Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 4
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 28.06.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,5072
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,50 127,10
196,74 197,70
157,24 158,12
21,152 21,276
20,837 20,959
17,874 17,978
1,5929 1,6023
191,04 192,18
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í frétt Fréttablaðsins í gær kom
ranglega fram að fyrirtækið Gunhil
hefði sent frá sér kvikmyndina Hetjur
Valhallar: Þór. Hið rétta er að fyrirtækið
Caoz framleiddi myndina en ekki Gun-
hil, sem er skipað þeim Gunnari Karls-
syni, höfundi á útliti og meðleikstjóra
myndarinnar, Hilmari Sigurðssyni,
annars aðalframleiðanda myndarinnar
og fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá
Caoz ásamt Hauki Sigurjónssyni.
LEIÐRÉTT
FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI!
Með frétt um neyðarútgangslampa á
blaðsíðu tvö í Fréttablaðinu í gær var
birt mynd af Beghelli-lampa. Rétt er
að taka fram að vörumerkið tengist
fréttinni ekki beint og átti fram-
leiðandinn ekki hlut að innköllunum
vegna bruna í lömpunum. Beðist er
velvirðingar á myndbirtingunni.
HALDIÐ TIL HAGA
SJÁVARÚTVEGUR Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum hefur ákveðið
að segja upp 41 starfsmanni í hag-
ræðingarskyni og setja Gandí VE
á söluskrá, að því er kemur fram í
tilkynningu frá fyrirtækinu í gær.
Félagið samþykkti í gærkvöldi að
greiða 850 milljónir króna í arð.
„Þessi arður er um það bil 13%
af eigin fé Vinnslustöðvarinnar
sem er um það bil það sama og
ávöxtunarkrafa Bankasýslu ríkis-
ins af bönkunum,“ segir Sigurgeir
B. Kristgeirsson, framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar. „Ef
við horfum á það hvað var áætlað
á síðasta ári, þá er þetta um það
bil fimm prósent af markaðsvirði
þess. Ef ríkisskuldabréf eru keypt
í dag, held ég að ávöxtunarkrafan
sé nálægt sjö prósentunum.“
Til samanburðar má geta þess að
arðgreiðslur ársins á undan voru
500 milljónir króna og hækkunin á
milli ára nemur því 75 prósentum.
Sigurgeir útilokar ekki enn frek-
ari sparnaðaraðgerðir. „Ef fyrir-
tækið ætlar að lifa álögurnar af þá
verðum við að bregðast enn frek-
ar við og spara meira,“ segir hann.
Hann vill ekki útlista hvers konar
aðgerðir þá séu í kortunum, en upp-
sagnirnar núna séu mikilvægur
liður í að halda fyrirtækinu gang-
andi. Hann segir ákvarðanirnar um
að segja upp 13 prósentum fastráð-
ins starfsfólks og draga saman
í rekstri séu þungbærar fyrir
Vinnslustöðina, en auðvitað fyrst
og fremst fyrir starfsfólkið.
„Engum ætti þó að koma á óvart
að til slíkra tíðinda drægi, allra síst
stjórnvöldum landsins og alþingis-
mönnum sem samþykktu nú síð-
ast stórhækkun veiðigjalda þvert
á viðvaranir úr öllum áttum, þar á
meðal úr röðum eigin sérfræðinga
og ráðgjafa,“ segir Sigurgeir.
Meðal þeirra sem sagt var upp
var öll áhöfnin á Gandí VE, alls 30
manns, og 11 manns í landvinnslu
fyrirtækisins í Vestmannaeyjum.
- shá, kóp, sv
Vinnslustöðin í Eyjum hefur sagt upp 41 starfsmanni og hyggst selja Gandí VE – veiðigjaldi kennt um:
Sagði upp fólki og greiddi 850 milljónir í arð
GANDÍ VE 30 manna áhöfn skipsins
hefur verið sagt upp. Skipið verður selt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Í Fréttablaðinu á miðvikudag var
fjallað um endurbætur á símamastri
í Ólafsvík. Þar kom fram að nokkuð
hefði verið kvartað yfir lélegu netsam-
bandi á svæðinu. Rétt er að geta þess
að tvö símkerfi eru á nesinu, Síminn
og Nova. Umrætt mastur er Símans.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
34°
30°
30°
22°
29°
32°
21°
21°
26°
19°
33°
34°
33°
15°
22°
20°
19°
Á MORGUN
Fremur hægur vindur
SUNNUDAGUR
Víða hægviðri
5
6
3
3
2
5
3
3
5
9
11
11 9
8
9
7 3
14
12
11
11 6
8
8
5
1014 12
10
13
7
9
FERÐAHELGI Júlí
er að hefjast og
margir á leið í
sumarfríið. Bjart á
morgun um mest
allt land en stöku
skúrir A-til. Dregur
fyrir V-til fram á
sunnudag og líkur
á skúrum S- og V-
lands. Kólnar A-til
um helgina.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
SKÁK Áhugamönnum um skák á
öllum aldri er boðið á Ávaxtamót-
ið 2012 sem haldið er klukkan 12 í
dag í Sumarskákhöllinni, Þing-
holtsstræti 47. Boðið verður upp á
gómsæta og framandi ávexti.
Mótið er haldið í tilefni þess að
Skákakademían hefur í sumar frá-
bæra aðstöðu til að halda námskeið
fyrir börn og ungmenni og skák-
viðburði fyrir alla aldurshópa.
Áður en mótið hefst mun Hjörv-
ar Steinn Grétarsson, nítján ára
landsliðsmaður í skák, skýra
skákir.
