Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 38
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. lampi, 6. í röð, 8. sjór, 9. draup, 11.
ekki heldur, 12. frétt, 14. skran, 16.
skóli, 17. gerast, 18. skelfing, 20. tveir
eins, 21. milda.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. umhverfis, 4. máski,
5. viður, 7. at, 10. kirna, 13. loft, 15.
sá, 16. mælieining, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lukt, 6. áb, 8. mar, 9. lak,
11. né, 12. fregn, 14. drasl, 16. ma, 17.
ske, 18. ógn, 20. ii, 21. lina.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. um, 4. kannski,
5. tré, 7. bardagi, 10. ker, 13. gas, 15.
leit, 16. mól, 19. nn.
Sjáðu hvað þau
eru sæt saman!
Kannski gifta
þau sig einhvern
daginn?
Já...
kannski!
Kannski
eignast
þau börn
saman?
Biddu
fyrir þér
nei!
Af hverju
segirðu
það?
Uuuu... vegna
þess að veröldin
er of grimm fyrir
börn! Svo yrðu
tannréttingaút-
gjöldin alveg
svakaleg!
Þú ert svona
tilfinninga-
vera, Maggi!
Jú, jú,
það er
ég!
Það er svo mikil
snilld að hafa
húsið út af
fyrir sig.
Ég er aleinn!
Ég gæti gengið nakinn
um húsið ef ég vildi!
Svona snilldarhug-
myndir eru að fara
koma mér í toppstöður í
framtíðinni.
Jæja. Hvernig var
dagurinn þinn?
Var þetta
svarið þitt?
Þetta var fyrir
að spyrja.
SLUUUUUUUUURP
Íslendingar eru ekki sammála um margt en ég hugsa að 99 prósent landsmanna
séu sammála um það að íslensk umræðu-
hefð sé ömurleg. Ég hef ekki tölu á öllum
þeim pistlum, statusum og kommentum
sem ég hef lesið um hvað umræðan sé
vond; að við séum sífellt að karpa um auka-
atriði, fara í boltann en ekki manninn,
færa ekki rök fyrir máli okkar og svo er
smiðshöggið rekið með tilvitnun í það sem
Halldór Laxness sagði um kjarna málsins.
Allt má þetta sjálfsagt til sanns vegar
færa. Hins vegar er umhugsunarefni hvers
vegna umræðuhefð, sem svo mikil og víð-
tæk óánægja ríkir um, er stunduð af
jafn miklu kappi og raun ber vitni.
HELSTI vettvangur hinnar eitruðu
umræðu er vitaskuld netið, þar sem
allstór hópur fólks hamast við að hafa
ekkert fram að færa og fréttir net-
miðlanna snúast í auknum mæli um
hvað einhverjum finnst. Það er gömul
tugga að allir eigi rétt á sinni skoðun
og að það sé bara gott að fólk hafi
ólíkar skoðanir. Það er ágætt
eins langt og það nær en þótt
manni finnist eitthvað
þýðir það ekki að það
eigi sjálfkrafa sérstakt
erindi í umræðuna.
Allar skoðanir eru
nefnilega ekki jafn-
gildar.
ÉG ÞEKKI þetta á eigin skinni. Ég er of-
boðs lega skoðanaríkur. Það fer í taug-
arnar á mér þegar fólk er ósammála mér
og ég hef ríka þörf fyrir að eiga síðasta
orðið í samræðum. Sumsé uppskriftin að
hinum óþolandi netverja. Á ein hverjum
tímapunkti áttaði ég mig á að það væru
ekki forréttindi annarra að heyra skoð-
anir mínar á hinum og þessum álita-
málum og ég fór að gera mér far um að
reyna að sitja á strák mínum. Mæla þarft
eða þegja. Mér dettur ekki í hug – allra
síst í skoðanapistli – að halda því fram að
það hafi alltaf lukkast en viðleitnin er að
minnsta kosti til staðar.
LÝÐRÆÐISLEG og frjáls umræða er auð-
vitað af hinu góða og það er jákvætt að
láta sig málin varða og leggja orð í belg
á opinberum vettvangi. Það getur líka
verið gaman að skeggræða málin í góðra
vina hópi; leysa lífsgátuna, laga fjár-
lagahallann og finna leiðina að því að
gera knattspyrnudeild Harðar á Patreks-
firði að Íslandsmeistara í einu samtali.
En stundum fær maður á tilfinninguna
að sumir rugli saman skoðanafrelsi og
skoðanaskyldu. Þótt orðið sé frjálst þarf
ekki að láta það hlaupa með sig í gönur.
Í mörgum tilfellum er rétturinn til að
halda skoðunum okkar fyrir okkur sjálf
hugsanlega það besta sem við getum gert
íslenskri umræðuhefð eins og fyrir henni
er komið.
Umræðan um umræðuna
Heimsókn að
Mánaskál
Kolbrún, Atli og Þórdís Katla una sér ein í Laxárdal
þó gemsasamband sé ekkert og sjónvarpsskilyrðin
slæm.
Meðal annars efnis:
Kaffi, Rammstein og svefngrímur
Margir rithöfundar koma sér upp ákveðnum
verkreglum eða venjum við skriftir.