Fréttablaðið - 29.06.2012, Qupperneq 30
HELGARMATURINN
TRYLLTUR
FATAMARKAÐUR
Tískutvennan Elma Lísa og Eva Ýr ætlar að halda trylltan
fatamarkað næstkomandi laugardag að eigin sögn en þær
hafa getið sér gott orð fyrir smekkvísi mikla. Markaðurinn fer
fram á Lindargötu 6 á milli kl. 12-18. Margt flott verður í boði;
kjólar, kápur, skór, töskur, jakkar, buxur, skyrtur, góss og
glingur. Ýmis merki og vintage-molar leynast líka á slánum
meira að segja smá fyrir strákana.
„Hver kannast ekki við það
að vera að labba úti, finna
skyndilega grilllykt og hugsa
með sér: „Hver er að grilla?“
Svarið er einfalt, ég er að
grilla,“ segir gleðigjafinn
og útvarpsmaðurinn Krist-
ján Ingi Gunnarsson sem
deilir uppskrift með Lífinu að
þessu sinni.
„Ég mæli klárlega með því að
gera vel við sig af og til og þá
er RED ROY-naut úr Kjöthöllinni
málið. En það verður að með-
höndla vel og mikilvægt er að
leyfa því að ná stofuhita áður
en því er skellt á Landmann-
grillið á fullum hita. Best er að
krydda kjötið með guðdóm-
legu RED ROY-steikarkrydd-
blöndunni sem kjötmeistarinn
blandar. En athugið að það er
stranglega bannað að fullelda
nautið.
Meðlæti:
Sætar og venjulegar kartöflur
skornar í smáa teninga, dreifið
púðursykri yfir, fersku engifer
og kreistið að lokum eina
ferska appelsínu yfir.
Bakið blönduna í 30 til 40 mín.
við 200 gráður í ofni eða setjið
hana í álpappír á grillið.
Ferskt salat
Gott er að
setja ananas,
mangó og
hnetur út í hið
hefðbundna
salat svona til
tilbreytingar.
Sósan á kantinum
heitir Jón, getur ekki klikkað.
Hentar vel með lambi og nauti.
200 gr sýrður rjómi
100 gr majones
1 tsk rósmarín
100gr dijon-sinnep
1 msk sojasósa
1 tsk karrí
50 gr púðursykur
2 dl rjómi
og jafnvel hvítvín