Hraðskákmót verður í hádeginu
alla föstudaga í júlí og mótið í dag
er hið fyrsta í þeirri syrpu. Þátt-
taka er ókeypis og opin öllum. - bþh
Skákmót í Sumarskákhöllinni:
Mót á hverjum
föstudegi í júlí
KÖNNUN Nærri sex af hverjum
tíu kjósendum ætla að kjósa Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta Íslands,
í forsetakosningum sem fram fara
á morgun. Þetta sýna niðurstöður
skoðanakönnunar Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi
og fyrrakvöld.
Alls segjast 57 prósent ætla að
kjósa Ólaf Ragnar. Það er svipað
hlutfall og í könnun sem gerð var
fyrir tveimur vikum, þegar 58 pró-
sent sögðust styðja Ólaf, en fram að
því hafði stuðningur við Ólaf aukist
jafnt og þétt milli kannana.
Þóra Arnórsdóttir er með rúman
helming af fylgi Ólafs Ragnars sam-
kvæmt könnuninni. Um 30,8 prósent
þeirra sem afstöðu taka segjast
ætla að kjósa Þóru. Fyrir tveimur
vikum var hlutfallið lægra, um 27,8
prósent, en hafði þá fallið verulega
frá því það mældist hæst snemma í
apríl, um 46,5 prósent.
„Þetta segir okkur að Ólafur og
Þóra eru að bæta við sig á loka-
sprettinum. Það er skiljanleg og lík-
leg niðurstaða að tveir efstu fram-
bjóðendurnir bæti við sig þar sem
fólk fer í einhverjum mæli að kjósa
taktískt,“ segir Gunnar Helgi Krist-
insson, stjórnmálafræðiprófessor
við Háskóla Íslands.
Stuðningur við aðra frambjóð-
endur ýmist stendur í stað eða dalar
milli kannana. 7,5 prósent ætla að
kjósa Ara Trausta Guðmundsson,
samanborið við átta prósent fyrir
tveimur vikum. Breytingar milli
kannana eru innan skekkju marka
hjá öðrum en Hannesi.
Um 2,6 prósent styðja Herdísi
Þorgeirsdóttur og 1,7 prósent Andr-
eu J. Ólafsdóttur. Hannes Bjarnason
nýtur samkvæmt könnuninni stuðn-
ings um 0,3 prósenta kjósenda.
Tæpur fjórðungur kjósenda segist
enn ekki hafa gert upp hug sinn. Um
23,2 prósent tóku ekki afstöðu til
neinna frambjóðenda. Það er heldur
Um 57% styðja Ólaf Ragnar
Afgerandi meirihluti kjósenda ætlar að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosningunum á morgun. Þóra
Arnórsdóttir nýtur stuðnings tæplega 31 prósents. Aðrir frambjóðendur njóta mun minni stuðnings.
lægra hlutfall en í síðustu könnun,
þegar 27,8 prósent voru óákveðin.
Talsverður munur er á niðurstöð-
um skoðanakannana fyrir forseta-
kosningarnar eftir því hver gerir
könnunina. Þannig sýndi skoðana-
könnun sem Capacent gerði dagana
14. til 20. júní að Ólafur Ragnar nyti
stuðnings 45 prósenta en Þóra Arn-
órsdóttir 37 prósenta.
Gunnar Helgi segir ýmsar skýr-
ingar geta verið á mismunandi
niðurstöðum úr skoðanakönnun-
um. Aðferðafræðin er ólík. Í könn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2 er
hringt í kjósendur tvö kvöld í röð,
en Capacent gerir netkannanir.
Gunnar Helgi bendir á að mögu-
lega séu stuðningsmenn Ólafs
Ragnars ákveðnari í því sem þeir
ætla að kjósa en þeir sem ætla
að kjósa einhvern annan. Því sé
ekki ólíklegt að fylgi hans mælist
hærra en það sé í raun og veru. Í
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2 er reiknað með því að óákveðn-
ir skiptist á sama hátt og þeir sem
taka afstöðu, sem þarf ekki að verða
niðurstaðan þegar í kjörklefann er
komið. brjann@frettabladid.is
60
50
40
30
20
10
%
Fylgi forsetaframbjóðenda
Andrea J.
Ólafsdóttir
Ari Trausti
Guðmundsson
Hannes
Bjarnason
Herdís
Þorgeirsdóttir
Ólafur Ragnar
Grímsson
Þóra
Arnórsdóttir
46
,5
%
30,8%
34
,1
%
27
,8
%
35
,4
%
57,0%
2,
9%
2,6%
1,
3%
3,
6%
1,
3%
0,
4%0,3% 0,
4%1,
0%
0,
0%
7,5%
5,
8%
8,
0%
5,
3%
1,7%
0,
9%1,
8% 2,
7%
46
,0
%
56
,4
%
53
,9
%
58
,0
%
Hringt var í 2.216 manns þar til náðist í
1.500 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki
miðvikudaginn 27. júní og fimmtudaginn
28. júní. Þátttakendur voru valdir með
slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur
skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir
búsetu og aldri. Með lagskiptu úrtaki er
ákveðið fyrirfram hversu margra á að ná til
og miðað er við lýðfræðilega samsetningu
þjóðarinnar eftir kyni, aldri og búsetu.
Spurt var: Hvern myndir þú kjósa til
embættis forseta Íslands ef gengið yrði til
kosninga nú? Alls tóku 65,1 prósent þeirra
sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Aðferðafræðin ■ Fylgi nú
■ Fylgi í könnun 13. og 14. júní
■ Fylgi í könnun 30. og 31. maí
■ Fylgi í könnun 23. og 24. maí
■ Fylgi í könnun 11. og 12. apríl
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN
FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2
DAGANA 27. OG 28. JÚNÍ 2012