Fréttablaðið - 29.06.2012, Page 24
6 • LÍFIÐ 29. JÚNÍ 2012
TÍMARIT: Finnst alltaf gaman að fletta erlendum glanstímaritum.
HEIMASÍÐA: Pinterest.com.
VEITINGASTAÐUR: Austur-Indíafjelagið.
VERSLUN: Geysir og KronKron.
FATAHÖNNUÐUR: Svo margir íslenskir hönnuðir sem koma upp í hugann, nefni til
dæmis ELLU og BIRNU.
DEKUR: Elska nudd, sérstaklega höfuðnudd.
LÍKAMSRÆKT: Jóga.
UPPÁHALDS
nokkru sinni fyrr. Fyrsta landsmót-
ið sem ég sótti og keppti á var árið
1998 á Melgerðismelum í Eyjafirði.
Þar keppti ég á fermingargjöfinni
minni, Hrafni frá Ríp, en við áttum
farsælan keppnisferil saman í nokk-
ur ár. Ég tók svo einnig þátt í lands-
móti í Reykjavík árið 2000 og á
Vindheimamelum í Skagafirði árið
2002. Síðan þá hef ég farið sem
gestur á landsmót og ekki misst
úr mót nema í fyrrasumar en þá
var ég löglega afsökuð á fæðing-
ardeildinni.
Viltu lýsa fyrir okkur hvað þú
færð út úr því að vera á hestbaki
og að umgangast hesta? Hesta-
mennska fyrir mér er svo miklu
meira en bara áhugamál. Ég er alin
upp í þessu sporti og lærði að meta
það mjög snemma. Nándin við
náttúruna og nándin og samspil-
ið við hestinn er engu líkt. Ég get
ekki hugsað mér að bjóða fjölskyld-
unni minni upp á betra sport. Í því
felst heilbrigð útivera og þroskandi
ábyrgð á meðhöndlun og umönn-
un hestsins sem er jú lifandi dýr. Þá
er það þannig í hestamennskunni
að kynslóðabil skiptir engu máli.
Í þessu sporti koma saman ungir
sem aldnir, ræða málin og ríða út
saman og aldur verður einhvern
veginn afstæður.
Þó að áherslan virðist hafa verið
á mót og keppnir á mínum yngri
árum í hestamennskunni þá hafa
hestaferðir alltaf staðið upp úr og
eru langir útreiðartúrar og hesta-
ferðir toppurinn á tilverunni í dag.
Það er bara engu líkt að setjast í
hnakkinn úti í náttúrunni og leggja
af stað í nokkurra daga hestaferð.
Þá, ef nokkurn tímann, tekst manni
að skilja allar heimsins áhyggjur
eftir heima og njóta lífsins til hins
ýtrasta.
Hvenær eignaðist þú fyrsta
hestinn þinn? Ég hef átt nokkra
hesta. Minn fyrsta hest fékk ég í
fermingargjöf árið 1997. Hann hét
eins og áður sagði Hrafn frá Ríp.
Síðar eignaðist ég hest úr eigin
ræktun fjölskyldunnar, Tind frá
Brekkum, sem fylgdi mér í gegn-
um menntaskólaárin og fram yfir
tvítugt. Árið 2009 eignaðist ég svo
Topp frá Litla-Moshvoli, sem er
mikill gæðingur og kemur til með
að vera minn framtíðarreiðhest-
ur þó að ég hafi ekki getað sinnt
honum sem skyldi síðustu misseri
vegna heimshorna flakks og barn-
eigna. Hann hefur þó verið í góðum
höndum bróður míns, Steinars
Torfa, á meðan.
Hvernig gengur útivinnandi
móður að sinna hestaíþróttinni?
Það hefur í raun ekki reynt á það
enn þá en þegar ég lauk námi nú í
vor og dóttir mín, Erla Rún (1 árs),
hóf leikskólagöngu var komið að
því að sleppa þeim hrossum sem
höfðu verið á húsi í vetur út á grænt
gras. Við hjónaleysin erum hins
vegar búin að bóka okkur í eina
hestaferð á Snæfellsnesið í júlí og
hlökkum mikið til.
Hafa stelpurnar ykkar fengið
að kynnast hestunum? Erla hefur
fengið að tylla sér á bak ásamt
systur sinni, Lilju Karitas, sem hefur
mikinn áhuga. Ég held hins vegar
að Erla Rún átti sig lítið á þess-
um stóru skepnum og á því hversu
stóra rullu þær munu að öllum lík-
indum spila í hennar lífi. Ég vona að
ég komi til með að geta gefið henni
þessa heilbrigðu og jákvæðu æsku
sem ég upplifði í hestamennskunni
með mömmu og pabba.
Talandi um að vera útivinn-
andi. Hvað starfar þú við í dag?
Ég starfa sem lögfræðingur hjá Ís-
lensku lögfræðistofunni. Þar hóf ég
störf strax eftir að ég lauk námi í
vor og held áfram að læra af mér
reyndari körlum og konum í faginu.
Þetta er frábær vinnustaður, góður
starfsandi og nóg að gera.
Hefur þú tíma fyrir önnur
áhugamál? Tíma og ekki tíma. Eins
og ég segi, þá er hestamennskan
svo miklu meira en bara áhugamál
og í mínu tilfelli er það einfaldlega
svo að ég hef ekki áhuga á að tína
til eða sinna öðrum áhugamálum
þegar hestamennskan hefur ekki
einu sinni fengið þann tíma sem ég
vildi geta gefið henni.
Ég vona að ég komi
gefið henni þessa he
kvæðu æsku sem ég
mennskunni með mö
Framhald af síðu 4
gríptu
með þ
ér
betra
tyggjó
ÞREFA
LT
gríptu
með þ
ér
betra
tyggjó
ÞREFA
LT
Nýtt Mentos tyggjó