Fréttablaðið - 29.06.2012, Qupperneq 6
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR6
FRÉTTASKÝRING
Eru refsiaðgerðir af hendi Evrópu-
sambandsins yfirvofandi vegna
makrílveiða?
Nú liggur fyrir samkomulag full-
trúa Evrópuþingsins og ráðherra-
ráðs Evrópusambandsins, þar
sem Danir fara með forsæti, um
að reglugerð verði sett sem veit-
ir heimild til aðgerða gegn ríkj-
um sem stunda ósjálfbærar veið-
ar. Reglugerðin er sett til höfuðs
Íslendingum og Færeyingum
vegna makrílveiða. Refsiaðgerð-
ir gegn Íslandi hafa hins vegar
ekki verið samþykktar, og myndu
reynast bitlitlar ef til þeirra kæmi.
Framhald málsins ræðst líklega á
haustmánuðum.
Samkomulagið gengur ekki
eins langt og Evrópuþingið vildi
ná fram en það vildi mun víðtæk-
ari heimildir til aðgerða, til dæmis
að viðskiptaþvinganir gætu náð
til allra fisktegunda. Í þessu sam-
komulagi er það bundið við þær
tegundir sem viðkomandi ríki er
sakað um að stunda ósjálfbær-
ar veiðar á; í tilfelli Íslendinga á
það við um makrílinn og meðafla
í makrílveiðum eftir því sem næst
verður komist.
Umræða um refsiaðgerðir ESB
og Norðmanna á hendur Íslandi og
Færeyjum er ekki ný af nálinni.
Þeir sem gerst þekkja á Íslandi
hafa gjarnan svarað því til að allt
slíkt tal sé innistæðulaust þar sem
réttur okkar sem fiskveiðiþjóðar
sé tryggður með alþjóðasamning-
um og í gegnum EES-samninginn.
Sigurgeir Þorgeirsson, ráðu-
neytisstjóri, segir að stjórnvöld
geri engar athugasemdir við það
að ESB afli sér lagaheimilda til að
beita aðgerðum gegn ríkjum sem
stunda ósjálfbærar veiðar, eða
veiða án samkomulags við aðrar
þjóðir. „Við höfum slíkar heimild-
ir í okkar löggjöf. Aðalatriðið, hvað
okkur varðar, er að þær heimild-
ir sem við teljum ESB-löglegar
gagnvart EES-samningnum snúa
aðeins að löndunarbanni á skip
sem veiða úr umdeildum stofni.“
Heimildirnar sem núna hafa
verið samþykktar ná til innflutn-
ingsbanns á makrílafurðum en
Sigurgeir telur að slíkt samræm-
ist ekki EES-samningunum. „Þetta
eru almennar heimildir og þegar
og ef að því kemur að þeim væri
beitt gagnvart okkur, þá trúir
maður því ekki fyrir fram að þeir
beiti ekki heimildunum samkvæmt
þeim samningum sem í gildi eru
og uppfylla alþjóðlegar kröfur
og samningsskuldbindingar við
okkur,“ segir Sigurgeir.
svavar@frettabladid.is
Refsiaðgerðir frekar
ólíkleg framtíðarsýn
Samkomulag um heimild til reglugerðarsetningar vegna refsiaðgerða gegn
þeim sem stunda ósjálfbærar veiðar liggur fyrir hjá ESB. Að gripið verði til
refsiaðgerða gegn Íslandi vegna makrílveiða er hins vegar fjarlægur möguleiki.
KOMIÐ INN TIL LÖNDUNAR Makrílveiðarnar eru að skríða af stað og búið er að landa
rúmlega sjö þúsund tonnum. Makríll veður í Breiðafirði, segja heimamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
STJÓRNMÁL Sigurður Kári Kristjánsson, þáver-
andi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði
fram tillögu um miðjan síðasta áratug sem
uppfylla átti kröfu fatlaðra um aðstoðarmann
að eigin vali í kosningum. Málið fékkst ekki
afgreitt frekar en þegar Sigurður ásamt öðrum
lagði það fram aftur á þinginu 2010-2011, í
aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings.
