nafnið í trommuheiminum. Hann er ekki þekktasti tromm- arinn í heiminum en í þessum trommubransa er hann sennilega stærsta nafnið.“ Að sögn Einars var Gadd einnig einn eftirsótt- asti djasstrommuleikari heims um tíma og spilaði mikið með Chick Corea sem stígur einmitt á svið í Hörpunni í apríl. Hann segir að trommustíll Gadds sé mjög einkennandi. „Þó að hann sé þekktur fyrir að vera mjög leiðandi tæknilega er hann ekk- ert endilega að fara hamförum um settið. Hann er fyrst og fremst með þungavigtargrúv og gefur allt í músíkina.“ - fb Goðsögn með Taylor í Hörpu GOÐSÖGN TIL LANDSINS Steve Gadd spilar á trommur í hljóm- sveit James Taylor í Hörpunni í maí. NORDICPHOTOS/GETTY „Gabriel með Joe Goddard er tryllt og svo er Nova með Burial & Four Tet svona sparilagið mitt.“ Logi Pedro Stefánsson, liðsmaður sveitarinnar Retro Stefson. „Stefnan hjá okkur er að hrista aðeins upp í þessu, það er klárt mál,“ segir Þór Bæring Ólafsson. Hann hefur opnað ferðaskrif- stofuna Gamanferðir ásamt Braga Hinriki Magnússyni. Þar verður áhersla lögð á ýmiss konar utan- landsferðir, þar á meðal á tónleika, fótboltaleiki og handboltaleiki. Einnig verða fjölskylduferðir, borg- arferðir og ævintýraferðir í boði. Þór og Bragi Hinrik stofnuðu ferðaskrifstofuna Markmenn árið 2003. Þar náðu þeir að lækka verð á fótboltaferðum og árið 2006 keypti Iceland Express skrifstof- una og stofnaði Express ferðir. Skömmu síðar hættu þeir í brans- anum og hafa síðan þá einungis aðstoðað fjölskyldu og vini við að fá miða á viðburði erlendis. „Við vorum ekki sjálfstæðir lengur og þetta var ekki alveg eins gaman,“ segir Þór, sem telur að núna sé rétti tíminn til að snúa aftur. Í þetta sinn verða þeir í samstarfi við flugfélagið Wow Air. „Það er meiri stemning hjá fólki að fara út og gera eitthvað skemmtilegt. Það er búið að vera hálfgert ferðabann hjá fólki síðustu ár.“ Þór er ánægður með að vera farinn að selja ferðir til útlanda á nýjan leik. „Þessi ferðabransi er gríðarlega skemmtilegur. Maður er bara spenntur að vakna á morgnana og takast á við verkefni dagsins.“ - fb Stofna sína aðra ferðaskrifstofu Á VELLINUM Þór Bæring Ólafsson og Bragi Hinrik Magnússon hafa stofnað ferðaskrif- stofuna Gamanferðir. „Ég er viss um að við verðum eftirlætishljómsveit sjúkra- og einkaþjálfara,“ segir plötusnúð- urinn Margeir Sigurðsson um dansdúettinn Gluteus Maximus sem hann hefur stofnað ásamt Stephan Stephensen. Dúettinn kemur í fyrsta sinn fram á Reykjavík Fashion Festival í Hörpu á morgun en þar frumflyt- ur hann lagið Everlasting og hefur fengið til liðs við sig söngvarann Högna Egilsson. „Við erum mjög ánægðir með að Högni samþykkti að syngja í laginu enda með frá- bæra rödd. Við erum langt komn- ir með næsta lag og þar fáum við leikarann Magnús Jónsson til liðs við okkur,“ segir Margeir og bætir við að dúettinn ætli sér að vinna með ýmsum gestasöngvurum í framtíðinni. Nafn dúettsins vekur athygli en Gluetus Max- imus er heiti á stærsta vöðva lík- amans, rassvöðvans. „Rassvöð- vinn er mjög mikilvægur. Maður getur til dæmis ekki dansað án rassvöðvans,“ segir Margeir. Margeir og Stephan, betur þekktur sem President Bongo úr GusGus, hafa verið að vinna saman í nokkurn tíma og þá aðal- lega við að endurhljóðblanda lög, til dæmis fyrir sveitina Sigur Rós. „Samstarf okkar nær nokk- ur ár aftur í tímann en við höfum undanfarið verið að prófa okkur áfram með eigið efni og nú er komið að frumflutningi á því,“ segir Margeir en það er góðvinur þeirra, finnski tónlistarmaðurinn Jimi Tenor, sem samdi enska texta lagsins. Lagið kemur út með vor- inu hjá nýstofnaðri útgáfu þeirra kappa, Radíó Bongó, en það er Stephan sem á veg og vanda að þeirri útgáfu. Hún sérhæfir sig í að gefa út tónlist á vínyl í tak- mörkuðu upplagi. Lagið Ever- lasting verður önnur útgáfa Radíó Bongó en sú fyrsta er sólóplata Davíðs Þórs Jónssonar píanóleikara. „Dúettinn er kominn til að vera og við erum spenntir yfir að koma í fyrsta sinn fram á Íslandi en hingað til höfum við verið að prufukeyra Gluteus Maximus erlendis við góðar viðtökur,“ segir Margeir og er nokkuð viss um að þeir hnykli rassvöðvana á tísku- pöllunum í Hörpu á morgun. alfrun@frettabladid.is MARGEIR SIGURÐSSON: EKKI HÆGT AÐ DANSA ÁN RASSVÖÐVANS Nefna dansdúett eftir stærsta vöðva líkamans STÓRHUGA TÓNLISTARMENN Þeir Margeir Sigurðsson og Stephan Stephensen mynda dansdúettinn Gluteus Maximus en þeir hafa einnig stofnað útgáfufyrirtækið Radíó Bongó. Á morgun frumflytja þeir lagið Everlasting á RFF í Hörpu en Högni Egilsson er gestasöngvari í laginu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00 Glæný Bláskel frá Stykkishólmi Ferskur Túnfiskur Alla föstudaga og laugardaga Humar 2000 kr.kg Óbrotinn fyrsta flokks humar Fiskibollur að dönskum hætti (lax, þorskur, dill, rjómi, krydd) Harðfiskurinn frá Stykkishólmi Þessi sjúklega góði Humarsoð frá Hornarfirði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.