Fréttablaðið - 11.06.2012, Page 13

Fréttablaðið - 11.06.2012, Page 13
■ FRAMHALD Á SÍÐU 2 ÍSLENSK HÖNNUN Sýning á íslenskri vöruhönnun stendur nú yfir í Hönn- unarsafni Íslands í Garðabæ. Þar er skyggnst inn í hugarheim valdra hönnuða en á sýningunni eru um 50 verk. Sýningin ber heitið Saga til næsta bæjar og stendur til 14. október. | WWW.HONNUNARSAFN.IS Vigdís Birgisdóttir hefur í áratugi prjónað, saumað og heklað og skapað þannig fallega handunna muni. Í dag býr hún til falleg glerlista- verk og límir mósaíkmyndir úr flísum á borð, stóla og aðra muni. „Mér fannst orðið erfitt að prjóna og ég fékk verki í hendur og axlir af því og ákvað að reyna eitthvað nýtt. Þegar ég sá að boðið var upp á námskeið í glerlist í Gerðubergi fyrir eldri borgara sló ég til og skráði mig. Það var svo skemmtilegt að ég gat varla beðið eftir næsta tíma. Þetta var fyrir níu árum og ég fer þangað einu sinni í viku enn þann dag í dag,“ segir Vigdís. Fullbúin vinnustofa er á heimili hennar þar sem hún vinnur flest sín verk. Áður en byrjað er að skera mynd- irnar þarf að hanna þær og teikna upp. Hugmyndirnar að myndunum koma frá henni sjálfri en stundum leitar hún til dóttur sinnar, myndlistakonunnar Aðal- bjargar Þórðardóttur til að útfæra mynd- irnar. Svo sest hún niður og sker glerið í réttar stærðir, slípar það til og lóðar saman með tini eða klippir niður flísa- búta og límir þá niður og fúgar á milli. „Það er erfiðast að skera glerið og oft ákveðin spenna sem fylgir því: Brotnar það eða brotnar það ekki?“ segir Vigdís glaðbeitt. Í gegnum tíðina hefur hún gefið vinum og fjölskyldu gjafir sem hún býr til sjálf og eiga allflest þeirra húsgagn með mósaíkverki á eða glerlistaverk BÝR TIL FALLEGA MUNI ÚR GLERI OG FLÍSUM Í GLERINU Listakonan Vigdís Birgisdóttir býr til falleg gler- og mósaíklistaverk. Hún segir þörfina til að skapa fallega muni vera drifkraft verkanna. BLÍÐA Í GARÐINUM Vigdís nýtur þess að gera umhverfi sitt fallegt með list sinni. MÓSAÍK GRAFFITI Fagurlega skreytt skjólgirðing með flísum og gleri. Gerið gæða- og verðsamanburð Sofðu vel - heilsunnar vegna Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00 *3,5% lántökugjald VORTILBOÐ Á ÖLLUM STILLANLEGUM HEILSURÚMUM Með okkar bestu heilsudýnu. Verð frá kr. 339.900 á hjónarúmi. MIKIÐ ÚRVAL AF SVEFNSÓFUM 12 má naða vaxtal ausar greiðs lur* Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is Er vagninn rafmagnslaus Frístunda rafgeymar í miklu úrvali ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.