„Þeir sem ábyrgð bera á því verða að útskýra
fyrir sig hvers vegna það var ekki gert þá og
hvers vegna ekki er búið að kippa þessu í lið-
inn og gera nauðsynlegar lagabreytingar fyrir
þessar forsetakosningar,“ segir Sigurður Kári.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
segist hafa talið að sú tilhögun sem höfð var
við kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember
2010 gæti haldið áfram. Þá gátu fatlaðir valið
eigin aðstoðarmann sem undirritaði sérstakt
heit hjá kjörstjóra.
„Þetta skýrir andvaraleysi mitt gagnvart
nauðsyn lagabreytinga strax,“ segir Ögmund-
ur. Hæstiréttur hafi hins vegar dæmt í janúar
2011 að stjórnvöld geti ekki vikið frá fyrirmæl-
um laga um framkvæmd kosninga.
„Af þessum sökum er því miður ekki unnt
að verða við kröfum um að fatlað fólk sem þarf
aðstoðar við í kjörklefa fái þá aðstoð á annan
hátt en skilgreint er í lögum,“ segir ráðherrann
sem kveðst í haust munu flytja frumvarp
um breytingar. „Af þessu tilefni vil ég biðja
fatlaða einstaklinga sem telja nú á sér brotið
afsökunar á því að lögunum hafi ekki þegar
verið breytt en framangreint er skýring á því
hvers vegna málum er háttað eins og raun ber
vitni.“ - gar
Tillögur um lagabreytingu vegna kosninga fatlaðra hafa aldrei fengist afgreiddar:
Ráðherrann biður fatlaða afsökunar
ÖGMUNDUR JÓNASSON Innanríkisráðherra boðar laga-
breytingar sem koma eiga til móts við kröfur fatlaðra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HVER ÞREMILLINN! Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóðaskap, hirðu-leysi, slysagildrur og fleira. thremillinn@frettabladid.is
Frá kr. 19.900
Frábært tilboð - Allra síðustu sætin
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 7 nátta ferð til Benidorm þann
3 júlí. Í boði er Hotel Melia **** með hálfu fæði Einnig bjóðum
við flugsæti aðra leiðina til og frá Alicante þann 3. júlí á
einstökum kjörum.
Frá kr. 19.900
Flugsæti aðra leiðina á mann með sköttum til og frá Alicante 3. júlí
Hotel Melia ****
Kr. 79.900 - með hálfu fæði.
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi með
hálfu fæði í viku. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með hálfu fæði kr. 89.900.
Aukagjald fyrir allt innifalið 19.900 krónur fyrir fullorðinn einstakling og
9.950 fyrir barn.
Allra s
íðustu
sætin
Benidorm
Allra síðustu sætin 3. júlí
Grasflötin á Eiðisgranda tekur
stakkaskiptum við bæjarmörk
Reykjavíkur og Seltjarnarness.
Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin
en Reykjavíkurmegin fá njólarnir
og úr sér sprottið grasið að vera í
friði fyrir sláttuvélunum.
„Þetta er á ábyrgð Vegagerðar-
innar. Hún tekur þrjá slætti við
allar stofnbrautir. Næsta umferð
fer bráðlega í gang,“ segir Bjarni
Brynjólfsson, upplýsingastjóri
Reykjavíkurborgar.
Það eru hins vegar starfsmenn
Seltjarnarnesbæjar sem slá grasið
sem vex innan þeirra bæjarmarka.
„Við sláum þegar þurfa þykir.
Þegar grasið fer að spretta þá
sláum við bara. Við höfum þetta
svolítið í hendi okkar, en það fer
líka eftir veðurfari hversu oft við
sláum. Svona svæði sláum við tölu-
vert oft. Við viljum hafa þetta fínt,“
segir Steinunn Árnadóttir, garð-
yrkjustjóri Seltjarnarness.
Bjarni segir borgaryfirvöld hafa
sparað í slætti undanfarin ár.
„Það voru farnar fjórar til fimm
umferðir hérna áður fyrr. Á vissum
stöðum, til dæmis í Hljómaskála-
garðinum, skrúðgörðum og svoleið-
is, er þessu enn þá haldið við á svip-
aðan hátt og áður. Það er á þessum
túnum við umferðaræðarnar sem
sparnaðurinn er tekinn.“ - ktg
Grasflötin við Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörkin:
Hróplegur munur á slætti
SLÁTTUR Grasið í Seltjarnarnesbæ er eins og golfvöllur en grasið í Reykjavík þarf
sárlega að slá. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJÖRKASSINN
Munt þú fylgjast með Lands-
móti hestamanna?
JÁ 10,1%
NEI 89,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að kjósa í forsetakosn-
ingunum á morgun?
Segðu þína skoðun á visir.is
UPPLÝSINGATÆKNI Datamarket er
meðal þátttakenda í stóru rann-
sókna- og þróunarverkefni sem
leitt er af Tækniháskólanum í
Berlín og fjármagnað að stórum
hluta af sjöundu rammaáætlun
Evrópusambandsins.
Verkefnið snýr að því að sam-
ræma aðgang að gagnasöfnum
og tengja þau saman, einkum
þau sem tengjast efnahagsmál-
um Evrópuríkja. Datamarket
mun afla og miðla tölulegum
gagnasöfnum, þar á meðal hag-
tölum og gengisupplýsingum
og myndrænni framsetningu
þeirra. Verkefnistíminn er tvö
ár og nemur fjármögnun ESB
tæpum tveimur milljónum evra
eða um 315 milljónum króna.
Datamarket fær 60 milljónir
króna. - sv
Datamarket í Evrópuverkefni:
Sextíu milljóna
króna verkefni
FERÐAMÁL Fosshótel opnar 41 her-
bergis hótel á Patreksfirði í maí á
næsta ári. Samningar þess efnis
voru undirritaðir á Patreksfirði í
gær. Það verður langstærsta hót-
elið á svæðinu segir Ásthildur
Sturludóttir, bæjarstýra Vestur-
byggðar. Hótelið verður í endur-
byggðu vinnsluhúsi en í því var
áður rekið sláturhús og fisk-
vinnsla.
Davíð Torfi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Fosshótela, segir
að heildarfjárfesting vegna kaupa
á fasteigninni og fyrirhugaðra
breytinga sé áætluð 350 til 400
milljónir króna. Um fimmtán til
tuttugu manns munu vinna við
rekstur hótelsins. Hann segir að
í hótelinu verði veitingahús og
veitingasalur fyrir um fjörutíu til
fimmtíu manns en einnig verði
reynt, í samvinnu við heimamenn,
að nýta félagsheimilið til funda,
ráðstefna og annarra viðburða, en
félagsheimilið er steinsnar frá. - jse
Framkvæmdir á Patreksfirði:
Gamalt slátur-
hús verður hótel
GRAFÍKMYND AF NÝJA HÓTELINU Svona
mun hótelið líta út þegar það verður
tilbúið í maí á næsta ári.
Veiktist á Esjunni
Göngugarpur á Esjunni veiktist í fjalls-
hlíðunum svo kalla þurfti til björg-
unarsveitir og slökkvilið í gærkvöldi.
Maðurinn var kominn upp að Steini
þegar honum þvarr kraftur og hann
komst ekki lengra.
Snerist á ökkla á Kirkjufelli
Björgunarsveitin Klakkur í Grundar-
firði sótti konu á Kirkjufell í gær. Hún
hafði snúið sig á ökkla og komst ekki
sjálf niður af fjallinu.
BJÖRGUN